Morgunblaðið - 22.10.1969, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1969
- FJARLAGARÆÐA
Framhald af bls. 19
hafin á rekstri sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, en fjárrei&ux henn
ar eru nú komnar í mikið óefni.
Áður hefi ég minnzt á heildar-
athu-gun, sem fram hefur farið,
og er raunar enn ekki lokið, á
öllum rekstursgrundvelli Raf-
magnsveitna ríkisins, og fram
fer nú á vegum hagsýslustofn-
Mnarinnar og í>óst- og símamála-
stjórnarinnar heildarathugun á
rekstri pósts og síma, sem er
orðin ein stærsta stofnun í þjóð-
félaginu, og þarf því að leita
alira úrræða til þess að rekst-
ur hennar geti verið með sem
hagkvæmustum hætti. Þá hafa á
árinu á vegum hagsýslustofnun-
arinnar í samráði við við-
komandi ráðuneyti farið fram at
hugun á ýmsum atriðum í rekstri
einstakra ríkisstofnana, enda
þótt þar hafi ekki verið um heil-
legar athuganir að ræða, svo
sem í sambandi við þær stofnan-
ir, sem ég þegar hefi nefnt. Það
skal skýrt tekið fram, að þær til
teknu stofnanir, sem teknar hafa
verið til sérstakranr athugunar
má ekki líta á sem ednhverjar
óreiðustofnanir, sem öðrum
stofnunum fremur haldi illa á
sínum málum, heldur hefur at-
hugunin oftast nær til komið
vegna þess, að við sérstök vanda
mál hefur verið að glíma í við-
komandi stofnunum og það þótt
sjálfsagt að kanna, með hverjum
hætti þau væru farsælast leyst.
Vitanlega verður haldið áfram
heildarkönnun á ölium stofnun-
um ríkisins eftir þvi sem tilefni
gefst til og vil ég láta það koma
fram, að í öllum tilvikum hafa
yfirmenn viðkomandi stofnana
verið mjög fúsir til samstarfs
um athugun á hagkvæmni í
rekstri stofnananna, og raunar
margir ríkisforstjórar oft leitað
beinlínis til hagsýslustofnunar-
innar um aðstoð eða leiðbeining-
ar varðandi ýmis atriði í rekstri
sinna stofnana.
Unnið að rannsókn
skattakerfisins
Þá tel ég rétt að víkja nokk-
uð að viðhorfi í skattamálum, en
það viðfangsefni er í rauninmi
þrenns konar. f fyrsta lagi
skattalögin sjálf og álagningar-
regliur. í öðru lagi framtalaeft-
irlit og skattrannsóknir og í
þriðja lagi sjálf innheimta hinna
álögðu skatta. í síðustu fjárlaga
ræðu minni skýrði ég frá því,
að vegna ágreindngs, sem oft
væri uppi um skattaálögur hér
á landi miðað við önnur lönd,
hefði ég farið þess á leit við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn, að hann
veitti sérfræðilega aðstoð til
þess að kanna íslenzka skatt-
kerfið, og benda á, hvað helzt
færd þar aflaga, og að hve miklu
leyti kerfið væri annað hvort
lakara eða betra en í öðrum sam
bærilegum löndum. Þessi athug-
un var leyst af hendi bæði
skjótt og vel og snemma á þessu
ári barst ráðuneytdniu í hierudur
mjög ítarleg greinargerð frá sér-
fræðingum Alþjóðagjaldeyris
sjóðsins. Kom þar ýmislegt fróð-
legt ljós, sem hér skal ekki
rakið að öðru íeyti en því, að
niðurstaða álitsins var sú, að
skattar væru hér ekki þyngri
nema síður sé en í mörgum öðr-
um sambærilegum löndum, þótt
einstaka tegundir skattheimtu
væru taldar hæpnar, svo sem að-
stöðugjöld, og nauðsynlegt væri
að stefna að því að fækka teg-
undum skatta. Nefndarálitið hef
ur síðan verið í sérstakri athug-
un í ráðuneytinu, og er nú ver-
ið að viininia að því að semija úr-
drátt úr skýrslunni, sem ég tel
sjálfsagt að verði afhent hátt-
virtum alþingismönnum til upp-
lýsinga og fróðleiks, en jafn-
framt verði tekið til athugunar,
að hve miklu leyti þessi skýrsla
gefi ástæðu til þess að gera
breytingar á íslenzka skattkerf-
inu. Ég hef oft áður sagt, að
slæmt væri að gera stöðugar
breytingar á skattlögum, og þær
hafa því miður verið of tíðar og
skapað vandræðd í framkvæmd
og álagningu skatta, þótt mér sé
hins vegar vel ljóst, að það þarf
að gera ýmsar lagfæringar á
skattalögunum. En þær lagfær-
ingar væri rétt að bíða með, þar
til fyrir lægi endanlega tillögu-
gerð nefndar þeirrar, sem hefur
haft að undanförnu til athugun-
ar, hvort og þá með hverjum
hætti, skuli taka upp stað-
greiðslukerfi skatta hér á landi.
