Morgunblaðið - 05.10.1968, Side 28
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFGR EIÐSLA • SKRIFSTO FA
5ÍIVII '10*100
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1968
SAS býður Flugsambandi Færeyja
hluta Fí í Færeyjaflugi
Engar viðrœður um málið hafa farið
fram við Flugfélag Islands
SAS hefur boðið Flugsambandi
Færeyja hluta Flugfélags íslands
í Færeyjafluginu, að því er Arge
fréttaritari Mbl: í Færeyjum sím
ar. Þessar upplýsingar komu
fram á aðalfundi Flugsambands-
ins og var þar sagt, að með
þessu yrði stefnt að því að Flug-
sambandið yfirtæki hlutverk
Flugfélags fslands frá og með 1.
apríl 1969. Mun Flugsambandið
þar með taka við öllum rekstri
Færeyjaflugsins.
Lögþingið í Færeyjum mun
auka höfuðstól Flugsambandsins
um 500.000 krónur og verður
hlutaféð þá tæplega ein milljón
krónur. Flugsambandið verður
þó fyrir þann tíma að hafa feng-
ið samning Faeroairways ógilt-
an, en sambandið gekk inn í
skuldbindingar þess, er það var
gert upp. Að formi til er þessi
samningur enn í gildi.
Að svo stöddu mun Skipafé-
lag Færeyja ekki leggja til pen-
inga í Flugsambandið, þar sém
Lögþingið hefur sett þau skil-
yrði, að það eigi a.m.k. 50% í
Flugsambandinu.
Mbl. bar þessa frétt undir for-
stjóra Flugfélags fslands, Örn
Johnson og sagði hann:
Á sínum tíma, er Flugfélag ís-
lands og SAS gerðu samning um
sameiginlegan rekstur Færeyja-
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Síldarútvegsnefnd hefir til
þessa verið samið um fyrirfram-
sölu á samtals 353 þús. tunnum
af saltaðri Norður- og Austur-
landssíld til Sviþjóðar, Sóvét-
ríkjanna, Finnlands, Bandarikj-
anna, Danmerkur og Vestur-
Þýzkalands. Heildarsöltun Norð
flugsins, sem tók gildi á sl. vori,
var g;rt ráð fyrir því, að Fær-
eyingum yrði boðin þátttaka í
rekstrinum að einum þriðja. Eins
og nú er hefur SAS á hendi %
hluta samningsins og Flugfélagið
%, þótt það annist rekstur flugs-
ins. Engar viðræður hafa átt sér
stað um að Flugfélagið léti eftir
sinn hluta að þessum samningi,
sem gildir í 3 ár, eða til 1. apríl
1971.
ur- og Austurlandssíldar nemur
nú 104.743 tunnur. Af þessu
magni hafa 66.095 tunnur verið
saltaðar um borð í skipum á
veiðisvæðinu.
Samningaumleitanir standa yf
ír um fyrirframsölu á Suður-
Iandssíld.
Dráttarbrautin á
Fyrirframsölur nema
353 þúsund tunnum
Saltað hefur verið i 104.743 tunnur
Skafti Áskelsson sýnir sjávarútvegsmálaráðherra, Eggert G.
Þorsteinssyni, nýju strandferðaskipin, sem verið er að smíða
á Akureyri. — Ljósm. Sv. P.
Opið í dag
SKRIFSTFOA Sjálfstæðisflokks-
ins í Sjálfstæiðshúsinu við Aust-
urvöll verður opin í dag frá kl.
9—6. Verður þar tekið á móti
skilum í Landshappdrætti flokks
ins.
Slökkviliðið var í fyrrakvöld,
kl. 23.15, kvatt að bifreiðaverk-
stæði í Krossmýrarbletti. Þar
logaði upp úr þekju á talsvert
stóru húsi og var mikill eldur.
Slökkvistarf gekk greiðlega, en
miklar skemmdir urðu af eldin-
Akureyri, 4. október.
NÝJA dráttarbrautin á Akur-
eyri var vígð og formlega tekin
í notkun í morgun, en þá var
m.s Helgafell dregið á land. Egg-
ert G. Þorsteinsson .sjávarútvegs
málaráðherra, vígði brautina
með því að ræsa vinduna, sem
dregur vagn brautarinnar.
Tveir bílar voru á verkstæð-
inu, Volkswagen og jeppabifreið
Skemmdust bílarnir mjög mikið
og eru þeir líklegast ónýtir.
Verkstæðið var mannlaust, er
eldsins varð vart.
Athöfnin hófst kl. 10.30 með
því að forseti bæjarstjórnar,
Bragi Sigurjónsson flutti ávarp
og bauð gesti velkomna. Síðan
gekk ráðherrann inn í .vinduhús-
ið og sneri hjóli, sem setti afl-
vélar brautarinnar í gang. Pétur
Bjarnason, verkfræðingur, sem
hefur haft umsjón með gerð
brautarinnar af hálfu hafnar-
nefndar Akureyrar leiðbeindi
ráðherranum.
Setning Helgafells gekk ágæt-
lega, en skipið er 2194 brúttólest-
ir og 88,2 m að lengd. Það verð-
ur botnhreinsað næstu daga af
starfsmönnum Slippstöðvarinn-
ar h.f. Áður hafa verið tekin á
land 8 skip, þar af fjórir togarar,
en Helgafell mun vera stærsta
skip, sem tekið hefur verið upp
í íslenzka dráttarbraut. Brautin
hefur reynzt vel.
