Morgunblaðið - 07.09.1969, Side 7
MORG-U NBL.AÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMB-ER 1060
7
Beinafundur á Skarðsleið vestra
Það var kallað að fara Skarð,
fjallveginn upp úr firðinum yf
ir í næsta fjörð. Þetta var fjall-
vegurinn upp úr Álftafirði yfir
í Dýrafjörð vestra. Þessi leið
er nú orðið mjög sjaldan far-
in, en var aðal samgönguleið-
in áður en strandferðir og ak-
vegir komu. Ég hafði áhuga á að
kanna nýjar leiðir og ákvað að
fara Skarðsleiðina. Það var í
miðjum júlí. Sólskin og bliða á
hverjum degi.
Þegar hinn ákveðni dagur
rann upp, var sunnan gola af
hafi og leit út fyrir að vind-
kaldinn mundi ryðja inn þoku
af hafinu. Ég lagði af stað kl.
sex um morguninn. Þegar ég
var kominn miðja vegu upp í
Skarðið fylltist allt af svartri
þoku. Áfram hélt ég upp eftir
hlíðinni eftir gömlum troðning-
um. Þetta var nokkuð hátt, um
700 m. yfir sjó upp í Skarðið.
Þegar ég kom efst í hlíðina
kom ég upp úr þokunni. Það
var fögur sjón um að litast.
Heiðbjartur himinn og stafandi
sólskin, en fjörðurinn fullur af
þoku. Aðeins fjallabrúnirnar upp
úr. Mér fannst ég vera utan
við hinn daglega heim í nýju
umhverfi. í alvídd fjallanna, þar
sem engin fjötur eða helsi nær
til að særa mann eða tefja. Þetta
var ævintýraheimur fyrir mig.
Hér gat maður haft hljóðlátt ein
tal við náttúruna. Eða var hér
nokkuð annað en strípað grjót?
Jú, þegar ég gætti betur að, þá
var alls staðar fullt af mosaskóf
um og þó nokkuð af æðri plönt-
um eins og jöklasóley, stein-
brjótum og sanda eða skegg-
sanda.
•
Þegar ég kom vestur fyrir
skarðið settist ég á flatan stein.
Nú varð ég alveg undrandi. Við
hlið steinsins var talsverður
toppur af bygggresi. Hvernig
stóð á þessu? Hugurinn reikaði
vítt um og aftur í tímann. Ekk
ert gat skýrt þetta fyrirbrigði.
Það gat að vísu verið fullnægj-
andi svar, að í gamla daga báru
menn korn yfir þennan fjallveg
og höfðu hvílt sig á steininum
þeim arna. Auðvitað gat með
ýmsu móti komizt byggkorn
niður í moldina hjá steininum.
í fyrstunni verður alltaf ein-
hver orsök að vera fyrir hendi.
Þegar ég hafði klárað þessi
heilabrot til enda, varð hin im-
aðslega kyrrð og tómleiki til að
hrífa hug minn á ný. Fram í
hugann komu línumar: „Hér
andar guðs blærinn og hér er
ég frjáls.“. Hér heyrðist ekki
einu sinni lækjarniður hvað þá
annað.
•
Þegar sást niður í dalinn að
vestanverðu við heiðina,lagðist
ég niður í mosann og ætlaði að
hvíla mig og njóta kyrrðarinn-
ar, en um leið seig á mig
svo mikill svefn að ég varð að
loka augunum, og jafnskjótt var
ég fallinn í fasta svefn.
Þótti mér maður standa hjá
mér og brosa til mín og segja:
„Fagurt er héðan að líta og
gott er að hvíla á rúmi mínu“.
óg til að þau yrðu grafin I
vígðri mold. Seinna spurðist ég
fyrir um það, hvort menn hefðu
orðið úti í Skarðinu. Vissi eng-
inn neitt um það. Þessi bein
hlutu að vera mjög gömul. Það
var ekkert eftir nema það harð-
asta úr leggjunum og slitur af
hauskúpunni, sem var öll mosa
vaxin.
Ég krafsaði í mosanum og
fann aðeins tvo tinhnappa og
hringju af ól.'Ég reyndi að graf
ast fyrir um, hvort nokkurs
staðar væri getið um manns tap
á þessari leið. Aðeins á einum
stað í annálum frá 1715 er talað
um mann, sem fór Skarðsleið
og ekki kom fram. Þessi draum
ur og beinafundur tók frá mér
alla gleði og fegurð fjallasyn
innar. Engin hugsun gat kom-
izt að, engin hrifning orðið til.
Hugurinn var dreginn niður í
hugsanarugl og vitleysu.
— Jón.
í f@?ðalag
■ við
_forum
I ■■ **<*■!> •
....." úá'
laá r&s* ■■Jafr-, ,i mtm* 1 11
Súðavíkurþorpið, Sauradalur og Korfi í baksýn. Innst inn i
Álftarfirði lagði greinarhöfu ndur af stað Skarðsleiðina yfir
í Lambadal í Dýrafirði.
