Morgunblaðið - 26.05.1970, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1070
23
— Kristján J.
Framhald af bls. 12
Peninga til vaxtar og við-
gan/ga borginni leggjum við sam-
eiginlega í borgarsjóðinn. Okk-
ur er heldur lítið um þann sjóð
gefið, sérstaklega þó á útborgun
ardögum. Þó gerum við okkur
grein fyrir því, að flestallt af
því, sem borgin gerir fyrir okk-
ur væri óframkvæmanlegt, ef við
ættum að gera það ein. Við borg
um því útsvörin okkar möglunar-
lítið, þó að við fleat óskum innst
inni að greiða sem minnst til op-
inberra þarfa og hafa sem mest
af fj ármunum okkar til frjálsrar
ráðstöfuniar.
Sumir segja, að borgin okkar
sé slæm borg, af því hún gerir
ekki allt fyrir alla á öllum svið-
um. Um það vil ég aðeins segja
þetta: Ég er hræddur um, að þeg
ar búið verður að gera allt fyrir
alla verði lítið eftir í buddunni,
hjá okkur mörgum, skattborgur-
unum, sem greiða eiga reikning-
inn. Þess vegna finnst mér, að
þið ættuð að hugsa ykkur vel
um, áður en þið greiðið þeim
flokkum atkvæði ykkar, sem
slíku lofa.
Sumir segja líka, að borginni
okkar sé illa stjórnað. Um það
verður hver að dæma fyrir sig.
En eigum við ekki að líta í kring
um okkur, og sjá, hvað við höf-
um femgið fyrir peningana okk-
ar. Við þurfum ekki að fara
lengra en fraim í eldlhúsilð, þar eir
hitaveitukrani, sem ekki lætur
mikið yfir sér. En að baki þess-
um krana stendur hitaveita
Reykjavíkur, sem árlega sparar
borgarbúum nokkuð á 3ja hundr
að milljónir króna í beinhörðum
peningum. Ef við litumst um ut-
an dyra blasa hvarvetna við
okkur framkvæmdir og þjónustu
stofnanir borgarinnar.
HÚN
ER AO PRESSA
FYRIR PABBA ? !!!
Só pabbi ivo hygginn aS kaupa KORATRON
buKur þarf einungit aS setja þaor í
þvottavólina og síðan í þurrkarann.
KORATRON BUXUR ÞARF ALDREI AÐ PRESSA
A0ALSTA:TI SlMI IS005 VIÐ IAKJARTORG
f því sambandi vil ég aðeins
minnast á skólania. Það er alltaf
verið að skamma okkur fyrir
framkvæmdaleysið í skólabygg-
ingum. Þó hafa á síðustu árum
verið byggðir árlega á vegum
borgarinnar, skólar, sem saman-
lagt eru á stærð við Háskóla
íslands. Eitthvað af börnum ætti
þó að komast fyrir í slíku skóla-
húsnæði, sem við bætist árlega.
Jæja, nú er tíma mínum senn
að Ijúka og ég er ennþá ekki
farinn að koma neinum kosninga-
áróðri að. Það er víst ekki
seinna vænna að segja: Kjósið
Sjálfstæðisflokkinn. Og þó. Mér
finnst sumir, sem til ykkar hafa
komið í kvöld hafa verið full
háværir og aðgangsharðir í
áróðri fyrir flokka sína. Ég ætla
að láta nægja að segja: Kjósið
bara eins og sannfæring ykkar
bíður ykkur, — en þá skuluð þið
líka sjálf mynda ykkur sjálfstæða
skoðun og ráðgast við sannfær-
ingu ykkar eina.
Sjálfsagt aðhyllast mörg ykk-
ar þá flokka, sem bjóða
fram gegn okkur Sjálfstæðis-
mönnum. Þeir eru að vísu mjög
sundurþykkir og einhvers staðar
stendur, að það ríki sem er
sjálfu sér sundurþykkt fái ekki
staðist. Þeir hafa ekki neittborg
arstjóraefni að bjóða ykkur upp
á. í því efni eigið þið að kaupa
köttinn í sekknum, — og það
sennilega rauðan kött. — Ef að
þið haldið, að borgarstjórn, sem
þannig er til stofnað, verði betri
en borgarstjórn okkar Sjálfstæð-
ismanna, skuluð þið bara kjósa
hana yfir ykkur. En hver sá,
sem gefur sundruðu flokkunum
atkvæði sitt, ætti að þessu sinni
ékki að treysta því, að Sjálf-
stæðismenn fái meirihluta þrátt
fyrir það, heldur búast við
þeirri uppskeru glundroðans, sem
til var sáð.
Eitt vil ég segja ykkur að lok-
um og leggja á það ríka áherzlu:
Gangið að kjörborðinu, hvar í
flokki, sem þið standið, með það
eitt í huga, að greiða atkvæði
um heill og framtíð Reykjavík-
ur og ekkert annað.
Hin heimsþekkta
sjálfvirka rafknúna saumavél
VERÐ AÐEINS 10.665 KR.
Saumar m.a. skrautsaum, fangamörk, útsaum, hnappagöt
festir á hnappa og stoppar í göt.
Þúsundir anægðra notendu
um nllt lnnd snnnn kosti
NECCHI saumnvéln. 35 órn
reynsln hér d Inndi
*
FALKINN HF.s
FRAMTlÐARSTARF
Sölustjóra vantar að bókaútgáfu. Góð laun og prósentur af sölu.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf þurfa að fylgja umsóknum.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtudagskvöld
merktar: „íslendingasagnaútgáfan — 2894“.
VERZLUNIN
HAFNARBORG
STRAIMDGÖTU 34 — HAFNARFIRÐI.
SNYRTIVÖRUDEILD
Snyrtisérfræðingur frá MAX FACTOR verk-
smiðjunum leiðbeinir og aðstoðar viðskipta-
vini okkar við val á snyrtivörum ásamt
snyrtidömum verzlunarinnar á morgun mið-
vikudaginn 27. maí kl. 2—5 e.h.
BIFREIÐIR KJÖRDAG
D-listann vantar fjölda bifreiða til aksturs frá hinum ýmsu
bifreiðastöðvum D-listans á kjördag.
Frambjóðendur heita á stuðningsmenn listans að bregðast
vel við og leggja listanum lið m.a. með því að skrá sig til
akstur á kjördag.
Vinsamlegast hringið í síma 25980, Valhöll.
Skráning fer einnig' fram á skrifstofum hverfasamtakanna.
T'I.AOTU
BIIXIIR
Sterkar
endingargóöar
útsniönar
'OOo
BURKNI
AKUREYRI