Morgunblaðið - 12.09.1970, Síða 20

Morgunblaðið - 12.09.1970, Síða 20
20 MORGtTNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPT. 1970 — Minning Framhald af hls. 18 sælustundir lífs sóns með bróð- ttr og systur, sem mundu hamn aðeins seon lítinn, veiikan dreng. iÞaur kjnmtist hann hetjusögu for- eldra sinna í erfiðu og óunnu landi. Árið 1966 flutti Elís til Reykjavíkur og gerðist þar um tíma stöðumælavörður hjá lög- reglustjóra borgarirmar. Þau verk vann hanm af sömu alúð og öll önnur. En þegar hann fann likaanskrafta sína ekki næga til að hann gæti leyst störf sín eins vel af hendi og hann vildi, lét hann af störfvsm og flutti aiftur norður, þar seon hauin gerðist vistmaður á elliheimilmu í Skjaldairvik við Eyjafjörð, Þar leið honium vel. En þegajr komið var til hans var auðfundið, að kraftamir voru að þverra. Hann andaðist á Fjórðungssjúkra húsinu á Akureyri 30. júlí sl. og var jarðsettur í Laufási 7. ágúst. Þegar ég hugsa til Elíss, þá finnst mér að slíkir menn seim hann hafi einir gert íslandssög- una mögule®a, með s-eiglu sitini, verksígimi og vkðingu fyrir lifs- stöðu sinni. En frá fæstuim þeirra greinir sagan. J. B. Knattspyrnufélagið VALUR Auka aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 17. september n.k. í félagsheimilinu að Hlíðarenda og hefst hann kl. 8.30 e.h. stundvíslega. Fundarefni: Stofnun körfuknattleiksdeildar. STJÓRNIN. Veitingahúsið AÐ LÆKJARTEIG 2 Hljómsveit JAKOBS JÓNSSONAR. J. J. og BERTA BIERING. Matur framreiddur frá kl. 8 e.h. Borðpanfanir í síma 35355. Stórdansleikur að Félagsgarði í Kjós Núttúra leikur og syngur í kvöld Um síðustu helgi var uppselt og' ofsafjör að Félagsgarði. Sætaferðir verða frá Umferðamiðstöðinn kl. 10. Sæmundur sér um ferði rfrá Akranesi og Borgarnesi. Ein af myndum Sigfúsar Halldórssonar. Fjórar mynd- listarsýningar ALFBEÐ FLÓKI f BOGASAL Sýningu Alfreðs Flóka er ný- lokið þegar ég hripa niður þessar hugleiðingar: Engu skal spáð um hvers vegna listdómur um sýn- ingu hans kom ekki fram á með- an hún stóð yfir, en ef til vill heíur Alfreð Flóki með fulltingi galdra haldið gagnrýnendum fjarri, allavega var það ekki á dagskrá að láta hennar ógetið. Gagnrýnendur blaðsins eru að vísu mannlegir og breyzkir, hafa ekki Höndlað alvizkuna né eru í bland við dára og miðaldamag- ík. Þeir hafa heldur ekki náð svo langt að vera mörgum árum á undan samtíð sinni og þó ég tali ekki fyrir munn meðgagn- rýnanda míns álít ég að hann sé mér sammála um það, að mynd- listarmaður spegli jafnan samtíð sína. Hins vegar er það annað mál, að það er jafnan lítill minnihluti, sem skynjar æða- slátt samtíðar sinnar. Það vill svo til, að listasaga skírskotar jafnan til þess tíma sem lista- mennirnir hrærðust á, en ekkl til samtíðarmanna listamannanna. Það er lágmark skynjunar á samtíð sinni að skilja, að allt líf byggist á endur- nýjun, enginn getur stöðvað tím ann og lifað I stöðnun, en flestir lifa í vananum eða liðinni tíð, enda er slíkt þægilegast og ábyrgð- arminnst. Engum lækni dytti t.d. í hug að reyna að ýta jóðinu aftur á þess fyrri stað, en þetta er einmitt það, sem fólk er stöð- ugt að gera í skjóli vanans. Þetta er einskonar forréttinda- hash hins óbreytta borgara, leiðsla og óminni hversdagsleik- ans. Allt þetta veit Alfreð Flóki eins vel og hver annar í hans stétt, en vitaskuld er honum frjálst að magna myndir sínar með ókennilegum