Morgunblaðið - 16.02.1969, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.02.1969, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1969. 11 Forsíðan af alrfiennu bænarskránni. læknir og Bjarna Þorsteinsson, amtmann. Áhrif Jóns á löggjöfina miklu — Þegar þessi bóik var gef- in út, höiSu tslendinigar búið við frílhönidiunina í 40 ár og fengið allt annað en góða neynsLu af henni. Þessvegna er ekki óeðlilegt að höfundar geri sem minnsit úr hlutdeild Jóns í lögunum um þetta verzl unarfyrirkomulaig. Ævisagan er fyrst og fremsf skrifuð Jóni til lofs, og vissulega á hann miiki'ð k>f sikilið, en var eikki óskei/kull fremur en aðrir roenn, segir Siigfús Andrésson. Sannleikurinn er sá, að þegar Jóni vaæð ljósf að hinir nýju vaid.hafar o.g samnefndar- menn hans í landsnefndinni voru ákveðnir í að afnema einokunina, tók hann þann kostinn, sem vænlegastur var eins og á sfóð, að beita áhrif- um sínum og þekkinigu til að gera hina nýju verzlunarlög- gjöf þannig úr garði sem hann áleit að væri heppilegast fyrir Island og ríkið í heild. Þess vegna var Jóni falið að yfir- fara frumvörpin að tilskipun inni um verzlunina og gerSi hann við þau martgar oig mikl- ar at)hugasemdir, sem voru mjög beknar til greina. Þetta og fleira sýnir, að áhrif Jóns á þessa löggjöf voru mjög mikit, enda eru frumvörpin með athuigaisemdum Jóns varðveitt í skjölum Landsnefndar. — Hin dapurlegu ævilok Jóns, er hann steypti sér út af Löngu- brú 29. marz 1787, hafa orðið tíl efni ýmissa kviksagna. Þeirra á meðal er sagan um, að hann hafi tekið sér sivo nærri að einokun var afnumin, að hann hafi fyrir- farið sér. En aðalásitæðurnar fyrir því voru þær, að þegar hér var komið var Jón sjúkur maður á sál og líkama og svo yfirhla'ðinn störfum, að það náði í rauninni enigri átt. Sjálfsmorð vöktu á þessum tíma enn meiri óhug en þau gera nú, og þess vegna var eðlitegt að ýmiskonar ályktanir yrðu dregnar af hinu sviplega fráfalli Jóns og að það yrði tiilefni alls konar sögusaigna, sem íslenzkir annálar bera með sér. Við getum ekki Mtið sta'ðar numið hér, með fráfalli Jóns Eiríkssonar og spyrjum Sigfús þvi áf ram um fríhöndlunina, sem hóf göngu sina 1787—88. — Þetta orð, firíhöndlun, er hálfgert vandræðaorð, segir hann, en vann sér hefð í málinu á sínum tíma og táknar ákveð- inn hlut, það að verzlunin var aðeins frjáls við þegna Dana- konungs í Evrópu og kaupmenn- irnir yfirleitt búsettir- í Kaup- mannahöfn, en létu faktora sína annast verzlanirnar hér. Þetta er hin svokallaða selstöðuverzlun. Hugmynd landsnefndar var sú, að láta hina dönsku starfsmenn konungsverzlunar, sem höfðu verið búsettir í landinu síðan 1777 fylla upp í það tómarúm, sem var í íslenzku þjóðfélagi, því hér skorti, sem fyrr er sagt, algerlega innlenda verzlunar- stétt. En þetta gafst ekki betur en svo, að þessir fyrrveirandi kaupmenn konungsverzlunar, sem nú eignuðust verzlanirnar, vildu ekki búa í landinu. Almenna bænarskráin skorinort Plaffg — fslendingar voru þvi litlu ánægðari með þetta verzlunar- fyrirkomulag en einokunina, eins og bezt sést af almennu bænar- skránni frá 1'795. Höfundur þess- arar bænarskrár er