Morgunblaðið - 28.01.1969, Síða 24
OC ttgt trjrggt.
•C Ugar Metnr
ALMENNAR
TRYGGINGARP
ÞRIÐJUDAGUR 28. JANUAR 1969
AU6LYSIN6AR
SÍMI SS*4*8Q
BÍLFARMUR
AF FRÍHOLT-
UM HVERFUR
LÖGREGLAN á Selfossi leitaði
til rannsóknarlögreglunnar um
aðstoð vegna þjófnaðar á bíl-
farmi af bíldekkjum, sem áttu
að fara á hafnargarðinn í Þor-
lákshöfn sem fríholt. Lágu dekk-
inn á sandkambi hjá Þorláks-
höfn, er þeim var stolið. Biður
rannsóknarlögrelan alla þá, sem
einhverjar upplýsingar geta gef-
ið um þjófnað þennan að hafa
samband við sig eða lögregluna
á Selfossi.
Frá fundi atvinnumálanefndanna í gæi
Atvinnumálanefnd rík-
isins á fundum
með atvinnumálanefnd kjördœmanna
Ekki úr lífshættu
SIGURÐUR Sigurðsson, kaup-
maður, sem varð fyrir hnífs-
stungu í sl. viku, var ekki íal-
inn úr allri hættu í gær. Þó er
líðan hans talin eftir vonum.
Atvinnumálanefnd ríkisins og
tvinnumálanefndir kjördæmanna
komu saman til sameiginiegs fund
ar í Reykjavík í gær. Bjami
Benediktsson, forsætisráffherra,
setti fund'inn og stjórnaffi honum.
Á fundinum í gær voru lögð
fram drög að starfsreglu atvinnu
málanefndanna, sem Jónas Haralz
forstöðumaður Efnahagstofnunar
innar skýrði, en síðan fóru fram
nokkrar umræður um þær.
Síðari hluta dags í gær hófust
síðan fundir einstakra atvinnu-
málanefnda, en í dag mun at-
vinnumálanefnd ríkisins halda
fundi með hverri atvinnumála-
nefnd fyrir sig, en á morgun,
miðvikudag, verður haldinn sam-
eiginlegur fundur allra nefnd
anna á ný og genigið frá starfs-
reglum þeirra. Þá er jafnframt
gert ráð fyrir, að gefin verði út
tilkynning um störf fundarins.
.Siglósíld’ í fullan gang
í byrjun febrúar —
Laxfoss að ferma dósir handa verk-
smiðjunni í Noregi um þessar mundir
GERT er ráff fyrir aff starfsemi
Siglósíldar á Siglufirffi hefjist
aftur af fullum krafti fyrstu
vikuna í febrúar, en hún hefur
legiff niffri í 10—15 daga vegna
skorts á dósum. Hafa dósir verið
pantaðar frá Noregi og eru
væntanlegar meff Laxfossi, sem
lestar einmitt um þeissar mundir
í Noregi en siglir þaffan beint til
Norffurlands, aff því er Gunn-
laugur Briem, framkvæmda-
stjóri, tjáffi Mbl. í gær.
Sáttafund-
ur stóð enn
SÁTTAFUNDUR í sjómanna-
deilunni hófst í gær kl. 3, og
stóð hann enn þegar blaðið fór
í prentun í nótt.
Gunnlaugur kvað niðursuðu-
verksmiðjuna hafa átt 400 þús-
und gaffalbitadósir, þegar geng-
ið var til sölusamninga við
Rússa um miðjan desember, en
verksmiðjan hefði ekki treyst
sér til að liggja með meiri birgðir
af dósum meðan ekki var vitað
í hvaða dósaformi Rússarnir
vildu fá síldina.
Samninigarnir við Rússa hljóða
á þá leið, að þeir kaupa alls
3 millj. dósa af gaffaibitum og
36 þúsund dósir af kryddsíldar-
flökum, og skiptist þetta magn
til helminga milli Siglósíldar og
niðursuðuverksmiðju K. Jóns-
sonar á Akureyri.
Þegar ljóst var, hve magnið
yrði mikið, var um það tvennt
að velja — að vinna strax í þær
400 þúsund dósir sem til voru
eða bíða þar til nýjar dósir
Framhald á bls. 16
Frá Hafísáffstefnunni, sem varí gær. Fremst sitja forseti íslands og menntamálaáffherra og hjá
þeim próf. Trausti Einarsson. Lengst til hægri má fremst greina Sveinbjörn Bjömsson, sem var
fundarstjóri og nokkra fyrirlesara á ráffstefnunni, dr. Unnstein Stefánsson, dr. Finn Guðmunds-
son, Sigurjón Rist, Borgþór H. Jónsson, veffurfræffing, Guttorm Sigurbjarnarson, jarffefflisfræff-
ing, dr. Sturlu Friffriksson o. fl.
