Morgunblaðið - 17.10.1970, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.10.1970, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1970 3 1 Áhyggjur vegna rússneska flotans við Noregsstrendur 1 NORSKA blaðinu Aftenpost en, frá 12. okótber, er jgrein um hina g-eysilegu aukningu á ferðum rússneskra herskipa undan Noregs ptröndum, sem orðið hefur undanfarin ár. Er vitnað m.a. í fréttabréf upp- lýsingaþjónustu NATO, og birt kort sem isýnir uukning- una frá 1960 «1 1969. Aftenposten segir m.a.: Hin eftirtektarveröa aukning á starfsemi sovézka flgtans meðfram allri strönd Noregs og á öðrum Atlantshafsleið- um veldur stjórn Atlantshafs bandalagsins sívaxandi áhyggj um. Þetta nýja ástand, sem skapazt hefur á undanförn- um tíu árum eða svo, felur í sér töluverða ögrun gagn- vart þeim löndum sem eiga aðitd að bandalaginu, og hef- ur orðið til þess að flofastjórn bandalagsins hefur þurft að endurskoða áætlanir um styrkleikahlutföLl og varnir á þessu svæði. í nýjasta heítinu af „NATO Letter", eru birt kort, sem sýna Ijóslega hvernig hinn kjarnorkuvopnaði risaflöti Sovét-rikjanna hefur um ára- bil einbeitt sér í vaxandi mæli að æfinga- og eftirlits- ferðum rétt undan ströndum Noregs. Það er Norður-lshafs- flotinn sem þarna er á flerð- irrni, og harun hefur höfuð- stöðvar i Murmansk-Kolasvæð inu. Töliurnar sem „NATO Lett- er“ gefur upp, virðast koma heima og saman við það sem maður heyrir öðru hvoru um hérna heima, á opinberum vettvangi. Af kafbátaflota sem telur 300—350 skip (rúml. 25% eru kjarnorku- knúnir), tiltheyra 160 íishafs- flotanum á Murmansk svæð- inu. Þrjátiu í viðbót geta auð veldlega komizt úr Svartahafi yfir i Atlantshaf, segir yfir- maður herstyrks bandamanna á Atlantshafssvæðinu, Ephri- am Holmes, flotaforingi, í grein sem fyl'gir með kortun- Kort þessi tsýna vaxandi siglingar rússneskra lierskipa út af Noregs ströndum, frá árinu 1960 tii 1969. um. Hann vekur einnig at- hygli á sívaxandi styrk yfir- borðsfiota Sovétríkjanna, sem samanstendur að miklu leyti af éldfflaugavopnuðum beiti- sikipum og bundurspilium, auk þess, að hraðskreiðir tundur- skeytabátar hafa fengið eld- fflaugaútbúnað, sem auka si- felffit árásargetu rússneska fflótans. Hrossauppboð á Litla-Hrauni UM 70 stóðhross verða boðin upp á uppboði, sem haldið verð- ur á Vinnuhælinu á Litla-Hrauni í dag. Ástæðan er sú, að ákveðið hefur verið að leggja alveg nið- ur búskap á hælinu. Kúabúskap hefur þegar verið hætt og fénu, um 200 kindum, verður fargað í haust. Markú-s Einarsson forstjóri vinnuhælisins sagði Mbl. að legi hefði staðið til að leggja nið- ur búskap, því bændum væri heldur illa við að ríkið keppti þama við bændur í kjötfram- leiðslu. Einnig væri mjög lítil vinna við búskapinn á vetuma. Aftur á móti verður heyskap haldið áfram og hey selt. Þannig hefur verið töluvert af heyjum í haust og hefur það farið til bænd'a í Nauteynarhreppi. — Við getum heyjað tvö til þrjú þúsund hesta ef vel sprett- ur, en túnin hér ná yfir 70 hekt- ara, sagði Markús. Þannig get- um við orðið bændum að liði í stað þess að keppa við þá. Uppboðið, sem hefsf klukkan 1 í dag, verður haldið á túnun- um austan við hælið. Sagði Mark ús hrossin á ýmsum aldri og öll ótamin. Seltjarnarnes FYRSTA umræðu- og spila- kvöld Sj álfstæðisfélags Seltjarn- arness á þessum vetri, verður í samkomusal íþróttahúasins n.k. mánud'agskvöld 19. október og hefst kl. 20.30. Fundarefni: 1. Hitaveitumál Seltiminga. Framsögumaður Þorbjörn Karls son, verkfræðingur. 