Morgunblaðið - 28.03.1969, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.03.1969, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. MARZ 1969 1 Velheppnaö ferðalag Varðbergs og S.V.S. til Bandaríkjanna Fjörutíu manna hópur kominn heim úr ellefu daga ferðalagi þangað FJÖRUTÍU manna hópur úr félögunum Varðbergi og Samtökum um vestræna sam- vinnu kom í gær heim úr 11 daga ferðalagi til Bandaríkj- anna. Var þar um að ræða kynningar- og fræðsluíerð og var dvalizt í Norfolk í Virg- iníu, Fort Bragg í North- Carolina og síðan 5 daga í höfuðborginni, Washington. í Norfolk er aðalflotastöð Bandaríkjanna við Atlants- ‘haf og þar er einnig yfir- flotastjórn NATO. Skoðaði hópurinn ýmsar mikilvægar stofnanir þar, flotamannvirki og herSkip, þar á meðal her- skipin Springfield og John F. Kennedy, sem er flugmóður- skip, en bæði eru þessi skip á meðal stærstu herskipa Bandaríkjanna. Jafnframt þessu voru ýms- ar merkisbyggingar og minj- ar í Virginíuríki skoðaðar eins og bærinn Williamsburg, sem var höfuðstaður þar 1776, er Bandaríkin lýstu yfir sjálf- stæði sínu, en Williamsburg hefur verið endurbyggð þann- ig, að hún lýtur nákvæmlega eins út nú og 1776. í Fort Bragg er ein af stærstu bækistöðvum landhers ins í Bandaríkjunum og þar er einnig mikilvægur fLugvöll- ur, Pope Air Force Base. Þarna hefur svokölluð 82. Airborne Division stöðvar sín- ar m. a. en þess-arar herdeild ar er oft getið í fréttum, því að herlið úr henni má flytja fyrirvaralaust með flugvélum til hvaða staðar á jörðinni sem er á mjög stuttum tíma og er allur búnaður og hergögn hennar flutt flugleiðia. Þannig var t. d. nú fyrir ör- fáum dögum fiutt herlið í skyndi til Suður-Kóreu og lát- ið svífa til jarðar ekiki fjarri landamærum Norður-Kóreu, en talsverðar skærur hafa átt sér stað þarna að undanförnu og hermdarverkamenn komm- únista oft farið yfir landa- mærin til Suður-Kóreu. í Washington skoðuðu fé- lagar Varðbergs og S.V.S. ýmis minnismerki og bygg- ingar. Ennfremur var farið í Arlington-kirkjugarðinn að leiði þeirra bræðra, John F. Kennedys forseta og Roberts Kennedys öldungadeildarþing- manns, en eldur er látinn loga dag og nótt á leiði for- setans fyrrverandi. Þá var þinghúsið, The Capi- ol, Skoðað, bæði öldungadeild in, The Senate, og fulltrúa- deildin, The Congress. Gafst mönnum tækifæri til þess að hlýða þar á Mike Manafield, leiðtoga þingflofcks demó- kraita í öldungadeildinni, halda ræðu og var hann ó- myrfcur í miáli í gagnrýni sinni á Nixon forseta. Einnig var litið inn í fund- arsal utanríkismálanefndar fulltrúadeildarinnar, þar sem G. Yatron, fulltrúadeildai’þing maður frá Pennsylvaníu og meðlimur nefndarinnar, skýrði frá starfsemi hennar, en þetta er ein mikilvægasta nefnd Bandaríkjaiþings. Þá gafst einnig tækifæri til þess að hlýða á málflutning fyrir Hæstarétti Bandarikj- anna, sem Earl Warren, for- seti réttarins, stýrði, en hann er löngu heimsfcunnur maður og stjórnaði m. a. rannsókn- inni á morði John F. Kenne- dys forseta. Ýmsar aðrar merkisstofnan- ir voru