Lokaathugun þess máls hefur
verið í höndum þingkjörinnar
nefndar, þannig að ráðuneytið
eða ríkisstjórnán sem slík hefur
ekki haft afskipti af gangi máls-
ins, en hins vegar hefur formað-
ur nefndarinnar tjáð mér, að
endanlegs álits nefndarinnar sé
að vænta nú alveg á næstunni.
Kemur þá í ljós, hvaða breyt-
ingar á skattalögum eru blátt á-
fram nauðsynlegar og óumflýjan
legar í sambandi við stað-
greiðslukerfið sjálft, ef á að
taika það upp. Og í framhaldi af
því teldi ég rétt, að framkvæmd
væri heildarathugun skattalag-
anna að öðru leyti og tekið til
athugunar með hliðsjón
af reynslu síðuistu ára, hvaða at-
riði það væri almennt í skatta-
lögum, sem þyrfti að breyta og
jafnframt að hve miklu leyti
væri hægt er gera skattakerfið í
heild einfaldara, ma. með því
að losa við ýmiss konar smá-
gjöld, sem einmitt sérstök athug-
un hefur leitt í ljós, að kosta
ríkið mikið_ fé að leggja á og
innheimta. f framhaldi af athug-
un Seðlabankans á ráðstöfun-
um, sem gera þyrfti til þess að
koma á kaupþingi og nauðsyn-
legum verðbréfamarkaði hér á
landi, var á fyrri hluta þessa árs
skipuð nefnd hinna færustu sér-
fræðinga í skattamálum og fjár
málum til þess að athuga hina
sfkattalegu hlið þessa vandamáls,
þannig að stuðlað væri að aukn
ingu eigin fjármagns fyrirtækja
með því að örva almenning til
þátttöku í atvinnunekstri, auð-
velda sameiningu fyrirtækja og
kanna, með hliðsjón af væntan-
legri aðild íslands að Fríverzl-
uinarbandalaginu, hver væri
skattaleg aðstaða fyrirtækja hér
á landi miðað við fyrirtæki í
öðrum löndum Fríverzlunar-
bandalagsins, því að vitanlega
er forsenda þess, að íslenzk fyr-
irtæki hafi samkeppnisgrund-
völl á hinum sameiginlega mark
aði, að skattalega, svo sem á öðr-
um sviðum, sé ekki verr að þeim
búið en samkeppnislöndimum.
Gert er ráð fyrir, að sérfræð-
inganefnd þessi skili áliti um
þetta mál nú fyrir næstu áramót,
og miun þá ríkisstjórnin taka til
athugunar, hvaða aðgerða sé
þörf þessum efnum.
