Morgunblaðið - 28.11.1968, Page 3

Morgunblaðið - 28.11.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1968 3 Fyrirferöarmikill minnihluti nem- enda ber ábyrgö á öfgaskrifunum FRÉTT Morgunblaðsins í gær um grein ritstjóra í skólablaði Menntaskólans í Hamrahlíð, þar sem fram kemur megn vanþóknun á lögum og lög- reglu í landinu, hefur vakið mikla athygli. Hefur Morgun- blaðið fengið fjölda upphring- inga, þar á meðal frá foreldr- um, sem nemendur eiga í skól anum. Sögðust þeir hafa haft áhyggjur af sjónarmiðum mikils minnihluta nemenda, sem væri svo fyrirferðar- mikill, að aðrir nemendur, hófsamari í skoðunum, kæm- ust hreinlega ekki að. Morgunblaðinu þóitt rétt í tilefni af þeissu að sniúa sér til Guðmunc’ar Arnlaugssonar, rektors, og fá fram viðhorf forráðamanna skolans til þessa máls. Var hann að því spurður, hvort fynmefnd grein ritstjóra he'fði verið birt með vitund forráðamamna skól ans. Guðmundur sagði, að á- byrgðarmaður blaðsins væri úr hópi kenniara, og færi hann yfir efni blaðsins áður en það kæmi út. Á hinn hóginn væri þessi grein ritstjórans fyrst og fremst biirt á hans eiginn á- byrgð, en hann væri kosinn til þessa starfs af nemendum skólans. Guðmundur var þessu næst að því spurður, hvort hann teldi rétt að greiin sem þassi, er væri í raunimnd bein árás á lögreglu, fengi a‘ð birtast í blaðinu. Svaraði hann því til, að ábyi'gðarmaður blaðsins hefði ekki talið rétt að tafca upp svo stranga ritskoðum að himdra birtingu greinarinnar, það væri að sumu leyti hrein- legra að leyfa þessum sjónar- miðum að koma fram. Morgunblaðið spurði Guð- mund, hvort hann teldi þessi viðhorf er birtust í téðri rit- stjórnargrein, vera almenn innan skólans. Kvað rektor nei við, sagðist halda, að greinin væri í rauninni hálfgert einka viðhorf þess nemanda, sem hana ritaði, er sjálfur kall- aði sig „kristilegan stjórnleys- ingja." Rektor gat þess að síðustu, Guðmundur Arnlaugsson rektor Sigurjón Sigurðsson, lögreglustjóri að hann eftirléti ábyrgðar- manni blaðsins að hafa al- gjöra umsjón með því efni, er í blaðinu birtist. Kvaðst hann vita, að ábyrgðarmaður- inn hefði rökrætt greinina við ritstjórann, áður en hún birt- ist, og lýst andúð sinni á henni. Ritstjórinn hefði við- urkennt, að hún væri mjög einstrengingslega skrifuð, en talið sig rita hana í von um að fá aðra nemendur til að andmæla henni. Hefði ábyrgð armaður þá ekki viljað neita greininni um birtingu. Vegna ummæla þeirra, sem fram komu í greininni um lög reglu, sneri Morgunblaðið sér til Sigurjóns Sigurðssonar, lögreglustjóra, og fékk hans álit á þessum ummælum. Sig- urjón sagði: „Það er vissulega áhyggju- efni, að hugsunarháttur sá, sem fram kemur í ritstjóra- grein skólablaðs Hamrahlíðar skólans, skuli eiga rót sína að rekja til ungs fólks, sem feng ið hefuí tækifæri til að leita sér æðri menntunar. Bót er þó í máli, að ekki er ástæða til að ætla, að greinin sú túlkun á skoðun meirihluta nemenda. Þvert á móti má telja lík- legt, að hér sé á ferð ritsmíð einstaklings, eða nokkurra ung menna í skólanum, sem þeg- ar hafa sýnt það á aknanna- færi, að þeim er mikið í mun að láta á sér bera. Greinin í skólablaðinu varð lögreglumönnum óneitanlega til vonbrigða. Þeim er þó vel kunnugt að vinsamlegum sam skiptum við skólaæskuna á undanförnum árum, að skiln- ingur nemenda á nauðsyn góðr ar samvinnu þeirra og lög- reglunnar, fer ört vaxandi. Hins vegar minnir greinin á þá staðreynd, að auka þarf að miklum mun þann þátt fræðslustarfs skólanna, sem höfðar til þjóðfélagslegrar á- byrgðar einstaklingsins og minnir á skyldur hans gagn- vart samborgurunum. Hið gamla spakmæli: „Með lög- um skal land byggja“ er enn í fullu gildi. Kenningar þær, sem fram koma x ritstjóragrein inni, byggjast á ranghugmynd um, sem kennurunum ber að leiðrétta og löghlýðnum borg- urum að ándmæla kröftug- lega.