skoðaðar eins og dóms- málaráðuneytið, þar sem FBI, bandaríska alríkislögrelgan er til húsa, svo og Pentagon, bygging varnarmálaráðuneytis ins, en í henni einni vinna hvoriki meira né minna en 35.000 manns. Hluti Hvíta hússins er að jafnaði opinn ferðamönnum, e:» sökum þess ,að Pierre Elli- ott Trudeau, fonsætisriáðherra Kanada, var í opinberri heim sókn í Washington, var mikil viðhöfn í Hvíta húsinu og í borginni sjálfri og Hvíta hús- in-u algjörlega lokað af þeim sökuim, þannig að öklki gafst tækifæri til þess að skoða það eins og fyrirhugað hafði ver- ið. — Það vafcti athygli, að ekki var síður bent á það af leið- sögumönnum hópsins, sem bet ur mætti fara í Bandaríkjun- um jafnframt því mikla, sem Bandarífcin geta státað af og verið stolt af. Sendiherra íslands í Was- hington, Pétur Thorsteinsson, og kona hans, frú Oddný, höfðu móttökuboð inni fyrir hópinn á heimili þeirra sl. sunnudag. Þátttakendur í þessu ferða- lagi Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu voru samimála um, að ferðin hefði í senn verið fróðleg og skemmtileg og tekizt vel í alla staði, enda voru móttökur frá bærar, jafnt af hálfu opin- berra aðila og einstakra fjöl- skytdna, sem þátttakendum gafst tæfcifæri til þess að heimsækja. Fararstjóri í þessari ferð var Magnús Þórðarson. Félagar Varðbergs og S.V.S. um borð í flugmóðurskipinu John F. Kennedy í Norfolk í Virginíu. Nokkra menn úr fararhóp num vantar á myndina. Læknishéruð verði ekki aflögð FRUMVARP um breytingu á læknaskipunarlögunum kom til 3. umræðu í neðri deild í gær, en mál þetta var eitt af fyrstu málunum er lagt var fyrir Al- þingi í haust. Var það þá afgreitt frá nefnd, en þar náðist ekki samstaða um það. Heilbrigðis- BlLAR Arg. 68 Daf. — 66 Saab. — 65 Simca 1000 — 65 Renault R 8. — 67 Fiat 1100 station. — 64 Opol Cadett. — 63 Skoda Combi sation. — 63 Volkswagen. — 66 PMC Gloria. — 64 Benz 190. — 62 Ford Zephyr 4. — 68 Rússajeppi með dísil vél og blæju. — 59 Rússajeppi, benzín. — 66 Bronco. — 62 Landrover dísil. — 63 Austin Gipsy, benzín á fjöðrum. — 62 Austin Gipsy, dísil. Alls konar skipti koma til greina. Opið kl. 5—8 á kvöldin og alla laugardaga. Bílasala Selfoss, Eyrarv. 22. — Sími 1416. málaráðherra, Jóhann Hafstein, óskaði þá eftir því að afgreiðslu málsins yrði frestað um hrið og reynt að ná samkomulagi um það, þar sem hér væri um mjög veigamikið og viðkvæmt mál að ræða. Vélapokkningar De Soto BMC — Austin Gipsy Chrysler Buick Chevrolet, flestar tegundir Dodge Bedford, dísil Ford, enskur Ford Taunus GMC Bedford, dísil Thomes Trader Mercedes Benz, flestar teg. Gaz '59 Pobeda Volkswagen Skoda 1100—1200 Renault Dauphine Þ. Jónsson & Co. Sími 84515 og 84516. Skerfan 17. Gjöf til Jökluannsóhnarfélagsins Tók heilbrigðismálanefnd deildarinnar frunwarpið aftur til attiugunar, og kallaði á sinn fund Sigurvin Einarsson er var fyrsti flutningsmaður breytingar- tillagna við frumvarpið og land- lækni. Tókst að ná samifcomulagi um deiluatriðin, en þau voru helzt, að læknishéruð yrðu ekfci lögð niður þótt