Morgunblaðið - 27.03.1969, Síða 26

Morgunblaðið - 27.03.1969, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ 1069 ÍSLANDSBIKARINN í hand- knattleik karla innanhúss verð- ur næsta árið í Hafnarfirði. 1 gaerkvöldi tryggði FH sér -ís landsmeistaratitilinn 1969 og þó á félagið óiokið tveimur leikj- um — en úrslit þeirra geta eng- in áhrif haft á endanleg úrslit mótsins. Báðir íslandsbikararnir í handknattleik — innan- og ut- anhúss — munu því prýða aðal- stöðvar FH, en af slíku hefur ekkert félag getað státað af fyrr — nema FH nokkrum sinnum. FH náði góðum tökum á leikn- um gegn Val er líða tók á fyrri hálfleik, en framan af var lítið um mörk, markvarzla góð hjá háðum liðum en skot, einkum FH-inga ,furðu léleg. En á síð- ustu 10 mín hálfleiksins skapaði FH sér 4 marka forskot, og eftir það var vart um mikla keppni að ræða og sigur FH aldrei í hættu. Staðan í hálfleik var 9-—5 og sama bil var í lokin. 19—14 urðu lokatölurnar. Markaforskot FH komst eitt sinn í 3 mörk í síðari hálfleik og voru þá tveir FH- ingar samtímis af velli fyrir end- urtekin brot. En annars hafði FH 4—5 marka forskot. MMSBI Ellen Ingvadóttir. Vinnur hún afreksbikarinn? Hjalti Einarsson átti hvað mest an þátt i þessum sigri. Hann varði lengst af frábærlega vel og alls 17 skot — sum mjög erfið. Annars kom Þorvaldur Karlsson mest á óvart í liði FH. Leikur- inn var á köflum vel leikinn hjá báðum, einkum varnarleikurinn. Mörk FH skoruðu: Geir 5 (1 víti), Örn 5, Þorvaldur 3, Auðunn 2, Birgir 2, Árni og Gils 1 hvor. í SÍÐARI leiknum í gærkvöldi vann Fram KR með 25:19. j hálf- leik var staðan 11:11. Nánar um þann leik síðar. Eftir leikina í gær er staðan þannig: FH 8 8 0 0 155:125 16 Haukar 8 4 2 2 146:150 10 Fram 8 4 1 3 141:133 9 Valur 8 3 0 5 142:140 6 ÍR 8 2 0 6 157:175 4 KR 8 1 1 6 138:156 3 URVALIÐ VALIO sem mœta á Cummersbach á laugardag ÚRVALSLIÐ Reykjavíkur sem mæta á þýzku meisturunum í handknattleik — liðsmönnum Gummersbach — á laugardaginn kl. 4.30, var valið í gær. Liðið er þannig skipað: Markverðir: Þorsteinn Björnsson, Fram, Emil Karlsson, KR. Aðrir leikmenn: Sigurður Einarsson, Fram, Ólafur Jónsson, Val, Bergur Guðnason, Val, Hermann Gunnarsson, Val, Hilmar Björnsson, KR, Ágúst Svavarsson, 1R, Björgvin Björgvinsson, Fram, Georg Gunnarsson, Víking, Sigurbergur Sigsteinss., Fram, Einar Magnússon, Víking, Bjarni Jónsson, Val, var valinn varamaður. Undonúrslit í skólomóti í knattspyrnu ÞRJÚ lið eru nú eftir ósigruð í skólamóti KSÍ og KRR. Undan- úrslit mótsins verða í dag. Þá leika lið Verzlunarskólans og Menntaskólans í Reykjavík. Það 1 lið sem sigrar keppir síðan við lið Háskólans til úrslita í mót- inu e ftir páska. 