Morgunblaðið - 17.10.1970, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.10.1970, Blaðsíða 25
MORjGUNBLAíMB, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1970 25 — Minning Sigurður Franvhald af bls. 22 þeirra sem kynnfrust þeim og þekktu. Þórdis var noklkrum ár nrn yngri hel'dur en Sigurður og hvorugt þeirra að kalla má búin að slíta barnsskónum er þau gengu saman út i llfið. Þór diís hefur sólrænt yfirbragð og vottar gjama fyrir glettnu brosi í augum hennar, bæði voru þau hjón miklir vinirvina sinna, en óvini áttu þau enga. Ungur Eyjamaður var eittsinn um það spurður hverjar væru helztu hátíðir ársins og svarið var: Þjóðhátíðin og jólin. Þór- dls og Sigurður héldu að sjálf sögðu jól og þjóðhátíð hátíðieg, en þó mun giftingardagur þeirra 7. júní hafa verið mest- ur hátíðisdagur í lífi þeirra beggja frá upphafi og aila tið, en 40 ára hjúskaparafmæii héldu þau hjónin 7. júni á s.l. vori. Þau hjönin Þórdís og Sigurð ur héldu upplitsdjörf út í lifið og þeirri reisn og upplitsdirfð hafa þau haldið alla tið og verðskuldað það. Eins og fyrr er að vikið, þá voru fararefni þeirra Sigurðar og Þórdísar er þau gengu út i lífið aðeins gagnkvæm ást, en að baki var brotin brú þar sem djarfhuga draumur Sigurðar og féiaga hans um nýbreytni í út gerð rættist ekki að því sinni, þótt skammt væri i að aðrir nytu leiðarinnar og leiðsögunn- ar sem Sigurður hafði markað og Sigurði síðar gefizt færi á að hagnýta þá leið og gera æstoudrauma sína að veruleika. En þar er eilíft sumar sem samlyndið býr og sólskin í glugga hvert sem hann snýr, seg ir í gömlum brúðtoaupssálmi og þann sannleika hafa Þórdis og Slgurður sannreynt. Annar maður két þau orð falla á giftingarári Þórdísar og Sigurðar, að vísu að öðru til- efni, að það skipti engu máli þótt hiöt og þetta gengi ekki að óskum í atvinnurekstri og daglegum störfum, ef kona manns tæki brosandi á móti manni er hann kæmi heim eflt- ir dagsins önn og það er nokk- uð um það. Þótt Sigurður Bjarnason væri alla tíð mikill aðdráttamaður og hugsaði vel um heimili sitt, þá þarf etoki get um að því að leiða, að fyrstu árin hafi það komið fyrir, og jafnvel oftar en menn gnunar, að Þórdis hafi þurft að brjóta brauðin og skipta fiskunum, eins og' Kristur gerði forðum, en það kom aldrei fyrir að nokkur færi frá borði þeirra Þórdisar og Sigurðar öðru visi en mettur. Fljótlega réðust þau Þórdís og Sigurður í það stór- virki að byggja sér hús, og byggingar voru fátiðari í Eyj- um þá en nú, hús sitt nefndu þau Svanhól og stendur það austarlega á Heimaey þar sem vel sér til sjávar og allra átta. Byggingin var ekki rishá í upp hafi, ein hæð, en ótrúlega komst húsið til hæfilegrar stærðar og þar hafa þeim hjónum fæðzt mannvænleg böm sem öll eru nú uppkomin og orðin góðirog nýtir þjóðfélagsþegna r. Sá sem grein þessa ritar hef ur þetokt þau hjönin Þórdisi og Sigurð í hálfa öld þótt kynnin hæfust ektoi verulega fyrr en eftir giftingu þeirra og minning arnar um þau hjónin og heim- ili þeirra í Svanhól eru allar umvafðar sólskini og birtu. Leið ir hafa legið saman bæði i blíðu og stríðu og reisn þeirra hjóna hefir alltaf verið sömog jöfn. Það varð að sjálfsögðu áfali fyrir Sigurð Bjamason að verða að láta hið glæsta skip sitt Fyliki til annarra aðila, en hann lét það ekki sjást né merkjast i orðum né athöfnum en héi't sjósókninni ótrauður áfram, að vísu á srmærri og van búnari bátum, en alltaf með far sæld og mikla aflaheill. Eitt sinn gerðist Sigurður á þessum árum formaður á litlum Færeyjabát, sem gerður var út frá Eyjum, en báturinn nánast ekki sjófær og veiðarfæral'ítill ,og á örstuttum tima þá flutti Sigurður að landi á þessum van búna bát og við