Skattaeftirlitið bœtt
Á þessú ári hefur markvisst
verið haldið áfram að bæta og
styrkja skatteftirlitið, þó að þar
sé að sjálfsögðu ennþá mjög mik
ið starf óunnið. Áherzla hefir
verið lögð á það af hálfu skatt-
rannsóknastjóra að koma hinum
nýju bókhaldslögum í fram-
kvæmd, svo sem honum var fal-
ið. Ber að fagna því, að fyrir-
tæki hafa yfirleitt 'tekið hinum
nýju bókhaldslögum vel og gert
sér grein fyrir því, að bókhald
er ekki, eins og þvi miður of
margir hafa álitið, óþægi-
leg skyldukvöð, m.a. vegna skatt
heimtu, heldur eitt hið þýðingar
mesta tæki til þess að geta haft
yfirsýn yfir rekstur fyrirtækja
og komið við skynsamlegum
stjórnunaraðgerðum og skipu
lagsbreytingum í tæka tíð. Þau
áföll, sem ýmis fyrirtæki hafa
orðið fyrir vegna skatteftirlits-
ins hafa beinlínis oft stafað af
því, að fyrirtækin hafa haft al-
gjörlega ófullnægjandi bókhald.
Er því fullkomið bókhald fyrst
og fremst hagsmunamál fyrir-
tækjanna, þó það að sjálfsögðu
einnig auðveldi skatteftirlit og
skattaframtöl. Og þótt skattsvik
hafi hér á landi því miður verið
alltof tíður löstur, þá trúi ég
því ekki, að fyrirtæki vilji ekki
almennt tíunda rétt, ef þeim á
annað borð er veittur viðihlít-
andi starfsgrundvöllur.
Skatteftirlitið sjálft, bæði hjá
skattstofunum og skattrann-
sóknadeildinni, hefur verið skipu
laigt of eflt með ýmsum hætti,
sem ég tel ekki rétt að tíunda
á opinberum vettvangi. Séstakar
ráðstefnur hafa verið haldnar á
vegum ráðuneytisins með öllum
skattstjórum landsins til þess að
ræða úrræði til bættrar skatt-
heimtu og skatteftirlits og hefur
ýmislegt jákvætt léitt af slíkum
fundarhöldum. Þá hefur einnig
starf skatteftirlitsins verið bætt
í framhaldi af viðbótarfjárveit-
ingu til aukinna skattrannsókna,
sem veitt var á síðasta þingi, en
í heild mun áherzla verða á það
lögð, varðandi skatteftirlit, að
vinna að slíkum málum á kerfis-
bundinn hátt, og umfram allt
forðast það, að nokkur misrétti
eða rangindum sé beitt. Hitt er
annað mál, að frá þeirri megin-
stefnu verður ekki hvikað, að
beita öllum tiltækum ráðum til
að uppræta skattsvikin, og því
miður eru þau ennþá alltof víð-
tæk, þó að margt hafi áunnizt
hin síðari ár.
Má fullyrða í þessu sambandi,
að þær 25,8 m. kr., sem skattar
voru hækkaðir á grundvelli rann
sókna skattrannsóknadeildar frá
1. sept. 1968 til 30. sept. 1969 og
er hæsta álagning til þessa á
jafnlöngum tíma, sé einungis vís
bending um þennan árangur.
Skattstjórar taka upp að eigin
frumkvæði og ljúka árlega vax-
andi fjölda mála af þessu tagi,
en senda einungis hin alvarlegri
til meðferðar skattrannsókna
deildar. Oft er rannsóknamáli
skattrannsóknadeildar sömuleiðis
skotið heim í hérað til álagning-
ar, svo að áðurgreind fjárhæð
segir einungis hálfa sögu.