100 þús. kr. styttan h já KR I GÆRDAG kom hin mikla stytta, sem KR-ingar fengu að gjöf frá gömlum KR-ing, Sf'- Georg L. Sveinsson ||| ,í| — gefandi ^ styttunnar. Georgi L. Sveinssyni, sem nú er bandarískur ríkisborg- ari, en gleymdi ekki sínu gamla félagi er það varð 70 ára. Bikarinn er sagður kosta 1100 dollara og fengu KR- ingar eftirgefna tolla af þess- ari veglegu gjöf, en ef svo hefði ekki verið, hefði það kostað KR-inga um 100 þús. krónur að leysa gjöfina út. Með gjöfinni fylgdi eftir- farandi bréf frá Georg til Einars Sæmundssonar, for- manns KR. Kæri vinur. Þessi verðlaunabikar er gjöf frá mér til KR í tilefni af 70 ára afmæli þess. Það er ósk mín. að hann verði endanlega geymdur í bikarasafni félagsins. Að öðru leyti hafið þið frjálsar hendur um reglugerð hans. Ég óska KR drengilegra sigra og allra heilla í fram- tíðinni. Með þakklæti fyrir liðinn tima. Styttan sem Georg sendi er 98 sentimetra há og hin feg- ursta, eins og ætla mátti eftir verðinu. Hvað gert verður við styttuna hafa KR-ingar enn ekki ákveðið. Bikarinn til Hafnarfjaröar FH vann Val 19-14 og hefur unnið mótið þó liðið eigi tvo leiki eftir Mörk Vals: Bergur 7 (4 víti), Ólafur 3, Bjarni 2, Gunnar og Hermann 1 hvor. 100 keppendur á sund- móti Ármanns \ kvöld Manch. City Everton 1—0 Leikur til úrslita gegn WBA eða Leicester — og Olympíufarar í KVÖLD fimmtudag fer fram í Siundhöll Reykjavíkur hið ár- lega sundmót Ármanns, og er það jafnframt tilein-kað 80 ára afmæli félagsins. Keppt verður í 12 sundgreinum og má búast við spennandi keppni í allflest- um greinum. Greinarnar eru 200 m. fjórsund tóvenna, 100 m skriðsmnd karla, 200 m bringu- sund karla, 50 m skriðsund telpna 12 ára og yngri, 200 m baksundi kvenna, 100 m bringu- sund kvenna, 50 m skriðsund drengja, 100 m bringusund drengja, 100 m baksiund karla, 100 m skriðsund stúlkna, 4x100 m ííkriðsund karla og kvenna. Allt bezta sundfó-lk la-ndsins keppir ú mótinu. í 100 m skrið- sundj karla má búast við harðri keppni á mdlli Guðmundar Gísla sonar og Finns Garðarssonar en han-n hefur sótt í sig veðrið á siðustu mótum, en auk þess má búa-st við að Gunnar Kristiáns- son geti jafnvel blandað sér í keppnina mrl-li þeirra. 1 200 m bringusundi karla verður hörðust barátfan milli fá erfiða keppni Guðjóns Guðmundssonar og Ol- ympíuf-arans Leiknis Jónssonar en Guðjón va-nn hann á síðasta móti. Aðrir sem koma til greina eru Árni Þ. Kristjánsson og Gestur Jónsson. í 100 m bringusundi kvenna ætti Ellen Ingva-dóttir að vera örugg með sigur en þó gætu Ægis-stúlkurnar Helga Gunnars- dóttir og Ingibjörg Haraldsdóttir veit-t hen-ni harða keppni. í 200 m baksundi kvenna synda met- hafinn Sigrún Siggeirsdóttir, Hal'Ia Baldursdóttir og Erla In-g- ólfsdóttir, en þær hafa sýnt miklar framfarir. í boðsu-ndum er búizt við harðri keppni í karlasundinu milli Ármanns og Ægis og má jafnvel búast við meti í grein- inni, og í kvennaboðssu-ndinu verður hörð keppni milli Sel- foss, Ægis og Ármanns. Á mótinu er keppt um 4 bik- ara í sundgreinum auk þess af- reksbikar