Morgunblaðið - 26.04.1969, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.04.1969, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1969 Trillubátsformaðurinn hefir alltaf lifað í mér Afmœlisrabb við Odd Ólafsson yfirlœkni á Reykjalundi ÉG hef alltaf haft það á tilfinn- ingunni að hað væri ámóta örð- ugt fyrir okkur blaðamenin að eiga við laekna eins og að fást við P'ilippus drottningarmann af Bretlandi Mér fannst ég því nær fellt hafa sigrað heiminn, þegar mér tókst að fá Odd yfirlækni á Reykjalundi til þess að lofa mér afmælisrabbi. Eftir að hafa setið ofurlitla stund í rotaiegri stofu yfirlækn- isins að Reykjalundi fannst mér ég geta unað mér þar lengi. Mér fannst ekkert liggja á að koma viðtalinu frá, þó vissi ég að þetta verk vaið ég að leysa fljótt. — Það, að ég varð sjálfur berklaveikur hefir sennilega ráð ið mestu um að ég gerði berkla- »lækningar að sérgrein minni, já áreiðanlega. Og svo var hún svo útbreidd á þessum árum, að hún var eitt mesta vandamál heilbrigð ismála okkar. Það var því ekki svo urfitt að velja. Annars langaði mig til að verða trillubátsformaður. Þá voru trillubátarnii hvað mest að ryðja sér til rúms. Fæðingarheimili mitt að Kalrnanstjöm í Höfnum var útvegsbændaheimili eins og gerðust með þeim stærstu á þeirri tíð. Þ;.r voru 20-30 manns við sjósókn og allt tæmdist 11. maí. Ég lifði það aldrei að líða neinn skort. Það var alltaf nóg að bíta og brenna. — En þú segir að þig hafi lang að til að verða formaður á trillu báti? — Já það var víst einhver sjó- maður í mér — Var það Ketill í Kotvogi afi þinn, sem þar var hlaupinn í þig? — Já, ef til vill. Eða ekki síð- ur séra Oddur móðurafi minn, sem var mikill sjómaður, þótt prestur væri. En þetta fékkst nú ekki með trilluna og 13 ára var ég ser.dur suður til Reykjavíkur til náms og þar var ég öll mín námsár hjá einskonar fósturfor- eldrum mínum Alexander Jó- hannessyni og Halldóru frænku minni, konu hans. Þeim á ég mikið og margt að þakka, kannske mest félagsmálaáhuga minn, sem þar var ákaflega hátt metinn sem og á hinu mannmarga hieim- ili mínu Féíagsmál hóifa allt tíð verið aðal frístundastarf mitt eða „hobbý“ Það hefir verið það hjá okkur ölium, sem hafa starf- að hjá Öryrkjabandalagi íslands og Sambandi íslenzkra berkla- sjúklinga. k — Fékkstu ungur berkla? — Ég veiktist þegar ég var RÓGIR FREEZIA POTT APLÖNTUR BLÓMALAUKAR GARÐRÓSIR Gróðrarstöðin við Miklatorg. Sími 22822. GróðurhúJð við Sigtún. Sími 36770. Gróðrarskálinn við Hafnarfj.veg. Sími 42260. OPIÐ ALLA DAGA til kl. 10. nýkominn : Háskólann. Berklar voru þá ákaflega víða. Systir mín dó úr berkl im og það var mikið um þá í menntaskólanum. Bekk- urinn minn hrundi niður úr berlclum. Þuð var 1932 sem ég veiktist og svo fler ég sem sjúkl- ingur á Vífilstaði 1933. — Tafði berklaveikin nám þitt? — Já um eitt ár. Ég var lengst af viðloðandi á Vífilstöðum eftir þetta eða þrr til ég kom hingað upp eftir 1944, ýmist sem sjúkl- ingur þ»r eða starfsmaður. Ég hef því aldiei verið úti í héraði, því ollu veikindi mín. Ég útskrif aðist frá Háskólanum 1936 og ætl aði raunar til framhaldsnáms í Kaupmannahöfn, en þá fékk ég berkla í hitt lungað og þá voru örlög mín ráðin. Ég stundaði svo framhaldsnám í Bandaríkjunum í berklalækr.ingum við tvo há- skóla 1942 og 1943. — Nú er svo komið að við tielj um okkur hafa ráðið niðurlög- um berklanna á fslandi? — Það er nú of mikið sagt. En það mun óhætt að fullyrða að þeir verða varla hættuleguir faraldur hér á landi framar. — Er ekki ár.