ófullkomnar að- stæður aflamagn sem mun hafa numið sjötiu og fimm þúsund- um þorska og ér það vafalaust heimsmet í afla fram að þeim tima. Eftir að tekið var að stunda síldveiðar fyrir Norðurlandi á fjórða áratug aldarinnar, þá gerðist Sigurður Bjamason þátt takandi í þeim veiðum með þeirri fádæma afflasæld að til eindæma mátti telja, og það á smáum bátum. Sjórinn varð Sigurði og Þór- dísi gjöfull og Sigurður brást aldrei afli og skipsrúm hjáhon um þóttu eftirsóknarverð og fengu færri en vildu, en sjór- inn krafðist líka stórra fóma, sérstaklega af fjölskyldu Þórdls ar konu Sigurðar, en alltaf var haldið áfram og sótt fram en aldrei litið uim öxl með það í huga að hætta. Þórdís Guðjóns- dóttir er fágæt kona, þar sem sameinaðir eru al'lir beztu kost- ir og eigin.leikar islenzkra kvenna, skapið er mikið og heitt, en hún gætir skaps síns svo vel að ekki verður merkt þótt á móti blási og manni sin um og bömum hefir Þórdís bú ið fágætt og dýrðlegt heimili, þar sem yl og hlýju andar að þeim sem að garði ber, og öll- um líður þar vel innan dyra, að það fann og mat enginn mað- ur heldur en Sigurður Bjama- son. Nauðleytarfólk hefir alltaf átt griðastað og skjól hjá þeim hjónum og notfært sér það og frajndrækni og ættartengsl þessa fól'tos eru með fádæmum. Móður sinnar á morgni dags, barn er br jóstmylkingur, Én í vetrarhríð vaxinnar ævi, gefst ei skjöl nema Guð. Það var mikið og sviplegt áfall fyrir Þórdisi að missa manin sinn á góðum aldri á þeim tímamótum sem venjuleg- ir erfiðleikar voru að baki, en þó hefði orðið ennþá erfiðara fyrir Sigurð, ef hann hefði þurft að sjá á bak toonu sinni, þetta vissi Sigurður og skildi og hafði orð á við konu sína. Afllaflenig'u r sá sem Sigurður Bjarnason hefir haft forystu um að draga að landi í Eyjum og fleiri verstöðvum á iandinu, hef ir orðið að hornsteinum þeim sem mörg heimili hafa risið upp af, og alia ævi hafa þau Þór- dís og Sigurður verið veiöend- ur en ekki þiggjendur, goldið Guði það sem Guðs er og keis- aranum sitt. En að auki þá hef ir Þórdis um langt árabil ver- ið í forystusveit kvenna íbjörg unar- og líknarmálum, að ótöldu eigin framlagi hennar til þeirra sem bágt hafa átfog engar sög ur eru skráðar um eða slíitoum verkum flitoað. Nú hefir Sigurður Bja-rnason farið sina hinztu för og: Drottinn sjálfur stóð á ströndu: Stillist vindur. Lækki sær. HátJt er siiglt og stöðugt stjómað. Stýra kannt þú, sonur kær. Hörð er lundin, hraust er mundin hjartað gott, sem undir slær. Heilíl til stranda. . . stíg á land og kom til mín“. Þegar Sigurður Bjarnason varð sextugur fyrir fimm ár- um, þá efndu þau hjónin till fá menns gestaboðs fyrir böm sin og nánustu aðstandendur og notokra vini, kvöldið fyrir af- mæliisdaginn, en hús þeirra fylltist og hél.t svo fram næstu dagana á eftir og miuniu gesta- komur vegna afmælisins hafa staðið í viku og öllum vel fagn að og ekki þrutu veitingar eða önnur föng. Heillaskeyti, blóm og margs konar vináttu og virð- ingarvottur barst frá svo mörg um aðilum að til einsdæma mátti telja. Slíkuir er huigur saimlferðafóllksins til hjónanna i Svanhól. Vestmannaeyjar kveðja við út för Sigurðar Bjarnasonar einn af sínum beztu sonum sem hief- ir átt mikinn og virkan þátt í uppbygigingu Eyjanna á mitolu uppbygginigartímabili yfirstand andi aldar og hlýbugur Eyja- manna og annarra þeirra sem til þetokja beinist í hljóðri þökk til konunnar, Þórdísar Guðjónsdóttur sem bjó manni sínum það heimili og innri að- stæður sem gerðu honum toleift að inna af höndum hið mikla og farsæla dagsverk sem hann lætur eftir sig. Frú Þórdís Guðjónsdóttir er umvafin kærleika og þakklæti barna sinna og barnabarna ásamt óvenju stórum og