Morgunblaðið - 07.09.1969, Síða 18
18
MORG-UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1009
Hjúkrunarkona
óskast
Heilsuhælið N.L.F.Í., Hveragerði.
Bókhaldari
Bifreiðaumboð óskar að ráða góðan, reglusaman bókhaldara
1. október n.k. eða fyrr.
Umsóknir sendst Mbl. fyrir 10. þ.m. merkt: „Bókhald —",
látíð mrnm víia fvrir your
Með óbeinni þátttöku í arðbærum rekstri getið þér nú ávaxtað
fé yðar betur ÁN MINNSTU ÁHÆTTU. Nú gefst yður loks
kostur á því að njóta góðs af sparifjáreign yðar.
Ahugasamir aðilar sendi nöfn sln, heimilisföng og upplýsingar
um upphæðir til afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 10. sept.
merkt: 15% ÁN ÁHÆTTU — TRÚNAÐARMÁL — 3650".
Soffía Brandsdóttir frá
FróðastöðumMinning
Soffía Brandsdóttir fæddist að
Fróðastöðum í Hvítársíðu í Borg
arfirði 16. dag marzmánaðar ár-
ið 1899. Hún var dóttir búenda
þar, hjónanna Þuríðar ,Svein-
bjarnardóttur frá Signýjarstöð-
um í Hálsasveit og Brandar
DamíelssoniaT. Að Fróðastöðum
hefur sami ættleggur búið mann
fram af manni í sex eða sjö ætt-
liði. Þar ólst Soffía upp í stór-
um systkinahópi.
Árið 1935 réðist Soffía að
ajúkralhúsinu Kleppi sem ráðs-
kona á saumastofu. Þar vann
hún verk sín hljóð og var traust
sem bjarg þegar því var að
skipta. Mörg fyrstu starfsár
hennar þar hagaði þannig til, að
starfsfólkið bjó uppi á lofti í
sjúkrahúsinu. Ekki mun alltaf
hafa verið næðissamt þar eins og
gefur að skilja. En hitt er víst,
að þar var oft glatt á hjalla,
þar var spilað og sungið, lesið,
saumað, prjónað og sitt hvað
fleira sér til gamans gert. Það
var eins og eitt stórt heimili.
Og mörg sporin átti undirrituð
út á loftið að kvöldlagi, bæði til
Soffíu og annarra, er þar
bjuggu. Nú er heimilið það
löngu tvístrað.
Sumarbústað eigniaðist Soffía,
þar sem hún undi mörgum stund
um. Fyrir fáum árum réðist hún
Skrifstofustúlka
Viljum ráða skrifstofustúlku til vélritunar- og skýrslustarfa.
Góð málakunnátta áskilin.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf stílist „Seðlabanki Islands, starfsmannastjórn, Pósthólf
160, Reykjavík."
FLUGSYN
OPIN DAGLEGA FRÁ 2-10
FJOLBREYTT DAGSKRA UTI
ÓDÝRT HRINGFLUG EF VEÐUR LEYFIR
Síðasti
dagur
Hafnarfjörður
Þessar glæsilegu ibúðir eru til sölu í norður-
bæ. Hafin er bygging fjölbýlishúss i norður-
bæ. f stigahúsinu Laufvangur 12, verða 3ja og
4ra herbergja ibúðir, stærðir 90 ferm., 94
ferm. og 112 ferm. Þvottahús og geymsla í
hverri íbúð. Rúmgóð sérgeymsla í kjallara
fylgir svo og hluti í sameiginlegri geymslu.
Ibúðimar verða afhentar tilbúnar undir tréverk
og sameign fullfrágengin. L6ð frágengin skv.
skilmálum Hafnarfjarðarbæjar. Góðir greiðslu-
skilmálar.
Verð frá
kr. 810.000.oo
til 940.000.oo
Fyrsta greiðsla
frá kr.
100.000.oo
Ath.: Nokkrar ibúðir á góðum stað
í bænum enn óseldar.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Guðjón Steingrímsson hrl.
Linnetsstíg 3, Hafnarfirði.
Sími 50960.
Kvöldsími sölumanns 51066.
í að kaupa sér íbúð, sem hún
var mjög ánægð með, en skamma
stund fékk hún að njóta hennar.
Hún stundaði vinnu sína, þar
til hún fór í rannsókn á sjúkra-
hús í febrúar sl. Þaðan átti hún
ekki afturkvæmt. Þar lá hún síð-
an meira og minna þungt hald-
in, þar til hún andaðist föstu-
daginn 29. ágúst. Aldrei kvart-
aði hún um eitt né neitt meðan
hún háði sitt stranga stríð. Síð-
ustu dagana bað hún þó dauð-
ann um líkn, þá voru þjáning-
arnar orðnar óbærilegar. Til
hins síðasta reyndi hún að láta
sem minnst fyrir sér hafa. Hún
var vön að hjálpa sér sjálf .En
hún kunni þó vel að meta það,
sem henni var gott gert. Ef hún
hafði orð á því, að einhver úr
hjúkrunarliðinu væri sérstak-
lega góður og nærgætinn, bætti
hún alltaf við: „allir eru góðir”.
Hún vissi fljótt að hverju dró,
en hún óttaðist ekki dauðann,
hún var reiðubúin og fannst
eins og hún væri að fara í ferða-
lag. Hún hafði alltaf haft mikla
ánægju af að ferðast um landið
sitt, nú ætlaði hún í lengri ferð.
En að móðir þyrfti að deyja frá
ungum börnum, það gat hún
ekki sætt sig við.
Soffía, þú misstir aldrei sjón-
ar af jöklinum, fjalldalafíflinum
og gleymméreinni. Og mikla á-
nægju hafðir þú af að lesa kvæð
in Úr landsuðri, sem læknirinn
þinn lánaði þér. Það var tilvilj-
un, að fyrsta kvæðið sem þú
þuldir utanað fyrir mig hafði
einmitt orðið til í ferð, sem ég
var þtáttakandi í. Kannske
hugsaðir þú sérstaklega mikið
um þessar ljóðlínur:
„Og andvaka fanin ég mieð ógn-
og dýrð
um öræfanóttina bjarta,
að loksins ég átti mér legurúm
við lands míns titrandi hjarta.”
Trúað gæti ég, að þú á landi
lifenda sjáir ennþá jökulinn
bera við loft og heyrir vatna-
niðinn í fjarska, laus úr viðjum
þjáninganna, umvafin friði og ró
eins og sá einn getur verið, sem
alltaf hefur gert skyldu sína.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir.
St; aersta og útbreiddasta dagblaðið
7)
Bezta auglýsingablaðið
VELJUM ÍSLENZKT