Morgunblaðið - 27.03.1969, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.03.1969, Qupperneq 8
MORGrUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1969 Vilja f rjálst verð- myndunarkerfi Björgvin Schram endurkjörinn formaður Félags íslenzkra sfórkaupmanna Að'alfundur félagsins var hald- inn í Súlnasal Hótel Sögu, laug- ardaginn 22. marz 1969, og var fundurinn fjölmennur. Gestur fundarins var Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, sem flutti ræ'ðu á fundinum um við- skiptamál, og var góður rómur gerður að ræðu hans. Svaraði borgarstjóri síðan fyrirspurnum sem til hans var beint. Formaður félagsins, Björgvin Schram, minntist látinna félags- manna ,þeirra Arents Claessen, Sturlaugs Jónssonar, Kristjáns Kristjánssonar, Magnúsar Ö. Ólafssonar og Ara Jónssonar. Fundarstjóri var kjörinn Egill Guttormsson, stórkaupmaður og fundarritari Hafsteinn Sigurðs- son, hrl., framkvæmdastjóri fé- lagsins. I skýrslu formanns, Björgvins Schram um störf stjórnarinnar á sl. starfsári vars kýrt frá hinum fjöldamörgu málum, sem stjórn félagsins hefir fjallað um, og bar þar hæst verðlagsmálin. Skýrði formaður m.a. frá því að Hafsteinn Sigurðsson hrl., framkvæmdastjóri félagsins, hefði sagt upp starfi sínu, og mundi fara að starfa í Verzlunar- banka íslands h.f. sem yfirmáð- ur lögfræðideildar bankans. Við þetta tækifæri þakkaði formaður Hafsteini störf hans í þágu fé- lagsins þau 13 ár, sem hann starf aði fyrir félagið og tóku fundar- menn undir þakkir formanns. Hafsteinn Sigurðsson hrl., sagði frá starfsemi skrifstofu fé- lagsins og þeim verkefnum, sem unnið væri að um þessar mund- ir. Pétur O. Nikulásson, gjald- keri félagsins, las upp reikn- inga þes fyrir 1968. Þá flutti Jón Jóhannesson skýrslu um starf- semi Lífeyrissjóði verzlunar- manna og Bergur G. Gíslason skýrslu um starfsemi Islenzka vöruskiptafélagsins s.f. Björgvin Schram var endur- kjörinn formaður til næstu tveggja ára. Einar Farestveit og Ólafur Guðnason gengu úrs tjórn félagsins og gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. í stjórn félags ins voru kjörnir í stað Einars og Ólafs, þeir Kristján Þorvaldsson og Jóhann ólafsson en aðrir í stjórn félagsins eru Leifur Guð- mundsson, Árni Gestsson, Pétur Ó. Nikulásson og Gísli Einars- son. Endursko’ðendur voru kjörnir, Tómas Pétursson og Geir G. Jónsson, og fulltrúar félagsins í stjórn Verzlunarráðs Islands, Björgvin Schram og Kristján G. Gíslason. 1 skuldaskilanefnd voru kjörnir, Kristján Þorvaldsson, Gunnar Eggertsson og Þórhallur Þorláksson. í útflutnings'nefnd eiga sæti Ólafur Ágúst Ólafsson, Einar Farestveit og Margeir Sigurjónsson. Aðalfundurinn samþykkti svo- felldar ályktanir: VERÐLAGSMAL: Aðalfundur F.