Morgunblaðið - 07.08.1970, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1970
John Bell
34
— Því miður getur hún ekki
fengið þetta, sagði Gillespie.
— Hver var þetta? spurði
Duena.
— Gillespie lögreglustjórd.
Duena varð aftur hörkuleg á
svipinn. — Lofið mér þá að tala
við hr. Gillespie. Ef hann vill
ekki veita mér viðtal, hringi ég
í borgarstjórann.
Pete gekk á undan henni til
skrifstofu Gillespies.
Sam Wood var kominn á það
stig, að hugur hans hafði gefizt
upp og af eintómri þreytu þrá-
azt við að halda uppi reiðinni,
vonleysinu og vonbrigðunum,
sem höfðu kvalið hann þessa
klukkutíma, sem hann hafði set-
ið þama einangraður. Nú var
honum orðið sama um allt. Hann
leyfði sjálfum sér aldrei að taka
það í mál, að hann yrði sekur
fundinn, en lögregluferli hans
væri hér með lokið og hann
kæmist aldrei í embætti aftur.
Rétt fyrir hádegisverð, þegar
Gillespie var ekki við, hafði
Arniold komið til hans og skýrt
honum frá gangi mála, og nú
vissi Sam, að hann var sakaður
um nauðgun auk morðsins. Það
viirtist svo sem bikarinn væri
orðinn barmafullur.
Sam sat með olnbogana á
hnjánum og hengdi höfuðið.
Þessi stelling stafaði ekki af
blygðun eða uppgjöf, heldurvar
hann bara dauðþreyttur. Hann
var orðinn uppgefinn af því að
hugsa og reyna að hafa stjórn
á hvötum þeim — hverri á fæt-
ur annarri — sem reyndu að ná
valdi yfir sálu hans og líkama.
Pete kom og staðnæmdist við
grindurnar. — Það er kominn
gestur til þin, sagði hann.
— Lögfræðingurinn minn ?
— Hann er nú utanbæjar og
ekki búizt við honum fyrr en í
kvöld. Þetta er öðruvísi gestur.
Pete sneri lyklinum og opnaði
dyrnar í hálfa gátt. Sam horfði
á hann, dálítið forvitinn, en þá
hoppaði hjartað í honum. Du-
ena Mantoli gekk inn um dyrn-
ar og inn í skuggalega óvist-
lega klefann. Sam varð vand-
ræðalegur á svipinn, er hann
stóð upp. Hann hafði ekki rak-
að sig um morguninn og skyrtu-
kraginn var flakandi. Og hann
var með ekkert bindi. Á þess-
ari stundu hafði hann meiri
áhyggjur af þessu en ákærunni,
sem hékk yfir höfði hans.
— Góðan daginn, hr. Wood.
Setjizt þér bara niður, sagði Du
ena rólega.
Sam vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið, en settist niður á
harða plankann, sem átti að
vera þarna rúm, þótt þæginda-
lítið væri. Duena settist, róleg
og með yndisþokka, svo sem
fjögur fet frá honum. Sam sagði
ekkert — hann gat hvorki treyst
huga sínum né tungu.
— Hr. Wood, sagði Duena,
skýrt og án allrar tilfinninga-
semi. — Ég hef frétt, að þér sé-
uð ákærður fyrir að hafa myrt
föður minn. Sem snöggvast skalf
efri vörin á henni ofurlítið, en
svo náði hún aftur stjórn á
sjálfri sér og röddin mýktist dá-
lítið og var ekki lengur jafn
settleg. — Ég kom hingað með
hr. Tibbs. Hann sagði mér, að
þéir væruð ekki maðurinn, sem
gerði það.
Sam greip um brúnina á
bekknum með öllum þeim kröft
um, sem til voru í fingrum hans.
Hugur hans gerði enn uppreisn
gegn öllum aga og sagði honum
að snúa sér við, grípa stúlkuna
og þrýsta henni að sér. En hann
hélt takinu fast og velti því fyr
ir sér, hvort til þess myndi ætl-
azt, að hann segði eitthvað.
— Nei, ég gerði það ekki,
sagði hann og starði niður í múr
gólfið.
— Viljið þér ekki segja mér
frá nóttinni þegar þér . . . fund-
uð hann föður minn, sagði Du-
ena. Hún leit fast á múrvegginn
fyrir framan sig. — Ég vil vita
allt, sem gerðist.
— Ég fann . . . Orðin stóðu í
Sam. . . — ég fann hann bara.
Ég hafði verið á eftirlitsferð
alla nóttina. Ég kom við í næt-
urkránni eins og ég geri alltaf
ca
Hofið þér lesið þoð sem
ollur bærinn tolor um?