Að athöfninni lokinni bauð
Skafti Áskelsson, forsfjóri Slipp-
stöðvarinnar, gestum hafnar-
stjórnar að skoða húsakynni
Mikill eldur í
bifreiðaverkstæ&i
um.
Töfluþjófurinn sat inni
fyrir sprengiefnaþjófnað
— megnið af töflunum enn ófundið
ÞJÓFURINN, sem brautzt
inn í Ingólfs Apótek aðfara-
nótt þriðjudags og stal um
15000 taugaróandi töflum, er
fundinn og reyndist það vera
sami maðurinn og stal sprengi
efninu í Kópavogi um helgina.
Rannsóknarlögreglunni var í
fyrrakvöld bent á, að í húsi
einu við Háagerði hefðu menn
taugaróandi töflur undir hönd
um. Þegar hún kom á staðinn
voru þar fjórir menn, vart
viðmælandi sakir annarlegra
áhrifa. Við leit í húsakynnun-
um fundust 1500 Valiuim-töfl-
ur þar í kökuboxi og aðrar
500 fundust á einum mann-
anna. Þeir voru allir handtekn
ir og við yfirheyrslur í gær
tilnefndu þeir þann, sem hafði
útvegað þeim töflurnar. Var
rannsóknarlögreglan fljót að
hafa upp á honum, því hann
sat inni í Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg fyrir
sprengiefnaþjófnaðinn. Ját-
aði hann strax á sig innbrot-
ið í Ingólfs Apótek, en kvaðst
ekki vita, hvar afgangurinn
af töflunum væri niður kom-
inn. Þessi maður var handtek
inn á þriðjudagsmorgun í
þessu sama húsi við Háagerði
og var hann þá undir ann-
arlegum ábrifum.
stöðvarinnar og framkvæmdir I Auk þess hafði nokkur hópur
við smíði nýju strandferðaskip- fólks safnazt saman til að vera
anna. við þessa hátíðlegu athjfn. Þá
Viðstaddir voru ýmsir em- var fréttamönnum gefinn kostur
bættismenn ríkisins, allþings- á að vera viðstaddir þennan
menn, forstjórar skipafélaga o.fl. hluta hátíðahaldanna, — Sv. P.
Eldsvoði á Hofs-
ósi í gœrmorgun
Hofsósi, 4. október.
UM tíuleytið í morgun kom upp
eldur í íbúðarhúsi hér í þorp-
inu, húsi Jóhanns Eiríkssonar,
afgreiðslumanns Skeljungs.
Brann allt innan úr húsinu, sem
er stéinhús og þar með gamalt
og gróið heimili. Logn og sól-
skin var en nokkurt frost. —
Slökkvistarfi var ]okið um kl. 14.
Jóhann var einn heima, er elds
ins varð vart. Hafði hann brugð-
ið sér frá til þess að afgreiða
benzín á bíl, en skildi eftir pott
á eldavélinni, en í honum var
hann að bræða mör. Er hann
kom aftur inn var húsið alelda
í innlnndsflugi
í Dnnmörku
SAMKVÆMT samningi SAS og
Flugfélag íslands um Færeyja-
flug snemma á þessu ári, var
gert ráð fyrir að Fokker Fri-
endship-flugvélin, sem notuð hef
ur verið á leiðinni til Færeyja
yrði á innanlandsleiðum í
Danmörku í vetur. Hinn 1. októ-
ber fækkaði ferðum til Færeyja
og hóf þá flugvélin innanlands-
flugið.
SAS leigir nú flugvélina af
sameiginlegum sjóði félaganna
og mun flugvélin halda uppi á-
ætlunum milli Kaupmannahafn-
ar annars vegar og Rönne og
Billund hins vegar. Á flugvél-
inni verða íslenzkar áhafnir.
að innan. Missti Jóhann allt inn-
bú sitt sem var gamalt og fallegt
heimili — lágt vátryggt eða að-
eins fyrir 100 þúsund krónur. Hið
eina sem bjargaðist var skrif-
borð Jóhanns, en í því voru á
annað hundrað þúsund krónur í
peningum.
Jóhann bjó í húsinu ásamt dótt
ursyni sínum, en hann var að
heiman, er eldsins varð vart.
Norðurstjarnnn
hráefnislítil
ENGIN Skipuleg leit er nú að
síld hér sunnanlands, að því er
Pétur Pi tursson, forstjóri Norð-
urstjörnunnar í Hafnarfirði tjáði
Mbl. Þó mun einn bátur úr
Grindavík hafa verið að leita fyr
ir sér.
Pétur tjáði Mbl. að forráða-
menn Norðurstjörnunnar væru
vonsviknir, vegna óskipulegrar
leitar, en verksmiðjan á nú orð-
ið lítið hráefni og horfir illa með
vinnslu, ef ekki rætist úr.
Nýr lyfsali í Kópavogi
í fréttatilkynningu frá dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu, er
Mbl. barst í gær, hefur Matthí-
asi Ingibergssyni, lyfsala, verið
veitt lyfsöluleyfi í Kópavogs-
kaupstað frá og með 1. janúar
1969.