Í.S. 1969 harmar að ekki skuli þegar hafa verið horfið með öllu frá því prósentu álagningarkerfi, sem hér hefir tíðkazit og varar við þeim geig- vænlegu afleiðingum, sem þetta álagningarkerfi getur haft á ís- lenzka verzlun allri þjóðinni til óbætanlegs tjóns um alla fram- tíð. Megin hlutverk íslenzkrar verzlunar hlýtur að vera það sama og verzlunar hjá nágranna- þjóðum okkar þ.e. að brúa bili’ð milli framleiðslu og neyzlu í þjóðfélaginu. Það er almennt við- urkennt að blómleg framleiðslu- starfsemi meðal vestrænna þjóða byggist fyrst og fremst á þrótt- mikilli og framtakssamri verzlun, sem er megnug að afla markað- £ir fyrir framleiðsluvörur þjóð- anna. Þar af leiðandi hlýtur það áð vera ekki siður hagsmuna- mál íslenzkra framleiðsluatvinnu vega en íslenzkra neytenda og um leið allrar þjóðarinnar, að íslenzkri verzlun sé gert kleift að gegna sínu mikilvæga þjóð- félagslega hlutverki. Aðalfundurinn skorar á ríkis- valdið að láta þegar í stað fara fram rannsókn á skaðsemi nú- verandi álagningarákvæða og framkvæmd þeirra á efnahags- Björgvin Schram líf þjóðarinnar. Og þar sem mjög veigamikil rök liggja þegar frammi fyrir skaðsemi núverandi álagningarkerfis, sem beinlínis hindrar að þeir framleiðsluþætt- ir, sem í verzlun eru, fái notiö sín, skorar fundurinn á ríkis- valdið að koma á, hið bráðasta, frjálsu verðmyndunarkerfi í lík- ingu við það sem þegar hefir sannað ágæti sitt hjá nágranna þjóðum okkar. EINKASÖLUR RÍKISINS: Aðalfundur Félags iselnzkra stórkaupmanna 1969 beinir þeim eindregnu tilmælum til ríkis- stjórnarinnar, um leið og fund- urin fagnar þeirri framkvæmda- semi hennar að hafa fellt niður rekstur Viðtækjaverzlunar ríkis- ins, að einkasala á tóbaksvörum, eldspýtum, bökurnardropum, ilm og hárvötnum verði einnig felld nfður. Leyfir fundurinn sér að vísa til álitsgerða tveggja þekktra endur skoðenda, sem óumdeilanlega sýnir að dreifingarkostnaður ÁTVR er miklu hærri en heild- sölufyrirtækja almennt. VERZLUNARBANKI ISLANDS H.F.: Aðalfundurinn beinir því og til ríkisstjómarinnar og Seðlabanka íslands, að Verzlunarbanki Is- lands h.f. fái sem allra fyrst rétt- indi til að verzla með erlendan gjaldeyri, þar sem telja verður mjög óeðlilegt að verzlunarbanki hafi ekki slík réttindi. Telur fundurinn að hér sé um mjög áríðandi mál aö ræða fyrir verzlunarstéttina, sem ríkisstjóm in og stjórn Seðlabanka íslands verði að taka tillit til. LANSFJARSKORTUR í VERZLUN OG VIÐSKIPTUM: Aðalfundurinn sikorar á ríkis- stjórnina að hlu'tast nú þegar til um útvegun á lánsfé til verzlun- aríyrirtækja. Gengisfellingar tveggja undanfarinna ára hafa rýrt svo fjármagn fyrirtækja að starfsemi þeirra er mikil hætta búin, verði eigi úr bætt. Vill fundurinn minna á, að verzlunarfyrirtækjum var ekki heimilað að selja vörubirgðir með endurkaupsverði og að verzl unarálagningin hefur æ ofan í æ verið skert, þannig að verzlunar rekstur er rekinn me'ð tapi að meira eða minna leyti. (Frá Fél. ísl. stórkaupmanna). FASTEIGNASALAN, Óðinsgötu 4 - Sími 15605. TIL SÖLU 2ja og 3ja herb. ibúðir nýjar, fullfrágengnar í Hraunbæ. 150 ferm. iðnaðarpláss í Kópa- vogi, ódýrt. 