Morgunblaðið - 28.03.1969, Page 2
2
MOBGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. MARZ 1:999
Lánveitingar til hitaveitu- og vatns !;*■*'»*
veituframkvæmda og hafnargeröa
í athugun hjá Atvinnumálanefnd ríkisins
Mikill fjöldi umsókna frá sveitarfélögum
t RÆÐU sinni á Alþingi í
gær, skýrði Bjarni Benedikts
son forsætisráðherra frá því
að Atvinnumálanefnd ríkis-
ins hefði borizt mikill fjöldi
umsókna um lán til opin-
benra framkvæmda frá flest-
um sveitarfélögum í þétt-
býli. Lánin sem um er sótt
ís hindrnr
póstferðii
STYKKISHÓLMI 25. marz. —
Þrjár póstferðir til Brjánslækj-
ar frá Stykkishólmi hiafa að
U'ndanförnu ekki verið farnar
vegna íss. Baldur hefir annazt
þessar ferðir vikulega og á vetr-
um eru ferðirnar farnar á laug-
ardögum. en ekki hefir verið i
þessum mánuði hægt að komast
alla leið fyrr en í gær að Bald-
ur fór með póstinn vestur til
Brjánslækjar um leið og hann
fór í flutningaferð til Reykja-
víkur. Mestur is er nú farinn af
Hvammsfirði og allur úr ná-
grenni Stykkishólmis. Eitthvað
er samt enn við Vestureyjar.
Talsverður snjór er ennþá í
Stykkishólmi og nágrenni. Flug-
vö’llurinn fyrir otfan bæinn var
mokaður sl. laugardag svo nú
er hægt að lenda þaT flugvélum,
en það var ekki hægt fyrir
nokkru sökum snjóa. Vegir allir
færjr um héraðið. - Fréttaritari.
nema um 200 milljónum
króna en þær framkvæmdir
sem um er að ræða í ár munu
kosta um 300 milljónir kr.
Forsætisráðherra benti á, að
þess væri ætlazt að lán til at-
vinnufyrirtækja gengju fyrir.
Hins vegar hefði þegar verið
ákveðið að veita Hitaveitu
Reykjavíkur lán að upphæð 20
milljónir króna sem ásamt
jafnháu láni frá Atvinnuleysis-
tryggingasjóði gerir Hitaveitu
Reykjavíkur kleift að halda
uppi framkvæmdum á þessu ári
er kosta 70—80 milljónir kr.
Nokkrar aðrar framkvæmdir
eru í athugun hjá Atvinnumála-
nefnd ríkisins. Er þar einkum
ura að ræða hitaveitu- og vatns-
veituframkvæmdir og hafnar-
gerðir, en slíkar framkvæmd-
ir hafa mikla þýðingu fyrir at-
vinnu þegar í stað og fyrir fram
tíðarheill byggðarlaganna. Enn
er ekki hægt að segja um
hversu háar fjárhæðir hér get-
ur verið um að ræða en tillög-
ur um þetta efni liggja þegar
fyrir frá atvinnumálanefndum
kjördæmanna.
Sjá nánar ræðu forsætisráð-
herra á bls. 1, 12 og 19.
Eisenhowers
l „ENN hefur dregið úr þreki
Dwights D. Eisenhowers
1 fyrrum forseta," segir í til-
| kynningu lækna við Walter
Reed sjúkrahúsið við Was-1
hington í dag. Segja lækn-,
amir að Eisenhower sofi nú
lengur en áður, en þess á i
milli sé hann með fulla rænu |
og geti rætt við sína nánustu.
í gær tilkynntu læknarair '
að Eisenhower hefði mjög
hrakað, og að tilraunir þeirra |
til að bæta úr hjartatregðu |
hans hefðu engan árangur
borið.
Frú Mamie Eisenhower er |
stöðugt við sjúkrabeð manns i
síns, og segja læknar að hún
sé öllum til mikillar uppörv-
unar, jafnt sjúklingum sjálf-1
um sem gestum, er til hans i
koma.