ægjulegt að hafa lifað þennan sigur? — Jú víst er það. Þetta gekk svo vel að við lá að við, þessir gömlu berkialæknar, yrðum at- vinnulausir í okkar grein um skeið. — Hvað telur þú að mestu valdi um þann ar. sigur? — Það kernur sjálfsagt margt til. Bættir þióðfélagshættir og þá fyrst og fremst þróunin úr fá- tækt og lélegum húsakosti til bjargálna. Þá komu og til virk- ar og harðar heilbrigðisaðgerðir. Ég segi harðar, því það var heirn ilt að taka fólk nauðugt að flytja á hæli, ef það var með smitandi berkla. Þá kom til víðtæk leit að berklum meðal allra lands- manna og svo síðar náttúrlega berklalyfin, sem hafa gert krafta verk á þessu sviði. Þeesi mál voru tekin hér fastari tökum, en gerðist með öðrum þjóðum í ná- grenni okkar og því má sjálf- sagt mikið þakka árangurinn. Svo kom þetta vinmuheimili hér og það réði mertu um að þeir, sem hlotið höfðr bata, gátu fengið störf við sitt hæfi, en voru ekki neyddir til að leggja út á erfið- an vinnumarkað, eða lifa við misjafnar aðstæður, sem oft leiddr til þess, að sjúklingamir komu á hæiin aftur. Við létum okkur alls ékki til hugar koma fyrir tuttugu og fimm árum, þegar við vorum að skipuleggja þetta vinmuheimili, að innan 10-15 ára yrði ekki not fyrir það allt fyrir berklasjúkl- inga. Strax á árunum 1950-1952 gátum við farið að taka við öðr- um sjúklingum, sem vom þurf- andi fyrir endurhæfingu, ör- yrkjum af völdum annara sjúk- dóma og fólki með geðræna sjúk- dóma — Ég minnist þess Oddur, að ég lá einu 3inni á sjúkrahúsi og þar var borklasjúklingur, sem beið svonefndrar höggningar. Þetta var ung stúlka og ég furð- aði mig mest á því, að daginn áður en hún átti að ganga undir aðgerðina,' gekk hún milli okkar hinna og rabbaði við okkur, því hún sagði sem svo, að ekki væri víst að hún fengi tækifæri til þess aftur. Heldur þú að berkla- sjúklingar séu raunsærri, með til liti til þess hvort þeir lifa af sjúkdóm sinn, en aðrir? — Ja, ég er ekki frá því að svo sé. — Hvað heldur þú að valdi? — Það kann að vera nokkuð margt. Kannske það, að það sá svo marga deyja og einnig það, að það sá marga koma fárveika á hælin, en hverfa þaðan aftur heilbrigða. — Þú varst sjálfur berklaveik ur? — Já, og mér finnst ég raunar ekki getað séð eftir því að hafa orðið það. Það var mér ákaflega þroskandi lífsreynsla. Hvað finnst þér um óttann við menna vinnumarkaði. En þetta er ekki á valdi félagssamtaka einvörðungu, heldur verður hið opinbera að koma til í einhverri mynd. — Hvað veldur þínum áhuga á þessu máli, sérstaklega? — Læknir getur ekki verið á- nægður með það eitt að sjúkl- ingur hans losni við veikina, hann verður að sjá hann sem vinnandi þegn á ný. Við vitum að hjá öryrkjum liggur mikil starfsgeta, sem ekki er fullnýtt. í Bretlandi eru lög um það, að þeir sem hafa minnst 20 manns í vinnu skuli hatfa einn öryrkja. Við erum hinsvegar á móti slíkri löggjöf hér á landi. Hitt er annað mál að ríki og opin- berar stofnanir bæjar- og sveit venjulegtf, heilbrigt