Morgunblaðið - 07.11.1968, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.11.1968, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1968 17 að segja frá því, hafa okkar leiðir alveg lokast vegna þess að það er ekki gert ráð fyrir í þess um áfanga að hægt sé að koma saman að neinu verulegu gagni, það er ekki hægt að sameina t.d. tvær stofur og gera þær að einni eftir því sem skólastjóri harna- skólans tjáði mér í gær. Við höf- um aðstöðu í gamla barnaskólan- um áður við Hlaðbæ, og það er dálítið einkennilegt til þess að vita að þar var miklu betri að- staða til samkomuhalds. Prestur- inn á Mosfe’lli hefur haldið þar barnaguðsþjónustur hálfsmánað- arlega að vetrinum til. Nú fer að líða að jólum, og þá er það okk- ar ósk að við gætum haldið aftan- söng fyrir íbúa hverfisins eins og íbúar annarra hverfa geta. Og ég vil bera fram vinsamlega ósk um, að borgarstjóri veiti okkur fyrirgreiðslu til þess að við gæt um haldið uppi kirkjulegri starf- semi hér í hverfinu, eins og mögu legt er að gera á þessu stigi máls ins. Það er langur aðdragandi þangað til að hægt verður að byggja hér kirkju. í fyrsta lagi verðum við að fá sóknina sem prestakall. Það er einkennilegt til þess að vita, að þegar safn- aðarfulltrúar bjóða á þing til að mæta á aðalfundi prófasts- dæmisins, þá er hann boðaður til Vestmannaeyja. Og það sýn- ir að þetta hverfi hefur sér- stöðu að ýmsu leyti En mér sýn ist líka að þeir vilji láta þetta hverfi hafa sérstöðu á fleiri sviðum, því að ég tók eftir þvi í hans frumræðu hér áðan, hans ágætu ræðu, að þegar hann ræddi um skólabygginguna. þá tók ég eftir því að hvorki í þessu.n áf■ bsen buið er að byggja né þeim, sem eftir er, á að vera nokkur aðstaða til þess að hafa samkomu fyrir börnin í einum hóp. Ég vænti þess að þetta mál verði líka tekið til gagngerðar endurskoðunar. Ég held að ég sé búin að taka það fram sem ég var beðinn um að koma hér á framfæri, og vænti þess að borgarstjóri taki þetta til vinsamlegrar athugunar, og hlutist til um að við getum hald- ið jól eins og aðrir borgarbúar. Borgarstjóri: Niðurlagsorð þín minna mig á, að ég var ekki bú- inn að svara því, hvort hverfið fengi jólatré, en að sjálfsögðu verður það nú við næstu eins og síðustu jól. Og vissulega vildi ég gjarnan geta mætt óskum sóknarnefndar hér um aðstöðu til samkomuhalds. Ég býst við því, að það kunni að vera erfið- leikar á því að nýta leikskól- ann, sem verður starfræktur nú á næstunni til slíks samkomu- halds, þar sem meiri áhöld og leikföng eru þar e.t.v. fyrirheld ur en voru, þegar þetta sama húsnæði var notað sem skóla- stofa. Og húsnæði eins og þetta, eins og við höfum fundið fyrir, sem komum hingað á þennan fund, liggur ekki vel við funda- eða samkomuhaldi í úthverfun- um og var raunar áberandi, þegar ég var að undirbúa þessa fundi, hve erfitt mundi vera að finna fundarstað í þessu hverfi, vegna þess að ég vildi ekki fara út fyrir það, taldi það rétt, að við spjölluðum saman innan hverfisins um hagsmunamál þess. En ég tel mig geta fullyrt, að i næsta áfanga Árbæjarskóla verði aðstaða til samkomuhalds, og m.a. kann að vera möguleiki á því að nýta þar salinn, sem ætlaður er til íþróttaiðkana að einhverju leyti til þess að kalla nemendur sarnan og almennt til samkomuhalds hér í hverfinu, á fyrstu stigum, meðan skólinn er ekki fullbyggður, fyrir 5-6 þús. manna nverfi. Kirkja á svo að rísa í nágrenni við skólann eins og ég býst við að sóknarnefnd sé kunnugt, þótt ekki sé grund- völlur e.t.v. fyrir svo fámennan söfnuð að byggja kirkju strax. Mér er það vonbrigði, ef skóla- stofnun og niðurskipun í Ár- bæjarskóla er svo háttað