3ja herb. íbúð við Bergstaða- stræti, útb. 200 þús. 3ja herb. íbúð við Langholts- veg. Lítið hús við Vitastíg með tveim ur íbúðum og verzlunarplássi, eignarlóð. Höfum kaupendur að öllum stærðum íbúða, góðar útborg anir. Eignarskipti oft mögu- leg. FASTEIG NASALAN Óðinsgötu 4. Simi 15605. TIL SÖLU 2ja herb. íbúð í háhýsi við Aust- urbrún. Vandaðar innrétting- ar. Laus fljótlega. Fallegt út- sýni. 3ja herb. 85 ferm. endaibúð á 1. hæð við Háaleitisbraut. — Ibúðin lítur sérstaklega vel út. Allar innréttingar úr plasti og harðviði. Ný teppi á stiga- gangi og hluta af íbúðinni. 4ra herb. 100 ferm. risibúð við Langholtsveg. Sérinngangur. Útb. 300 þús. 4ra herb. sérhæð í tvíbýlishúsi við Heiðargerði. Vönduð ibúð. Falleg lóð. 4ra herb. 100 ferm. kjallaraibúð við Úthlíð. Verð kr. 850 þús., útb. kr. 400—450 þús. 5 herb. 135 ferm. 3. hæð við Rauðalæk, íbúðin Ktur vel út. Sérþvottahús á hæðinni. Hag stætt verð og útborgun. 6 herb. 147 ferm. endaíbúð á 3 hæð við Hvassaleiti. Vandað- ar innréttingar. Sérþvottahús í kjallara. Bílskúr. Skipti á 3ja—4ra herb. íbúð koma til greina. Einbýlishús — tvíbýlishús Húsið er við Kársnesbraut, og er kjallari, hæð og ris og er að nokkru leyti óinnréttað. Útb. kr. 600—700 þús. Iðnaðarhúsnæði Húsið er tvær hæðir og ris, um 70 ferm. hvor hæð. Loft- hæð um 3 metrar. Hægt er að aka inn á 1. hæð á þrem- ur stöðum. Hagstætt verð og útborgun. Góður staður. í Breiðholti eru 4ra herb. 98 ferm. íbúðir, (sumar endaíbúðir) sem verða tilb. undir tréverk vor- ið 1970. Sumum þessum ib. fylgir sérherb. í kjallara jg öllum sérþvottahús á hæð- inni. Gengið verður frá lóð og sameign. Beðið verður eft- ir húsnæðismálaláni. Fasteignasala Sigurðar Pálssnnar byggingarmeistara og Gunnars Jónssonar lögmanns. Kambsvegi 32. Símar 34472 og 38414. Kvöldsími sölumanns 35392. 27. Andrés auglýsir Verzlun okkar og verkstœði eru flutt af Laugavegi 3 að ÁRMÚLA 5, (2. hœð) Karlmannaföt, stakar buxur, stakir jakkar og fleira Saumum einnig eftir máli M/ÐSrOÐ/AÍ Ármúla 5 Sími 83800. Ármúla 5. Knattspyrnufélagii Víkingur Aðalfundur félagsins verður haldinn í félagsheimilinu í kvöld kl. 8.30 STJÓRNIN. Bátaeigendur Óska eftir að kaupa 15—30 tonna bát í góðu lagi. Góð útborgun. Tilboð sendist Mbl. fyrir 10. ágúst merkt: „6042". Húsbyggjendur - húseigendur Höfum tekið að okkur umboð fyrir tvöfalt gler frá Sam- verk h.f Hellu. 1. flokks A-gler. 5 ára ábyrgð. Sjáum um að taka mál, einnig um ísetningu sé þess óskað. Höfum glerlista, undirborð og allt tilheyrandi. Leitið tilboða. Ath.: Nú er rétti tíminn að panta fyrir sumarið fyrir þá sem ætla að setja tvöfalt gler í eldri hús. Aðeins að hringja í isma 51975. TRÉSMIÐJA BJÖRNS ÓLAFSSONAR Reykjavíkuivegi 68, Hafnarfirði — Sími 51975. HVEITI í 25 kílóa sekkjum. Verð út á viðskiptaspjöld kr. 324,oo. Miklatorgi. Vegna mikillar eftirspurnar óskum við eftir ýmsum stærðum ibúða til sölu. Höfum kaupendur að 4ra — 5 herb. ibúðum. Mega vera i fjölbýlishús- um, gjarnan í Háaleitishverfi eða Hlíðunum. Miklar útborganir. IBUÐA- SALAN SÖLUMAÐUR: GÍSLI ÓLAFSS. INGÓLFSSTRÆTI GEGNT GAMLA BÍÓI SÍMI 12180. HEIMASÍMI 83974. Höfum kaupendur að 3ja herb. ibúðum í Vestur- eða Austurborginni. Útb. kr. 500 — 700 þús. Höfum kaupendur að jarðhæðum og risíbúðum i Reykjavík eða nágrenni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.