Morgunblaðið - 12.06.1969, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1969
Davíð Ólafsson, bak-
arameistari -Minning
Eggert Eggertsson
— Minningarorð —
HANN jézt í Landspí tal aruuim
hér 4. þ.m. eftir stutta legu á
84. aldursári. Davíð var fæddur
hér í Reykjavík 6. október 1885
Nánar tiltekið í vesturbænuim.
Ætt hans verður ekki rakin hér,
til þess skortir mig þekkingu.
Eins og margir ungir menin hóf
haran snemma að iðka knatt-
spymu og þar sem hanm var vest
ucrbæimgur gekk hanm auðvitað í
K.R. — 1912 var hanin einn af
þeim, sem fyrstir urnnu íslainds-
mótið í knattspyrmu. Þessvegna
var hann líka heiðraður af sínu
gamla félagi í tilefni af 70 ára
afmæli þess á þessu áii. 2 aðriir
en hanm, úr því kappliði, vonu
þá líka á lífi.
Davíð hóf nám í bakaraiðn í
bakaaii því er Cairl Frederiksen
rak á Vestumg. 14. Fnederilksien
þessi var ekki bakari heldur var
hann múrari og all vel efmum
búinn. Hanm var að mörgu merk
ismiaðuir. Varð eikki latngtífur, en
þegar hann andaðist, kom í ljós,
að hann hafði arfleitt starfsfólk
sitt að öllum eigum sínum. Einn
í þeim hópi var Davíð Ólafsson,
enida minntjist ihann ávallt á Fred
erikisen með miklu þakklæti.
Davíð fór til Danmerkur, til
framhaldsnáms, eins og algemgt
var með iðnaðarmenm á þeim ár-
um. Hann tók líka sveinspróf í
Kaupm. höfn 31. okt. 1906. Korn
±>eim stuttu síðar og gerðist verk
stjóri ásamt öðrum bakara í Fred
eriksen's bakaríinu á Vesturgötu
Hóf sjálfstæðan atvinnurekstur
t
Guðlaugur Lárusson
Gnoðavogi 62,
andaðist á Lanidspítalanum
10. júnií.
Aðstandendur.
t
Útför bróður okkaæ,
Þorsteins Sigurþórs
Kristjánssonar,
verzlunarmanns,
Vesturgötu 26A, Hafnarfirði,
fer fram frá Frikirkjunni í
Hafnarfirði, föstudaginn 13.
júní kl. 2 e’h.
Kristín Kristjánsdóttir
Ólafía Kristjánsdóttir
______Jón Kristjánsson._____
t
Maðurinn minn
Markús Loftsson
Asvallagötu 49,
verður jarðsuniginn frá Foss-
vogskirkju föstudaiginn 13.
júní kl. 3 e.h. Blóm vinsam-
lagia afbeðin, en þekn sem
vildu minnaist hans, er bent á
foreldra og styrkitarféliaig
heyrnadaufra bama.
María Guðmundsdóttir.
t
Jarðairför systurdóttur
minniar
Guðnýjar ólafsdóttur
frá Dynjanda, Grunnavíkur-
hreppi, Eskihlíð 29,
sam lézt í Landispítalianum 6.
þ.m., fer fram frá Fossvogs-
kirkju föstudagimm 13. þ.m.
kl. 1.30.
Fyrir hönid vandiamanna.
Sigrún Einarsdóttir.
1912. Fyrst í Fidherssundi síðar
keypti hann stórhýsi — á þess
tíma miæMkrviairða — á Hverfis-
götu 72, þar sem hann rak síðan
bakarí sitt alla tíð meðan starfs
kraftar entust.
Hann kvongaðist 2. júlí 1911
glæsilegri og fallegri korau Guð
björgu Ingvarsdóttur, en missti
hana fyiir 9 árum, eftir næstum
50 ára hjúskap. Þau eignuðust
3 börn, dreng og 2 stúlkur. Auk
þess ólu þau upp stúlku, sem
sitt eigið bam.