í rauninni Magnús Stephensen, en annar hvatamaður hennar er Stefán Þórarinsson amtmaður á Möðru- völlum. Þessi bænarskrá er mjög sérkennilegt plagg fyrir sinn tíma, því í stað þeirrar auðmýkt- ar, sem venjulega gætir í þréf- um íslenzkra embættismanna, eru stóryrðin hér ekki spöruð. Enda hafa sumir talið, að hér gæti áhrifa frá frönsku stjórnar- byltingunni. Þegar á það er lit- ið, að Magnús Stephensen var enginn byltingarmaður og mjög konunglhollur, þykir mér það mjög ótrúlegt. í bænarskránni er lýst með óþvegnum orðum al- veldi kaupmanna og faktora þeirra á verzlunarsitöðunum, að þeir flytji bæði litlar og vondar vörur til landsins, svíki mál og vog og séu ófærir um að taka við þeim vörum, sem landsmenn hafa á boðstólum, þegar vel ár- ar og greiði yfirleitt fyrir þær smánarverð. Þessi bænarskrá er dagsett á alþingi 24. júlí 1795, en það er í rauninni hálfgerð föls- un, því að þar var aðeins sam- þykkt að fela Magnúsi Stephen- sen að semja bænarskrána. Síð- an var eintak af henni sent hverju hinna þriggja amta og undir hana skrif-uðu fleistir sýsilu- menn ag prótfastar, og aimtmenn- irnir Stefán Þórarin’sson í Norð- ur- og Austuramti og Joachim Vibe í Vesturamti og áréttuðu hana með skilmerkilegum og skorinorðum umsögnum. — Þessi bænarskrá dró held- ur betur dilk á eftir sér, enda voru aðstandendur hennar það djarfir að birta hana á prenti, til öryggis því að hún kæmi fyr- ir augu konungs, eins og þeir orð uðu það. Gáfu þarmeð í skyn að rentukammerið kynni annars að stinga henni undir stól. Bænar- skráin vakti þessvegna mikla reiði í rentukammerinu. Að til- hlutan þess sendi konungur ís- lenzkum embættismönnum alvar lega áminningu haustið 1797, þar sem Stefáni Þórarinssyni er hót- að brottrekstri úr embætti og raunar öðrum embættismönnum líka, ef þeir geri sig seka um slíka ósvífni öðru sinni. En bæn- arskráin varð líka tilefni all- margra flugrita af hálfu kaup- manna, þar sem þeir gerðu svæsnar árásir á íslenzka em- bættismenn, ekki sízt Magnús Stephensen og Stefán Þórarins- son. En þeir svöruðu atftur fyrir sig með öðrum bæklingum og stóð þessi rimma fram ,um 1800. í almennu bænarskránni var m.a. farið fram á að verzlunin á ís- landi yrði gefin frjáls öllum þjóð um, en ihvorki var það tekið til greina né fríhöndlunarlögunum á nokkurn hátt breytt. Á hi-nn bóginn vaT bænaTskráin ekki al- gerlega gagnlaus, því næstu ár- in gerði stjórnin ýmsar smávægi- legar umbætur á verzluninni og styrkti meira en áður íslenzka menn til þátttöku í verzlun lands ins. Merkileg málskjöl dansks kaupmanns Sigfús Haukur Andrésson hef- ur undir höndum og er að vinna með 8 pakka af málskjölum eins af dönsku kaupmönnunum, sem fengin eru að láni úr dönsku safni. Hann segir að umræddur kaupmaður sé einmitt táknrænn fyrir verzlun Dana á íslandi á þessum tíma. — Þessi maður hét George Andreas Kyhn, hefur hann frá- sögn sína af þessum kaupmanni. Hann byrjaði feril sinn sem kaup maður konungsverzlunarinnar á Djúpavogi 1778, lenti þó fljót- lega í illdeilum við ýmsa menn i þar, ekki sízt sýslumanninn í Austur-Skaftafellssýslu, Jón Helgason, og fór svo að þeir lentu í