Versnandi
innheimta skatta
Því miður hefur innheimta
skatta versnað tvö síðustu árin,
sem vitanlega má fyrst og fremst
rekja til verra fjárhagsástands,
en tilhneigingin hefur því miður
oft verið sú, að láta kröfur ríkis
ins mæta afgangi og láta til dæm
is heldur skatta til sveitarfélaga
sitja fyrir, vegna frádráttarbæri
útsvara. Einnig er því ekki að
leyna, að ýmsir innheimtumenn
hafa tekið innheimtu skatta bæði
tekjuskatta og söluskatts, og jafn
vel tolla, of lausum tökum á und
anförnum árum og er það að sjálf
sögðu óviðunandi, að fólk búi
ekki hvarvetna á landinu við
nokkurn veginn sams konar að-
ferðir og festu varðandi inn-
heimtu opinberra gjalda. Yfirlit
með ríkisreikningi leiðir glöggt
í ljós, að innheimtu er mjög mis
munandi háttað í hinum ýmsu
innheimtuumdæmum, og hefur
fjármálaráðuneytið nieyðzt til
þess, varðandi ýmsa innheimtu,
að beina sérstökum kvörtunum
til dómsmálaráðuneytisins varð-
andi slappleika i að uppfylla
skyldur sínar á þessu sviði, en
formlega heyra fógetarnir og
sýslumennirnir allir að sjálf-
sögðu undir dómsmálaráðuneytið
og getur því fjármálaráðuneytið
ekki annað gert en bera fram
kvartanir, ef því þykir slælega
að málum unnið. Hér er þó mjög
misjafnt á komið varðandi hina
einstöku innheimtumenn og eiga
margir þeirra þakkir skilið fyrir
dyggilega frammistöðu og fram-
göngu í innheimtu ríkistekna. Sér
staklega slæmt ósamræmi hefur
verið í innheimtu söluskatts, sem
í langstærsta skattumdæminu,
Reykjavík, skilar sér svo að
segja 100 prs. í réttum gjalddög
um, og myndi að sjálfsögðu geta
skilað sér með sama hætti annars
staðar á landinu, ef sömu aðferð
um væri beitt við innheimtuna,
og í sannleika sagt er það fyrir
tækjum ekki til neins góðs, þegar
til lengdar lætur, að þau komist
upp með að skila ekki sölu-
skatti í ákveðnum gjalddögum.
Til þess að kippa þessum málum
í lag hefur fjármálaráðuneytið
nú gefið út bein fyrirmæli til
allra innheimtumanna um að
beita tafarlaust lokunarreglum,
svo sem gert er hér í Reykjavík,
ef söluskattur er ekki greiddur, í
tæka tíð og taka slík fyrirmæli
gildi nú í haust. Mun því verða
fylgt fast eftir, að þessum fyrir-
mælum verði hlýtt, en þar sem
því miður hafa á ýmsum stöðum
safnazt gamlar söluskattsskuldir
verður að sjálifsögðu að gefa
tækifæri til þess að semja um ein
hvern greiðslufrest á þeim. Hlið-
stæðar reglur voru fyrir nokkru
settar varðandi innheimtu tolla,
en því miður hafði það tíðkazt í
ýmsum tollumdæmum, að vörur
höfðu verið afhentar án toll-
greiðslna. Tilkynnti ráðuneytið
fyrir alllöngu, að hinum þyngstu
viðurlögum samkvæmt tollskrár-
lögum yrði beitt, ef slíkt ætti sér
stað, en hins vegar hefur verið
gefinn kostur á að gera samn-
inga um nokkum greiðslufrest
varðandi þau mistök, sem áður
hafa átt sér stað í þessum efn-
um. Höfuðatriðið er að sjálf-
sögðu það, að koma þessum mál-
um í lag, en ekki að gera svo
harðar kröfur, að það beinlínis
komi vissum fyrirtækjum fyrir
kattarnef, enda má segja að hér
sé ekki aðeins um þeirra sök að
ræða, heldur eins mikið linkind
innheimtumannanna.
Tollalögunum breytt
Á síðustu tveimur þingum hafa
verið samþykkt 3 lagafrumvörp,
sem er allveigamikil varðandi
tollamál. Má fyrst nefna toll-
skrárhreytinguna á árinu 1968,
sem fól í sér lækkun tolla á ýms
um vöruflokkum er áætlað var
að næmi um 160 m. kr. á ári. í
annan stað var samþykkt víð-
tæk formleg breyting á toll-
skxánni á síðasta ári til samræm-
ingar við Brusseltollskrána.
