Morgunblaðið - 10.10.1968, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1968
*
BILALEIGAiM
- VAKUR -
Snndlaugavegi 12. Siini 35135.
Eftir lokun 34936 or 36217.
Simi 22-0-22
Rauðarárstíg 31
Hverfisrötu 103.
Simi efttr lokun 31160.
Imagi\úsar li*at>N3tn2I mmar2U90 ~ pftnlokun' ' 40381 Í
LITLA
BÍLALEIGAN
BerjstaSastræti 11—13.
Hmfstartt leigurjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eSa 31748.
Sigurður Jónsson.
LOFT U R H.F.
LJÓSMYNDASTOFA
Ingólfsstræti 6.
Pantifi tíma i sima 14772.
OMEGA
SPCEDMASTER
KRÓNOGRAPH terpro*f.
VATNSpfTT
ARMBAND OG
KASSt RTÐFRÍTT STÁL
ÞÉR GETIÐ STRAX EIGNAST
SAMSKONAR OMEGA ÚR
OG APPOLLO GEYMFARAR
NOTA ER ttiR LENOA
Á TUNGLINU.
BIÐJIÐ ÚRSMIÐ YÐAR
UM ÞAÐ BESTA.
BHIJIB UM OMEGA
£ Þjónusta Strætisvagna
Reykjavíkur
„Borgari skrifar:
„Kæri Velvafcandi!
Mig langar til aS hreyfa við
máli, sem viðkemur strætis-
vögnum Reykjavíkur.
Um árabil hef ég ekki
þurft á hinni ágætu þjónustu
strætisvagna borgarinnar aS
halda, en þó kom þaS fyrir ný-
lega aS kringumstæðna vegna
varð ég einn af aðnjótendtim
þessarar þjónustu. Strætisvagn-
arnir eru snyrtilegir, rúmgóðir
nokkuð, og er heildarbragurinn
á strætisvagnaþjónustu tí.1 sóma
þeim, sem þar standa á bak við.
Eitt er þó, sem ég hygg að
mætti lagfæra og vanda betur til
með, og er ég þar að tala um
talkerfi vagnanna. Ég ýki ekki,
þegar ég staðhæfi, að það kom
oftar fyrir, að ég skildi ekki,
hvað vagnstjórinn nefndi, í hvert
sinn er hann talaði í kerfið,
heldur en að mér tækist að skilja
það. Hér er ég ekki aðeins að
tala um einn vagnstjóra, heldur
allmarga. Þetta er sérstaklega
bagalegt, þegar ókunnugir og þá
sérstaklega útlendingar, ferðast
með vögnunum og bíða eftír, að
vagnstjórinn nefni einhvern viss
an stað. Ekki þarf mikið tíl að
kippa siíku vandamáli í lag og
væri sú lagfæring til aukins sóma
þeim, sem nú þegar eiga heiður
skilið fyrir vel unnin störf.
Borgari".
0 Ungu skáldin og öldnu
skáldin
ValgerSur Sæmundsdóttir
skrifar:
„Mikið var ég ánægð, er ég
heyrði að við ættum fjögur skáld
(rithöfunda), sem væru hundrað
þúsund króna virði. Mér þótti
svo leiðinlegt, að við sem heims-
þekkt bókmenntaþjóð skyldum
ekki geta ort hátiðarljóð fyrir
stúdentana. Það voru víst þrjá-
tíu og eitthvað skáld, sem sendu
hátiðaljóð. se dómnefndin hunds-
aði þau öll.
bladburdárfolk
*
I eftirtalin hverfi:
Lambastaðahverfi — Fossvognr II — Árbæjarblettir
— Skerjafjörður sunnan flugvallar — Stórholt —
Langholtsvegur frá 110—208.
To/#ð v#’ð afgreiðsluna í símo 10100
Til sölu
einbýlishns ó Flötunum
HúsiS er 252 ferm. að meðtöldum tvöf. bílskúr. í hús-
inu eru 4 svefnherb., fjölskylduherb., stofa, eldhús,
2 baðherb., gestassalerni, gufubað, þvottaherb. og
geymsla. Húsið er tæpl. fullgert, en vel ibúðarhæft.
Vandaður frágangur á því sem komið er.
Fasteignaþ/ónustan
Austurstræti 17, 3. hsefi
Símar 16870 og 24645.
Það var gefln út bók, sennl-
lega úrval af þessum hátíðaljóð-
um, ég las bókina og var dóm-
nefndinni hjarbanlega sammáia.
(Hvað hafa þessi þrjátíu og eitt-
hvað skáld fengið mikil skálda-
laiun)?
Nú langar mig og áreiðanlega
marga fleiri að kynnast þessum
hundrað þúsund króna skáldum.