áflogum. Hafði sýslumað- ur nær gengið atf kaupmanni dauð um og var dæmdur í sektir fyr- ir. Skömmu seinna fluttist Kyhn til ReyðarfjaTðar og keypti þá verzlun árið 1‘7'88. Hann hafði auðgazt mjög á dvöl sinni á ís- landi, einkum er portógalskt skip strandaði á Stöðvarfirði ár- ið 1785. Skipið var á leið frá Portugal til Arkangelsk með vín og alls konar munaðarvöru. Keypti Kýhn allan farminn fyrir gjafverð og flutti hann síðan til Káupmannahafnar, seldi hann þar og varð stórauðugur af. — Eftir að Kyhn var orðinn sjálfseignarkaupmaður á Reyðar firði, lét hann faktor stýra þeirri verzlun og settist sjálfur að í Kaupmannahöfn, þar sem hann gerðist stórkaupmaður. Auk Reyðarfjarðarverzlunar kom hann sér upp verzlunum víða um land, eignaðist t.d. verzlun- ina á Vopnafirði, stofnaði verzl- anir á Akureyri og Siglufirði og verzlaði um tíma í Reykjavík, .Hafnarfirði og Keflavík. Hann hafði því fjölda manna í þjón- ustu sinni, þeirra á meðal Niels Örum og Jens Andreas Wulff, Kyhn var mikill harðjaxl, bæði við íslendinga og undirmenn sína, og hann lét sér heldutr ekki fyrir brjósti brenna að ganga í berghögg við dönsku stjórnina, ef því var að skipta. Ýiwsir und- irjjienn hans fengu fljótlega nóg af honum, þeirra á meðal fyrr- nefndir Örum og Wulff, sem stofnuðu sjálfir verzlun á Eski- firði 1798 í samkeppni við Kyhn. Það var upphaf fyrirtækisins Örum & Wulff, sem varð síðan um langt skeið mjög voldugt í verzluninni á Norður- og Aust- urlandi, eins og kunnugt er. Kyhn tók þetta mjög óstfinnt upp og höfðaði mál gegn þeim félög- um fyrir svik við sig, taldi þá hafa beitt sig ýmsum prettum og hlaupizt úr vistinni að tilefnis lausu. f þessum málatferlum gekk Kyhn svo langt, að hann falsaði ýmis málsskjöl. Þegar það sannaðist að lokum á hann, var hann dæmdur i hæstarétti árið 1808 frá æru og búslóð, og sam- kvæmt gömLuím lögum skyldi höggvin af honum hægri höndin fyrir fölsunina. En síðan var hiann náðaður, þanriig að í stað- inn skyldi hanrt sitja í ævilömgu fangefflsi og lauk hann srvi sinni í V ébj argatugtihúsi. — Þessi málskjöl Kyhns eru 1 8 pökkum, sem varðveittir eru í Kaupmannahöfn. f þeim kennir margra grasa, vegna þess að öll verzlunarskjöl Kyhns voru tekin, af honum, er hann varð sannur að sök. Meðal þeirra fann ég bréfabók hans frá árunum 1796 Framhald á bls. 21 Allt skal með varúð vinna. 000G o ^ ° ° V Þér leitið gæfu og gengis. Það gera allir menn, hver með sínum hætti. Ef til vili ieggið þér hart að yður að afla fjöiskyldu yðar lífsgæða; að eignast hús og búa það tækjum og munum; kaupa bil, fasteignir, fyrirtæki. En gleymið ekki að allt skal með varúð vinna. Því fleira sem þér eigið, því fleira er í hættu. *Tryggíng er nauðsyn, því að enginn sér við óhöppum. í einu símtali fóið þér líftryggingu, slysatryggingu, tryggt hús í smíðum, tryggðan atvinnurekstur, bruna- tryggingu, ferða- og farangurstryggingu, bifreiða- tryggingu. Eitt símtal við Almennar tryggingar og þér búið við öryggi. ALMENNAR TRYGGINGARf PÓSTHÚSSTRÆTII SfMI 17700 \\ II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II ■'!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.