Davíð starfaði vel að málefn
'uim stéttar sinniar. Hamn var
lemgi í prófnefnd við sveinsprófs
töku í bakaraiðn. Stofmaði Bak-
aram. fél. Reykjavíkiur, í stjóm
þess sem gjaldkeri í 5 ár. Hann
srtiofnaði með eigin finaimiLaigi —
til að byrja með — Ekknasjóð
B.M.F.R. og var síðar gerðuæ hieið
uirstféiagi þess. Stotfnandi Lainds-
siambands bakaram. o.fL
Davíð var ágætur bakari,
stjórnsamur, vandvirkur og hag
sýmn. Ágætur _ félagi, kátur og
garmamisamur. Ég miinnist margra
slíkra stunda.
Nú þegar hann er kvaddur
hinztu kveðju, minnumst við
hans, stéttarfélagamir, með inni
legu þakklæti fyrir hinar mörgu
skemmtilegu stundir, sem við höf
um átt saman og erum þakklát-
ir honum fyrir þann slkerf, sem
hamn lagði til okkar mála. Sam-
tök bakarameistara votta minn-
ingu hans virðingu og senda að
standendum öllum, samúðar-
kveðjur.
— G.Ó. —
t
Inni'legar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við firáfiaill og
jarðartför systur minnaæ
Guðríðar Sæmundsdóttur
Stykkishólmi.
Petrína Sæmundsdóttir.
t
Þökikum imnilega auðsýnda
sannúð og vinarhug við and-
Lát og jarðaæför eigmmianmis
míns og sanar oklkar,
Eðvalds Jónassonar
stud. jur. frá Reyðarfirði.
Sérstalkar þakkir faerum við
læknium og hjúkruniarliði
hiandlœkninigadeiildar Borg-
arsjúíkrahússins fyrir góða
hjúkirun í veikimduim hans.
Bima Jónsdóttir
Amfríður Þorsteinsdóttir
Jónas Jónsson.
Jeg finn til skarðs við auðu
ræðin allra,
sem áttu rúm á sama aldarfari.“
Þessar ljóðlínur Steph. G.
Stephanssonar úr minningarljóði
hans um látinn vin koma mér í
hug, er ég á að minmast Egg-
erts Eggertssonar gjaldkera, því
að við áttum ekki einungis „rúm
á sama aldarfari“, heldur bein-
línis á sama „fari“, þar sem við
vorum samstarfsmenn um fullt
aldarfjórðungs skeið.
Eggert var fæddur á Akur-
eyri 14. ágúst 1909. Foreldrar
hans voru Eggert Stefánsson
frá Tungu á Svalbarðsströnd
og Margrét Jakobsdóttir frá
Brimnesi í Fáskrúðsfirði.
Bræður Eggerts Stefánssonar
vom m.a. þeir Stefán bóndi á
Svalbarði, látinn á yfirstand-
andi áratug í hárri elli, og Jó-
hann, er fór til Ameríku með
„stóra hópnum“ 1876, en sonur
hans var Vilhjálmur Stefánsson
landkönnuður, einhver víðkunn
asti Islendimgur síðari aMa.
Jakob bóndi á Brimnesi, móð-
urfaðir Eggerts Eggertssonar,
var sonur Péturs bónda á Odds-
stöðum á Melrakkasléttu Jakobs
sonar umboðsmanns og alþingis-
manrns á Breiðimýri (d. 1885)
Péturssonar bónda í Sýrnesi,
Jakobssonar bónda að Brekku í
Núpasveit Péturssonar. Kona
Péturs Jakobssonar á Oddsstöð-
um var Margrét Hálfdánardótt-
ir bónda á Oddsstöðum Einars-
sonair prests á Sauðaniesi Árna-
sonar, mikill kvenskörungur, en
Hálfdán á Oddsstöðum var bróð
ir sr. Stefáns Eimarssonar á
Sauðanesi, föður Einars umboðs
manns á Reynistað, föður Kat-
rínar, móður Einars skálds Bene
diktssonar. Kona sr. Einars
Árnasonar á Sauðanesi og móð-
ir Hálfdánar á Oddsstöðum var
Margrét Lárusdóttir klaustur-
haldara Schevings á Munka-
þverá, systir Jórunnar föður-
móður Jónasar skálds Hallgríms
sonar. Bróðir Margrétar Hálf-
dánardóttur húsfreyju á Odds-
stöðum var Þórarinn bóndi á
Bakka á Langanesströnd, faðir
Katrínar móður Gunnars skálds
Gunnarssonar.