Áætlun gerð um smíöi fiski-
skipa í skipasmíðastöövum
sem verði fyrir hendi þegar eftirsgurn
eykst á ný — 50 milljónir þarf til efl-
ingar skipasmíðunum með þessum hœtti
ATVINNUMALANEFND
ríkisins hefur nú til athug-
unar með hverjum hætti
unnt er að stuðla að áfram-
haldandi eflingu skipasmíða-
stöðvanna þannig að fyrir
hendi verði ný og hentug
fiskiskip þegar eftirspurn
eftir þeim fer vaxandi á ný.
Hefur Atvinnumálanefndin í
huga að láta gera sérstakar
ráðstafanir hið bráðasta um
þessar smíðar og verja hluta
af því fjármagni, sem hún
Mao fse-tung líkt við
Hitler í sovézku blaði
„Sá rauðasti af öllum rauðum er alls
ekki rauður heldur ataður mannsblóði'*
FÚKYRÐI um Mao Tse-tung
og oflof um rússneska her-
menn ,sem þátt tóku í bardög
unum fyrir skömmu á landa-
mærum Sovétríkjanna og
Kína, náðu nýju hámarki í
sovézkum blöðum fyrir
skömmu. í einni grein í mál-
gagni sovézka hersins, Rauðu
stjörnunni ,er kinverski leið-
toginn undir rós borinn sam-
an við Adolf Hitler og honum
lýst sem morðingja.
Mao, segir í greininni, væri
„einfaldlega svikari við hinn
heilaga málstað kommúnism-
ans. Sá rauðasti af rauðum
væri alls ekki rauður heldur
útataður mannsblóði".
Með augljósari skírskotun
til krafna Kinverja til land-
svæðis á austurlandamærum
Sovétríkjanna segir Rauða
stjarnan: „Einu sinni merkti
viss maður, Adolf Hitler, sér
Moskvu og Uralfjöllin sem
landareign sína á landakort-
inu. Hann merkti sér þau —
en rotnaði upp — og heimur-
inn er glaður yfir því“.
Eftir tilkyningu stjórnarinn
ar sl. föstudag, að hún hefði
veitt nokkrum þeirra, sem
þátt tóku í bardögunum 2. til
15. marz sl. við Kínverja á
Damansky-eyju, æðstu heið-
ursmerki hersins, mátti sjá
það af sovézkum blöðum, að
stjórnarvöldin notfærðu sér
ástandið til þess að kynda að
nýju undir þjóðernistilfinn-
ingu fólks.
Þjóðernislegt yfirbragð á
þvi máli, sem notað hefur ver
ið, hefur minnt margt vest-
rænt fólk, sem búsett var í
Moskvu, er Sovétríkin dróg-
ust inn í heimsstyrjöldina síð
ari 1940, á viðhorf þeirra þá.
f forystugrein á forsíðu
Pravda, málgagns sovézka
kommúnistaflokksins, er bor-
ið lof á sovézku hermennina,
sem barizt hafa á austurlanda
mærunum og sagt: „Blóð það,
sem þeir fórnuðu við að verja
landamæri föðurlands okkar,
er heilagt.....“
„Hinar frækilegu dáðir
þeirra munu verða færðar í
letur í annála um 'hetjulegar
orrustur okkar sósíalistíska
föðurlands sem skínandi
dæmi þess, hvernig sovézkir
hefur til umráða til þessara
framkvæmda. Dugar þar
sennilega ekki minna en 50
milljónir króna.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, skýrði frá þessu í
ræðu á Alþingi í gær og sagði
að skipasmíði innanlands væri
mjög til þess löguð að bæta í
bráð úr atvinnuleysi og tryggja
atvinnu til frambúðar.
Iðnaðarmálaráðuneytið hefur
haft þetta mál til sérstakrar
athugunar, svo og Fiskveiða-
sjóður en sá vandi er á hönd-
um að Fiskveiðasjóður hefur
mjög takmarkað fé til þessara
þarfa og mun svo verða næstu
árin meðan veri’ð er að greiða
niður lán af fiskiskipum þeim,
sem keypt hafa verið frá út-
löndum á undanförnum árum.
Forsætisráðherra sagði að At-
vinnumálanefnd ríkisins legði
megináherzlu á framgang
þessa máls.
Sjá nánar ræðu forsætisráð-
herra á bls. 1, 12 og 19.