að ekki sé þar færanlega skilrúm nema með mikilli fyrirhöfn, því að sannleikurinn er sá að við höfum einmitt verið að reyna að stefna að því að hafa innrétt- ingu skólahúsa nokkuð breyti- lega með tilliti til þess að geta mætt breyttum kennsluháttum í framtíðinni og skólaskipan. En svar mitt er á þá lund, að ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til þess að aðstoða sókn arnefndina til þess að samkom- ur geti verið haldnar hér í hverfinu. Og ég vildi þá aðeins segja því að ég gleymdi að drepa á ábendingu frá Mads Vibe Lund áðan um háspennustrenginn að athygli mín hefur áður verið vak in á hættu, sem gæti stafað af ef börnin væru t.d. að klifra upp í þessa staura og ég hef ósk að eftir því að RafmagnsVeitan kannaði hvaða ráðstafanir væri hægt að gera til þess að koma i veg fyrir það. Það mun vera töluverður kostnaður að leggja svona háspennustreng í jörð, en vitaskuld verður að kanna hve mikill sá kostnaðut er og hvaða nauðsyn ber til þess að koma strengnum í jörð áður en illt skyldi hljótast af. Guttormur Einarsson: Ég er með í höndunum skilmála fyrir fjölbýli3hús í Hraunbæ. Mér hef ur skilist að þetta blað hafi verið fest við þau lögskjöl, sem húsameistarar í Hraunbæ þurftu að ganga að, þegar þeir tóku að byggja fjölbýlishÚ3 þar. f þriðju grein í þessu skjali segir. Húsa- meistarar (lóðahafar). í fimmtu grein segir síðan: Lóðahafar skulu slétta lóðina og koma henni í rétta hæð. Þar fyrir neðan fylgja öll hin al- mennu ákvæði um frágang lóða ' hverfinu. Nú er spurning mín sú, hvernig mun borgarráð eða borgin túlka þetta orð Lóðahaf- ar, þegar svo er komið að flest- ir íbúðaeigendur í hverfinu eru búnir að skrifa undir afsöl þar sem þeir hafa tekið á sig skyld- ur húsameistaranna og eru þar með að mér skilst búnir að binda sig þessum skuldbinding- um. 1. Að framkvæma þessi verk efni á sinn kostnað. 2. Hvernig lítur borgarstjórn á þá hlið mála, þar sem enn hafa ekki verið gerðir samningar, þannig að íbúðareigendur hafa bundið sig að þessum skyldum úr hendi húsameistara. Þar sem að í þessu skjali er að sjá að ef fram- kvæmdum verður eigi lokið fyr- ir 1. sept. 1968 getur borgar- verkfræðingur framkvæmt um- ræddan frágang á kostnað íbúð- areigenda. Ef við setjum dæmið þannig upp, að þessar fram- kvæmdir hafi ekki verið gerðar og að borgin tekur að sér að fram kvæma þær, þá er spurning mín sú, hverja mundi borgin krefja greiðslu fyrir þessa framkvæmd samkv. þessu skjali mundu það vera húsameistararnir eða íbúða eigendur sjálfir. Nú hefur mér skilist að þessi atriði hafi verið fastbundin mjög skilmerkilega þegar hrundið var í framkvæmd byggingaráætlun Breiðholtshverf is, þannig að húsameistarar gætu ekki framselt þessa skyldu sína við borgina á hendur íbúðaeig- endum. Því miður hefur mér skilist, að mjög margir af nú- verandi íbúðaeigendum í Hraun bæjarhvorfi hafi tekið á sig þess ar skyldur í afsölum og séu þar með búnir að afselja kröfurétti þess að húsbyggendur fram- kvæmi þessar skipulagsfram- kvæmdir á lóðum þeirra. Ef að íbúðaeigendur eru ekki búnir með afsölum og samningum að taka á sig þessar skyldur og lóðir nar eru enn óunnar, hvernig mundi borgarstjórn krefja greiðslna fyrir slíkar fram- kvæmdir ef hún mundi taka að sér að gera það. Borgarstjóri: Borgaryfirvöld hafa við úthlutun lóða stofnað til tengsla við ákveðinn aðila, lóðarhafa. Það er lóðarhafinn sem hefur tékið á sig ákveðnar skyldur, hvort sem það er bygg- ingarmeistari eða einstaklingar, sem ætla sjálfir að eiga íbúð á viðkomandi lóð. Meðan ein- göngu er um lóðarhafa að ræða, lóðasamningur er ekki gerður, þá hafa borgaryfirvöld eingöngu til þess