“ ASl-þing rœðir kjaramál: Vísitölubinding láglauna og atvinnuöryggi — er höfuðkrafan sagði Björn Jónsson — Kjör almenns launafólks má ekki skerða, sagði Eðvarð Sigurðsson Björn Jónsson sagði í fram- söguræðu um kjaramál á þingi ASÍ í gær, að krafan um tengingu verðlags og launa láglaunastéttanna væri ein höfuðkrafa verkalýðssam takanna, sem barátta næstu tíma mundi snúast um og framgangur þeirrar kröfu á- samt kröfunni um atvinnuör- yggi mundi rísa hæst í kjara- stefnu verkalýðshreyfingar- innar. Björn Jónsson sagði enn- fremur, að ástandið um þess- ar mundir leggði verkalýðs- hreyfingunni þær skyldur á herðar að freista þess að leggja fram úrræði sem sönn- uðu verkalýðshreyfingunni sjálfri og þjóðinni allri að væru fær um að varna yfir- vofandi kjaraskerðingu. Eðvarð Sigurðsson, formað- ur Dagsbrúnar, sagði við sömu umræðu, að tekjur al- menns launafólks mætti ekki skerða, aðrir yrðu að taka á sig byrðarnar. Eðvarð sagði að þetta yrði að segja afdrátt arlaust og jafnframt að vísi- talan yrði áfram að tengja laun almenns Iaunafólks við verðlagið. í upphafi ræðú sinnar í gær, sagði Björn Jónsson, að utanrík isrviðskipti þjóðarinnar hefðu ver ið rekin með geigvænlegum halla sl. tvö ár oig næimi hann á þriðja iþúsund mi'lljónir króna. Gjaldeyrisvarasjóðurinn væri þnotinn og sfcyndilián innflytj- enda næmu nær einum milljarði. Erlendar sfculdir næmu um 12-13 milljörðum króna og greiðslu- byrðin á ári hverju uim 2000 milljómum. Ríkisibúskapurinn væri refcinn mneð sívaxandi halla og sfculdir ríkissjóðs helfðu auik- izt á einu ári uim einn og hálf- an milljarð króna. Þrtátt fyrir gxfurlega gemgisfellingu í fyrra I hefði orðið að grípa til nýrra uppbóta á þessu ári til útvegs- ins, sem næmu 700 mil.lj ónuna króna. Iðnaðurinn hefði ein- kennzt af samdrætti og í sumaum iðngreinum svo sem miálmiðnaði og byagingaraðnaði hefðii orðið hrun. Allmörg frystihús hefðu stöðvast vegna skulda og óreiðti í sölumálum erlendis. Lausleg allsherjarathugun á vegum ASÍ í haust hefði sýnt að atvinnxxihorf ur væru víða slæmar og sums staðar svo að leitt gæti til fjölda atvinnuleysis, sem raunar hetfði verið fyrir hendi. Hið slæma at- vinnuástand sæist bezt á því að á fyrstu 8 mánuðum þessa órs hefði orðið að greiða atvinnuleys isibætur að upphæð 18-19 millj- ónir króna sem væri sama upp- hæð og greidd hefði verið öll ár in frá því að bæturnar komu fyrst til framikvæmda 1957 og fram að síðustu áramótxxm. Gen-g isbreytingin yki rekstramfjáriþörf atvinnuiveganna sem bezt mætti sjá af því að olíuifélögín ein teldu sig þurfa 200 milljónir í viðbót vegna gengisbreytingarinn ar og bankar og stjómarvöld stæðu ráðþrota frammi fyrir því, hvar finna ætti þetta fjiármagm. Eina úrræðið virtist vera lén- ta'ka erlendis og kvaðst ræðu- maður þá sérstaklega líta til Norður.landanna í þeim efnum. Björn Jónsson sa.gði að verka- lýðshreyfingi.n yrði að meta þess ar staðreyndir af raunsæi þegar hún mótaði stefnu sína 1 launa- I málum og atvinnumálum. Verfca lýðshreyfingin yrði að standa sam an, hyggja allar slínar gerðir á sameiginlegu mati, álbyrgðartil- finningu fyrir þjóðarihagsmunum og bjargfastri áikvörðun um að beita afli samtaka sinna ef á þyrfti að 'halda. Það væri hlut- verk þessa þings að meta úrræð- in og byggja á þeim þá stefnu í launa- og atvinnxxmálum sem verkalýðsJhreyfingin gæti samein ast um og borið fram til sigurs undir sterkri faglegri forustu, sem setti hin brýnu ha.gsmuna- mál heildarinnar ofar öllum öðr um sjónarmiðum Björn Jónisson sagði að gengis- breytingin leiddi til hækkana sem svöruðu til 15-20 vísitölu- stiga sem launafólk ætti að bera án bóta. Hann sagði að slíkar ráðagerðir væru í senn óraun- hæfar, ósanngjarnar og ófram- kvæmanlegar. Þær legðust með tiltölulega mesitum þunga á bök þeirra sem lægst lauin hada og þegar hefðu orðið fýrir mikilli kjaraskerðingu vegna atvinnu- samdráttar og aflabrests. Bjöm Jónsson sagði að höifuðkröfur