Morgunblaðið - 13.06.1969, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1969
ætti að komast að þessum ómeð-
vitaða huga yðar . . . ef slíkur þá
fyrirfinnst.
Honum fannst hún tala eins og
vísindamaður, og hafði tekið
hann á orðinu og raunverulegri
merkingu orðsins. En ívo hafði
hún um leið sýnt af sér skop-
skyn, sem líklega hafði veriV. á-
berandi áður en sorgin sótti
hana heim.
— Yður finnst það skritið, að
ég skuli ekki slást í þennan hóp.
Þetta með „sameiginlegt skip-
brot“ og þessháttar allt. Jæja, ég
skal segja yður ástæðuna. Rödd-
in var kæruleysisleg, en þó lá
einhver dulin sorg að baki. — Á
þessari flugvél var áhald, sem ég
hafði búið tií, einn míns liðs, i
sjö ára tómstundum. Og nú er
það farið áður en ég fékk tæki-
færi til að sanna ágæti þess.
— Þér getið ekki endumýjað
það?
— Ekki nema með talsverðum
tilkostnaði, sem ég ræð ekki við,
og það var einmitt fjárskortur,
sem tafði svona fyrir mér í fyrra
skiptið.
— Ef áhaldið er mikilvægt,
hvers vegna getið þér þá ekki
fengið fé til þess?
— Ég gæti sjálfsagt útvegað
féð, en ekki án þess að leika af
mér. Það mundi kosta það að
opinbera til hvers ég ætlaði að
nota féð, og þá mundi ég tapa
talsverðu af því, sem ég tel mína
eign.
Til sölu
Einn af vinsaelustu skemmtistöðum borgarinnar er til sölu,
ef samið er strax.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON, HRL.,
Háaleitisbraut 68, sími 83111.
Trjáplöntur — skrautrunnar
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL
Ath.: Plöntumar hafa verið geymdar í kaldri geymslu svo þær
eru lítið farnar að bruma (laufgast) og eru því á bezta
stigi til útplöntunar.
Gróðrarstöðin v/Miklatorg, sírni 22822.
Gróðurhúsið v/Sigtún, sími 36770
Gróðrarstöðin v 'Hafnarfjarðarveg, sími 42260.
Gróðrarstöðin Breiðholt, sími 35225.
MESCAFÉ
)l )
er
nútímakciffi
Neskaffi er ilmandi drykkur.
f önn og hraða nútímans örvar og lífgar
Neskaffi.
Óvenju ferskt og hressandi bragð af
Neskaffl.
Ungt fólk velur helst Neskaffi.
Neskaffi er nútimakaffi.
— Svo að þér viljið ekki láta
yður nægja nein helmingaskipti?
Gott og vel, en áhaldið hefur
sjálfsagt verið tryggt?
— Vitanlega setti ég verð á
það, en það var bara verð, sem
maður setur upp sjálfur. Þegar
ég fer að gera kröfu, hef ég eng-
in ráð til að sanna sannvirði á-
haldsins. Það hefur verið reynt í
rannsóknastofu og ég veit, að
það hefði líka reynzt vel úti í
nátturunni, — en það komst
aldrei svo lamgt. Ég fæ eitthvað
ofurlítið, en ég hef heldur ekki
fé til að fara í mál út af þessu.
— Segið mér, hverskonar á-
hald þetta var.
Tucker tæmdi glasið sitt, og
það var einhver örvæntingar-
svipur á honum er hann gerði
það. Hann bað um meira og rétt
sem snöggvast hélt hún, að hamn
væri í of slæmu skapi til þess að
segja henni frá því. En það gerði
hann nú samt og hún tók eftir,
að hann var svo niðursokkinn í
frásögnina, að nýi drykkurimn
gleymdist alveg.
— Þetta er ný aðferð til málm-
rarmsókna, sagði hann. — Það
er útfærsla á hugmynd, sem dr.
Luis Alvares við Kalíforníuhá-
skóla fékk. í rauninni er það
sama sem að röntgenrannsaka
Atlasfjöllin, að minnsta kosti
einm þverskurð, sem nægir
tilgangi mínum.
— Og þetta áhald var í flug-
vélinni?
— Það er endurbætt útgáfa af
því, sem kjarnorkufræðingar
kalla neistageymi, til þess að sjá
smáagnir.
— En gæti geislun, sem nú er
þekkt verið nægilega sterk til
þess?
Hann starði á hana, hissa á,
að hún skyldi skilja þetta svona
fljótt. Homum fór að detta í huig,
hvort hún kynni eitthvað fyrir
sér um þessa hluti.
