Morgunblaðið - 07.08.1970, Síða 28
I
LESIfl
DHGLEGR
FÖSTUDAGUR 7. AGUST 1970
i
Akureyri:
2 piltar skað-
brenndust
er logandi tjara skvettist á þá
Akureyri, 6. júlí.
TVEIR piltar á tvítugsaldri
brenndust illa, þegar sprenging
varð í tjörutunnu, sem þeir voru
að losa í bræðslupott um kl. 1
í nótt. Þeir liggja báðir í sjúkra-
húsi, og líðan þeirra ekki góð
í kvöld.
Verið var að sprauta tjöru á
götur til undirbúnings malbikun,
þegar slysið varð. Vinnuflokkur-
inn var þá staddur neðst í
Hrafnagilsstræti. Piltarnir voru
að losa tjörutunnu í bræðslu-
pottinn, þegar mifkil sprenging
varð, eldur gaus upp, og logandi
tjara slettist á þá. Annar pilt-
anna, Jón Baldursson kastaði sér
þegar niður og velti sér, og
Ihjálpuðust samverkamenn hans
að við að slökkva í íhonum. Við
það brenndist verkstjórinn, Jó-
hann Aðalsteinsson nökkuð á
höndum og í andliti.
Hinn pilturinn, Sigbjörn Gunn
arsson hljóp hins vegar að húsi
Stefáns Stefánssonar bæjarverk-
fræðings, sem býr Skammt frá
slysstaðnum, og loguðu enn klæði
Sigbjarnar, þegar hann kom að
Ihúsinu. Stefán og kona hans voru
ekki gengin til náða, og hjálp-
uðust þau að við að slökkva eld-
inn. Stefán ihlaut við það smá-
vægileg brunasár á höndum.
Rétt í þvi var komið með Jón
þangað að húsinu og flutti Stef-
án báða piltana í skyndi til
sjúkrahússins í bíl sínum, en það
er örstutt leið. Báðir eru pilt-
arnir skaðbrenndir, Jón þó öllu
meira og er hann allþungt hald-
inn.
Verkamennirnir slökktu sjálfir
eldinn í tjörupottinum með hand
slökkvitæki, og þurfti ekki að
kveðja slökfkvilið til. — Sv. P.
Fyrsti skuttogarinm sem smíffaður varffur á íslamdi.
Sjúkraflug
til Grænlands
PLUGVÉL frá Flugstöðinni hf.
fór í gær til Meistaravíkur á
Grænlandi og sótti þangað fransk
an mann, sem hafði slasazt illa
á hendi. Flugvélin fór frá Reykja
vík á þriðja tímanum í gær og
lenti aftur á Reykjavíkurflug-
velli laust eftir klúkkan 22 í gær
kvöldi. Flugmaður var Elíeser
Jónsson. Frakkinn var futtur í
slysadeild Borgarspitalans.
Stálvík smíðar skut-
togara Siglfirðinga
— 550 tonna skuttogari til
Sigluf jarðar í næstu viku
S AMNIN G AVIÐRÆÐUR milli
hlutafélagsins Þormóffs ramma í
Siglufirði og skipasmíðastöðvar-
innar Stálvíkur um smíði á 46
metra löngum skuttogará eru nú
á lokastigi. Verður þetta
fyrsti skuttogarinn, sem smíðað-
ur er hér á landi. Tilboð Stál-
víkur, sem er dagsett 27. des-
ember 1969. Aljóffar upp á 59
milljónir og 664 þúsund krónur
og 15 mánaða smíðatíma. — Um
næstu helgi leggur úr höfn í V-
Þýzkalandi 550 tonma skuttogari,
Dagný SI 70, sem hlutafélagið
Togskip h.f. í Siglufirði hefur
fest kaup á. Þessi togari er 3*
ára. Þess má geta, að fyrsta skut-
skipið, sem keypt var hingað til
lands er Siglfirðingur, sem sam-
nefnt hlutafélag keypti fyrir 7
árum. Siglfirðingur er 210 tonn.
Hluthafar í Þormóði ramma
eru Siglufjarðarkaupstaður,
frystihús Síldarverksmiðju ríkis-
ins og nokkrir einstaklingar í
Siglufirði.
Jón Sveinsson, forstjóri Stál-
víkur, tjáði Morgunblaðinu að
skuttogarinn fyrir Þormóð ramma
yrði stærsta verkefni, sem Stál-
Víík hefði ráðizt í. Þau stærstu
til þessa eru tveir 370 tonna síld-
arbátar en skuttogarinn verður á
fjórða hundrað lestir samkvæmt
nýju mælingunni en rösklega
500 torun eftir þeirri gömlu.
Sem fyrr segir verður togar-
inn 46 metra langur, breidd yerð
ur 9 metrar og dýpt á efra þilfar
6,65 metrar. Togarinn verður
tveggja þilfara, knúinn 1600 hest
afla díselvél, sem er með Skrúfu
hlíf, en hún eykur togkraft
skipsins veruilega. í togaranum
verða tvær lestar, útbúmar fyrir
fiskikassa, og lifrargeymar, sam-
tals 400 rúmmetrar. Venjulegur
ganghraði verður röskar 13 sjó-
mílur en í útboði var reiknað
með 18 daga veiðiferðum. Áhöfm
verður tólf manns og vistarverur
eru fyrir 16. Togarinn verður bú-
inn öllum nýjustu og beztu tækj-
um, m.a. tækjum, sem mæla dýp-
ið, sem fiskurinm er á og vörpu-
sjá, sem gerir kleift að fylgjast
með vörpuopimují hvaða hæð það
er í sjó og er þá hægt að stilla
vörpuna í þá hæð, sem fiskurinn
heldur sig í.
