Morgunblaðið - 17.06.1970, Side 18

Morgunblaðið - 17.06.1970, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1(970 17. iúní 1970 Sautjándi júní tákndagur fengins sjálfstæðis, minningardagur fornrar frelsisbaráttu, hátíðar- og gleðidagur hvert íslenzkt sumar. Vakningadagur, sem minnir á ævarandi verkefni frjálsrar þjóðar í frjálsu landi. Samvinnufélögin eiga sér rætur í sjálfstæðisbaráttu nítjándu aldar. Jón Sigurðsson hvatti íslendinga til að „hafa samtök“ um frjálsa, innlenda verzlun. Samvinnufélögin hafa gert þá hugmynd að öflugri veruleika en frelsisunnendur 19. aldar gat órað fyr- ir. íslenzk verzlun sem sameign innlendra manna varð eðlilega einn meginþáttur íslenzks sjálfstæðis. Og félagshyggja samvinnufélaganna, umbótavilji og alhliða framfarastarfsemi er upp runnin úr jarð- vegi íslenzkrar sjálfstæðishreyfingar. Gísii Brynjólfsson sagði í kvæði til Jóns Sigurðsson- ar: En fyrst lokið er ei stríði enn ei sigri hrósa má . . . Sjálfstæðisbarátta þjóðar er aldrei lokið, nema hún gefist upp. Trú samvinnumanna á landið, forysta þeirra og hugsjónir eru afl, sem allir íslendingar finna að þeir hafa traust og hald af í ævarandi sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar, hvort sem þeir játa sam- vinnustefnu eða ekki. Samvinnufélögin: Sameign allra Islendinga /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.