Morgunblaðið - 28.11.1968, Side 7

Morgunblaðið - 28.11.1968, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÖVEMBER 1968 7 „Hvenær fer vélin ú frjóvga sjálfa sig?“ „Ég er alltaf að velta fyrir mér manninnm og vélinni, það efni er mér hvati listaverka minna. Stundum minnir það mig á lífið og dauðann. Maður- inn hefur framleitt svo fuli- komnar og sumpart ógnvekj- andi vélar, að mér finnst það nánast tímaspursmál, hvenær véiin fer að frjóvga sig sjálf, fer að geta búið til aðra vél i sinni mynd“. Það er Jón Gunnar Árnason, sem mælti á svo furðulegan hátt við blaðamann Mbl. þegar þeir hittust á Mokka á dögunum, en þar heldur Jón Gunnar sýn- ingu á verkum sínum, málverk um, en sýningar þessar eru lið ur í starfi listafélagsins SUM,* sem býst við að sjá um Mokka sýningar I vetur, en í félaginu eru 12 ungir listamenn, og eru m.a. kunnir af verkum sínum á Skólavörðuholtinu og víðar, og hafa menn ekki verið á eitt sátt ir um verk þeirra, þótt flestir viðurkenni, að eitthvað búi á bakvið. Og Gunnar heldur áfram að tala um manninn og vélina. „Hugsum okkur t.d. rafmagns heila, og það bilar í honum ein platan. Honum hefur verið kennt, hvernig hann á að fara að koma boðum frá sér um þessa bilun, og gefur máski skipun til rafmagnsheilans við hliðina, að hann eigi að gera við bilunina, þá sé ég ekki, að langt sé í það, að rafmagnsheili geti í framtíðinni búið til ann- an og er þá, í raun og veru, ekki hægt að tala um að þeir frjóvgi sjálfa sig? Þessar myndir hérna á veggj unum á Mokka eru eiginlega vinnuteikningar af höggmynd- um, „málmskúlptúrum", því að í raun og veru er ég mynd höggvari en ekki málari. Til dæmis þessi myndaröð hérna á austurveggnum. Þær eru allar af sama stefinu, eins- konar sæðisfrumu, frjói. Ég geri fyrst svona „skissur" og útfæri þær svo í málm. Ég er oftast nokkuð lengi að vinna undirbúning að högg- myndinni, — eða hvað á maður að kalla þessi „skúlptúr" okk- ar. íslenzkan hefur enn ekki smíðað orð yfir þetta, sem við erum að gera úr málmi. — Sjálf smíðin tekur ekki svo langan tíma. Má ég ekki annars bjóða þér upp á vinnustofuna mina, hún er ekki langt héðan frá? Þar ætla ég að sýna þér vélblómið mitt. Það er blóm úr málmi, sem er að þróast. Ég býst við að verða 10 ár að ljúka því, ég er alltaf að bæta við það“. „Þú getur þá ekki selt það í bráð?“ „Ég hef nú engan áhuga á að selja það ennþá en ef að því yrði myndi ég selja það með þeim skilyrðum, að ég mætti bæta við það, láta það þroskast. Það kom nú samt fram í þætti Hljóma í sjónvarpinu á dögun- um.“ Og svo löbbuðum við í aust- urátt inn Grettisgötu, og Jón Gunnar opnar dyr, við komum inn í vörugeymslu, þar eru pappakassar frá gólfi til lofts, og ég, blaðamaðurinn, verð á undan að hvítum pappavegg. Sé þar í fyrstu engar dyr en þó að lokum eitthvað, sem lík- ist dyrum skornum í einfaldan öldupappa, hvítan, ýtti þar og með það opnuðust dyrnar upp á loftið þar sem vinnustofan var og þar gaf nú á að líta. Auðvitað komum við auga á vélblómið fyrst af öllu, það var „kúnstugt" og liðugt í