Morgunblaðið - 21.03.1970, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1S70
O
— Þú ert mikið í hesta-
mennsku, Pétur?
— Jú rétt er það, og sæti
á ég í undirbúningsnefnd að
landsmóti hestamanna, sem á-
kveðið er að halda í Skógar-
hólum 10. til 12. júlí í sumar.
Búast má við miklu fjölmenni
á mótið, og vitum við þegar
um hátt á fimmta hundrað út ■
lendinga, eigendur íslenzkra
hrossa erlendis, sem feoðað
hafa komu sína á mótið. Eru
það aðallega Danir og Þjóð-
verjar. Samkvæmt þessum töl
um má búast við því, að út-
lendingarnir verði allt að
1000 á mótinu og fjölmenni
íslendingar sem áður á mót-
ið, má búast við að um 10 þús
und manns sæki það. Að móti
þessu standa Búnaðarfélag ís-
lands og Landssamband hesta
manna, sagði Pétur að lokum.
Skólahúsið og sundlaug í Mosfellssveit.
Pétur Hjálmsson.
skyld efni. Fundurinn var
fjölsóttur og gerður góður
rómur að ræðum ræðumanna.
Var ákveðið að annar fund-
ur yrði haldinn í Fólkvangi
og til hans boðið Gunnari
Guðbjartssyni, formanni Stétt
Magnúsi Sigsteinssyni, ráðu-
arsambands bænda og
naut hjá Búnaðarfélagi ís-
lands. Fund þennan á að
halda í dag (laugardag) og
má búast við fjörugum um-
ræðum um verðlagsmál
bænda.
A 5. hundrað erlendra
á Skógarhólamótið
til neydda til þess að hætta
mjólkurframleiðslu. Þrjú at-
riði valda þar mestu — of
fáar kýr, ófullnægjandi húsa
kynni og heimkeyrslur slæm-
ar eða ekki nógu góðar. Víða
hefur þó verið reynt að bæta
úr síðasta atriðinu, en þar
sem heimreið er löng hefur
ekki verið unnt að koma því
við.
— Bíl þennan eiga Borg-
firðingar og annast hann einn
ig mjólkurflutninga ofan af
Hvalfjarðarströnd. Meðalverð
á tanki, sem bændur þurfa að
fá sér vegna þess fyrirkomu-
lags er um 120 til 130 þús-
und krónur. Verða bændur að
greiða um það bil helming
stofnkostnaðarins þegar í
stað. Er það erfitt, þegar vit-
að er að þeir eru tekjulitlir
fyrir.
— Kostir þessara mjólkur-
flutninga eru hins vegar marg
ir — sagði Pétur. Flutnings-
kostnaður er minni og mjólk
in verður betri. Möguleiki er
á að halda réttu hitastigi á
mjólkin komist nokkum tíma
verið settur upp útbúnaður,
sem kemur í veg fyrir það að
mjólkin komizt nokkurn tíma
í snertingu við fjósloftið. Eru
þá mjaltavélarnar tengdar
tönkunum óg mjólkin rennur
beint í þá. Fleiri og fleiri
bændur koma sér nú upp slík
um útbúnaði.
— Ástandið í heybirgðamál
um er fremur slæmt alls stað-
ar, hey eru léleg og ef seint
vorar má búast við vandræða
ástandi. Þó tel ég — sagði
Pétur að bændur hér séu bet
ur heyjaðir en t.d.' fyrir aust
an fjall. Vjð rannsókn á hey-
birgðum kom fram að yfirleitt
vantaði ekki mikil hey — víð
ast eitthvað og á einstaka bæ
var ástandið svo slæmt að
vantaði allt að helming hey-
fóðurs í meðalári.
— Félagslíf í sveitinni er
dágott. Þegar hefur verið
haldinn einn bændafundur
eftir áramótin. Jóhannes Ei-
ríksson ráðunautur hjá Bún-
aðarfélaginu og Guðbrandur
Hlíðar, dýralæknir hjá Mjólk
urstöðinni í Reykjavík komu
og fjölluðu um mjaltir og
Fréttir úr
Kjósar-
sýslu
Samtal við
fréttaritara
Morgunhlaðsins
Pétur Hjálmsson
\ Pétur Hjálmsson, ráðunaut
4 ur Búnaðarsambands Kjalar-
nessþings er fréttaritari Mbl. í
' Kjósarsýslu. Nýlega hittum
við Pétur að máli og spurðum
hann frétta úr þessari ná-
grannabyggð Reykjavíkur.