læknamiðstöðvar yrðu stofnaðar. Guðlaugur Gíslason mælti fyr ir breytingartillögu nefndarinnar í gær. Sagði hann að nefndin hefði orðið sammála um að flytja þá breytingu, að þegar liðin væru 5 ár frá því að læfcna- miðstöð tók til starfa, verði svæði það, sem stöðin þjónar, eitt læknishérað, ef um fleiri en eitt hérað er að ræða, og áfcveð- ur ráðlherra nafn hins nýja hér- aðs. Ákvæði þessi gilda einnig, þegar svæði læknamiðstöðvar er stækkað. Auk Guðlaugs tóku þátt í um- ræðunum Sigurvin Einarsson, Jóhann Hafstein, heilbrigðis- málaráðlhera, Jónas Pétursson, Jónas Jónsson og Vilhjálmur Hjálmarsson. HINN 20. marz sl. boðaði Jón N. Sigurðsson, hæstaréttarlögmað- ur, formann og gjaldfcera Jökla- rannsóknafélags íslands heim til Eyþórs, sonar Jóns heitins Ey- þórssonar, veðurfræðings, og voru þar Jf/rir aðrir erfingjar Jóns. Tilfcynnti hæstaréttarlög- maðurinn að skv. erfðaskrá Jóns, dagsettri 1. des. 1967, hefði Jón arfleitt Jöklarannsófcnafélagið að 100 þúsund krónum og fengi fé- lagið þessa upphæð nú óskerta að krónutölu þareð erfingjar Jóns hefðu borgað þann hluta erfðafjárskatts, sem ekfci fæst undanþága frá. Jón Eyþórsson hefur því ekki gert það endasleppt við óska- barn sitt, Jöklarannsóknafélagið. Hefur félagsstjómin það helzt í hyggju, að láta fjárupphæð þessa í sjóð, er bæri nafn Jóns og varið yrði til eflingar jöklarannsókn- um hérlendis, enda leyfir félags- stjórnin sér að vænta þess, að einhverjir verði til þess að styrkja slíkan sjóð og heiðra þar með minningu þess mæta manns, sem var brautryðjandi nútima jöklarannsókna á ísiandi. Gjaldkeri félagsins er nú Sig- urjón Rist, en Sigurður Þórar- insson formaður. (Frétt frá fé- lagsstjórninni). Lægri fargjöld til Færeyja með óætlunarflugi F. í. FLUGF5LAG íslands hefur tefc- ið upp ný og lægri fargjöld milli íslands og Færeyja og ganga þau í gildi 1. apríl, hljóti þau samþykfci stjórnvalda. Flugferð til Færeyja og heim aftur mun þá kosta 5649 kr. og telja Flug- félagsmenn það ódýrustu utan- landsferð í ár. í áætlun eru tvær Færeyjaferðir í vilku, á miðviku- dögum. Flugfélag íslands hefur síðan sumarið 1964 haldið uppi áætl- Skrifstofuhúsnœði við Miðbæinn eru til leigu 4—6 fullkomin skrifstofuherbergi. Fagurt útsýni yfir höfnina, leiga sanngjörn. Upplýsingar í sima 13126. una-rflugi til Færeyja, fyrstu ár- in aðeins að sumrinu, en síðustu ár allt árið. Hafa margir íslend- ingar lagt leið sína til Færeyja, einkanleiga um Ólafsvöfcuna, þjóðhátíð Færeyja, og róma mjög móttökur og gestrisni Fær- eyinga. Færeyjar eru faguirt land og sérkennilegt og margt sögulegra minja. Góðar sam- göngur eru milli hinna stærri og fjölbyggðari eyja. Flugvöllur- inn er á eyjunni Vogar, en það- an er tveggja stur.da ferð til Þórshafnar. Flogfélag Föroyja fer með aðalumboð FÍ í Færeyj- Aufc flugs mi'lli íslands og Færeyja, heldur FÍ uppi fLugi milli Færeyja og Glasgow yfir sumarm^nuðina. Flug milli Fær- eyja og Skandinavíu er refcið af FLugfélaginu og SAS í sarnein- ingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.