Morgunblaðið - 27.03.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1©69
5
Jökull Jakobsson:
Það er ekki hægt að skjóta
frelsisþrá og ættjarðarást
RÆÐA Á GRIKKLANDSVOKU I
TJARNARBÚÐ 25. MARZ
FIMMTUDAGINN 20. apríl gekk
lífið sinn vanagang í Aþenu, borg
inni þar sem vagga lýðræðisins
hafði staðið öldum áður. Þessi
dagur var í engu frábrugðinn
öðrum sólskinsdögum í hinni
fornfrægu borg þar sem Sókrates
gekk um götur með lærisveinum
sínum og Períkles réði ríkjum
forðum. Að venju var straumur
af amerískum og þýzkum túrist-
um um þröngar og hilykkjóttar
göturnar í Plaka, gamla borg-
arhverfinu við rætur Akrópólis,
minjagripasalar höfðu hengt út
litskrúðug ofin teppi og fyllt
gangstéttir af koparkötlum, pott-
um og pönnum, á markaðstorg-
inu gaf að líta grískar húsmæð-
ur og þjónustustúlkur velja sér
ávexti, kjötmeti, og annan varn-
ing, þar var prangað og prúttað,
hænsn görguðu í búrum sínum
og hundar gengu um snuðrandi í
leit að æti, skóburstararnir sátu
í löngum röðum á gangstéttum
og ákölluðu viðskiptavini hástöf-
um. Á gangstéttarkaffihúsunum
sátu grískir karlmenn yfir kaffi-
bolla eða glasi af úsó, endurnærð
ir eftir síðdegissvefninn og áttu
í heitum kappræðum sín á milli
um pólitík og viðskipti. Krárnar
opnuðu hver á fætur annarri og
út um gluggana 'hljómaði búsúkí,
sérkennileg tónlist Grikkja sem
eins og margt annað speglaði ná
lægð þeirra við Austurlönd, öðru
hverju heyrðust drunur í lofti
þar sem risaþotur smugu yfir
borgina og niður í Píreus, hinni
fornfrægu hafnarbórg var stöð-
ugur straumur skipa frá öllum
þjóðlöndum. Á Syntagma-torgi
fyrir framan þinghúsið þreyttu
bifreiðar kappakstur á breiðgöt-
unum og var ekki spurt að um-
ferðarreglum. Úti fyrir konungs-
höllinni spígsporuðu lífverðir
konungs, evsónarnir, á stórum
tréskóm, klæddir stuttpilsum og
báru sig hermannlega. í stórum
verzlunargluggum miðborgarinn-
ar var útstillt nýjustu Parísar-
tízku og þar á næstu grösum
verður lítil sígaunatelpa á vegi
þér og réttir út báðar hendur
eftir fáeinum drökmum í því hún
þylur á bjagaðri ensku trega-
þrnnginni röddu: no father, no
mother, no food, no clothes, no
home, no nothing. Það var heldur
átakanlegt að mæta þassum litla
munaðarleysingja í fyrsta sinn
en hýrnar heldur yfir manni þeg
ar ksmur í ljós að no father og
no mother bíða ljóslifandi í
næsta húsasundi eftir tekjum
dóttur sinnar. Allstaðar var ið-
andi mannlíf, skvaldur, erill, ys
og önn.
Þegar við vöknum næsta morg
un, — þann 21. apríl er engu
líkara en borgin sé andvana, það
mætti ætla að hún hafi orðið bráð
kvödd um nóttina. Hvergi er sála
á ferli, göturnar auðar og mann-
lausar, hvergi bíll á ferð, engin
flugvél, við höfnina er allt hljótt
og kyrrt. Fyrir flestum gluggum
voru hlerar og dyr læstar á
verzlunarbúðum og þó skein sól
í heiði eins og daginn áður. Það
er ekkert dagblað og þegar þér
verður á að taka upp símtólið,
þá er enginn sónn. Það er held-
ur ónotaleg tilfinning að vakna
þannig í dauðri borg og vita ekki
sitt rjúkandi ráð og loks þegar
verður hreyfing á götunni eru
þar á ferð þrír skröltandi skrið-
drekar og beina byssukjöftunum
í ýmsar áttir — hrædýrin eru
lögst á náinn.
Hermenn gráir fyrir járnum
fylgja í humátt á eftir og taka
sér stöðu á götuhornum. Hvað
hefur gerst? Er þetta draumur
eða v’aka? Martröð? Þú gengur
inn í herbergið þar sem börnin
þrjú sofa, það yngsta er vaknað
og farið að hjala við sjálft sig.
Víst er þetta raunveruleiki.
Hér hef ekki annað gerst en
að lýðræðið hefur verið afnumið
á einni nóttu meðan landið svaf.
Brátt tóku tilskipanir að streyma
út um útvarpsviðtækin: herinn
hafði tekið völd i landinu til að
bjarga þjóðinni úr klónum á
kommúnistum, stjórnarskráin var
ekki lengur í gildi, útgöngubann
sett á, dauðadómur leiddur í lög,
málfrelsi afnumið, dagblöð bönn
uð, símakerfinu lokað. Inn á
milli voru tilskipanir annars eðl
is en engu að síður alvarlegar:
Framhald á bls. 17
Merki Heyrnarhjálpar
Kaupa
skurðtæki
— til heyrnar-
lækninga
HEYRNARHJÁLP, samtök
heyrnardaufra á íslandi, gengst
nú fyrir merkjasölu og verður
ágóðanum varið til kaupa á
skurðtækjum til heyrnarlækn-
inga.
Samtökin hafa nýlega gefið
Þjóðleikhúsinu rafsegulmagnara-
kerfi, sem gerir fólki, sem notar
heyrnartæki, kleift að sækja leik
hús sér að fullum notum.
Heyrnarhjálp rekur skrifstofu
að Ingólfsstræti 16.
Kaupið borðstofusett fyrir ferminguna
| FYRIR 1500 KRÓNUR á mánuði og 15 00,00 út
eignizt jbér BORÐSTOFUBORÐ og 4—8 stóla.
FYRIR 2000 KRÓNUR á mánubi og 2000,oo út
eignizt jbér BORÐSTOFUSKÁP, BORÐ
og 4—8 stóla.
STOLAR KOSTA: 1.450.-, 2.390.-, 2.810.-,
BORÐ — 6.880.-, 7.345.-, 7.760.-,
SKÁPAR — 12.845.-, 13.345.-, 13.900.-,
2.985. -, 3.375.-
8.985. -, 9.365.-
15.845.-. 17.585.-
Eingöngu vnndnðnr vörur
<rtf
r>cx
\~> c>l I i r-9
® 22900 LAUGAVEG 26
BRflun
VÖNDUÐU RAFMAGNS-
RAKVÉLARNAR
BRAUN fyrir allan straum,
forhleðslu og rafhlöður.
BRAUN við allar aðstæður:
• heima • á ferðalaginu
• í bllnum • um borð.
ALLAR GERÐIR jafnan til!
GÓÐ GJÖF — GÓÐ EIGN!
4 SllHI S 44 XO f NUMJIMJAT* lO 4
HUNAN6SGVLT-DÖKKGRÆNT-GULT0KKUK
LJÓHAGULT
^ÖÍjflíVÍTT
M-
»1