Siðastliðið sumar vann Pét-
ur að skurðmælingum og mæl
ingum fyrir lokræsi á svæð-
inu frá Þjórsá, vestur og
norður í Fljót í Skagafirði.
Miklir erfiðleikar voru þá við
þessi störf vegna bleytu,
sem kom sérstaklega niður á
Ilokræsaplógnum, sem sleppa
varð verkefnum á stórum
svæðum af þeim sökum. Við
spurðum Pétur fyrst að því,
hvort einhverjar nýjungar
væru í búrekstri bænda í
Kjósarsýslu, og liann svar-
aði:
— Já á þessu ári var tekin
upp sú nýbreytni, að byrjað
var að flytja mjólk frá bænd
unum í tönkum — sérstakur
tankbíll kemur á bæina ann-
an og þriðja hvern dag og dæl
ir mjólkinni úr sérstökum
tönkum, sem bændurnir eiga.
Bændur voru nokkuð illa und
ir þessa breytingu búnir fjár
hagslega, en tankar þessir
eru allir dýrir. Auk þess
krefjast slíkir tankar nokkuð
stórra kúabúa — svo að
nokkrir bændur hafa séð sig
Að loknu prófkjöri
Hugleiðingar um lista Sjálfstæðisflokksins
Andrés Önd endur
tekur hátíðina
— Lionsmenn afla fjár
til starfsemi sinnar
Tvö atriði um skipan borgar-
stjórnarlistans.
Eftir prófkjör er almennur á-
hugi fyrir því að þau verði tek-
in til athugunar, og viðunandi
lausn fundin á því máli.
KONA I BORGARSTJÓRN
Bæði er það mikið réttlætis-
mál og yrði einnig til að renna
enn frekari stoðum undir sigur
okkar í kosningunum, sem í hönd
fara, að fulltrúi kvenna haldi
sínu sæti. Á mörgum undanförn-
um kjörtímabilum hefur kona
skipað sæti á listanum, og sú
hefð skapazt, sem ég veit með
vissu að allir kjósendur flokks-
ins eru sammála um og ánægðir
með, enda eru þau mál til með-
ferðar í borgarstjórn hverju
sinni sem nauðsynlegt er að kona
fjalli um. Þær konur sem setið
hafa í borgarstjórn fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, hafa verið prýði
borgarinnar og notið trausts og
virðingar allra borgarbúa. Við
hinir • almennu borgarar getum
vart hugsað okkur annað en
þeim sé sú virðing sýnd að eiga
þar fulltrúa áfram.
FULLTRÚI SJÓMANNA
Bein tengsl við hina lífrænu
atvinnuvegi eru einnig nauðsyn
leg. Verkamenn, verzlunarmenn
og iðnverkafólk hafa öll átt sinn
fulltrúa í borgarstjórn, ágætis-
menn sem hafa unnið gott starf.
Er ekki einmitt nú röðin komin
að sjómönnum?
Sjávarútvegur er stór þáttur
í borgarlífinu og nú stendur fyr
ir dyrum endurnýjun togaraflot-
ans, einnig og ekki síður útgerð
stærri og minni báta. Allur rekst
ur og skipulagning þessa at-
vinnuvegar verður í deiglunni
nú í næstu framtíð. Hér virðist
hrein nauðsyn að maður með
þekkingu og reynslu á þessu
sviði, sem getur gert tillögur og
gefið upplýsingar frá fyrstu
hendi, sé þarna með í ráðum.