verkalýðssamtakanna um vísi- tölubindingu launa láglaunastétt anna og atvinnuöryggi stefndu að því að tryggja viðunandi aifkomu verkalýðsstéttarinnar og síðan batnandi kjör þegar við hefðum með skynsamleig.um aðgerðum fetað okkur fram úr mesta vand anum og hindrað yfirvofandi krappuástand. Eðvarð Sigurðsson sagði í ræðu sinni að við almenningi blasti stórfelldasta kjaraskerðing í ára- tugi. Samhliða væri gerð árás á samningafrelsi verkalýðsfélag- a.nna. Launafólk ætti að taka á sig dýrtíðarflóð bótalaust. Ræðu maður kvaðst ekki vilja draga úr því að þjóðinni væri nú mikáll Framhald á bls. 27 STAKSTEIKAR Framsókn og gjald- eYrisvarasjóðurinn i Afstaða FramsóknarflokksinS til gjaldeyrisvarasjóðsins sýnir j hnotskurn hringlandahátt þeirra í málefnum lands og þjóðar. Þegar viðreisnarstjómin markaði þá eðlilegu og hyggilegu stefnu, að nauðsynlegt væri að safna - nokkrum gjaldeyrisvarasjóði, kom fljótt í ljós, að slíkt fór mjög í taugarnar á Framsóknar- mönnum og eftir því sem gjald- eyrisvarasjóðurinn efldist varð hann enn meiri þyrnir í augum Framsóknarmanna. Loks kom að því að einn af meiri háttar spekingum Framsóknarflokksins lagði til að gjaldeyrisvarasjóðn-' um yrði eytt. Þeirri fáránlegu til— lögu var auðvitað ekki sinnt. Nú þegar gjaldeyrisvarasjóðurinn hefur gert okkur kleift að bregð- ast við óvæntum vanda að veli og yfirveguðu ráði og án skjótra, lítt undirbúixma ráðstafana,. harma Framsóknarmenn það mjög, að gjaldeyrisvarasjóðurinn var nær brotixm. f málflutningi * Framsóknarmaxma að undan- fömu hefur það verið ein helzta röksemd þeirra til þess að sýna fram á hversu alvarlegt ástandið væri, að gjaldeyrisvarasjóðurinní væri ekki lengur til. Afstaða Framsóknarmanna til gjaldeyris-1 varasjóðsins hefur því veriðj þessi: Meðan verið var að safna honum börðust þeir gegn því.l Þegar hann var orðirm allmikilli lögðu þeir til að honum yrðii eytt. Þegar hann var að þrotum kominn vegna efnahagserfiðleikai þjóðarinnar og hafði þó gert mikið gagn, gerðu Framsóknar- menn það að árásarefni á ríkis- stjórnina. Þetta litla dæmi lýsir ekki aðeins afstöðu Framsóknar- flokksins til gjaldseyrisjóðsins heldur er það einnig í hnotskurn glögg lýsing á hringlanda- hætti Framsóknarmanna til þjóð- mála sl. áratug. Ef ráðum Framsóknar ^ hefði verið fylgt f þessu sambaudi er fróðlegt að íhuga hvað gerzt hefði ef ráð- um Framsóknarmanna hefði verið fylgt. Þeir lögðu til, að gjaldeyrisvarasjóðnum yrði eytt. Það hefði haft í för með sér neyðarástand í gjaldeyrisvið- skiptum landsmanna og sam- skiptum við aðrar þjóðir. Það hefði knúið fram þá þegar harka- legar kjaraskerðingaraðgerðir og á kjölfarið hefði fylgt, að fsland hefði misst það traust á alþjóða- vettvangi, sem landið hefur aflað sér í txð núverandi ríkistjórnar. Þeir, sem hefðu þurft að kaupa gjaldeyri, hefðu endurnýjað gamlan kunningsskap við það ástand, sem ríkti í stjómartíð vinstri stjómarinnar, þegar bíða varð eftir hinum smávægileg- ustu gjaldeyrisyfirfærslum svo vikum og jafnvel mánuðum skipti vegna þess, að enginn gjaldeyrir var til. Slikar hefðu afleiðingarnar orðið, ef stefnu Framsóknax-manna í gjaldeyris- málum hefði verið fylgt á þess- um árum. Þegar fylgzt er með málflutn- ingi Framsóknarmaxma í efna- hags- og atvimiumálum vaknar sú spurning, hvers vegna þessir menn vilja endilega hverfa til gamla tímans á ný. Hvers vegna vilja þeir innflutningshöft, gjald eyrishöft og fjárfesingarhöft á ný? Hvers vegna horfast þeir < ekki í augu við þá staðreynd, að 30 ára reynsla þjóðarinnar af slíkum úrræðum hefur dæmt þau óhæf? Svarið getur aðeins verið eitt. Enn sem fyrr era Framsóknarmenn að hugsa um annarlega sérhagsmuni, sem blómguðust á timum hafta og skömmtunar, en verða nú að sitja við sama borð og aðrir. Það eru þessir sérhagsmunir, sem Framsóknannenn einblína alltaf á, og annað ekki. i I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.