Móðir Margrétar Jakobsdótt-
ur og kona Jakobg Péturssonar
Briminesi var Ólötf Stefánsdótt-
ir prests á Kolfreyjustað o.v
Jónssonar, en móðir sr. Stefáns
var Margrét dóttir sr. Stefáns á
Sauðanesi Einarssonar og konu
hans Öranu Halldórsdóttur
klausturhaldara á Reynistað
Bjarnasonar sýslumanns á Þing-
eyrum Halldórssonar.
Margrét Jakobsdóttir fluttist
með son sinn í frumbernsku til
bróíMr síns Stefáns Jakobsson-
ar kaupmanna í Búðakauptúni í
Fáskrúðsfirði. Árið 1919 giftist
hún sr. Haraldi Þórarinssyni frá
Efri-Hólum presti í Hofteigi á
Jökuldal, og var sveinninn þá
oftast á veturna í Hofteigi, hjá
móður sinni og stjúpa, en á Fá-
skrúðsfirði á sumrm, en þegar
eftir fermingu fór hann alfar-
inn til Stefáns móðurbróður síns
og konu hans Þorgerðar Sig-
urðardóttur og ólst því að mestu
upp á heimili þeirra við gott at-
læti, og minntist þeirra ætíð með
þakklæti, enda lét hann einka-
son sinn bera nafn fóstra síns.
Stefán Jakobsson rak sjávar-
útveg og verzlun í Búðakaup-
túni á þeim árum, sem Eggert
var í uppvexti, og tók hann
þátt í þeim störfum öllum, er
honum óx fiskur um hrygg,
vann að verzlunarstörfum og
stundaði sjó, einkum á sumrin
oftast sem vélstjóri. Lenti þá í
sjávarháska eitt siran í stórviðri,
er þrjá menn tók út af vélbát,
er hann var skipverji á, og var
Eggert einn þeirra, björguðust
tveir naumlega, en hinn þriðji
drukknaði. Á þessum árum tók
Eggert bæði mótorvélstjórapróf
og fiskiskipstjórapróf hið minna
er veitti réttindi til skipstjórn-
ar á alltt að 75 rúmlesta bátum.
Á Fáskrúðsfirði stofnaði Egg
ert heimili með fyrri komu siinni
ust þau til Reykjavíkur á miðj-
um fjórða tug aldarinnar, þar
Arnheiði Sveinsdóttur, og flutt-
ust þau til Reykjavíkur á miðj-
um fjórða tug aldarinnar, þar
sem hann gerðistf starfsmaður
Viðtækjaverzulnar ríkisins og
jafnframt Bifreiðaeinkasölu rík-
isins, er starfaði undir sömu
stjórn um skeið, en réðist til
Áfengisverzlunar ríkisinis og
Lyfjaverzluinar ríkisins sem að-
algjaldkeri vorið 1943 og starf-
aði þar og í Áfengis- og tóbaks-
verzlun ríkisins, ásamt Lyfja-
verzlun ríkisins, eftir að einka-
sölumar voru sameinaðar vorið
1961, allt þar til á öndverðu síð
astliðnu sumri, er hann varð að
hætta störfum sökum vanheilsu.
Hafðtf ihann þá verið gjaldlkeri
þessara ríkisstofnana í full 25
ár.