hugmyndum um tilveruna, ef hann álítur að þær þurfi slíks stuðnings við og skemmta með því sjálfum sér og almenningi. En þá held ég að hvort tveggja, myndimar og orðaforðinn þarfnist endurnýj- unar. Óskiljanlegt er mér af hverju Flóki vinnur ekki í annarri tækni en kol- og pennateikningum, svo mjög sem tækni sú, sem hann notar er hentug fyrir málm ætingu og þurrnál, og raunar all ar tegundir kopargrafíkur. Þá mundi hann einnig geta þrykkt myndir sínar í þeim upplögum, sem hentaði hverju sinni, og þá mætti ætla að þessar sifelldu endurtekningar forma reynd- ust óþarfar. Alfreð Flóki hef- ur þrengt sér í bás með núver- andi vinnu sinni, og þótt hann bæti jafnan við sig að einhverju leyti í tækni með hverri nýrri sýn ingu, þá gerir maður óneit- anlega meiri kröfur til þessa listamanns en svo, að hann lími sig um alla framtíð við núver- andi vinnubrögð. Flóki nær á köflum eftirtektarverðum ár- angri í mínatúrmyndum sínum og þau andlit, sem fylgdu hon- um fyrrum líkt og óraunhæfur kækur, eru smám saman að þoka fyrir nýjum og áhugaverðari formunum, svo sem i myndum nr. 4 og 8 í sýningarskrá. Hví ekki að gera einnig mjög stórar nostursteikningar. Heilustu og formhreinustu myndir sýning- arinnar álít ég vera nr. 3 „Tunglhrif" og nr. 14 „Frum- hvörf“, sem báðar eru meðal nýrri verka Flóka. Af kolmynd- um þótti mér teikning nr. 29 „Á batavegi 11“ rikust í blæbrigð- um og eftirminnilegust. Víða brá fyrir erótík i myndum Flóka á sýningunni, en þó ekki að marki miðað við fyrri sýningar, hvað sem veldur. Yfir mörgum kven- legura verum í myndum lista- mannsins er eitthvað óferskt sak Ieysi, sem gerir erótíkina og óhugnaðinn allt um kring án áhrifa og framandi. íslendingar eru hrifnir af mikilli vinnu og útflúri í myndlistarverkum og hönnun. Völundurinn nýtur óviða meiri virðingar, og þannig séð ætti Flóki að njóta mikilla vinsælda af alþýðu fyrir það eitt, en ég vona, að hann láti sér það alls ekki nægja og brynji sig upp til nýrri landvinninga inn- an marka listar sinnar. RÓSA KRISTÍN 1 UNUHCSI Nýlokið er sýningu ungrar listakonu Rósu Kristínar Júlíus- dóttur frá Akureyri, sem stund- ar listnám á Ítalíu, eða nánar sagt við listaháskólann í Bol- ogna, og var þetta frumraun hennar á vettvangi islenzkrar myndmenntar. Ég las viðtal við hana i einu dagblaði borgarinn- ar þar sem hún taldi upp þá nú tímalistamenn, sem hún hefði mestar mætur á og þótti mér smekkur hennar harla góður og lék mér því forvitni á að líta vinnubrögð hennar. En gott skynbragð á nútímalist þarf ekki að þýða það sama og gild listræn vinna hjá viðkomandi. Því hér var að minni hyggju um að ræða listnema sem kom of snemma fram opinberlega, og það sem lakara var, nemendi sem virtist hafa vanrækt trausta und irbúningsmenntun. Agi og skólun koma ekki nægilega fram í þess- um myndum hennar, þær eru lausar í sér og tæknilega gall- aðar, og á þetta einkum við olíumálverkin. Hins vegar tekst henni til muna betur að aga þekjuliti og vinna úr þeim lýr- íska fegurð. Listin er strangur skóli og bak við einfalda og létta niðurskipun og listrænan yndisþokka hjá listamönnum, sem njóta aðdáunar listakonunn ar ungu, svo sem Luigi Fontana og Morandi, liggur heilt ævl- skeið vinnu og ögunar. Af þess- ari sýningu verður vart spáð um Framhald á bls. 27 STAPI TRÚBHOT r I KVÖLD ★ TRÚBROT r I KVÖLD STAPI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.