manns að sækja, sem hefur fengið lóðina og hefur undir- gengist þessa skilmála. Síðan skeður það venjulega næst að lóðasamningur er gerður. Og þá skulum við segja við þann sem upphaflega fékk lóðina. Það er það venjulegasta. f lóðarsamning eru teknir inn þeir skilmálar, sem voru settir við lóðarúthlut- un, að svo miklu leyti, sem þeim hefur ekki verið fullnægt, og eftir þann tíma á samningsaðili, hver svo sem hann er, að sinna skyldum, sem í lóðasamningi greinir. Ég vil þess vegna segja það og mér skilst að fyrir- spyrjanda sé það Ijóst, að hafi íbúðareigendur með samningi tek ið á sig þessar skyldur, þá sé enginn vafi á því að þær skyld- ur hvíli á þeim. Ef hins vegar þessar skyldur eru ekki fram- seldar við íbúðaeigenda og ekki er gengið frá lóðasamningi, þá getur borgin út af fyrir sig ekki sótt neinn til sakar nema þann sem fékk lóðina í upphafi. Hins vegar kann svo að vera, að samn ingar séu svo fjölbreyttir í slík um viðskiptum íbúðareigenda og byggjenda að nauðsynlegt sé að skoða hvert tilfelli fyrir sig til þess að geta svarað en megin reglan hlýtur að vera sú, að það er ekki komið á neitt réttarsam band milli borgarinnar og íbúð- areigenda fyrr en íbúðareigand- inn hefur tekið á sig skyldur sam kv. lóðasamningi, og þá fer eftir skyldurnar eru. Fyrirspurn: Við sem vorum svo heppinn að fá íbúðir í einbýlishúsum Fram- kvæmdanefndar byggingaráætl- unar, fengum þær að öllu leyti tilbúnar og lóðir að öllu leyti frágengnar. Við erum í þeirri stöðu í Breiðholtshverfinu að of an við okkur liggUT ein aðalgat- an og eins og gefur að skilja þá er hverfið núna í byggingu, en ég spyr hvort hægt sé að vænta þess að hún verði malbik uð. En einmitt umferðin við Arn srbakka verður þess valdandi, að húsin okkar liggja undir stöðugum rykmekki í þurrkum. Er ekki hægt að rykbinda Arn- arbakka til bráðabirgða og Lambastekkinn? Borgarstjóri: Rykbinding er tiltölulega dýr framkvæmd en hefur þó á ódýran hátt verið gerð á þann veg að vatni hef- ur verið ausið yfir malargötur, hins vegar er það ekki heppi- leg aðferð að vetri til vegna þess að það getur skapað ísingu og hættu fyrir umferðina, en ég skal gjarnan taka þessa ábend- ingu til meðferðar og kanna, hvaða úrbætur er hægt að gera fyrir íbúana á þessum slóðum. Valdimar Ólafsson Hraunbæ 80: Sunnan hitaveituhússins en norðan Árbæjarhverfisins er ennþá hár uppgröftur síðan nýr vegur var steyptur til austurs framhjá hverfinu. Þessi upp- gröftur hindrar útsýn til hafs og eyja. Væri mögulegt að fá hann jafnaðan við jörð og þá sem fyrst. Borgarstjóri: Ég skal með ánægju kanna hvort ekki er unnt að verða við ósk fyrir- spyrjanda. Þessi uppgröftur er væntanlega frá vegagerð borgar eða ríkis og þess vegna þeirra skylda að hann sé fjarlægður. Annars er uppgröftur mjög hvimleiður, sem hefur lengi stað ið eins og Árbæjarhverfisbúar muna. Ef um slíkan uppgröft er að ræða úr húsgrunnum, þá er það húseiganda að fjarlægja hann og það var m.a. vegna þess að húsbyggjendur fjarlægðu ekki slíka hauga að erfitt var um heimtaugalagningu í Árbæjar- hverfið á sínum tíma og leiddu af spennuvandræði og fleiri vand ræði, sem viðstaddir þekkja til. Það er rétt sem fram hefur kom- ið, að reynslan úr Árbæjarhverfi gerði það að verkum að skilmál- ar um úthlutun í Breiðholts- hverfi voru nokkuð öðru vísi og fastar tekið á málunum til þess að koma í veg fyrir að það end- urtæki sig annað eins og gerðist meðal margra húsbyggjenda hér í hverfinu að jafna ekki lóðir. Það hefði t.d. verið mjög ill- mögulegt að framkvæma hita- veitulögn hér í hverfinu vegna þessara hauga á þeim tíma, sem upprunalega var áætlað þótt það