fólk, að öðru jöfnu? — Þetta gerir þjálfun kilnn- ingja þíns. Það hefur komið fram við rannsóknir í Banda- ríkjuunm að öryrkjar eru oft betri vinnulkraftur en venjulegt fólk, staðfastari og afkastameiri. — Er lokaátak okkar mikið og langt undan í máleftoum ör- yrkja’ — Það vona ég ekki. Það er rauniar helber aumingjaháttur að við skulum ekki vera búnir að leysa stærsta vandann 1 þessu efni. Það hafa níutíu og eitthvað prósent þjóðarinnar sæmilega og góða afkomu á mælikvarða ör- yrkja. Þetta er því ekki svo stórt átak. arfélaga eru stærstu atvinnuveit Raunar var samtal okkar Odds miklu lengra og margt bar á góma. En bæði er, að maður- inn er sérstaklega varfærinn 1 skoðunum og algerlega sleggju- dómalaus, svo við látum hér staðar numið,í spjallinu. Þó fann ég að ekki líkaði Oddi neikvæð stjárnmálastarfsemi og það að fólkinu skyldi ekki fremur verið kennt að lifa heilbrigðu lífi, en stöðugt skyldi vera starfað að því að reyna að rífa niður af einum það sem annar er að byggj a upp. Hann vildi láta ríkisstjórnir hatfa frið sitt kjör- tímabil og láta þær síðan standa og falla með verkum sínum. —- Einnig fannst mér honum lækna þekking og heilbrigðisþefcking lítt vera nýtt í manneldismál- uim. Verðlaig réði miklu um manneldisvenj ur og tollar vaeru lagðir á vörur án þess leitað væri til manneldisfræðinga um þær aðgerðir. En hann tók líka fram, að laeknar og manneldis- fræðingar væru lítt framhleypn- ir á vettvangi skoðanamyndunar almenningis. Ég hefði kamnske átt að geta þess í upphafi, að þetta afmælis- rabb við Odd á Reykjalundi Oddur Ólafssson yfirlæknir: — Hér hef ég nú unnið í aldar- var við hann sextugan — fjórðung. (laugardakinn 26. apríl, — sagði raunar í fyrstu að hann endur landsins, þegar um létta,, aetlaði ekki að veita mér það, líkamlega vinnu er að ræða. I því hann yrði ekki herma í dag. Þessum aðilum er auðvelt að Hvert hanm færi, eða hvað hann dauðann og fordæmingu á þeim sem fremja ýjálfsmorð? — Mér finnst fráleitt að for- dæma þá sem fremja sjálfsmorð. Ég er ekki frá því að fólk líti orðið talsvert öðrum og raun- særri augum á það að deyja, þetta eina, sem við getum verið viss- ir um að fyrir okkur kemur öll einhverntíma, nún,a, heldur en áð ur var. Svo megum við ekki gleyma þeim mikilhæfu mönnum sem voru I fararbroddi í barátt- unni við berklaveikina hér fyrr á árum eins og t.d. Sigurði Magn ússyni og Helga Ingvarssyni. Þeir voru miklir sálfræðingar og mannþekkjarar. Við megum held ur ekki rígbinda okkur einvörð- ungu við það, að lífshamingjan byggist algerlega á því að menn séu líkamlega heilbrigðir. Það er svo margt annað sem kemur til. — Heldur þú að trúað fólk bú- ist betur við dauða sínum heldur en vantrúað? — Ég held það svona yíirleitt. — Er viðhorf lækna annað til dauðans, heldur en almenn- ings? — Ég held það líka. — Hefirðu verið við banabeð læknis? — Nei. — Heidur þú að læknar séu vantrúaðri en fólk er flest? Ég á þar auðvitað við kristna trú. — Ég held að það gegni nokk uð svipuðu máli með þá og aðra. — En svo að við snúum okk- ur að ,,hobbýinu“ þínu, Öryrkja- bandalaginu? — Almenn öryrkjamál hafa verið okkar mestu áhugamál, sem í þessu stöndum. Ég vil tafca það fram að þar hef ég ekki staðið sérstaklega í fylking- arbrjósti. En