Morgunblaðið - 26.04.1969, Side 28
28
MORGU'NBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL 1969
legri maður handi henni Don
yrði heldur en John og óskaði
þess, að John vildi draga sig í
hlé og lofa þeim að taka upp
þar sesm fyrr var frá horfið.
En þegar við komum inn í
dansoalinn, kom John til okkar
og heilsoði Kay innilega, en mér
sama skapi kuldalega.
— Þú lítur dásamlega út,
Kay. Nú skal enginn nema ég
fá að dansa við þig í kvöld.
Hún hló glaðlega með ertnis-
svip í a Jgunum, um leið og hún
sagði, að hún mundi nú dansa
við hvern sem henni þóknaðist
og hann aky’di ekkert seinka
á sér. Seinna, þegar ég var að
dansa við Rupert, sá ég, að hún
vair að dansa við Don, og þau
virtust vera orðin góðir vinir
aftur.
Þetta var bráðskemmtilegur
dansleikur og mikið gladdi það
mig að sjá Kay dansa hvað eftir
annað við Don. Og þegar við fór
um inn til kvöldverðarins, var
hún enn með honum. Þegar mér
varð litið á andlitið á John, sem
stóð skammt frá þeim, vissi ég,
að hann öfundaði Don. Og Kay
vissi þetta líkia, þóttist ég alveg
viss um. Það var sýnilegt, að
hún var þarna að etja tveimur
karfmönnum saman.
— Eruð þið búin að láta spá
fyrir ykkur? sagði Emma, er hún
kom til okkar.
Sumarbústaður óskast
til leigu, til lengri eða skemmri tíma í sumar. Tilboð sendist
afgreiðslu Mbl., merkt: „SUMARBÚSTAÐUR — 2757".
Höfum til sölu
varahluti í margskonar amerískar vélar og
tæki svo sem þungavinnuvélar, bifreiðar og
önnur flutningatæki. Ennfremur varahluti
í rafmagns og fjarskiptatæki svo sem út-
vörp, sjónvörp og talstöðvar.
Kynnið ykkur hvort varan er til hjá
okkur áður en þér pantið erlendis frá.
SÍMAR 31333 og 31232.
SÖLUNEFNDIN.
HUSBYGGJENDURH
Nælongófteppin komin aftur.
Falleg — Sterk — Ódýr.
Verð frá kr. 330 fermeterinn.
Sendum um allt and.
Grensásvegi 3 • Sími 83430
— Nei, Hefurðu nú spákonu
hérna?
— Já, sannarlega. Hún er inni
í lesstofunni hans pabba. Við
héldum að það gæti verið ágætt
skemmtiatriði.
— Þetta er alveg dásamlegur
dansleikur, Emma, og þú hlýtur
að skemmta þér vel.
— Já, sannariega. Og ég vona
að þið getið sagt það sama.
Við Rupert fullvissuðum hana
um að við skemmtum okkur ágæt
lega.
— Jæja, eigum þið þá að at-
huga spákonuna? sagði Rupert
að lokinni máltíðinni. — Ekki
svo að ski'lja, að ég hafi mikla
trú á þeim.
— Það held ég, að ég hafi
ekki heldur. Sannast að segja
held ég ekki, að ég hafi nokk-
umtíma látið spá fyrir mér.
— Jæja, einusinni verður allt
fyrst.
Við gengum inn í lesstofu hr.
Lipcombs, þar sem dálítill hóp-
ur beið eftir að komast að hjá
29
spákonunni. Þegar að okkur
kom, sagði Rupert mér að fara
á undan.
Spákonan reyndist vera rosk-
in kona, klædd eins og Tatari.
Hún sat þar við borð með krystal
og spil fyrir framan sig. Hún
benti mér til sætis andspænis
sér.
— Vi'ljið þér draga?
— Ég gerði það og beið svo í
ofvæni eftir því, sem hún kynni
að hafa að segja. Og snögg-
lega þegar hún fór að gefa spil-
in óskaði ég þess heitast, að ég
hefði aldrei farið að láta spá fyr
ir mér. Ekki vissi ég hversvegna
Var ég ekki nýbúin að segja
Rupert að ég tryði ekki á það?
Samt var ég vör dálítils óró-
leika. Ég var næstum búin að
taka til fótanna, þegar konan
byrjaði að lýsa bænum okkair fyr
ir mér.
— Þú átt bróður og systur
þar heima. Ég held að systirin
sé yngri en þú og eitthvað hölt.
— Já, það er hún, sagði ég.
— Þú hefur haft miklar áhyggj
ur undanfarið, í sambandi við
systkini þín.
Ég varð líka að játa, að þetta
væri svo.