af öðrum ástæðum tækist nú ekki. En varðandi þennan haug er bersýnilega um haug að ræða, sem borgin sjálf eða ríkið á sök á og ætti ekki að vera ofgott að fjarlægja. Ásgeir Guðlaugsson: Þegar keyrt er að Breiðholtshverfinu meðfram skeiðvellinum, hefur skapast mjög slæm aðkeyrsluæð vegna umferðarþunga, sem þar hefur farið um og í miklum rign- ingum er þessi vegakafli ger- samlega ófær. Og í öðru lagi. Það hefur verið talað mikið um sérstöðu Árhæjarhverfisins, en við höfum þarna dálitla sérstöðu líka í Breiðholtshverfinu, það eru allar hina gjósandi holur, sem bú ið er að grafa fyrir heitu vatni. Er ekki beinasta leiðin að leiða þetta góða vatn beint inn í hverf ið, og það sem snarast svo það renni ekki allt í Elliðaárnar ó- notað. Allar götur eru þegar und irbyggðar og tilbúnar undir mal bikun. Liggur nókkuð beinna fyr ir en að malbika þær þetta ár. Þá er það skólabifreið sem geng- ur þarna um hverfið. Hún er til skammar borginni, því að þetta er bíll sem var fyrir vinstri um- ferð og börnin eru látin ganga út í vinstri umferðina. Borgarstjóri: Varðandi veginn meðfram skeiðvellinum, þá er ætl unin sem fyrst, þótt ég kunni ekki að segja hvenær það verður endanlega komið 1 framkvæmd, að tengja Elliðavoginn Reykja- nesbrautinni. Varðandi heitavatnið, þá hefur vatnið verið nýtt á s.l. vetri, sem fékkst í holunum við Blesu gróf í það minnsta annarri, hún var virkjuð strax og nú var verið að endurbæta virkjunina og koma henni inn á kerfið ein- mitt í morgun. Hóla nr. 2 verð- ur tekin í notkun í næstu viku, en þessar holur gera það raun- ar að verkum, að við höfum nú í huga að byrja hitaveitufram- kvæmdir að fullum krafti í báð um þessum hverfum, þó að ég búist ekki við því að fram- kvæmdum ljúki í hvorugu hverf inu fyrr en á árinu 1970. Varð- andi malbikunina þá er nú ekki eins fjarstætt að ætla sér þá röð framkvæmda, sem fyrirspyrj andi hafði orð á að malbika bara strax nýjar götur. Það kom til tals meira að segja að setja mal- bikslag á göturnar í Breiðholti 1. þegar áður en byggingarfram kvæmdir hófust í hverfinu og ég vonást til þess að það verði framtíðin hér að svo verði gert. Verkfræðingar og aðrir gatna- gerðarsérfræðingar töldu að með slíku einföldu lagi á málargöt- urnar hefði verið betra að halda götustæðunum í réttri hæð og að ganga endanlega frá malbik- un hverfisins en hitt er svo ann- að mál að eldri borgarbúar í öðrum hverfum, t.d. Smáíbúða- hverfisbúar þætti áreiðanlega súrt í broti, ef enn yrði nú geng ið fram hjá þeirra bæjardyrum og farið í svona splunkuný hverfi til malbikunar, en við getum huggað okkur við það að götur I þessum nýju hverfum eru miklu betur undir malbikun búnar og það er miklu minna verk að málbika nýju hverfin heldur en t.d. eldri hverfin eins og Smá- íbúðarhverfi. Svo ég á ekki von á, að það verði löng bið á mal- bikun í Breiðholti 1, þó að ég vilji ekki segja nú hvenær það verði gert. Varðandi skólabílinn, þá þykir mér það leitt ef hann er ekki borginni sæmandi, en að hann sé gerður fyrir vinstri umferð, mundi ég álíta, að bíl- stjórinn tæki tillit til þannig að hann stöðvi hann ekki eða tæki börn upp í bílinn annars staðar en á rúmgóðum svæðum að ekki væri hætta á að börnin h’lypu út í umferðina, en að fenginni þessari ábendingu er sjálfsagt að kanna það betur. Þór Þorsteinsson, Fagrabæ 3: Hvernig er með sumarhús þau, sem byggð hafa verið í Árbæjar hverfi eiga þau að fá að standa lengur? Borgarstjóri: Þarna verður sennilega ekki um algilt svar að ræða. Einstök sumarhús í Ár- bæjarhverfi eru þannig stað- sett, að þau geta staðið lengur og ef þau hafa fengið lóðarétt- indi við úthlutun lóða