Morgunblaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1968 3 FYRSTA málverkauppboð Sig urðar Benediktssonar í vetur hefst að Hótel Sögu kl. 5 í dag. Á uppboðinu verða seld mörg falleg og eiguleg málverk og ein höggmynd eftir Einar Jónsson myndhöggvara. Alls eru númer- in á uppboðsskránni 53. Sigurður Benediktsson sagði í viðtali við Mbl. í gær, að mjög fátítt væri að höggmyndir eftir Einar Jónsson kæmu inn til sölu, ekki' sízt ef þau væru steypt í málm. Höggmyndin, sem seld verður, nefnist Dögun, og er hún 67 cm. há. Einar Jónsson vann að myndinni á árunum 1901 - 1908, en talið er að af- steypan hafi verið gerð í Kaup- mannahöfn 1910. Ekki vildi Sig- Við Njarðargötuna, málverk eftir Kristínu Jónsdóttur Fyrsta málverkauppboö vetrarins hjá Sig. Ben. Afsteypa af höggmyndinr.i, Dögun, eftir Einar Jónsson og málverk, m.a. eftir Kjarval, Ásgrím, Jón Stefánsson, Kristínu Jónsdóttur og Cunnlaug Blöndal Þórðarson- fremur lítil lands- lagsmynd máluð 1924. Brynjólfur var mjög efnilegur listmálari, en dó ungur. Málverk eftir hann eru mjög fáséð. Eftir Gunnlaug Scheving eru þrjú málverk, eitt eftir Gunn- laug Blöndal, eitt eftir Þorvald Skúlason og þrjú eftir Kristján Davíðsson. Af yngri málurum, sem verk verða seld eftir má nefna, Kára Eiríksson, og Ragnar Pál Einars son. LEIÐRÉTTING á grein Tryggva Ófeigssonar í blaðinu í gær: Bls. 16., 2. dálki 3. línu að ofan. í handriti 1/3. í prentun 1,3. Sömu síðu aftasta dálki 36. línu. Síðasta málsgrein. I handriti: Þá er vitað, að sjávarútvegsmálaráð herra er mjög hlynntur togaraút- ger'ð og fyrirgreiðslu til þeirra og hefir ekki látið hafa sig til óhæfuverka. 1 prentun hefir fall ið niður á eftir orðinu togaraút- gerð: Og fyrirgreiðsla til, sem breytir merkingu greinarinnaæ. urður gizka neitt á hvað myndin mundi seljast, en sagði að líklegt væri að það eitt að steypa slíka mynd í málm mundi kosta um 60 þús. krónur. Sem oft áður eru margar myndir eftir Kjarval á uppboði Sigurðar. Að þessu sinni eru þær 12, þar af margar nýjar eða nýlegar. Elzta og jafnframt stærsta Kjarvalsmyndin nefnist Álfabjörg og er hún 104x137 cm. Meistarinn byrjaði á þeirri lokið henni fyrr en 1952. Tvö málverk eftir Ásgrím Jónsson verða seld á uppboðinu. Annað er frá Bíldudal og er það málað 1909, sérstaklega fal- legt málverk og hin myndin er máluð í Húsafellskógi. Eftir Kristínu Jónsdóttur verða seld tvö olíumálverk. Nefnist annað Við Njarðar- götuna, en hitit Nature morte. Hefur verið gerð eftirprentun eftir því málverki, en að sögn Dögun — höggmynd eftir Eina r Jónsson Röddin bak við fjallið, ný Kj arvalsmynd. vert mikið verðgildi frummyndar innar. Málverk eftir Kristínu koma sjaldan inn rtil sölu og eru orðin mjög eftirsótt. Eftir Jón Stefansson er eitt, en mjög fallegt olíumálverk. Nefnist það Hestar í sumar- haga. Þá er ein mynd eftir Brynjólf STAKSTEIMAR Er kjaraskerðingin j komin íram? Að undnförnu hefur veriB bent á þá staðreynd, að gjaldeyr- istekjur þjóðarinnar hafi minnk- að um rúmlega 40% á tveimur árum. Þjóðviljinn hefur í tilefni þessara ummæli sagt, að þessi samdráttur í gjaldeyirstekjum væri ekki nema að takmörkuðu leyti forsenda fyrir gagngerðum efnahagsráðstöfunum nú, vegna þess, að þegar á sl. ári hafi meg- inhluti þessa samdráttar verið kominn fram og þá hafi verið gerðar ráðstafanir til að mæta honum. 1 framhaldi af þessari röksemdafærslu Þjóðviljans er ástæða til að líta örlítið yfir far- inn veg. Verðfallið erlendis hófst á miðju ári 1966 og í kjölfar þess fylgdi aflabrestur á vetrar- vertíð 1967 og síldarvertíðum 1967 og í ár a.m.k. fram að þessu. Hins vegar hafa áhrifin af þess- um áföllum ekki komið fram í tekjum almennings fyrr en á þessu ári að nokkru ráði. Það þýðir, að almenningur hefur ver ið verndaður fyrir afleið- ingum þessara áfalla með að- gerðum stjórnarvalda. Á ár- inu 1967 kom raunverulega engin kjaraskerðing fram nema hjá takmörkuðum hópum í þjóð- félagnu. Sjómenn urðu fyrir veru legri tekjurýrnun svo og bygg- ingariðnaðarmenn og verkmenn að litlu leyti. Þessir hópar eru hins vegar svo fámennir, að þeg- ar á heildina er litið, nam rýrn- un raunverulegra atvinnutekna á árinu 1967 aðeins um 1%. Þær efnahagsráðstafanir, sem gripið var til seinni hluta árs 1967 komu svo seint, að þær höfðu sáralítil áhrif á kjör almennings það ár- ið. Kjaraskerðing vegna sam- dráttar í gjaldeyristekjum ársins 1967 kom því ekki fram það ár og þess vegna tóku atvinnufyrir- tækin á sig áföllin að mestu leyti jafnframt því sem gjaldeyr isvarasjóðurinn minnkaði. Þróunin 1968 í skýrslu Efnahagsstofnunar- innar til Hagráðs í maí sl. kemur fram að gera megi ráð fyrir, að þróun verðlags og kaupgjalds á þessu ári leiði til þess, að kaup- gjaldið verði að meðaltali 6-7% hærra á þessu ári en sl. ár og verðlagið 13-14% hærra. Þetta þýðir, að kjörin versna á þessu ári, almennt talað, um 6-7% og er þá ekki gert ráð fyrir 20% innflutningsgjaldinu og hækkun búvöruverðs, sem komið hafa til síðar. Það er alveg rétt hjá Þjóð- viljanum að með þeim aðgerð- um, sém leitt hafa til þessarar kjaraskerðingar er búið að ganga töluvert til móts við þann gíf- urlega samdrátt, sem orðið hef- ur í gjaldeyrisöflun lands- manna. En það er samt sem áður ekki búið að gera nægilegar ráð- stafanir til að brúa bilið og að því er einmitt unnið þessa dag- ana að skýra þá mynd, hversu víðtækar ráðstafanir þarf enn að gera. í því sambandi verður að hafa í huga að á þessu ári hef- ur verðfallið enn haldið áfram og aflabrestur á síldveiðunum er enn hrikalegri en í fyrra. Enn- fremur verður að taka það með í reikninginn að með því að vernda lífskjör almennings 1967 var gengið mjög nærri atvinnufyrirtækjunum. Vilji menn stuðla að nægri at- vinnu er engin leið til önnur en sú að efla atvinnufyrirtækin á ný. Það eru þau, sem veita at- vinnuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.