Enda þótt að ekki fælist í þeim
breytingum tollalækkanir al-
mennt, þá var þar um nauðsyn-
legar lagfæringar og skipulags-
breytingar að ræða. í þrfiðjalagi
var á síðasta þingi samþykkt
heildrlöggjöf um tollheimtu og
tolleftirlit, sem felur í sér ýmsar
nýjungar, sem tvimælalaust verð
ur að telja til bóta, bæði fyrir
tollgreiðendur og styrkir einn-
ig tolleftirlitið. Allt er þetta þó
smávægilegt miðað við það stóra
viðfangsefni, sem við stöndum
andspænis ef ísland gerist aðili
að Fríverzlunarbandalaginu. f
sambandi við þær umræður hef-
ur verið um það talað að tollar
á vörum frá Fríverzlunarbanda-
lagslöndunum yrðu smám saman
lækkaðir á 10 árum þar til þeir
yrðu afnumdir með öllu. Hér er
þó aðeins um vemdartolla að
ræða, en ekki fjáröflunartolla,
þ.e. tolla sem leggjast jafnt á inn
lenda og erlenda framleiðslu eða
tolla á vörum, sem ekki eru fram
leiddar hér á landi. Að því hefur
verið stefnt, að ísland gæti orðið
fullgildur aðili Fríverzlunar-
bandalagsins 1. janúar n.k., ef
viðunandi samningar nást við
bandalagið og taki þá jafnframt
gildi 30 prs. lækkun á vemdar-
tollum á Fríverzlunarbandalags-
vörum, en síðan yrði aðlögxmar-
tími án frekari tollalækkana í
fjögur ár, þar til að næstu tolla-
lækkun. kæmi. Þessi tollalækkun
er áætluð að myndi lækka toll-
tekjur ríkissjóðs um 390 millj.
kr. og verður þá að sjálfsögðu
óumflýjanlegt að gera samstund
is ráðstafanir til þess að afla
þeirra tekna með öðrum hætti,
því að svo sem fjárlagafrumvarp
ið ber með sér og raunar þarf
ekki að útskýra getur ríkissjóð-
ur að sjálfsögðu ekki misst slík-
an tekjustofn án þess að fá aðrar
tekjur á móti. Enda þótt formleg
ar tillögur liggi enn ekki fyrir
um þetta efni og ríkisstjórnin
hafi ekki um það tekið endan-
lega ákvörðun, þá vil ég endur-
taka það, sem ég raunar áður
hefi sagt í fjárlagaræðum, að ef
kæmi til tollalœkkana, ann-
að hvort vegna inngöngu ís-
lands í EFTA eða af öðram or-
sökum, því að sannast sagna er
mikil nauðsyn að lækka almenna
innflutningstolla hér á landi, þá
myndi eðlilegast að vinna þann
tekjtimissi upp með hækkun á
söluskatti. Hefur beinlínis af þess
um ástæðum verið þannig á mál
um haldið, að söluskattur hefur
hér á landi ekki verið hækkaður
í 5 ár, og er nú söluskattur hér
lægstur á Norðurlöndunum og
reyndar þótt víðar sé leitað.
Myndi söluskattur, enda þótt
þyrfti að Vinna upp nú umrædd
an tekjumissi vegna lækkunar að
flutningsgjalda, ekki þurfa að
hækka meira en svo, að hann
áfram yrði hóflegur miðað við
Norðurlöndin og raunax fleiri
lönd. Teldi ég jafnvel koma til
álita að hækka söluskattinn eitt
hvað meira en svarar tollalækk-
ununum til þess að geta í leið-
inni afnumið ýmsa sérskatta,
sem ég hefi áður vikið að, og
sem í senn gera skattkerfið flók
ið og era kostnaðarsamir í álagn
ingu og innheimtu. En ekki er
tímabært að fullyrða neitt um
það efni á þessu stigi málsins.