t.d. í ein- býlishúsahverfinu, þá býst ég við að rétt sé að ganga frá lóða- samningum. Skilyrði þess er að viðkomandi hús sé samþykkt af byggingarnefnd og þá er ekkert því til fyrirstöðu af hendi borg aryfirvalda að það standi leng- ur. Ef hér er aftur á móti hú/s á óskipulögðu svæði eða svæði, sem í framtíðinni á að vera grænt svæði, eða takast til annarra nota, þá liggur í augum uppi, að þau eru ekki frambúð- ar, þótt þau verði e.t.v. liðin um eitthvert árabil. Sigurður Haukur Sigurðsson, Hábæ 41: Er nokkur hætta á, að skipulag einbýlishúsahverfis ins verði breytt, t.d. hús byggð neðan við neðstu hús samkvæmt skipulagi? Borgarstjóri: Ég held ég geti svarað þessari spurningu stutt og laggott neitandi. Sigurður Þorkelsson, Skriðu- stekk 8. Er von til þess að aðkeyrsla í Breiðholtshverfi verði bætt. Sérstaklega vegurinn með- fram Skeiðvellinum er erfiður og hættulegur, þar sem hann er óupplýstur. Þá er vegurinn í gegnum íbúðahverfið Blesugróf slæmur yfirferðar á vetrum sökum fannfergis og bleytu. Gekk svo til s.l. vetur, að bifreiðar sátu iðulega fastar á þessari leið Hvað er fyrirhugað í þessum málum Breiðholts? Borgarstjóri: Ég tel nú að hér sé um sömu fyrirspurnina að að ræða og Ásgeir Guðlaugs- son beindi til min áðan og ég reyndi að svara þá. En mun að sjálfsögðu taka ábendingu fyrir spyrjanda til greina. Fyrirhug- að í aðkeyrslumálum Breiðholts er fyrst og fremst það að reyna að koma á sem fyrst þessu sam- bandi milli Elliðavogs og Reykja nesbrautar, sem fyrirhugað er samkvæmt skipulagi. Það er kannski rétt að segja frá þvi að framkvæmdir þarna hafa að vissu leyti tafist sökum þess, að ætl- unin er að flytja vatnsæð sem um þetta svæði liggur og enn- fremur er þarna um nokkuð dýr mætt malarefni að ræða, sem skiptir miklu máli fyrir borgina að geta nýtt. Að þessu leyti kann að vera að framkvæmdir geti tafist. En reynt verður að flýta þeim sem mest. Fyrirspurn: Við íbúar Breiðholtshverfis fengum ekki tilkynningu um það hvar okkar börn ættu að ganga í skóla. Það var auglýst að vísu í blöðunum í vor að þeir sem hyggðust ætla að eiga heima í Breiðholti næsta vetur þeir tilkynntu það fræðsluskrif- stofunni. Og það gerði ég, en ég fékk aldrei neitt svar þaðan eða tilkynningu hvar börnin mín ættu að vera í skóla. En svo fór þetta að hvisast hvar skólinn var, það var Austurbæjarbarna- skólinn. Ég fór með mín þrjú börn í skólann og fyrstu vikurn ar þá var þetta alveg hreint í megnasta ólestri, bæði skólagang an, kennslan, ferðirnar í skól- ann og annað slíkt og ég talaði við skólastjórann yfirkennara og þeir báru það að þeir hefðu fengið að vita með viku fyrir- vara frá yfirvöldunum, að þeir ættu að fá öll þessi börn auka í skólann og að skólinn væri svo margsetinn, og tæki það mjög langan tíma að koma þessu öllu í réttar skorður,_ og sá tími er ekki liðinn enn. Ég á stúlku sem fer t.d. einn tíma ofan af Breið- holti fyrir hádegi. Hún má ekki hafa með sér nesti, hún má ekki hafa brauðmat, það óhreinkar skólastofurnar og annað slíkt og hún kemur heim með skó’la- bílnum, sem kemur kl. hálf eitt og hún á að vera mætt aftur kl. eitt. Síðan kemur hún heim aftur kl. hálf sex. Á þessum tíma hefur barnið ekkert tæki- færi til að fá sér mat. Einnig er þetta með tvo drengi, þeim er fyrirboðað að hafa með sér nesti. En börn þurfa að borða og mér finnst þetta mjög óheppi legt ef ekki er hægt að koma því fyrir í skólanum að það sé til matstofa. Ég vil spyrja um í sambandi við heimkeyrsluna að Hjaltabakka og Grýtubakka, þeg ar maður kemur aðalveginn, eru það eigendurnir sem teljast eiga Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.