ég hef alla tíð ver- ið ákaflega heppinn með mína samstarfsmenn. Þeir hafa verið ágætismenn. Við viljum að ör- yrkjar geti lifað sæmilegu og eðlilegu lífi og við teljum að þeir geti verið jafn nýtir þjóð- félagsþegnar og hinir, jafn gild- ir skattborgarar. Við viljum gera þá að vinnamdi þegnum, skapa leysa mikinn vanda. Og það er staðreymd að vinniUihæfum ör- yrkjum fer fjölgandi í landinu. Það stafar af því að miklu fleiri lifa nú af sjúkdóma sína. — Ég man að einhentur kunm- ingi minm hafði jjafn mikimm kraft í heilbrigðri hendi sinmi og venjulegir menn höfðu í báð- um. Geta öryrkjar orðið betri starfsmenm að vissu marki, en gerði á atfmælisdagimn sinm, ætl- aði hann að láta sér nægja að ákveða að morgni þess dags. Ég óska homurn íiinsvegar til ham- ingju með daginm og veit hanm verður í góðra hópi, því miður ekki við einhverja laxána, þótt ég viti að þar liggur brot af á- huga hans. Það er trilluformað- vlg. Afmæliskveðja ÞAR sem góðir menn fara þar eru guðs vegir. Svo mun fleir- um fara en mér, sem þessar lín- ur rita, að þykja þessi tilvitnun viðeigandi, þegar minnst er á frænda minn og ágætan vin fj ölskyldunnar, Odd Ölafssoh, yfirlækni á Reykjalundi. Því hef ir löngum verið hadlið fram, að tíminn sé fljótur að líða, þegar litið er til baka. Þrátt fyrir nána frændst-mi hófust kynni okkar ekki að ráði fyrr en við frænka mín lemtuim í miklum erfiðleikum og veikindum. Síð- an eru liðin þrjátíu og tvö ár, ótrúlegt en satt, og í dag á þessi ágæti frændi minn sextíu ára afmæli. Hér áður fyrr þótti það hár aldur og enn eru margir sem eins >g skáldið sagði, eru ungir aðeins skamman tíma. Þessu er öðruvísi farið með Odd Ólafsson. Árin virðast ekki bíta á hann og þess vegna verður maður að líta oftar en einu sinni á almanakið ti!l þess að fullvissa sig um, að maðurinn sé kominn á þennan virðulega aldur. Hér verða ekki rakin störf Odds, enda gerist þess ekki þörf. Maðurinn er landskunnur, sérstaklega fyrir hið mikla og óeigingjarna starfs í þágu þeirra sem berklaveikin herjar á. Bygging endurhætfingarstöðvar þeim vinnuaðstöðu á himum al- innar að Reykjalundi, sem SÍBS kom upp, hefir vakið verðskuld- aða athygli víða um lönd, en að því mikla mannvirki átti Oddur góðan hlut. Gaman er að minn- ast dagana, þegar Reykjalundur var í byggingu og Oddur geistist á jeppanum um bæinn þveran og endilangan til útréttinga og til þeiss að koma málum áfram. Þetta er ekki sagt til þess að rýra hlut annarra, sem að þess- um máluim unnu. Þarna var harð snúinn og samhentur hópur á ferðinni, enda lét áranguirinn ebki á sér standa. Síðan hefir stór sigur unnizt í baráttunni við berklaveikina og það hlýtur að vera mikið gleði- efni þeim mönnum sem staðið hatfa í fylkingarbrjósti, að sjá svo dásamlegan árangur starfs síns. Samt er alltatf fjölmiennt á Reykjalundi, því þangað leitar nú fólk, sem aðrir sjúkdómar þjá. Engan mann hefi ég hitt sem þar hetfir verið, að hann ekki dásami aðbúnað og starfs- fólk og þá síðast en ekki sizt yfir lækninn Odd Ólafsson. Ég enda þessa fátæklegu af- mæliskveðju með hjartanleguistu hamingjuóskum til frænda míns og fjölskyldu hans og bið guð að blessa öll hans ókomnu ævi- ár. Hulda Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.