Morgunblaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1968 Danski forsætisráöherrann enn hiynntur norrænu tollabandalagi Verðum við íslendingar aðilar? ★ Danski forsætisráffherrann Hilmar Baunsgaard er enn þeirrar skoffunar aff Norffur- löndin eig’i aff mynda með sér tollabandalag. Sérstök ástæffa sé tii þess aff hraffa myndun slíks bandalags, eftir síffustu neitun de GauIIe um að taka Breta og Norffurlöndin þrjú inn í EBE, eins og þau hafa beiffst. Kveffur Baunsgaard nauðsynlegt aff taka máliff upp af alvöruþunga um nýáriff, þ.e. eftir rúma tvo mánuffi. ic Þessar upplýsingar koma fram í mjög frófflegri grein, sem danski forsætisráffherr- ann hefur alveg nýlega ritaff í danska tímaritið „Markeds- ökonomi". Eins og sakir standa starfar norræn em- bættismannanefnd, skipuð háttsettum mönnum viffskipta málaráðuneytanna, og skal hún skila áliti fyrir nýár til rikisstjóma Norðurlandanna. Við Islendingar eigum full- trúa í þessari nefnd, sem hef- ur fylgzt náiff meff störfum hennar. Spurningin er hins- vegar þessi: Teljum viff Islendingar aff norrænt tollabandalag sé okk- ur í hag? Virffist tímabært aff hefja umræffur um þennan kost, einnig hér á landi. jc Danski forsætisráffherrann bendir á að slíkt tollabanda- lag myndi hafa marga kosti fyrir þjóffir Norffurlanda. Einn kosturinn væri sá aff unnt væri aff gera landbún- aðinn á Norffurlöndum ný- tízkulegan og koma þar viff hagræffingarsamvinnu, ef öll löndin væru í tollabandalagi og framleiddi hvert land þaff sem því væri hagkvæmast. í öffru lagi væri hér um hagræffi aff ræffa fyrir sam- eiginlega verzlunar- og viff- skiptastefnu Norðurlanda. Þá myndu skapazt möguleikar til viffskipta, sem ekki eru nú fyrir hendi, er hvert land stendur eitt, m.a. til mjög auk inna viffskipta og útboffa í Austur-Evrópu. Nú er unniff aff því í sam- vinnu sérfráeffinga Norffur- landanna aff semja eina gmnd vallar tollskrá, sem er vegiff Hilmar Baunsgaard. meðaltal af öllum sértollum hvers Norffurlandaríkis. Er viff þaff miffaff aff hinn vænt- anlegi, effa réttara sagt, hugs- anlegi sameiginlegi ytri tollur Norffurlanda, verffi sem lík- astur tolli Efnahagsbandalags Evrópu, þannig aff litlu þyrfti aff breyta, ef Norffurlöndin þrjú, án íslands, gengju í EBE. Þá leggur Baunsgaard mikla áherzlu á þaff í þessari merku grein sinni aff öll markaffs- leit og iffnaffaruppbygging á Norffurlöndum verffi miklu auffveldari, ef öll löndin vinna aff henni í sameiningu, í inn- byrffir tollabandalagi, en nú er. ic Tollabandalagiff norræna myndi þýffa þaff fyrir okkur Islendinga aff vörur okkar yrffu seldar tollfrítt á Norffur löndum og allar norrænar vör ur fengjust tollfrítt, þ.e. á verulega lægra verffi en nú er. Jafnframt þyrftum viff aff samræma okkar tolla tollum Norðurlandanna, aff því er veit aff öffrum þjóffum. Al- mennt talaff myndi slíkt þýffa í framkvæmd aff viff yrffum aff lækka tolla okkar veru- Iega gagnvart umheiminum. Ekki liggur fyrir nein af- staða íslenzkra stjórnvalda enn til þess máls. Danir stórauka