Við þetta vaknaði ég. Þessi
setning: rúmi mínu, stóð svo
fast í mér, að ég fór að skoða
þessa mosaþembu betur og rífa
niður í hana. Varð ég þá var
við beinahrúgu undir mosanum.
Nú hamaðist ég við að rífa mos
ann ofan af beinahrúgunni. Taldi
víst, að hér hefði maður orðið
úti einhvern tíma í fyrndinni.
Ég klæddi mig úr jakkanum
og lét inn í hann öll beinin og
bar með mér heim. Ætlaðist
PlANÓKENNSLA Er byrjaður að kenna. Aage Lorange La'ugarnesvegii 47, s. 33016. 2ja—4ra HERBERGJA IBÚÐ óskast ti'l teigu i Haifnarfirði eða Garðaihireppi. Uppl. ( síma 51923 frá kl, 7.
TIL SÖLU steríó sett á samt pkjtu- spi'lera, seg'ul’bandi og sjón- vairpi. Uppl. í síma 2633, Keflavík. NÝTT EINBÝLISHÚS í Garðahreppi til teigu. Hús- ið er 4 svefnberb., 2 stofur, eldhús og bað. Tilb. til afgr. Mbl., merkt „3564" fynkr þriðjudag.
TIL LEIGU er 2ja herb. íbúð í háihýsi við Austurbrún, laus 10. okt. Verðtil'b. og fjöiskyldustaerð sendist Mbl. fyr>r 20. sept., merkt „Regl'U'semi 3563". TVÆR STÚLKUR með 4ra máinaða gama'lt barn óska eft'ir ráðskon'U- stöðu i Reykjavik eða ná- grenni. Uppl. í síma 51357 frá k'i. 2—7 e. h.
HÚSRAÐENDUR Fjarlœgi stíflur úr vöskum, baðkerum, saferniiisröruim og niðurföMum með toftþrýsti- útb. og nafm.snigluim. Vanir menn. Valur Hel'gason, sínrvi 13647. Geymið augiiýsinguna. NÝ SENDING af kven'höttum, nýir litir. Bella Bairónsstig.
Notið frístundirnar
Vélritunar- otf
hraÖritunarskóii
Vélritun — blindskrift, uppsetning og frá-
gangur verzlunarbréfa, samninga o. fl.
Islenzka (málfræði, stafsetning) og reikn-
ingur gagnfræðastigsins.
Enska — einkatímar.
Upplýsingar og innritun í síma 21768.
Hildigunnur Eggertsdóttir — Stórholti 27, sími 21768.
íerðaskrifstofa bankastræti 7 simar 16400 12070
II ferðir
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Rannveig Þóra Vilbergsdóttir
afgreiðslust. Skógarlöndum 5 Eg-
ilsstöðum og Hjörvar Ó Jensson
bankasiarfsm. Laufási Eskifirði.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af séra Jóni M. Guðjónssyni
í Akraneskirkju ungfrú Gunnhild-
ur Júlía Júlíusdóttir, Vesturgötu
43, Akranesi og Smári Hannesson,
Höfðabraut 16, Akranesi. Heimili
þeirra fyrst um sinn er á Vestur-
götu 63. (Ljósm.: Ólafur Ámason
Ákranesi)
Nr. 117 3. september 1969.
Kaup Sala
1 Bandar. dollar 87,90 88,10
1 Sterlingspund 209,70 210,20
1 Kanadadollar 81,50 81,70
100 Danskar krónur 1.168,00 1.170,68
100 Norskar krónur 1.231,10 1.233,90
100 Sænskar kr 1.700,44 1.704,30
100 Finnsk mörk 2.092,85 2.097,63
100 Franskir fr. 1 585,70 1.589,30
100 Belg. frankar 174,75 175,15 100 Pesetar 126,27 126,55
100 Svissn. frankar 2.044,44 2.049,10 100 Reikningskrónur —
100 Gyllini 2.429,85 2.435,35 Vöruskiptalönd 99,86 100,14
100 Tékkn. krónur 1.220.70 1.223,70 1 Reikningsdollar -
100 V-þýzk mörk 2.207,40 2,212,44 Vöruskiptalönd 87,90 88,10
100 IJrur 13,97 14,01 1 Reikningspund —
100 Austurr. sch. 340,40 341,18 Vöruskiptalönd 210.95 211,45
farardaginn þegar yður hentar, við sjóum um alla fyrirgreiðslu.
Lorelei í SIGTÚNI
ferðirnar sem fólkið velnr
f þessari viku byrjar að sína listir sínar í Sigtúni dansmærin
Lorelei frá London. Þetta er ung og falleg stúlka, eins og mynd-
imar bera með sér. Skemmtir hún í einn mánuð í Sigtúni, og
öðlast þar sjálfsagt vinsældir ein s og þær, sem á undan henni hafa
verið
ARABIA - hreinlætistæki
Hljóðaus W.C.-kassi.
nýkomið: W.C. Bidet
Handlaugar Baðker
Fætur f. do. W.C. skálar & setur.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
Glœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumboð fyrir Island
HANNES ÞORSTEINSSON
heildv., Hallveigarstig 10. simi 2-44-55.
Bezt að auglýsa í IVIorgunblaðinu