— Nei, en hér í Norður-
Afríku er betri uppspretta, sem
sé frá nátturunnar hendi. Geim-
geislar framleiða agnir, sem kall-
aðar eru múónar, og þeir mundu
nægja til þess arna.
Meðan hann var að segja frá
þessu, tók hún eftir þvi, að hann
varð eins og allt annar maður,
áhuigafuUur og gekkst sýnilega
alveg upp í efninu, sem hann var
að útskýra.
Sundhettur
Nýtt úrval
(Qcú&g
Austurstræti 7, sími 17201.
Á matseölí
dagsins
MAGGI-sveppasúpa
lostætur réttur
Ijúf í hvers manns munni
MUSHROOM oIbolETS
MAGGIS'
<1 tiavmei-AlltETTEI
V
MAGGI-súpur frá Sviss
eru beztar
C0SPE.R
— Ég fékk ægilega martröð í nótt — þú hafðir gefið mér minka-
pels í jólagjöf.
— Þetta gengur þanmig fyrir
sig, að múónarnir hafa breyti-
legan hraða, allt eftir þéttleika
efnisins, sem þeir fara gegn um.
Ég hef fundið upp áhald, sem
getur greint hin ýmsu efni, með
tímamælimgu. Með þessari að-
ferð get ég greint sundur ýmsar
bergtegundir, þó að það sé ekki
nema byrjun. En það getur spar-
að geysilega mikinn tíma.
Denise seildist varlega eftir
glasinu símu, en hólkvíð ermin
seig alveg fram á hendur henni.
— En væri þetta ekki annað í
framkvæmdimni? Heilit fjall er
svo efnismikið.
Hann yppti öxlum. — Það er
nú einmitt tilraunin við það, sem
öllu máli skiptir.
Hún horfði fast á hann. — Og
að hverju ætluðuð þér svo að
leita?
Allt í einu var hann kornimn í
samt lag aftur, og rétt eims og
homum leiddist þetta umtalsefni.
— Nei, það er ekki gull eða
noitt þessháttar. Það er lag af
perlusteini í Atlas, sem mig grun
ar að sé það stærsta eða næst-
stærsta í heimi.
— Perlusteinn?
— Hann er ekkert rómantísik-
ur né sérlega verðmætur, en
þarna er svo mikið af honum.
Þetta er steinn, sem notaður er
í létt byggingarefni svo að það
er ekkert skáldlegt í sambandi
við það. En ég reikna með að
þarna séu eimar fimmtíu milljón-
ir smálesta og þær eru tíu sterl-
ingspunda virði hver, þegar búið
er að vinna efnið. Mesta náma,
sem enn er þekkt, er í Natal, en
þessi gæti orðið ennþá stærri.
Nú greip hamn loks glasið sitt,
næstum harkalega.
— Ef þér teljið það vera þarna
Framleiðendur
Heildsölufyrirtæki óskar að taka að sér dreifingu á vörum.
Upplýsingar í síma 14733.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Ef þú þarfnast hjáipar í dag, cr ellrfta stundin ótrúlega drjúg.
Nautið, 20. apríl — 20. mai.
Reyndu að bæta fyrir brot þín i dag, og hittu síðan vini þína í kvöld.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
Þú ert alls staðar tekinn trúanlegur í dag, ef þú bara æskir þess.
Gerðu allt, sem þú getur tii að sanna ágæti þitt.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Sérþekking þín kemur að góðu haldi núna.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Nú býðst þér langþráð tækifæri til að auðgast.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Loksins færðu aðgang að peningum. Sinntu fyrst nauðþurftum, og
skipuleggðu síðan eyðslu þína skynsamlega.
Vogin, 23. september — 22. október.
Þér hefur mistekizt i útreikningunum, þannig að þessar fáu krónur,
sem þú hafðir von um, verða að engu. Verra gat það verið.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Dagurinn fer eftir því, hvernig þú hafðir skipulagt hann.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Fyrirtækin eru lítt gefin fyrir það að heiðra og verðlauna einstakl-
inga, en það gæti samt skeð í dag. Allt sem þú gengur að, verður að
njóta skilnings á báða bóga.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Gættu vel að smáatriðunum í öllum samningum og fjárfestingum.
Þér gæti orðið talsvert gagn að því að vera dálítið slóttugur. Einkum
gæti það orðið hentugt víðsvegar fjarri.
Vatnsberinn, 20 janúar — 18. febrúar.
Þér finnst dagurinn í dag dálítið minna þig á afborganir á ýmsan
hátt. Notfærðu þér það út í yztu æsar.
Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz.
Það er svo merkilcgt, hverju hægt er að fá áorkað, ef manni er
það mjög í mun.