Unnið að undirbún-
ingi EFTA-málsins
Ég tel ekki ástæðu til að ræða
EFTA-málin að öðru leyti hér,
enda mun viðskiptam álaraðherra
vafalaust gera þinginu grein
fyrir þeim, þegar ástæða verður
til, en svo sem kunnugt er, er
einnig starfandi sérstök EFTA-
nefnd, sem skipuð er fu'lltrúum
allra þingflokka, þannig að allir
flokkar hafa aðstöðu til að fylgj
ast með framvindu EFTA-máls-
ins. Allt þetta ár hefur sleitu-
laust verið unnið að undirbún-
ingi málsins, bæði með viðræðum
við EFTA-ráðið í Genf, og við
einstakar ríkisstjórnir og sérfræð
inganefndir, og einnig hér heima
við undirbúning á nauðsynlegum
breytingum á tollalöggjöfinni og
jafnframt hefur á vegum iðnrek
enda verið starfandi mikill fjöldi
sérnefnda til að rannsaka að-
stöðu hinna ýmsu þátta iðnaðar-
ins ef til EFTA-aðiIdar kæmi og
sérfræðileg athugun á stöðu iðn-
aðarins farið fram á vegum iðn-
aðarmálaráðuneytisins. Allt til
þessa hefur skynsamleg yfirveg
un og raunhæft mat allra að-
stæðna virzt ráða gerðum lang-
flestra ef ekki allra þeirra, sem
nálægt málinu hafa komið ,og þá
ekki sízt þeirra, sem mestra hags
muna hafa að gæta bæði jákvætt
og neikvætt, og er þess mjög að
vænta, þar sem um svo stórfellt
mál er að ræða og miklir hags-
munir í húfi, að slíkur andi geti
orðið ríkjandi einnig hér á hinu
háa Alþingi, þegar að því kemur
að ráða málinu endanlega til
lykta.
V irðisaukaskattur
f sambandi við lækkun tolla
og hækkun söluskatts er eðlilegt
að komi upp í hugum ýmissa
spurningin um það, hvort að við
eigum ekki að fylgja fordæmi
annarra þjóða og breyta sölu-
skattinum í svokallaðan virðis-
aukaskatt. Fjármálaráðuneytið
hefur fylgzt mjög vandlega með
þróuninni í þessum málum, auk
þess sem það hefur verið rætt á
fjármálaráðlberirafundum nú síð
ustu árin, að aðdragandinn að
virðisaukaskattinum hefur í ýms
um löndum verið mjög langur,
t.d. í Svíþjóð, þar sem málið hef-
ur verið á dagskrá um áratug,
en nú er svo komið, að horfur
eru á, að virðisaukaskattur verði
innleiddur á öllum Norðurlönd-
unrnn. Hann hefur þegar verið i
gildi í Danmörku í rúmt ár, hefur
nýlega verið lögfestur í Svíþjóð,
er á lokastifi að hljóta lögfest-
ingu í Noregi og var eitt af kosn
ingamálum þar, og Finnar hafa
lokið heildarathugun málsins og
liggur nefndarálit til endanlegr
ar ákvörðunar hjá ríikisstjórn
landsins. Um síðustu áramót var
virðisaukaskattur innleiddur í
öllum löndum Efnahagsbanda-
lagsins. Virðisauksakattur myndi
í rauninni ekki hafa í föir með
sér miklar breytingar hér á ís-
landi, af því að við höfum svo
almennan söluskatt, bæði á vör-
um og þjónustu. Hins vegar eir
því ekki að leyna, að virðisauka
skatturinn er ýmsum atvinnu-
rekstri hagkvæmari heldur en
söluskattur og leggst þyngra á
neyzlu, og hefur skatturinn þvi
af þeim sökum í ýmsum löndum
mætt andstöðu frá almenningi.
Það er þá einnig ljóst, að einmitt
Framhald á bls. 25