Morgunblaðið - 17.02.1970, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1970
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Beyndu að kynnast nýju fólki og láttu þig ekki vanta.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Óskkyggjan getur misskilizt fyrir kugboS.
Xvíburarnir, 21. mai — 20. júni.
Þér lætur bezt að nota persónutöfrana i dag. Sumir eru of rót-
tækir.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Þú böfðar tU þeirra, sem bera hag þinn fyrir brjósti, án þess
að ætia beint að gera það.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Veldu þér einhverja félaga í dag, scm þér semur við.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Ef þú hefur í áformum þínum eitthvað, scm snertir stjórnmál eða
fjármál, mætirðu andspyrnu.
Vogin, 23. september — 22. október.
Ef eitthvað þarf að gera heima fyrir, scm þú treystir þér ekki
til að inna af hendi, skaltu endilega fá vini þina tU hjálpar.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Taktu jákvæða afstöðu, og hagnýttu þér hvað sem að garði ber.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Gerðu þér grein fyrir þvi, hvers þú krefst af öðru fólki. Reyndu
að haga óskum þínum hyggilegar.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þú ert eitthvað næmur fyrir lykt og svipmóti. Vertu hógvær.
Fólk hefur horn í síðu þér fyrir alla sýndarmennsku í dag.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Þú ættir að fara að sjá árangur af hugmyndum þínum. Haltu
áfram að vinna að þeim. Hafðu samband við fólk, sem þú hefur ekki
tækifæri til að hitta á virkum dögum.
Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz.
Þú getur vel treyst yfirskilvitlegum hvötum þínum. Vertu spakur
og samvinnuþýður, þar sem þú ert kominn.
hugsaði: Getur það virkilega
verið, að hann sé tekinn að lin-
ast? Mér kann að skjátlast, en
mér fannst vera einhver upp-
gjöf í málrómnum. Það
skyldi þó aldrei vera tími til
kominn, að ég fari að gera eitt-
hvað meira en bara hjálpa hon-
um til að láta drauma sína um
ættina rætast? Gæti það verið,
að ég ætti að taka alfarið við
af honum og gerast tengiliður-
inn og hreyfiaflið? Því að ég
kannast ekki við, að það sé mér
um megn að móta líf annarra
— einkum þó þeirra, sem mér
standa næst. Ég er viss um, að
þetta er hægt. Og ég ekal líka
reyna það. Eins mikið hans
vegna og annarra af ættinni.
Draumsjónir mínar — sem ég
viðurkenni nú aldrei, að séu
bara draumsjónir — eru enn í
fullu fjöri ... Og Adrian — æ!
Adrian verður ellefu ára 1
næsta mánuði. Þar er ósnertur
jarðvegur! Hver veit, hvað ég
gæti gert úr honum. Ég skal að
minnsta kosti reyna.
Adrian hóf tónlistarnám sitt
fyrir alvöru í október, og strax
í janúar bárust fregnir frá Laff-
erty um furðulegar framfarir
hjá honum. — Þetta er smá-
snillingur, Dirk, sagði gamli Jim
Lafferty einn daginn, þegar þeir
hittust á bryggjunni. — Þetta er
snilligáfa. Við verðum að hlúa að
henni. Hún er of góð til að
kasta á glæ.
Á hverjum morgni, áður en
aðrir komu á fætur, — klukkan
hálfsex — var Actrian kominn
upp og tekinn að æfa sig á fiðl-
una. Hann fór niður og lokaði
sig inni í kompu, sem var næst
búrinu. Þar hélt fiðlan hans
ekki vöku fyrir öðrum í húsinu.
Hljómurinn barst ekki nema lít-
ið upp í loft.
Einn morgun í febrúar fór
María á fætur klukkan hálfsex,
gekk inn í herbergi drengsins
og stöðvaði hann, þegar hann
ætlaði niður. Hún sagði: — Nú
engar æfingar í dag, Adrian
minn. Ég vil að þú komir með
méir út að ganga.
— Ganga. . hvert? spurði Ad-
rian, alveg miður sín. — Hvers
vegna? Til hvers?
Hún brosti. — Við skulum
ganga niður að skurðinum — að
tamarindtrénu.
— En til hvers. Ég á eftir að
spila margar æfingar.
— Það geturðu gert á morg-
un. Og annan hvern morgun
framvegis. Ég vil að þú komir
með mér út að ganga. Þú færð
að sjá, til hvers.
— En svo get ég æft mig á
hverjum morgni?
— Nei. Það _ er nóg annan
hvern morgun. Ég skal segja þér
það allt á leiðinni.
Nokkrum mínútum síðar lögðu
þau af stað eftir stígnum, sem lá
niður að skurðinum að húsa-
baki, og hún dró djúpt að sér
andann í svala, ferska loftinu.
Himinn í austri var rétt að roðna
og taka á sig dökkgulan blæ, en
sólin kæmi ekki upp fyrr en
eftir fimmtán eða tuittugu mínút
ur.
— Ástæðan til þess arna er
sú, Adrian, að undanfarið hef
140
ur verið dekrað allt of mikið við
þig. Það getur verið ósköp gam-
an að geta leikið á fiðlu og slag-
hörpu, en það sem meir er áríð-
andi verður að ganga fyrir,
mundu það. ..