2. Félagsmál. KARNABÆR BÝÐUR VIKULEGA NÝTT VÖRUÚRVAL FYRIR BÖMUR OG HERRA Opið til kl. 4 ollo Iaugnrdaga PÓSTSENDUM UM ALLT LAND * STAKSTFIWI! Ótryggur liðsmaöur ? Það vakti atliygli við nefndac kosningar á Alþingi, sem fram fóru fyrir skömniu, að ekki virð ist jafnt á komið með þeim fé- lögum Hannibal Valdimarssynl og Birni Jónssyni. Að þessu sinnl höfðu þeir ekki kosningabanda- lag við Framsókniarflokkinn eins cg í fýrra, og fór svo í neðri deild, þar isem Hannibaí á sæti, að hann varð að stfTíga upp á sjálfum sér við nefnda- kjörið og hlíta því, að eSna át- kv'æðið, rsem hann fékk, var eig- ið atkvæði. Féll Hannibal þar með lit úr öllum þingnefndnm. Björn Jónsson á hins vegar sæti í efri deild, og var hann þar endurkjörinn í allar nefnd- ir, er hann át-ti sæti á á síðasta þingi. Bauð Alþýðubandalagið ekki fram á móti honiun og (er ástæðan vafalaust sú, að slíkt hefur ekki þótt þorandi, þar sem þá hefði orðið að reyna á tfylgi Karls Guðjónssonar, sem „Þjóð- viljaklíkan“ telur ótryggt. Hef- ur sennilega verið talið bezt að opinbera ekki afstöðu . hans sið sinni. Enn sækir Karl þó tfimdl í þingfiokki Alþýðubandalagsins, þrátt fyrir yfirlýsingar, meðal annars þeárrar, að liann verði ekki í framboði Sengur fyrir AI- þýðubandalagið. Mun Karl Guð- jónsson nú vera farinn að gera hosur sínar grænar fyrir lianni- balistum. Skoðanafrelsi Dagblaðið Vísir ræðir I rit- stjómargrein sl. fimmtudag um islenzka og erlenda ritskoðun: „Ofbeldissinnaður rétttrúnað- ur stendur því miður með blóma um allan beim, einkum I stjóm- málum. Hinir rétttrúuðu eru ekld einungis sannfærðir um, að allir aðrir en þeir sjálfir hafi fráleitar skoðanir, heldur telja þeir einnig sjálfsagt og nauð- synlegrt að berja önnur sjónar- mið niður nieð beinu eða óbeinu valdi ... Alls staðar eru öfgasinnar, sem telja sig liandhafa hins innsta sannleika og telja sjálf- sagt að stunda Siótanir og vald- beitingu S þágu trúar sinnar. Þessir rétttrúuðu menn hafa taumlaust sjálfsálit, sem hygg- ist á litium og lélegum forsend- um, samfara takmarkalausu virðingarleysi fyrir sjónarmið- um annarra. Eitt dæmi um álirif ofbeldis- sinna á Vesturlöndum er uppi- standið út af kvikmyndinnl „Alpahúfumar“. Þessi kvik- mynd er af mörgum og vafalít- ið oréttilega talin gefa villandi mynd af hernaði Bandaríkja- rnanna í Víetnam. Þvi er sjáif- sagt að andmæla og vekja at- hygli fólks á, hve vafasöm heim Ud þessi mynd sé. Svo var t.d. gert hér á landi, þegar »ýnángar hófust á henni. En viða hefur vesrið gengið miklu lengra. Á þessum stöðum hefur of- beldissiiuium teldzt að kúga kvikniyndahúsin til hlýðni við rétttrúnaðairsjónarniið sin. Al- menningur fær ekki að sjá kvik myndina og meta gildi henn- ar sjálfur. Þetta kvik- myndaeftirlit ofbeldismanna er sömu ættar og ritbannið í Bov- étríkjunum á bókuni Solsénits- íns og öðrum hókum, sem ekki eru í fuliu samræmi við rétt- trúnaðinn. En ísienzka Víetnamhreyfing- in liefur þó komizt svo langt að skora á forráðamenn kvikmynda hússins, sem sýnir myndina, „að hætta við sýningar“ ú henni. Bit skoðunarviijinn er sem sagt i fullu gildi hér á landi, þótt hann sé sem betur fer í friðsamlegra formi en víða «rlendis.“ C ♦- c

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.