öllum hreyfingum. Ég veit ekki, hvað á að kalla þessa ,mobil“-list máski hreyfilist? Allt hreyfðist það söng í öllu. Svo kom ég auga á hjartað sem var mestan part gert lir gömlum „bílastuð- urum“, einni soggrein úr 30 tonna jarðýtu og ótal gormum úr málmi, fengnum úr renni- bekkjum, innan í voru svotveir mótorar til að framleiða hjarta slögin. Að auki stóð þetta risa- vaxna hjarta á bílgormum, svo að allt yrði sem mest hreyf- anlegt. Það var músík hjartans í þessu öllu saman, reglubund- in sláttur, hjartaslag. Næst bar einkennilegt fyrir augu mín. Það voru tvær hæn- ur inni á vinnustofunni, tveir hvitir ítalir, og hámuðu í sig Ihæsnakorn. „Jú, sjáðu til þetta er eggja- framleiðslan mín. Mér þykja góð egg.“ ,Máski færðu einhverja hug- myndir í höggmyndirnar frá þessum hænurn?" ,Því ekki það. Okkur ætti ekkert að vera óviðkomandi. Eitt er gott í dag, annað á morg un. Það er aldrei að vita, hvað- an hvatar í listaverk koma. Hér fyrir innan er svo heilt járn- smíðaverkstæði, þar vinn ég hlutina". „Segðu mér, Jón Gunnar ertu kvæntur? Áttu máski börn?“ ,Já sei sei Já. Ég er kvænt- ur og á góða konu og þrjár yndislegar dætur." ,Er það gott fyrir listamann?" „Eiginlega ekki. Ég er þóa ekki að kvarta fyrir mína parta en samt ætti eiginlega að banna hjónabönd listamanna með lög um. En hitt er satt, að maður fær alltaf eitthvað út úr hverju ástandi, eins hjónabandi sem öðru.“ „Hvað þýðir þetta SUM ykk- ar á Mokka?" Það þýðir ekki neitt. Við bara skýrðum þetta svo. Enþá gerðist það skrýtna, þegar við sendum upplýsingar út um all- an heim til samskonar félaga, að þá kom einkennilegt í Ijós. Fjöldamörg félög kölluðu sig líka SUM, og vissu þó ekkert af öðru. Það er heimssögu- leg tilviljun". „Er hún Róska í ykkar fé- lagsskap?" Já, annað hvort væri. Róska er núna í Róm, það síðast ég frétti. Róska er stórkostleg. Þeg ar hún kemur hingað til lands, er eins og allt fari I uppnám. Allt verði á hreyfingu. Já, hún er stórkostleg og dýrmæt, hún Róska. Við þurfum hennar við og eldmóð hennar til að „róska“ svolítið til í listinni hér uppi á isaköldu landi“. Með það fylgdi Jón Gunnar okkur niður hættulegan stig- ann út í ferska loftið. Sýningar SUM meðlima standa í 2—3 vikur í senn á Mokka í vetur. Það er svo sannarlega líf og fjör hjá þessum hópi, þótt einstaka maður af áhorf- endunum sé ekki með á nót- unum. — Fr.S. OKKAR A MILLI SAGT Þarna sjáum við vélblómið, sem tekur 10 ár að þroskast. Segja má, að margt sé undar- legt og einkennilegt undir sól- inni og þá ekki siður i Sódóma Gengið Nr. 126 — 12. nóvember 1968. 1 Bandar.dollar 87.90 88,10 1 Sterlingspund 210,00 210,50 1 Kanadadollar 81,94 82,14 100 Danskar kr. 1.169,30 1.171,96 100 Norskar kr. 1.230,66 1.233,46 100 Sænskar kr. 1.698,64 1.702,50 100 Finnsk mörk 2.101,87 2.106.65 100 Franakir fr. 1.772,65 1.776,67 100 Belg. frankar 174,72 175,12 100 Svissn. fr. 2.046,09 2.050,75 100 Gyllini 2.432,00 2.437,50 100 Tékkn. kr. 1.220,70 1.223,70 100 V-þýzk m. 2.210,48 2.215,52 100 Lírur 14,08 14,12 100 Austurr. sch. 339,78 340,56 100 Pesetar 126,27 126,55 100 Reikningskrónur- Vöruskiptalönd 99,86 100,16 1 Reikningsdollar Vöruskiptalönd 87,90 88,10 1 Reikningspund Vöruskiptal. 