— Og það eru tveir menn ást
fangnir af þér. Annar þeirra er
góður maður, en hinn. . . Hún
hristi höfuðið — Ég held hann
hæfi þér ekki. Og enda þótt
hann elski þig, þá hatar hann
rafh/öður
fyrir
ÖU viðtæki
Heildsala-smásala
VILBERG &
ÞORSTEINN
Laugavegi 72 simi 10259
þig lika, og vi'll gera þér eitt-
hvað illt, ef þú ekki gætir þín.
Það fór hrollur um mig. Hver
gat þetta verið annar en John?
John, sem aðeins beið færis að
ná sér niðri á mér. Og til þess
mundi hann nota Kay. Aftur
langaði mig til að hlaupa út. Ég
vildi helzt ekki heyra meira.
En samt sat ég kyrr og hlust-
aði.
— Þú getur ekki gifzt mann-
inum, sem þú elskar, eins og
er, vegna þess að einhver hindr
un er í veginum. En sú hindr:
un er bráðlega úr sögunni.
Hjartað í mér hoppaði. Nú
langaði mig ekki lengur til að
taka til fótanna. Nú var ég feg-
in að hafa komið og látið spá
fyrir mér.
— Gerið svo vel að halda
áfram. Mig furðar á, hve þetta
er nókvæmt. Ég brosti. — Og
það er dásamlegt. að þessi hindr
un skuli ætla að hverfa.
Konan leit á mig.
— Þú veizt ekki, hver hún er?
Ég hristi höfuðið. — Nei, en
ég vildi ósku að ég vissi það.
— Þú færð að vita það mjög
bráðlega. Það sé ég í krystall-
inum. En þó að þú haldir, að þú
sért búin að höndla hamingjuna,
þó er það ekki nema rétt í bi'li.
Önnur kona kemst upp á milli
ykkar. Hún er há og grönn og
mjög falleg, með hrafnsvart hár
og hvítt hörund. Konan strauk
hendinni um ennið. — Þvú mið-
ur, er myndin að hverfa, svo að
ég get ekki sagt þér neitt meira.
Þegar ég fór frá henni og
hitti Rupert aftur, sagði ég ein-
beittlega við sjálfa mig, að ég
skyldi ekki láta það, sem ég
hafði heyrt, hræða mig. Það
væri heimskulegt að láta undan
þeirri hræðsiu.
Það hlaut að vera hrein til-
viljun, að hún hafði sagt mér
svo margt sem ég vissi vera
satt. Ég mátti ekki fara að setja
fyrir mig þessa hóvöxnu, svart
hærðu konu, sem mundi komast
milli okkar Bob. Það væri ekki
nema heimska.
Ég fann Dóbóru og Nick í sam
ta'li við Rupert, og þau voru líka
að bíða eftir að láta spá fyrir
sér.
— Var hún góð, Melissa?
spurði Debóra forvitin.
— Hún sagði mér margt, sem
ég vissi að var satt, sagði ég, —
en ég trúi nú ekki meir en svo
á hana. Nú er komið að þér Ru-
pert.
— Vertu ekki mjög lengi, sagði
Debóra. — Ég er alveg æst að
komast að hjá henni.
— Þú getur komið í staðinn
fyrir mig, sagði Rupert. — Mig
lamgar meira að komast í dans-
inn aftur.
Hvað er klukkan? sagði ég
þegar við komium inn í danssal-
inn.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Sá á fund .... segir máltækið. Þetta á ekki síður við hugmynd-
ir en áþreifanlega hluti.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Ef eitthvað liggur þér þungt á hjarta, skaltu hiklaust ráðfæra þig
i við sérfróða menn. Ótti þinn verður ástæðulaus.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júni
l Tími til kominn til að hugsa til hreyfings. En hvert? Þú eygir mögu
leika innan skamms, sem hagkvæmir vcrða.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Ef þér geðjast ekki að því, hvernig fólk farnast vlð gamlan
kunningja, géturðu óefað bætt honum það upp fyrirhafnarlítlð.
L-jónið, 23. júlí — 22. ágúst
Oft er þörf, en nú er nauðsyn. Þetta hefurðu lengi vitað, en þéi
virðist auðvelt að gleyma smámunum sem þessu.
Mcyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Ef ekki fer eitthvað að gerast i hagsmunamálum þínum, er élík-
legt að nokkur breyting verði fyrr en i næstu vlku.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Þér er mikið niðri fyrir, og full ástæða til þess. En þú getur mik-
ið lagfært eigin málefni.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Athafnafrelsið á vel við þig. Þú gctur notað þér það ótrúlega mik-
ið.
Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Þér hefur tekizt vel með áformin, og þvi finnst þér þú eiga gott
skllið. Gakktu ekki of langt.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Gerðu þér ljést, hvar takmörkin iiggja. Annars veldurðu von-
brigðum.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Ilaltu áfram uppteknum hætti. Þetta heppnast vel.
Fiskamir, 19. febr. — 20. marz
J:, Já. I.áttu bara, eins og þú hvorki sjáir né heyrir. En hug-
leiddu líka, svona undir niðri, i hvaða augum þú ert að varpa rykl.