Togarimn er fyrst og fremst
miðaður við togveiðar og verð-
ur búimm vakivakmiúinmi togrúllu
d skuit.
TQgarinn er smiðaður etftir
teilkninigu frá hollenzka fyrirtæk
inu Pnopulsion, og hatfa um eða
yfir 60 skip verið smSðuð etftix
henni, að sögn Jóns. Eimmig sagði
Jórn, að ísraelar ættu eimm slítoan
togara, sem þeir halda úti við
vesturströnd Atfríku og Kanarí-
eyjar og IhieÆur hainm skarað fram
úr stærri toguxum Israela, sieim
veiða á sömu slóðum, hvað snert-
ir fjárh'aigsafkomu.
Hjá Stálvík vinna nú um 80
mannis.
30 nýjar brýr í sumar
45,3 milljón fjárveiting — Kappkostað við
endurnýjun gamalla brúa
UNNEÐ er nú í sumar að smíði
um 30 hrúa af ýmsum stærðum
víða um Iand. Fjárveiting til
brúasmíði í ár er alls 45.3 millj-
ónir króna, og að sögn Helga
Hallgrímssonar hjá Yegamála-
skrifstofunni, er höfuðkapp lagt
á endumýjun eldri hrúa á ýms-
um aðalakvegum landsins.
iSíðustu árin hetfur roikið verið
endurnýjað af elztu brúum, en
mikið verk er þó enn framund-
an. í þessum efnum. Einkum eru
Marcel Mart, efnahags- og samgöngumálaráðherra Luxemborgar, og kona hans komu í opinhera
heimsókn til íslands í gærdag. Komu þau með flugvél Loftleiða og tóku á móti þeim á Kefla-
víkurflugvelli Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra, og fulltrúar frá Loftleiðum. — í för
með ráðherranum er einnig Pierre Hamer, flugmálastjóri Luxemborgar, og Roger Sietzen, for-
stjóri Luxair, og konur þeirra. Hópurinn dvelst hér til 9. þ, m.— Myndin var tekin við komu
ráðherrans.
það brýrnar þ.e. tfrá 1910— 1920,
sem stefnt er að því að endur-
nýja, enda margar orðnar erfið-
ar í umferðinni vegna aukins
bílafjölda og þunga.
Stærsta brúin, sem unnið er að
smíði á í sumar, er Síká í IHrúta-
firði, en hún er um 56 metrar á
lengd í þremur höfum. Ljúka á
við smíði hennar í haust. Er
Framhald á bls. 3
Góður afli tog-
ara undanfarið
Heildaraflinn meiri núna en í fyrra
TOGARARNIR, sem landa afla
sínum í Reykjavík, hafa aflað
með ágætum að undanförnu. I
sl. viku og það sem af er þess-
ari hafa 8 togarar landað rúmum
1700 tonnum.
Á miánuidag 27. júlí landaði
Ingólífur Arnarson 288 tonmium,
Marz degi síðar 160 tonnum og
Þorkell mámi á miðvikudag 29.
júií 250 toniraum. Mániuidagimn 3.
ágúst lamdaði svo Þormóður goði
250 toninum, Egill Skalla'gríms-
son 170 tonnum á þriðjudag og
Júpiter á miðvikudag 200 tonn-
um. 1 gær var Jón Þorl'áksson
að landa 200 tonnium og í dag
átti Víkingur að landa 250 tonin-
um, að þvá er Ha'llgrímur í Tog-
araafigreiðslunni tjáði blaðinu í
gær.
Saimkivæmt upplýsingum, er
blaðið aflaði sér hjá Fiskifélalgi
íslands þá var heiidarafii ís-
lenizkra togara í júnílok sl. eða
fymri helminig ársins 40.587 tonin
friá áramótum en var á sasna
tíma í fynra 39.171,7 tomn. Famn-
ar voru 204 veiðiferðir á þessu
timabili í ár, en 201 í fyira. Tog-
ararnir löniduðu 100 sinnum hér
beima samtals 23.085,7 tannium
á ittímábilinu niúna en 104 sinnum
eríemdis samtals 17.501,4 tonnum.
Samsvarandi tölur í fyrr.a voru>:
25.421,8 tonn í 120 löndumum
heima og 13.749,9 tonn í 81 lönd-
um erliendis.
Með sjúkan
mann til
Reykjavíkur
NORSKA rannsóknarskipið G. O.
Sars kom til Reykjavíkur seinni
hlutann í gær með sjúka mann-
inn, sem sagt var frá í blaðinu í
gær. Maðurinn sem er 40 ára að
aldri, þjáðist af blæðandi maga-
sári og mun gangast hér undir
uppskurð. G. O. Sars heldur aft-
ur út fljótlega.