Morgunblaðið - 28.03.1969, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. MARZ 196®
11
Islendingar þykja mér oft
„málaglaðir" menn
Rœtt við Hákon Cuðmundsson
yfirborgardómara
„EKKT vil ég fullyrða, að Reyk-
víkingar eigi heimsmetið í fjölda
einkamála, en mér þykir það á
hinn bóginn alls ekki ótrúlegt“.
— Með þessum orðum leiðir Há-
kon Guðmundsson, yfirborgar-
dómari, mig til sætis inni í skrif-
stofu sinni. „Mér virðist áber-
andi“, heldur hann áfram,
„hversu mjög fólk lætur sér í
léttu rúmi liggja, hvort það
stendur við skuldbindingar sínar
eða ekki og einnig er áberandi,
hve fólk gengur oft illa frá
kaup- og sölusamningum sín i
milli; t.d. erum við nú með eitt
mál, sem er tilkamið vegna þess,
að maður nokkur keypti hæð í
húsi hér í borg og snýst málið
um, hvort rishæðin hafi átt að
fylgja með í kaupunum eða
ekki!“
— Hvenær var Börgardómara
einbættið stofnað, Hákon?
— Árið 1943 var skipan lög-
reglumála og meðferð opinberra
mála fyrir sakadómi korpin í
það horf, sem nú er. Hins veg-
ar fór embætti það, sem Lög-
mannsembættið í Reykjavik
nefndist, þá með einkamál,
fógetaréttarmál, skiptamál, upp-
boð og þinglýsingar. En 1. janú-
ar 1944 var það embætti lagt
niður og þess í sta’ð stofnuð tvö
embætti; Borgarfógétaembættið
og Borgardómaraembættið.
— Hvaða mál heyra undir
þitt embætti?
— Jú, það eru öll einkamál,
en það eru mál, þar sem fjár-
krafa er aðalefnið. Einnig fram-
kvæmum við borgaralegar hjóna
vigslur, gefum út leyfisbréf til
undanþágu frá lýsingu og leyf-
isbréf til skilnaðar að borði og
sæng í þeim málum, sem sam-
komulag hefur náðst í um skil-
mála.
Náist ekki samkomulag um
skilmála, fer málið til dómsmála
ráðuneytisins. Dómsmálaráðu-
neytið afgreiðir einnig öll lög-
skilnaðarmál eftir að : þau hafa
verið tekin fyrir hér.
— Er það ekki fátítt nú, að
hjónaefni láti lýsa með sér?
— Mjög svo. í fljótu bragði
jnan ég ekki eftir nema einu dæmi
nýlega og þá þótti það svo
merkilegt, að blöðin slógu því upp
sem frétt.
Nú, Sjó- og Verzlunardómur
heyra undir Borgardómaraembætt
ið. Þeir dæma, eins og nöfnin
'benda til, í málum, sem rísa út
af skipum og siglingum og verzl-
unarmálum.
— En Félagsdómur?
— Nei. Félagsdómur er sér-
stofnun. Hann fjallar um mál,
sem rísa út af kjarasamningum
og dæmir t.d., hvort verkfall sé
löglsgt eða ekki. í Félagsdóm
eru skipaðir dómarar til ákveð-
ins tíma í senn og dómum hans
er ekki hægt að áfrýja.
—- Hvað eru borgardómarar nú
margir?
— Auk mín starfa hér nú 6
fulltrúar. Svo starfa hér bókarar
og vélritarar; 7 talsins.
Þegar embættið byrjaði, störf-
uðu hjá því einn borgardómari,
þrír fulltrúar og tveir vélritarar.
— Þessi starfsliðsaukning á ræt-
Hákon Guðmundsson.
ur sínar að rekja til sívaxandi
viðfangsefna embættisins. Árið
1956 voru þingfest hjá embætt-
inu um 1100 mál og voru 850
þeirra afgreidd. 1967 voru þing-
fest mál 6019 og var það 20%
aukning frá árinu áður. í fyrra
borgardómarar og 6 löglærðir urðu þingfest mál 6800 alls og
Sjódómur að störfum. Sjódómur er fjölskipaður dómur og
' skipa hann tveir tilkvaddir meðdómendur auk héraðsdómarans.
(Ljósm.: Mbl. Sv. Þorm.).
fengu 6425 afgreiðslu. — Af
þessum 6425 málum var um 60
áfrýjað til Hæstaréttar.
— Liggur þessi aukning á ein-
hverjum einum málaflokki öðr-
um fremur?
— Ekki er hægt áð greina
það. Obbinn af okkar málum hef
ur alltaf verið og er víxil- og
almenn skuldamál —Jíklega um
og yfir 90%.
— Hvað með hjónavígslur og
skilnaði?
— í fýrra gáfum við saman 47
hjón og var það heldur færra
en árið áður. Miðað við sívax*
andi íbúafjölda Reykjavíkur má
segja, að borgaralegum hjóna-
vigslum hafi stórfækkað. Og við
erum síður en svo að kvarta ýf-
ir því.
160 leyfi til skilnaðar að borði
og sæng gáfum við út í fyrra en
alls komu hér^ fyrir 416 hjóna-
skilnaðarmál. Árið áður var 441
hjónaskilnaðarmál tekið fyrir og
142 leyfi gefin til skilnaðar að
borði og sæng.
— Þú sagðir, að um og yfir
90% væru vixil- og almenn
skuldamál. Ef ég man rétt, var
í fyrra gerð einhver ráðstöfun
til að auðvelda afgreiðslu þeirra
mála.
— Það er rétt. Á sl. ári voru
samþykkt lög um svonefnd á-
skorunarmál, sem einfalda með-
férð skulda- og víxilmáia án
þéss að draga nokkuð úr réttar-
örygginu.
Þessi lög hafa reynzt vel og nú
eru áskórunarmálin um þriðj-
ungur allra skulda- og víxilmála.
Áskorunarmál eru vönjulegast af
greidd tveimur til þremur dög-
um eftir þingfestingu en önnur
víxla- og skuldamál; þau, sem
flutt eru skriflega, eru venjuleg-
ast dæmd innan tveggja vikna
frá þingfestingu, en þegar munn
legur málflutningur fer fram,
taka málin mjög misjafnlega lang
an fíma.
Áskorunarfyrirkomulágið hef- .
ur gert okkur kleift að mæta
vaxandi málafjölda með óbreyttu
starfsliði til þessa, en fjölgi mál-
um áfram með þessum hraða, er .
einsýntað fjölga varður dómend
um við embættið.
— Hvað ræður úrslitum um,
Pramhald á bls. 21
SpánitogPortúgal-
ttl sólarlanda
w
Flugfélag fslands býður nú einkar
ódýrar og þægilegar einstakl-
ingsferSi með nsr 40% afslætti
til Spónar og Portúgals.
Þotuflug til Barcelona, Malaga
og Palma de Mallorca á Spáni
og Lissabon og Faro í Portúgdl
Viðdvöl í London á heimleið ef
óskað er.
Allar frekari upplýsingar og
fyrirgreiðsla hjá lATA-ferða-
skrifstofunum og Flugfélagi
fslarids.
Hvergi ódýrari fargjöid.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI
Bdkaútsala - enskar og þýzkar bækur
Einstakt tækifæri í aðeins 4 daga
Opið til kl. 4 laugardag
BÖKAVERZLUN SNÆBJARNAR, Hafnarstræti 9