Viðtalið við Sigurlaugu Rósinkranz
og grein Jónasar Bjarnasonar lœknis
um kynferðisfrœðslu unglinga
e>4i
TftT'RR.RR i þjex vofu a’j {l-fk
og ók síðan eftir aðalveginum.
Og þar fann ég hann.
Duena hélt áfram að stara á
harðan vegginn. — Hr. Wood,
ég held, að hr. Tibbs hafi á
réttu að standa. Ég trúi því
heldur ekki, að þér hafið gert
það. Svo sneri hún sér og leit
á hann. — Þegar ég hitti yður
fyrst, var ég enn ekki búin að
jafna mig af þessu áfalli. En
strax þá þóttist ég vita, að þér
væruð almennilegur maður. Og
það held ég enn.
Sam leit við og á hana. — Eig
ið þér við, að þér haldið raun-
verulega, að ég sé saklaus?
— Ég hef mína sérstöku að-
ferð til að prófa það, sagði Du-
ena, — sú aðferð er afskaplega
einföld. Viljið þér lofa mér að
reyna hana?
Það var eins og nýtt líf færð-
ist í Sam. Þreyttur hugur hans
vaknaði aftur. Og snögglega
fann hann, að hann var aftur
orðinn karlmaður. Hann sneri
sér að stúlkunni. — Segið þér
bara til. Hvað sem það kann að
vera, skal ég gera það.
— Gott og vel. Standið þér
upp!
Sam reis á fætur og lagaði á
sér skyrtuna og óskaði þess heit
ast, að hann hefði sett á sig
bindi. En nú var hann feiminn
og fór hjá sér.
En honum til mestu furðu, stóð
stúlkan nú upp og tók sér
stöðu nokkra þumlunga frá hon
um. Hann fann hjartað slá hrað-
ar og eitthvað gerði hann hrædd
an. — í fyrsta sínn í mörg ár.
-— Þér heitið Sam? sagði hún.
— Já, svaraði Sam og botnaði
ekki neitt í neinu.
— Ég vil, að þú kallir mig
Duenu. Segðu það.
— Duena, sagði Sam og hlýddi
strax.
— Taktu i mig, Sam, sagði
stúilkan. Ég vil að þú haldir
mér fast upp að þér.
Hugur Sams, sem var búinn
að segja svo oft nei, síðasta sól-
arhringinn, bannaði honum að
hlýðnast þessu. Þegar hann
hreyfði sig ekkert, skaut stúlk-
an upp höfðinu. Með hægri
hendi reif hún af sér hattinn.
Svo hristi hún höfuðið snöggt,
svo að dökku lokkarnir féllu
niður eftir hálsinum á henni. —
Þú sagðist skyldu gera það,
ögraði hún, — gerðu það þá nú.
Um leið og hún sagði þetta,
lagði hún hendurnar á axlir
honum.
Án þess að hugsa eða kæra
sig um neitt, lagði Sam armana
um stúlkuna, sem stóð fyrir
framan hann. Á æðisgengnu
augnabliki fann hann, að hún
var mjúk viðkomu og fögur.
Hann vildi aldrei sleppa henni.
Stengurnar fyrir klefanum
hurfu og hann fann, að manns-
móðurinn fór um hann allan.
— Horfðu á mig, sagði Du-
ena.
Sam horfði. Hann hafði áður
haldið utan um stúlkur, en ekk-
Hvúturinn, 21. mar/, — 19. apríl.
1 Allt uppbyggilegt, allar góðar bugmyndir eru hafðar í hávegum.
Nautið, 20. apríi — 20. maí.
i Góðar hugmyndir og tillögur þínar verða kannski misskildar sem
nöldur.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Því nánari, scm kynni þín eru af fólki, því meira ber á milli.
Vertu smekklegur og kurteis.
4 Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Duttlungar þínir geta orðið mjög kostnaðarsamir.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Þetta er óheppilegur tími til að skopast á kostnað náungans.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Allt sem þú aðhefst, er vandlega undir smásjánni.
Vogin, 23. september — 22. október.
Þú verður að vera slunginn til að hafa þitt fram núna, úr því sem
kornið er.
Sporðdrekinn, 23. októb-er — 21. nóvember.
Óbein aðför kemur þér lengst í áformum þínum. Allir taka orðum
þínum sem ögrun.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Þér finnst þú vera að troða þér áfram, en þú ruglar dálítið vini
þína, með ógreinilegu orðalagi.
Stcingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Ef þú ætlar ekki að gera upp við vini þína á annan hátt, veldur
það þér ðtrúlegum crfiðlcikum í framtíðinni. Gleymdu ekki að halda
reikning.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Hlýddu á alia söguna án þess að reyna að kryfja hana til mergjar.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz.
Einbeittu þér að venjulegum málefnum, sem þú ‘hvorki þarft
samvinnu með né skilning heimskra samverkamanna.