húsgagnaútflutning sinn Hvenœr sameinast íslenzkir framleiðendur og hetja útflutning ? AÐ því er varðar fram- leiðslu húsgagna eru Danir í sama bát og við íslendingar hvað hrá- efnið snertir. Þeir flytja nær allan þann við inn, sem þeir gera húsgögn úr. Samt sem áður eru dönsk húsgögn eftirsótt og þekkt um heim allan — og þá ekki síður hér á íslandi en annars staðar. Dæmi Dana er hvatning fyrir okkur íslendinga. Það sýnir að unnt er að byffgja upp sterkan og ábatasaman útflutnings- atvinnuveg, þótt flytja þurfi inn hráefnið — að- eins ef hugkvæmni og verksvit fær að ráða. Spurningin er því þessi: Geta ekki íslenzkir hús- gagnaframleiðendur lært meira af reynslu Dana en þeir hafa hingað til gert? Er ekki útflutningur ís- lenzkra húsgagna fram- tíðarmál iðnaðarins? STÓRAUKINN ÚTFLUTNINGUR DANA Hér á eftir verffur getið nokkurra staðreynda um útflutn ing Dana á húsgögnum síffustu árin, til fróðlleiiks fyrir þá, sem áhuga hafa á þessum málum. Áriff 1965 flutfcu Danir úit hús- Nánari tengsl Breta við EBE — sífellt fil umrœðu. Fundur í Róm í mánaðarlok FORMAÐURINN fyrir stjórnar- nefnd Efnahagsbandalagsins, Jean Rey, kom í heimsókn til Parísar nú í lok september til viffræffna viff franska utanríkis- ráffherrann Michel Debré. Utan- ríkisráffherra Hollands Joseph Luns kom einnig til þessa fund- ar. Fundurinn hefur vakiff mikla athygli í Efnahagsbandalags- löndunum og þykir benda til þess, eftir því sem fréttaritari Berlinske Tidende í Brussel segir, að þau fimm riki, sem eru í Efnahagsbandalaginu, ásamt Frökkum, leggi nú mjög vaxandi áherzlu á þaff aff Bret- um verffi leyfff innganga í bandalagiff. Hingaff til hafa þaff veriff Frakkar, sem kunnugt er, sem hafa staffið sem veggur gegn inngöngu Breta. í lok þessa mánaðar verffur haldinn í Róm ráffherrafuíndur Vestur-Evrópu handalagsims. í því bandalagi eru sexveldin að- ilar auk Breta, em hvorki Noreg- ur, Danmörk eða írland, sem einnig hafa sótt um immgöngu í E fnah »g? bandalagið. Bandalag þetta var sefct á laggimar af fyrr töldum meginlandsþjóðum og Bretum eftir að samningavið- ræðurnar um vamarbandalag Vestur-Evrópu höfðu farið út um þúfur, fyrir allmörgúm ár- um. Er talið að á Rómarfundin- um verffi gerð ný tilxaun af hálfu vina Breta innan Efna- hagsbandalagsiins að ná ein- hvers konar samkomulagi milli þess og Breta um nánari tengsl Breta við bandalagið, sem síðar verði að fu'llri aí5ild. Þá herma fréttix frá Brussel að ríkin fimm í Efnahagsbanda- laginu, utan' Frakklands, hafi mikinn áhuga á því að endur- skoða Rómarsamniiniginn, sem bandalagið byggist á svo að auð- veldara verði fyrir þjóðir sem Breta að gawga í bandalagið. gögn fyrir samtals 306 milljónir danskar krónur, eða um tvo milljarða íslenzkra króna. Árið 1967 hafði útflutningurinn vaxið í 331 millj. danskra króna. Og fyrstu sjö mánuði ársins 1967 J. D. Lawaetz, formaffur sam- bands danskra húsgagnafram- leiðenda. var flutt út fyrír 17 miLlj. d. kr. en fyrstu sjö mánuðina í ár fluttu Da-nir út húsgögn fyrir 213 millj. d. kr. Af