Morgunblaðið - 12.01.1969, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.01.1969, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANÚAB 1969. 27 - FORSYTE Framhald af bls. 10 ur barnshafandi af völdum kvænts manns — og svona er það enn í dag. Það er litið niður á lausaleiksbörn. — Mér finnst Jolyon yngri lang skemmtilegastur. Hann umber mannlegan breyzk- leika, enda hefur hann sjálf- ur brotið siðaraglurnar. — Soames finnst mér alveg óþolandi. Hann fer svo inni- lega í taugarnar á mér, að það færi áreiðanlega um mig hrollur, ef ég þyrfti að koma inn í sama herbergi og hann. — Irene finnst mér dásam- leg og ég skil ekki hvernig hún gat gifzt Soames. f þá daga átti einstæð stúlka í þessari stétt eiginlega ekki annars úrkosta — en ég held að í hennar sporum hefði ég heldur reynt að vinna fyrir mér með kennslu en selja mig. Enda vildi hún ekki uppfyffla helming kaupmálans, þegar að því kom. — Hvernig mér finnst hún hafa komið fram gagnvart June? — Ég segi nú eins og oft er sagt: „All is fair in love and war“. — Mér finnst gott að íslend ingar skuli sjá þessa mynd. Þá læra þeir kannski betur að skilja Bretana. VANHUGSAÐ HJÁ IRENE Að GIFTAST SOAMES H-elgi Pétursson nemandi: — Eins og er stend ég með Soames. Ég álít hann heil- steyptasta persónuleikann í — sannur Forsyte. Soames er hópi þeirra, sem nú eru í sviðátjósinu, en annars var ég hrifnastur af gamla Jo- lyon. Hann var bæði mann- legur og „maður eignanna" aftur á móti 'lítið annað en „maður eignanna". En þó að ég halldi með Soames veilt ég ekki hvort mér myndi líka við hann, ef ég þyrfti að hafa einhver samskipti við hann. — Jolyon yngri finnst mér aftur á móti veikgeðja. Hann tekur aldrei neinar ákvarð- anir, heldur lætur ráðast. — Irene er falleg og við- kvæm og þegar hún giftist Soames átti hún ekki í ann- að hús að venda. En þrátt fyrir það finnst mér vanhugs að hjá henni að ganga að eiga Soames með þessum skil málum, enda hlauit að koma að því að svona færi. En mér finnst óskiljanlegt þetta mikla hatur, sem hún leggur á Soames. Hann hefur marg- beðið hana fyrirgefningar, án þess að biðja um nokkuð meira og mér finnst hún gæti fyrirgefið honum, án þess að gera nokkuð meira fyrir hann. — En í heild veitir myndin innsýn í skemmtilegt tímabil í sögunni. Enda keyptu Rússar kvikmyndina og það verða að teljaat meðmæli, því að þeir kaupa yfirleitt ekkert drasl að vestan. MÁNUDAGSKVÖLDIN ORÐIN ÁGÆTISKVÖLD AðalheiSur Sigvaldadóttir kennari: — Mér firrhst sjónvarps- þættirnir um Forsyteættina skemmtilegir og mjög vel leiknir. Ég var búin að lesa bókina, sem er mjög vel skrif- uð og ég verð að segja að mér finnst furðulegt hvað þeir ná vel flestum atriðum bókarinnar, þegar tifflit er tek ið til þess að hún er yfir þús- und síður. Og persónurnar í myndinni eru alveg eins og ég hafði hugsað mér þær. — f þessari miklu ætt, sem maður kynnist, fléttast hvað inn í annað og undirsfaðan, eru Irene og Soames. Ég hef orðið geysi'lega samúð með Soames. Hann er mikili mátt- arstólpi og hjálpar sínum nánustu. Hann er harður og lífið hefur leikið hann grátit, en þrátt fyrir hörkuna er hann mannlegur. Hann á erf- irtt með að láta frá sér það, sem hann hefur fengið, hvort sem það eru eignir, peningar