Morgunblaðið - 16.02.1969, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1909.
19
- FÉKK BRÉFIN
Framhald af bls. 14
komin til Stokkhólms og ég
hafði lofað að sækja þig. Ég
mundi ekki eftir þes'.su fyrr en
kvöld var komið og þá þaut ég
upp á Yasagötu til að sækja
þig. Já, þetta var heimsku-
legt/
í öðru bréfi til Önnu segir
Nils Strindberg frá því, þegar
hann og félagar hans tveir
kom,u sér fyrir í áfangastað
eftir að hafa dregið sleðana í
tíu klukkustundir. Skap leið-
angursmanna er nú farið að
þyngjast og þeir hugleiða, hvert
þeir muni neyðast til að hafa
enn vetursetu á íshafinu.
„Veslings litla Anna, hve ör-
vingluð þú myndir verða, ef
við kæmum ekki heim næsta
haust. Og þú mátrt trúa því, að
það kvelur mig einnig að hugsa
til þess, ekki mín vtegna, því að
það gerir mér ekkert þó að ég
verði að erfiða, ef ég bara ein-
hverntíma kemst heim.“
Hér klippti ritskoðunin 1930,
en framhaldið er á þessa leið:
„og fái að njóta þeirrar ham-
ingju að verma mig aftur í sól
ástar þinnar.“
Þessi kveðja til unnustunnar
úr íshafinu var talin of við-
kvæmt einkamál til að sjá dags-
ins Ijós.
Síðasta bréf Nils Strindbergs
til Önnu er dagsett 31. júlí 1897
og því lýkur með þessum orð-
um:
„26. júlí gengum við yfir renn
una og losuðum birgðirnar hinu
megin og umskipuðum þeim til
að skilja eftir dálítið af vistum
og birgðum."
Þetta voru lokaorðin í bréf-
um Nils Strindbergs til Önnu.
Hún fékk þau í hendur þrjátíu
og þremur árum síðar. skömmu
eftir að kistur þremenninganna
höfðu verið fluttar til Stokk-
hólms.
Rannsóknir síðari ára hafa
svipt Andréeleiðangursmennina
allri hetjudýrð sem heimskauts-
könnuði. En heimildir bera því
vitni, að þessir þrír menn sýndu
mannlega hetjulund í ríkum
mæli k þriggja mánaða ferð
sinnd á heimskautaísnum í op-
inn dauðann.
Anna Charlier, stúlkan sem
Nils Strindberg skrifaði ástar-
bréf á helgöngu sinni ’yfir hetm
skautaísinn, var einkakennari
þegar hún kynntist Nils, sem þá
stundaði sömu atvinnugrein.
Þau léku saman á hljóðfæri, hún
á píanó og hann á fiðlu og op-
inberuðu trúlofun sína skömmu
áður en Andrée-leiðangursmenn
lögðu upp.
Anna gleymdi aldrei Nils
Strindberg. í þrettán ár beið
hún unnusta síns í heimskauta-
íSnum, en giftist þá enskum
kennara, Gilbert Hawtrey, og
fluttist með honum til Banda-
ríkjanna, en aftur til Englands
í upphafi heimsstyrjaldarinnar
fyrri.
Árið 1930 kom Anna í stutta
heimsókn til Svíþjóðar. Síðustu
dagana sem hún dvaldist þar,
kom hún út á götu að morgni
og las svohljóðandi frétt á fregn
miðum dagblaðanna: „Andrée-
mennirnir fundnir. Gröf Strind
bergs fannst...“
Næstu daga varð hún að
halda áfram ferð sinni til að
hitta mann sinn í Bandaríkjun
um. Hún gat ekki beðið og ver-
ið viðstödd jarðarförina, en
varð að láta sér nægja að senda
lítinn krans.
Skömmu síðar fékk hún bréf
in frá Nils Strindberg, sem bróð
ir hans sendi henni í pósti, er
hraðritunin hafði verið þýdd.
Bróðurdóttir Nils Strindbergs
heimsótti Önnu í Englandi 1947
og hetfur m.a. lýst heimsókninni
þannig:
„Maður Önnu, Gilbert Haw-
trey, var dásamlegur maður,
sem gerði allt sem hann gat til
að hjálpa Önnu í sorg hennar.
En allt kom fyrir ekki. Anna
gat ekki gleymt.
Heimili hennar var krökt af
æskumyndum af Nils Strind-
berg.“
Anna lézt 1947 eða 1948 eftir
langvarandi veikindi. Börn eign
aðist hún ekki með manni sín-
um, sem einnig er látinn fyrir
mörgum árum. En áður en Haw
trey lézt, uppfyllti hann síðustu
ósk Önnu. Líkami hennar hvíl
ir í litlum ensikum kirkjugarði
og eiginmaðurinn við hlið henn
ar. En hjarta Önnu var brennt
og liggur við hliðina á kistu
Nils Strindbergs í Norra kirkju
garðinum í Stokkhólmi.
Til söln er sérhæíí í Austurborginni
150 ferm. 4ra herb. þar af tvö með Skápum, sam-
liggjandi stofur og hol, gott eldhús með borðkrók,
flísalagt bað með lituðum tækjum, þvottaherbergi á
hæðinni, allt teppalagt, stórar suðursvalir.
STEINN JÓNSSON, HDL.,
fasteignasali, Kirkjuhvoli.
Sími 19090 og 14951.
Uppl. í dag frá kl. 2—5 e.h.
IBM GÖTUN
Stórt og traust fyrirtæki óskar að ráða stúlku til að vinna
við IBM götunarvélar.
Gagnfræðaskólamenntun, verzlunardeild og vélritunarkunn-
átta nauðsynleg.
Reglusemi, samvizkusemi og góð ástundun áskilin.
Aldurstakmörk 18—26 ára.
Tilboð merkt: „Áhugasöm •=— 6020“ sendist Morgunblaðinu
sem allra fyrst.
Húseigendui
Við smíðum handrið
allt fyrir arin, hlið
og alls konar list-
smíði.
Vönduð vinna.
Afborgunarskilmálar.
Hringið í síma 51212.
Járnsmiðja
Harry Sönderskov
Vesturgötu 40,
Hafnarfirði.
HÖFUÐ- OG HEYRNARHLÍFAR
Viðurkenndar af Öryggiseftirliti ríkisins
Heyrnarhlífar Hlífðarhjálmur
Ullarhúfur undir hjálma.
Verð mjög hagstœtt — Heildsala
Hjálmur
með heyrnarhlífum
smásala
DYNJANDI S.F.
SKEIFAN, Reykjavík
Sími 82670.
HEIMDALLUR - ÚÐINN
SPILAKVÖLD
SPILAKVÖLD SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK VERÐUR FIMMTUDAGINN 20. FEBRÚAR
KL. 20.30 í SJÁLFSTÆÐISHÚSINU.
1) SPILUÐ FÉLAGSVIST. 4) DREGIÐ f HAPPDRÆTTI.
2) ÁVARP: Steinar Berg Björnsson Glæsilegir vinningar.
formaður Heimdallar. 5) KVIKMYNDASÝNING.
3) SPILAVERÐLAUN AFIIENT.
IIÚSIÐ OPNAÐ KL. 20. — Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu á venjulegum skrifstofutima.
SKEMMTINEFNDIN.