Á próflistanum voru tveir sjó-
menn, skipstjórarnir Gunnar
Magnússon og Haraldur Ágústs-
son, landsþekktir athafnamenn
með dýrmæta reynslu og þekk-
ingu á sjávarútvegi. Einnig njóta
þeir trausts og virðingar langt
út fyrir allar pólitískar markalín
ur. Haraldur reyndar brautryðj
andi á sviði nýrrar tækni við
veiðarnar (kraftblökkin), það
yrði ómetanlegt og reyndar nauð
synlegt að hafa annan hvorn
þessara manna við, þegar ákvarð
anir verða teknar um endur-
skipulagningu og áframhaldandi
rekstur þessa atvinnuvegar. Svo
er líka önnur hlið á þessu máli.
Þar sem Reykjavík er höfuð-
vígi Sjálfstæðisflokksins er listi
flokksins skoðaður og metinn um
land allt. Það yrði mikill styrk-
ur fyrir flokkinn í hinum mörgu
útgerðarbæjum og þorpum lands
ins, ef slíkir menn sem Gunnar
eða Haraldur tækju sæti á list-
anum hér í Reykjavík. Það að
ég legg til að athugað verði, að
færa konu og sjómann upp á ör-
uggt sæti á listanum er af póli-
tískri nauðsyn.
Ég vil taka það mjög sterkt
fram, að það er ekki af því að
ég hafi ekki fullt traust á öllum
þeim, sem flest atkvæði fengu í
prófkjörinu, þvert á móti, þeir
eru allir mikilhæfir sómamenn
sem full sæmd er í að fylgja.
En hvernig sem listinn nú end
anlega verður skipaður, þá mun
um við berjast til sigurs fyrir
áframhaldandi stjórn Sjálfstæðis
manna í borginni.
Andstæðingarnir munu finna
að það er ekki nóg að vera
alltaf og ævinlega á móti öllu
sem gert er, og þá alveg sérstak-
lega ef það er eitthvað stórt í
sniðum, því meðalmennska og
neikvæður afturhaldsáróður er
ekki að skapi okkar Reykvík-
inga.
Magnús Sigurjónsson.
„ANDRÉS ÖND og félagar“
nefnist bamaskemmtun er Lions
klúbburinn Þór gengst fyrir í
Háskólabíói n.k. sunnuðag. Er
skemmtunin lialdin til fjáröflun
ar fyrir starfsemi klúbbsins, og
rennur allur ágóðinn til Bama-
heimilisins að Tjaldamesi í Mos
fellssveit og til líknarsjóðs Þórs.
Klúbburinn hefur á undanförn-
um árum styrkt bamaheimilið
í Tjaldarnesi verulega með fjár-
framlögum.
Lionsklúbburinn hélt sams
konar barnasikemmtun 8. marz
sl. og urðu þá margir frá að
hverfa, þannig að áikveðið var
að endurtaka skemmtunina.
Fyrst verða sýndar kvikmyndir
af Andrési önd, Mikka mús o.fl.
vinum barnanna, en síðan munu
Omar Ragnarsson og Svavar
Gests skenmmta börmunuim. Óm-
ar mun syngja gamanvísur við
þeirra hæfi og Svavar kynnir og
stjórnar spurningakeppni og
söng barnanna. Myndir af Andr-
ési önd og félögum, upplímd-
ar á plast, verða veittar í verð-
laun í spurningakeppninni.
Þegar börnin fara út af
skemmtuninni fá þau svo öll
sérstakan gjafapakka frá Andr-
ési önd, en í þeim pakka eru
m.a. húfa, smell, sólskyggni,
merki o. fl. Til þess að þessi af-
hending gangi greiðlega fyrir
sig verður hópur Lions-manna á
staðnuln til leiðbeiningar og að-
stoðar eftir þörfum.
Forsala á aðgöngumiðum mun
verða á laugardag í Bókaverzl-
un Lárusar Blöndal og Jónasar
Rofabæ 7, svo og í Háskólabíói,
en þar verða einnig seldir mið-
ar á sunnudaginn.
BÍLAR
Votkswapen '64 ekinn 38 þ. km.
Cortina '65 bíll í sérflokki.
Toyota Corona vel með farinn.
Dodge Dart 2ja dyra ekinn 26
þúsund.
Volvo N-88 '66 vörubifreið,
greiðsla í skuldabréfum mögu-
leg.
jmd&undímlmmr
GUÐMUNDAR
Bergþóru«ötu 3. Sfmar 19432, 20070