— Mér hefur farið mikið fram
bæði í reikningnum og enskunni
María. Það sagði hr. Henty
sjálfur í vikunni sem leið.
— Hann sagði mér það líka,
og það gladdi mig. En nú er dá-
lítið meira. Hreyfing, fersíkt loft
. . .það gerir þig sterkan og karl
mannlegan — og þú hefur ekki
haft of mikið af slíku í seinni
tíð. Þegar pabbi og Jakob
frændi voru litlir, hlupu þeir
um allt og syntu, léku dáta og
fóru á veiðar út í skóg. Þeir
voru tímunum saman undir beru
lofti. Þess vegna eru þeir nú svo
sterkir og karlmannlegir. Varstu
ekki að segja, að þig langaði að
verða sterkur og karlmannlegur
eins og hann pabbi?
— Jú, það sagði ég, en ég get
leikið á fiðluna jafnt fyrir því.
Og það ætti ekki að hindra,
að ég yrði sterkur og karlmann
legur.
— Það gæti nú samt orðið, ef
þú lætur það eftir þér. Þetta er
dægrastytting^ sem heldur þér
innan dyra. Ég er ekkert að
reyna að fá þig burt frá tónlist
iimi, en ég á við, að þú verðir
heilsugóður og sterkur líkam
lega. Greind og gáfur eru að-
dáunarverðar, en þeim verður
að fylgja heilbrigður líkami.
Skilurðu, hvað ég á við?
Þau voru komin niður á skurð
bakkann, rétt við tamarindtréð.
Stofninn var digur og kvistótt-
ur, og greinarnar alþaktar vín-
viði og öðruim sníkjuvexti, en
þetta var sama tréð, þar sem
Jakob og Dirk og Rósa ogkunn
ingjar þeirra höfðu leikið sér.
Adrian braut af því ofurlítinn
kvist.
— Viltu anga af grænu tamar-
indtré?
— Nei. Komdu. Við megum
engan tíma missa. Farðu úr. Við
skulum synda í skurðinum. Hún
var þegar tekin að afklæða sig.
Hann hafði alizt upp við það
að sjá hana klæðlausa, svo að
hvorugt þeirra fann til neinnar
feimni.
— Ég er nú ekki duglegur að
synda María. Ég kemst ekki
langt.
— Því meiri ástæða til að læra
það. Að vera ellefu ára og þurfa
að skammast sín fyrir að kunna
ekki að synda, þó, þó.
Hann glotti. — Mig langar
ekkert til að verða sundmaður,
þegar ég verð stór. Heldur fiðl-
ari og slaghörpuleikari.
Hún leit hvasst á hann um leið
og hún kastaði frá sér síðustu
flíkinni og sagði:
— Ég vil minna þig á það, Ad-
rian, að einhverntíma verður bú
garðurinn hérna á þinni ábyrgð.
Tónlistin verður að koma á eftir
búskapnum.
Hann andvarpaði. — Það er
sjálfsagt rétt hjá þér. Þú hefur
hvort sem er alltaf á réttu að
standa. En ég ætla nú samt
aldrei að gefa tónlistinia frá mér.
— Það biður þig heldur eng-
inn um það. Svona nú! Við skul
um stinga okkur!
Hann hélt að sér höndum. —
Það er svo kalt. Vatnið hlýtur
að vera alveg eins og ís.
— Bull! Hér í landi verður
aldrei verulega kalt í vatninu.
Hún kreppti hnefana, því að
hún var sjálf farin að fá tals-
verða gæsahúð, og hana var far-
ið að sárlanga til að skjálfa.
— Þú verður að reyna að vera
ekki linur. Þú verður að læra
að segja sjálfum þér, að óþæg-
indi eru til þess að sigrast á
þeim. Segðu sjálfum þér, að þú
getir sigrast á hverju sem er, ef
þú bara viljir. Og þá mistekst
þér aldrei.
Hann kinkaði kolli, en glotti
og sagði: — Ég vildi, að hann
Hr. Henty gæti séð þig svona.
Þá mundi hann skrifa þér heila
langloku í staðinn fyrir stutta
Atlar tegundir I útvarpstæki, vasaljós og leik-
föng alltaf fyrirliggjandl.
Aðeina I heildsölu til verzlana.
Fljót afgreiðsla.
HNITBERG HF.
Öldugötu 15, Rvik. — Sbnl 2 28 12.
Baðherbergisskápar
með- og án
læsinga.
Fjölbreytt úval.
Verð frá kr. 950.00.
LUDVIG
STORR
Laugavegi 15,
sími 13333.
Hverfissamtök Sjálfstæðismanna
■ Nes- og Melahverfi
Spila- og kynningarkvöld
fimmtdaginn 19. febrúar klukkan 20,30 að Hótel Sögu
Félgsvist — Cóð verðlaun
Frœðsluþáttur um uppbyggingu Nes- og Melahverfis
Lárus Sigurbjörnsson, skjalavörður
20 happdrœttisvinningar
Dansað til klukkan 1 — Allir velkomnir — Húsið opnað klukkan 20
Aðgöngumiðar við innganginn Stjórnin