ÍSÍ. en h-a-nn vinnst fyrir bezta afrek mótsins sam- kvæmt gildandi stigatöflu, og verðuir sennilega keppnin mest milli Ellenar Ingva-dóttur fyrir 100 m br-ingusund og Sigrúnar 'Si-ggeirsdótur fyrir 200 m fjór- sund. Mjög mikil þátttaka er í mótinu um 100 keppendur frá '7 félögum og bandalögum og urðu undanrásir að fara fram í 5 greinum. Mótið byrjar kl. 8.30. Skíðafólk í kvöld selja forráðamenn Skíða deildar KR dvalarkort að skíða skálanum i Skálafelli yfir pásk- ana. Salan verður í KR-húsinu við Kaplaskjólsveg í kvöld kl. 20.30-22. Félagar skíðadeifldarinnar ganga fyrir en hægt er að -gerast félagi á sama stað. Mikið verður um að vera í skálanum um páskana, skíða- kennsla á hverjum degi og kvöldvökur á hverju kvöldi sem vel er vandað til. Dvalarlestir fá fullt fæði og er vel til þess vandað og einnig geta aðrir gest ir ootið greiðasölu í skálanum. Bikarkeppnin, undanúrslit: Everton — Manchester City 0-1 Leicester — West Bromwich frestaö 1. deildr Coventry — Burnley 4-1 Liverpool — Leeds frestað Manchester Utd. — Sheffield Wed. 1-0 Newcastle — Sunderland 1-1 Nottingham F. — West Brom 3-0 Q.P.R. — Arsenal o-l Southampton — Leicester 1-0 Stoke — Wolverhampton 4-1 Tottenham — Chelsea 1-0 West Ham — Ipswich 1-3 2. deild: Birmingham — Preston 3-1 Blackburn — Bristol City 1-3 Blackpool — Aston Villa 1-1 Bury — Norwich City 1-Z Cardiff City — Portsmouth 2-2 Charlton — Crystal Palace 1-1 Fulham — Millwall 2-0 Huddersfield — Carlisle 2-0 Middlesbro — Hull City 5-3 Oxford Utd. — Derby County 0-2 Sheffield Utd. — Bolton 5-2 Úrslit leikja i vikunni: 1. dcild: Arsenal — Tottenham 1-0 Ipswich — Coventry 0-0 Manchester Utd. — Stoke 1-1 Nottingham F. — Manchester C. 1-0 West Kam — Wolverhampton 3-1 2. deild: Birmlngham — Bolton 5-0 Blackburn — Middlesbro 1-1 Cardiff — Fulham 0-2 Charlton — Sheffield Utd. 2-1 Manbhester City sigraði Ever- ton í undanúrslitum bikarkeppn- innar á Villa Park, velli Aston Villa í Birmingham, sl. laugar- dag með einu marki gegn engu. Leikurinn var mjög spennandi allan tímann og mátti ekki á milli sjá, en markið skoraði Tony Booth á síðustu mínútu leiksins eftir hornspyrnu. Booth leikur í stöðu miðvarðar og er þetta hans fyrsta leikár í aðalliði félagsins. Framkvæmdastjóri Manchester City er Joe Mercer, sem var fyr- irliði Arsenal fyrstu árin eftir síðari heimsstyrjöld, én á þeim árum vann Arsenal meistaratitil- inn árið 194)8 og aftur 1953 og bikarkeppnina 1950, en tapaði fynr Newcastle 1952. Mercer tók við stjórn Manclhester City haust ið 1965, en þá lék félagið í 2. deild, en vapn sig upp vorið eft- ir; var efst í 1. deild í fyrra og nú í úrslitum í bikarkeppninni. Manchester City hefur sex sinn- um komizt í úrslit í bikarkeppn- inni, 1904, 1986, 1933, 1934, 1966 og 1956 en það ár vann félagið úðast bikarinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.