Vildir þú gjöra svo vel og koma
þvl til Ríkisútvarpsins (Hljóð-
varp), að Guðbergur Bergsson
læsi söguna, sem hann fékk heið-
ursverðlaun fyrir, ég man ekki
hvað þau heita, eitthvað Ukt og
sokkabandsorðan, sem hún El-
ísabet Bretadrottning veitir sín-
um æðstu sonum. Sömuleiðis væri
gaman að Jóhannes úr Kötlum
læsi eitthvað af sínum ættjarðar-
ijóðum, til dæmis, Tékkar, Sorg-
armarsinn, Landráð, Systir Al-
þýðu, Stalingrad, Dagskipan
Stalins og Sjovetísland, óska-
landið, hvenær kemur þú.
Ég man, að í mínu ungdæmi
kunnum við unglingarnir mörg
ættjarðarljóð og önnur ljóð, til
dæmis Drottinn, sem veitir frægð
og heill tíl foma, RIs þú
unga íslands merki, Ó fögur er
vor fósturjörð, Ég elska yður,
þér íslandsfjöU, Guð, minn Guð
ég hrópa! Hvl skyldi ég yrkja
um önnur fljóð og margt fleira.
Heldur held ég að ríkissjóður
hafi skammtað knappt til að
mennta okkur. Ég hef spurt
marga skólanema, allt upp í há-
skóladrengi, hvað þeir kynnu
mörg af nútíma skálda Ijóðum.
Oftast hafa þeir ekki kunnað
eitt einasta ljóð, og finnst mér
það slæmt, því að þó mér finn-
ist nútímaskáldin vera lakari en
aldamótaskáldin, þá er það sjálf-
sagt af þvi, að ég er orðin göm-
ul kona og finnst þar af leið-
andi allt betra eins og það var
I mínu ungdæmi.
Verst af öllu villan sú,
vonar og kærleikslaust
á engu að hafa æðra trú,
en allt I heimi traust
fyrir sálina að setja lás,
en safna magakeis,
baula eftir töðumeis.
Valgerður Sæmundsdóttir.
Njálsgötu 62“.
0 LýSveldisfáninn
er varðveittur
Þór Magnússon, Þjóðminja-
vörður, skrifar:
„Vegna fyrirspurnar gamals
lýðveldishátíðargests 1 dálkum
þínum um lýðveldisfánann frá
1944, skal ég upplýsa, að sá fáni
er varðveittur I Þjóðminjasafn-
inu, — Þetta er mjög vandaður
silkifáni, sem gerður var fyrir
Alþingishátíðina 1930 og notað-
ur þá, og síðan aftur 1944.
En flaggstöngin á Lögbergi,
sem einnig er minnzt á I téðri
fyrirspurn, mun heyra undir
Þingvallanefnd.
Virðingarfyllst
Þór Magnússon".
^ Keðjubréfin enn
Fólk er enn áð kvarta undan
keðjubréfafaraldrinum við Vel-
vakanda, en svo virðist sem tvö
mismunandi keðjubréf séu nú X
fullum gangi. - Líklega gengur
þessi della yfir allan heiminn,
því að Velvakanda hefur verið
sent bréf, sem frú ein hér I borg
fékk alla leið frá Lusaka I Zam-
bíu suður í Afríku, og er hún
næsta undrandi yfir því, hvemig
nafn hennar og heimilisfang er
einhverjum handbært á þeim
slóðum. — Annars á fólk ekkert
að ergja sig yfir þessu eða taka
mark á þvættingi þeim, sem í
bréfunum er, heldur fleygja
þeim beint I ruslakörfuna.
Garða- og Bessastaíahreppiir
Einmenningskeppni Bridgeféla-gsins hefst í kvöld
fimmtudaginn 10. okt. kl. 8 stundvísiega á Garðaholti.
STJÓRNIN.
íbúnr Longholtshverfis
og nágrennis athugið að eigendaskipti hafa farið fram
á brauðgerðarhúsinu, Langhoi'tsvegi 152.
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin.
ÞÓR ÁRNASON.
B.A. pról
Opinber stofnun óskar afi ráða stúlku með háskólapróf
í tungumálum til að annast erlendar bréfaskriftir.
Góð vélritunarkunnátta og starfsreynsla naiuðsynleg.
Tllboð merkt: „B.A. próf — 2158“ sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir næstkomandi föstudagskvöld.
Tónskóli Þjóðkirkjunnar
tekur til starfa 1, nóvember. Væntanlegir nemendur
hafi samband við mig fyrir 2«. október.
TJmsókn um (endurgjaldslausa) skólavist fylgi mefi-
mæli frá sóknarnefnd eða sóknarpresti.
Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar
Símtími kL 11—12.