Gestur Pólsson
leibnri Idtinn
GESTUR Pálsson leikari lézt í
fyrrinótt, 64 ára að aldri. Hann
var fæddur á Ólafsfirði og voru
foreldrar hans Páll Bergsson,
kaupmaður og útgerðarmaður í
Hrisey, og kona hans, Svanhild-
ur Jörundsdóttir.
Gestur var kunnastur fyrir
leikstörf sín, en hann starfaði
hjá Leikfélagi Reykjavíkur frá
1924-49. Formaður Leikfélags
Reykjavíkur var hann 1939-40 og
aftur 1948 og næstu ár. Leikari
við Þjóðleikhúsið var hann frá
1949 til 1958.
Gestur Pálsson var lögfræðing
ur að mennt og starfaði sem full
trúi hjá Tóbakseinkasölunni
1931 til .1941, en 1941-49 var hann
aðalbókari hjá Olíuverzlun fs-
lands, auk þess sem hann hafði
með höndum málflutningsstörf.
Gestur var kvæntur Dóru Þór-
arinsdóttur, Þorlákssonar listmál
ara, sem lifir mann sinn.
Sýning d listo-
verkum
nemenda MR
ÞESSA dagana stendur yfir list
sýning ListafélagsM. R. og er hún
haldin í nýbyggingu skólans
(Casa Nova). Sýningin er opin
um helgar frá 2-10 síðdegis, en
aðra daga á skólatíma (til kl. 7
síðdegis). Sýningunni lýkur n.k.
miðvikudag.
Þarna eru eingöngu sýnd verk
nemenda og kennir þar margra
grasa. Þarna má sjá málverk,
höggmyndir, útsaum, lágmyndir
og hvers konar „pop-verk“.
Á sýningunni eru 89 verk eftir
31 nemanda, sem eru úr 3. bekk
og upp í 6. bek’k.
Wilson kominn
til Lagos
Hann mun ferðast um Nigeríu og kanna
lausn á borgarastyrjöldinni
Mao Tse-tung
Brezhnev, leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins.
Klögumálin ganga á víxl.
hermenn framkvæma heilag-
ar skyldur sínar“.
f grein Rauðu stjörnunnar
segir ennfremur, að Ijóðskáld
og tónskáld hefðu þegar sam-
ið fyrstu verk sín til heiðurs
„hetjunum á Damanskeyju".
Þar segir: „Það verða samin
fleiri verk og orð þeirra níunu
hljóma með glæsibrag og
krafti sem ljóð um hugrekki
þeirra er verja okkar heilaga
föðurland“.
Lagos, 27. marz AP—NTB
HAROLD Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands, kom til Lagos,
höfuðborgar Nigeríu í dag og hét
því að aðstoða sambandsstjórn
landsins við að koma á réttlát-
um friði, sem báðir aðilar gætu
sætt sig við. Gowon hershöfð-
ingi, leiðtogi sambandsstjóraar-
innar, sagði við komu Wilsons,
að stjórn sín væri jafn fús og
hún hefði alltaf verið til þess
að ganga að samningaborðinu,
svo framarlega sem líkur væru
á varanlegum friði. Haft var eft
ir Wilson sjálfum, að ekki bæri
að gera ráð fyrir óvæntum á-
rangri af ferð sinni og hann
myndi að líkindum ekki gera
neinar beinar tilraunir til þess að
koma á sáttum í borgarastyrjöld
inni.
Gert er ráð fyrir, að för Wil-
sons standi yfir í þrjá daga og
að hann muni fyrst og fremst
skýra frá áhyggjum brezku
stjórnarinnar vegna borgara-
styrjaldarinnar og gera sér grein
frá fyrstu hendi fyrir, hvað er
að gerast um þessar mundir í Ni-
geríu.
Wilson hefur í hyggju að fara
til borganna, Enugu, Port Har-
court og Calabar og einhverjir
möguleikar eru taldir fyrir hendi
á, að hann hitti að máli Ojukwu
hershöfðingja, leiðtogá Biafra.
Fyrir för Wilsons hafði Stewart
utanríkisráðherra Bretlands
skýrt frá því, að Wilson mýndi
ekki vera mótfallinn því að
hitta Ojukwu að máli, en út-
varpið í Biafra sagði frá því í
dag, að ekkert hefði verið minnzt
neitt á boð af opinberri hálfu
þar í því skyni né heldur hefði
FrarahaU & bls. 31