210,95 211,45 Forstofuherb. í Kópavogi til leiguj rétt við strætLs- vagnabiðstöð og verzlun. Uppl. í síma 40270 frá 10—12 árdegis og kl. 6—8.30 síðdegis. Til sölu Normende útvarpstæki, sem nýtt. Upplýsingar í aima 20029. Vil koma barni í fóstur eða til ættleiðingar. Tilboð sendist Mbl. merkt „Fram- tíð 6573“. Prestolite rafgeymar Sala, hleðsla og viðgerðir. Tveggja ára ábyrgð. Kaup- um alla ónýta rafgeyma hæsta verði. Nóatún 27. — Sími 35891. Ný teppalögð 3ja herb. íbúð er til leigu •frá 1. des. Engin fyrirfram- greiðs'la. Tilb. leggist inn á afgr. Mbl. f. föstudagskv. merkt „Hraunbær 6547“. Brotamálmar Kaupi alla brotamálma langhæsta verði, staðgr. Nóatún 27, sími 3-58-91. Til leigu við Álfheima 3ja herbergja íbúð teppalögð, laus nú þegar. Uppl. í síma 30101. Heitur og kaldur matur Smurbrauð og brauðtertuT. Leiga á dúkum, glösum, diskum og hnífap. Útv. stú'lkur í eldbús og framr. Veizlustöð Kópav., s. 41616. Til leigu 1—2 herbergi og aðgangur að eldhúsi, ef óskað er. Tilboð sendist Mbl. fyrir laugardag merkt „6551“. Bendix þvottavél notuð, til sölu. Verð kr. 5000,-. Þarfnast viðgerðar. Uppl. að Hverfisgötu 26. Flateyjarbók útgáfa Munksgaards, til sölu. Tilboð sendist í póst- hólf 592. Hangikjöt Nýlegt sauðahangikjöt og lambahangikjöt, gamla verðið. Kjötbúðin Laugavegi 32. Volkswagen Af sérstökum ástæðum er til sölu nú þegar vel með farinn VW ’58, selst ódýrt, ef samið er strax. Sími 30514. Kjöt — kjöt 5 verðflokkar, ennfr. úrvals .hangikjöt. Opið fimmtud. frá kl. 3-5 og föstud. kl 3-7, laugard. kl. 10-12. Sláturh. Hafnarfj., s. 50791, 50199. íbúð til leigu 4ra herbergja á góðum stað. Tiil'boð merkt ,,íbúð — 6574“ sendist Morgun- blaðinu. Föndur fyrir börn í Betaniu Lauf- ásvegi 13. María Eiríksdóttir sími 45078. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Bamgóð stúlka eða kona óskast á Mti8 heimili frá nk. áramótum 5 daga í vikiu. Tilb. sendist Mfbl. merkt „6575“. Mólverkauppboð S. B. Áríðandi er, að þeir, sem getla að selja málverk á sí8- asta málverkauppboði ársins 3. desember n.k. léti vita um það sem fyrst. SIGURÐUR BENEDIKTSSON Austurstræti 12 — Sími 1-37-15. og Gómorra, en SUM er ekki undanskilið. FRÉTTIR Æskulýðsfélag Bústaðasóknar, eldri deild. Fundur í Réttarholtsskólanum fimmtudagskvöld kl. 8.30 Æsku- lýðsfélag Garðakirkju kemur í heimsókn. Electrolube smurningsolíur og feiti fyrir sjónvarp, útvarp og hvers konar rafknúin tæki og vélar. B. THORVALSSON umboðs- & heildverzlun Pósthólf 548 — Sími 38472, Reykjavík. sd NÆST bezti Sveitamaðurinn kom á bar í borginni og bað um einn Gils og einn Lúðvik. Barþjónninn vissi strax hvað klukkan sló og lét sveitamanninn hafa einn einfaldan vodka og eirun tvöfaldan vodka. HOFUM TIL LEIGU gott skrifstofuhúsnæði AÐ LAUGAVEGI 172. Upplýsingar gefur Sverrir Sigfússon. S'imi 21240 BEZT að augíýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.