þessum tölum má sjá að um mikla aukningu í úflutningn- um heur verið að ræða á þessu ári eða 25% aukningu. Formaður danska húsgagna- smiðasambandsins, J. D. La- waetz segir að til grundvallar þessum framförum innan iðnað- arins liggi ýmis atriði. Hann nefnir stærri framleiðslueining- ar, meiri áhugi á góðum teikn- ingum, meiri áherzlu á vöru- vöndun og hagræðing í fyrir- Framhald á bls. 21 Alþingi og EFTA Lofsvert framtak NÚ líffur senn aff því aff Al- þingi komi saman og setjist aftur á rökstóla. Því er túna- bært aff velta því fyrir sér hvort það þing muni stiga þaff merkilega og örlagaríka skref aff heimila aff samninga- viffræffur hefjist viff Fríverzl- unarbandalagiff, EFTA, um hugsanlega aðild Islands að bandalaginu. Því hefur áður verið haldiff fram á þessari síðu, og þaff skal enn ítrekaff, að ekki er minnsti vafi á þvi aff slík aðild verffur íslenzku efnahagslífi til heilla og hags- bóta, þegar til lengdar lætur. Viff erum fámennasta ríki álfunnar, sem kalla viU sig sjálfsætt ríki. Því er okkur þaff höfuffnauffsyn aff öfflast möguleika til þess aff selja vörur okkar á stórum mark- affi meff vildarkjörum tollfrels isins. Þess njótum viff ekki í dag, þar sem tollmúrarnir hækka sífellt í Efnahags- bandalagslöndunum og einnig í löndum Fríverzlunarbanda- lagsins. Með affild aff því banda- lagi, EFTA, fáum viff toll- frjálsan affgang aff 100 millj. manna markaði. Þá opnast ný og blómleg veiffilönd fyrir ís lenzkan iffnaff og íslenzkum sjávarafurffum verffur greiff- affri affgangur aff þessum sjö löndum, er 10% tollurinn er úr sögunni. Og þaff er ekkert smáræffi, sem við seljum til EFTA-landanna. Þangaff selj- um viff meir en 40% af allri útflutningsframleiffslu lands- ins. Næsti ráffherrafundur EFTA verffur haldinn í Vínarborg um 20. nóvember. Þaff er nauffsynlegt aff Alþingi hafi tekið ákvörffun um þaff fyrir þann tíma hvort hefja skuli könnunarviffræffur viff sam- tökin. í slíkum könnunarviff- ræffum skýrast línumar og mörg atriffi fást upplýst, sem nvi eru e.t.v. dulin. Engin áhætta fylgir slikum könnun- arviðræffum. Þessvegna ætti Alþingi aff láta þaff verffa eitt sitt fyrsta verk á þessum haustdögum aff heimila aff viff hefjum viff- ræffur viff þjóffir Norffurland anna og affra í samtökunum, um hugsanlega affild aff EFTA. Félag íslenzkra iffnrekenda hefur sýnt lofsvert framtak. Fyrir skömmu skipaffi þaff sér stakan útflutningsráffgjafa, til þess aff leiffbeina um útflutn- ing iffnaffarvamings. Hér er bryddaff upp á bráffþörfu ný- mæli, því kunnáttan er nndir- staða heillavænlegs útflutn- ings. Hlutimir hér heima verffa aff vera í lagi, áffur en blásið er í básúnur á erlend- um vettvangi. Fyrirtækin. þurfa að kunna skil á lögmál um erlends viðskiptalífs og tryggja aff nægileg vara sé fyrir hendi, sem standist allar gæffakröfur. Hinn nýi útflutn- ingsfulltrúi er vonandi hyrj- unin á vakningu í íslenzkum iffnaði um nauffsyn stóraukins útflutnings. Markaffsleit er næsta skrefiff.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.