Þeim Eggert og Arnheiði
Sveinsdóttur varð þriggja barna
auðið, en þau eru: Amheiður
kennslukona, gift Ingimundi
Jónssyni kennara á Húsavík.
Margrét stúdent, gift Tryggva
Gíslasyni mag. art., lektor við
háskólann í Bergen og Stefán
Pétur ókvæntuæ, nemiandj í verk
fræðideild Háskóla íslands.
Eggert Eggertsson var í hærra
meðallagi á vöxt, karlmannleg-
ur á velli, réttvaxinn og bein-
vaxinn og bar sig vel, djarf-
maranlegur í framgöngu, hafðd
hógvært skopskyn, var þó al-
vörumaður, fremur hlédrægur,
fróbitinn sýndarmeniisku og
tildri, naut sín bezt í' fiámiennd,
einstakt snyrtimenni í störfum
og umgengni, traustur gáfu- og
dremgskaparmaður, fjölhæfur til
verka. Mátti heita, að flest léki
honum í höndum. Sá ég hann
smíða leikföng handa börnum
sínum, með snilldar handbragði,
án flestra nauðsynlegra áhalda.
Bækur sínar batt hann sjálfur,
og mundu víst fáir halda, að
þar hefði ófaglærður maður um
fjallað. Þótt hann nyti eigi
menintunar í æsku umfram það,
sem venjulegt var um unglinga
á uppvaxtarárum hans, var
hann víða heima, því hann las
mikið, einkum fagurbókmenntir
og átti fallegt bókasafn á heim-
ili sínu að Sólheimum 23, þar
sem hann bjó með konu sirani
Guðrúnu Guðmundsdóttur, er
annaðist hann og studdi nú síð-
ast í þungri sjúkdómsraun, og
þar kaus hann ,,að sofna burt úr
heimi“. Hann andaðist 11. febr.
síðastliðinm á sextugasta aldurs
óri. f marga mánuði hafði hon-
um verið ljóst, hvert stefndi og
tók örlögum sínum með ein-
stöiku sálarþreki oig æðrulauisri
hugarró.
Ég á miargar kærar minnin'g-
ar um Eggert Eggertsson. Það
var oft uppörvandi að líta inn
til hans á vinnustað okkar, þeg-
ar tómstundir féllu til í önnum
daganna, eða á kvöldin, þegar
búið var að snúa lyklinum í
skránni. Þar mætti manni hvorki
önugt viðmót, né var komið að
tómum kofum. Eitthvað líkt
þessu ætla ég, að fleiri muni
geta sagt, er af honium höfðu
kynni.
Því er hans sárt sakmað, eigi
aðeins af eiginkonu og vanda-
mönnum, heldur einnig af sam-
starfsfólki og mörgum öðrum,
er við hann höfðu samskipti á
vettvangi daglegs lífs.
Valdemar Helgason.
Vinnuvélar til sölu
Til sölu amerísk vélskófla með ámokstursskóflu og skurð-
gröfuútbúnaði. Einnig 20 tonna bílkrani sem þarfnast lag-
færingai. Verð og greiðsluskilmálar samkomulag.
Upplýsingar í síma 34033 aðallega á kvöldin.
Ibúðaskipti
4ra herb. íbúð á 2. hæð við Kleppsveg. Fæst í skiptum fyrir
2ja herb. íbúð.
FASTEIGNASALAN,
Óðinsgötu 4, sími 15605.
Stúlka
Stúlka, ekki yngri en 20 ára, óskast til afgreiðslustarfa i bóka-
verzlun nú þegar. Málakunnátta nauðsynleg. Lágmarksráðn-
ingartími 1 ár.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist Mbl.
merkt: „Áhugi — 30".
KAUPMAN NASAMTÖK
ÍSLANDS
Afgreiðslustúlkn óskost
hálfan daginn í kjörbúð. — Umsóknareyðublöð á skrifstofu
Kaupmannasamtaka íslands að Marargötu 2.