Frá hafísráðstefnunni, sem var sett í gœr:
vTNDAR HÆTTULEGRI EN
ÍSMAGNID N0RDUR FRÁ,
sögðu tveir fyrirlesarar
HAFÍSRÁÐSTEFNAN var sett í
gær í húsi Slysavamafélags ís-
lands, að viðstöddum forseta ís-
LOÐNUAFURÐIR SELJAST VEL
UM ÞESSAR MUNDIR
Nauðsyn að hafnar verði
loðnuveiðar fyrr en verið hefur
Síldarleitarskipið Á r n i
Friffriksson fann sem kunn-
ugt er mikiff magn loðnu um
70 til 80 mílur réttvísandi út
af Dalatanga. Morgunblaffið
sneri sér í gær til Jónasar
Jónssonar, framkvæmdastjóra
Síldar-og fiskimjölsverksmiffj
unnar hf. og spurffi hann um
markaffshorfur á loffnuafurff-
um. Jónas kvaff þær mjög vel
seljanlegar um þessar mundir
— lýsiff væri aff vísu í fremur
lágu verffi en allgott verff
fengist fyrir mjöliff. Ailar
mjölbirgðir | landinu hafa
þegar veriff seldar.
Á undanförnum árum hef-
ur loðnunnar yfirleitt orðið
fyrst vart á móts við Horna-
fjörð um mánaðamót janúar-
fébrúar. Ljóst er að hún
kemur norðan úr höfum, en
ekkí er fyllilega vitað, hvar
hún kemur að landi, en likur
benda til þess að hún komi
fyrst að Langanesi. Ferð
loðnunar mun síðan liggja
suður með Austfjörðum, vest-
ur með suðurströndinni, og
þegar hún kemur að Reykja-
nesi hefsf veiði á henni að
einhverju ráði. Fylgja veiði-
skipin henni áfram norður
með vesturströndinni í Breiða
fjörðinn, þar sem hún lýkur
för sinni.
Fulltrúum í Félagi sildar-
verksmiðja hefur löngum ver
ið það kappsmál, að veiðar
á loðnu yrðu hafnar miiklu
fyrr en verið hefur — veiði-
Framhald á bls. 16
lands, Kristjáni Eldjárn, og
menntamálaráffherra Gylfa Þ.
Gíslasyni. Voru strax á fyrsta
degi ráffstefnunnar flutt fjögur
erindi um hafís, veffurfar og haf-
strauma. Er mikill áhugi á ráð-
stefnunni, og sækja hana um
hundrað manns. Næsta hálfan
mánuð flytja vísindamenn 30 er-
indi. f anddyri fundarstaðar hefur
veriff komið fyrir sýningarmun-
um varffandi hafískomur til ís-
land.
Próf. Trausti Einarsson setti
ráðstefnuna. Kvað hann Þorvald
Thoroddsen hafa verið fyrsta vis
indamann, sem athugaði hafís-
inn við ísland, en síðan hætti
hafísinn að láta sjá sig
og þá minnkaði áhugi vís-
indamanna, þar til hann kom
aftur 1965 og enn 1967 og 1968.
Þá fæddist hugmyndin að þess-
ari ráðstefnu, þar sem ætlunin
er að safna gögnum af ýmsu tagi.
Með rannsókn og þekkingu ætti
að vera hægt að draga úr óþæg-
indum þeim, er hafísinn veldur.
Þó talsvert af gögnum muni
liggja eftir ráðstefnuna, þar sem
menn hafa safnað miklum upp-
lýsingum til erinda sinna, sagði
dr. Trausti að koma mundi i ljós
í lok ráðstefnunnar, að mörg ó-
leyst verkefni liggja fyrir og
mætti hún þá verða vísindamönn
um hvöt til að takast á við þau.
Sagði hann ráðstefnuna helgaða
minningu Jóns Eyþórssonar, veð
urfræðings, sem hefði orðið 74
ára þennan dag, en hann var
manna fróðastur um hafís og
veðurfar sl. 40 ár, þar eð hann
kannaði lengst af hitabreyting-
ar og safnaði hafísfréttum eftir
1950 og stofnaði Jöklarannsókn-
arfélagið og tímaritið Jökul, þar
sem erindi ráðstefnunnar verða
Framhald á hls. 17
ÞRIR TOGARAR
SFLDU ERLENDIS
ÞRÍR togarar seld,u erlendis í
vikunni og einn bátur. Togarinn
Sigurður seldi á fimmtudag 1
Bremerhaven 205 tonn fyrir 176
þús. mörk, Þormóður goði seldi
sama dag í Cuxbaven 122 tonn
fyrir 103 þús. mörk og á föstu-
dag seldi Jón Þorláiksson 1
Cuxhaven 92 tonn fyrir 76.700
mörk. Á fimmtudag seldi vJb.
'Ögri 22 tonn í Grimsby fyxir
4050 pund.