eða eiginkona. Hann er sann- kallaður „maður eignanna". — Irene fer illa með Soam- es. Hún er mjög óhamingju- söm framan af, en er á líður kemur eigingirni hennar æ betur í ljós. Og munurinn á henni og Soames kemur bezt í ljós, þegar hún á orðið son og hann dóttur. Hann er reiðu búinn að fórna öllu fyrir dótt- ur sína, en Irene verður allt- af númer eitt, sonur hennar númer tvö. — Jo'lyon yngri finnst mér skemmtillegur. Hann er létt- ur, rómantískur og lífsglað- ur og lætur hverjum degi nægja sínar þjáningar. — Annette, franska konam hans Soames finnst mér leiðinleg. — Ég verð vör við það að nemendur mínir, sem eru 9 og 11 ára fylgjast margir með sögunni. Ég heyri stundum á tal þeirra og þeir þekkja helzrtu persónurnar með nafni. — Og ég verð að segja að eftir að Forsyteættin byrjaði eru mánudagskvöldin, sem mér þóttu áður heldur leiðin- leg, orðin mestu ágætiskvölcL Framkvæmdastjóri Líknarfélag óskar eftir duglegum framkvæmdastjóra með góða málkunnáttu. Þeir sem áhuga kynnu að hafa á starfinu sendi nöfn sín með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf á afgreiðslu blaðsins, merkt: „Framkvæmdstjóri — I — 6358“ fyrir 21. þessa mánaðar. Héraðsdýralœknir í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Brynjólfur Sandholt hefur tekið við störfum héraðs- dýralæknis í Gullbringu- og Kjósarsýsluumdæmi frá síðastliðnum áramótum. Sími hans er 38345. Rúðuglerið komið Tvöfalt einangrunargler, glerísetning. 5 ára ábyrgð á tvöfalda glerinu, kynnið ykkur verð og gæði. Seljum einnig á heildsöliuverði í heilum kistum. GLUGGAÞJÓNUSTAN, Hátúni 4 A. Hrossaeigendur Áformað er að starfrækja tamningastöð Geysis að Hellu í vetur með sama hætti og undanfarin ár. Tamninga- stjóri verður Ingimar ísleifsson. Stöðin hefur starf- semi sína í byrjun febrúar. Þeir sem óska eftir að fá tamið hross í vetur vinsam- lega gefi sig fram sem fyrst við Magnús Finnboga- son, Lágafelli, sími um Hvolsvöll. Tilboð óskast í nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grensás- vegi 9 miðvikudaginn 15. janúar 1969 kl. 12—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri Austurstræti 7 kl. 5 sama dag. Sölunefnd varnarliðseigna. Ibúðir í byggingarsamvinnulélagi 3ja OG 4ra HERBERGJA ÍBÚÐIR Til ráðstöfunar eru enn nokkrar 3ja herb. (77 ferm.) og 4ra herb. (94 ferm.) íbúðir í fjórum stigahúsum, sem verið er að byggja á einum fegursta stað í Breiðholtshverfi. íbúðir þessa r afhendast ti.búnar undir tréverk og mátning u, með frágenginni sameign. í kjallara eru geymslur og sameiginlegt húsnæði. 6 íbúðir eru í hverju stigahúsi. Búið er að sækja um Húsnæðismálastjórnarlán. Verð á þessum íbúðum verður mjög hagstætt. Teikningar og allar upplýsingar liggja frammi á skrifstofu B.S.F.R. L augavegi 103. BYGGINGARSAMVINNUFÉLAG REYKJAVÍKUR. Trésmiðjan Víðir hf. auglýsir Seljum næstu daga nokkurt magn af borðstofuhiísgögnum úr tekki með allt að 20—25%afslætti. Það er skápur borð og 6 stk. stólar samt. 21.400./— áður — nú 16.900./— Notið yður þetta einstæða tækifæri og gerið góð kaup. Látið yður verða mikið úr peningunum og verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt. Víðir hf. Laugaveg Sími 22229 og 22222.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.