mann- dómsmiklum frændgarði, en það er hún sem hefir skapað manni sínum það heimili sem gerði honurn toleift að vinna sigra sína og afrek. Að visu döggva tár trega og saknaðar augu henn- ar nú á þessum tímamótum, en þrátt fyrir mikinn missi sinn, þá á Þórdís mikinn auð í fögr- um og góðum minningum um frábært heimilislíf og sambúð sem aldrei bar skugga á og sól in mun halda áfram að skina á gluggana í Svanhól og bjarm- inn veröur hinn sami yfir brún um fjaíla á brúðkaupsdegi og við jarðarför. Heigi Benediktsson. Frá Farfuglum Munið handavihnúkvöldin á miðvikudögum. Læknar fjarverandi Ólafur Ingibjörnsson verð- ur fjarverandi til áramóta. Staðgengill verður Ragnar Arinbjarnarson. Kristileg samkoma verður í samkomusalnum Mjóuhlíð 16 hvert sunnu- dagskvöld ki. 8. Verið velkomin. Barnastúkan Svava heldur skemmtifund I Templarahöllinni Eiríks- götu 4, kl 2 á sunnudag. Öll börn velkoniin. Gæziumaður. A KNSKI Kristileg samkoma verður haldin í Góðtempl- arahöllinni (annarri hæð), Eiríksgötu 5, sunnudaginn 18, október kl. 8.00. Allir velkomnir. K. MacKay og I. Murray. H jálpraeðisherinn: Sunnudag kl. 11.00 Helg- unarsamkoma. kl. 14.00 Sunnudagaskóli. kl. 20.30 Hjálpræðissamkoma. Cand. teol. Auður Eir Vil- hjálmsdóttir talar. Heimila- sambandssysturnar taka þátt í samlkomunni með söng og vitnisburðum. Allir velkomnir. Næstu viku 19.—26. októ- ber verða barnasarr.komur á hverju kvöldi kl. 6. Öll börn velkomin. Bænastaðurinn Fálkagötu 10 Kristileg samkoma sunnu- daginn 18. október kl. 4. Sunnudagaskóli kl. 11. f.h. Bænastund virka daga kl. 7 e.h. Allir velkomnir. Grensásprestakall Guðsþjónusta í safnaðar- heimilinu sunnudaginn 18. október kl. 2. Haustferm- ingarbörn eru beðin um að mæta við guðsþjónustuna. Sóknarprestur. K.F.U.M. og K. Hafnarf irði Sunnudagaskólinn kl. 10.30. Öll börn velkomin. Almenn samkoma sunnu dagskvöid kl. 8.30. Ræðumaður Ástráður Sig- ursteindórsson skólastjóri. Unglingadeildarfundur mánudagskvöld kl. 8. Opið hús frá kl. 7. Kvenfélag Bústaðasóknar Aðalfundur verður haldinn mánudaginn 19. október í RéttarhoHsskóla kl. 8.30. Sýndar myndir sem teknar voru úr hófi Norðankvenna isumar. Nýir meðlimir vel’komnir. Fjöimennið. Stjórnin. Badmintondeild Vals Æfingatímar fyrir.börn og unglinga verða í íþróttahús inu á laugardögum frá kl. 1.10 til 2.40. Stjórnin. KvenféSag Grensássóknar heldur aðalfund sinn, mánu- daginn 19. okt. kl. 8.30 í safn aðarheimilinu Miðbæ: Venju leg aðalfundarstörf. Rætt um námskeið i smelti. Stjórnin. Æskulýðsstarf Neskirkju Fundir fyrir stúlkur og pilta 13 ára og eldri mánu dagskvöld kl. 8,30. Opið hús frá kl. 8. Séra Frank M. Halldórsson. Sáiarrannsóknafélag fslands heldur almennan félags- fund í Sigtúni við Austur- völl mánudaginn 19. októ- ber kl. 8,30 e.h. Dagskrá: 1. Ávarp: Forseti S.R.F.Í. Úlfur Ragnarsson læknir. 2. Sveinn Ólafsson fulltrúi: Framlífsdraumar mannsins og eilífðarríkið. 3. Frú Aðalbjörg Sigurðar- dóttir: Erindi. 4. Sigfús Halldórsson tón- skáld leikur á píanó. Kaffiveitingar. Félagar og gestir velkomn- ir á meðan húsrúm leyfir. Stjórnin. K.F.U.M. I dag (laugardag); Kl. 8,30 e.h. samverustund fyrir félaga og gesti þeirra í félagsheimilinu við Holta- veg. Á morgun: Kl. 10,30 f.h. Sunnudaga- skólinn við Amtmanns- stíg. — Drengjadeildirnar Langagerði 1, Kirkjuteig 33 og í Félagsheimilinu við Hlaðbæ í Árbæjarhverfi (drengir 9—11 ára. Yngri drengir eru á þriðjud.ög- um kl. 6 og 12—13 ára kl. 8 sama kvöld). — Barna- samkoma í barnaskólanum við Skálabraut í Kópavogi og í vinnuskála F.B. við Þórufell í Breiðholtshverfi (bifreið fer frá barnaskól- anum, fyrri ferð kl. 10 f.h.) HÆTTA A NÆSTA LEITI • eftir John Saunders og Alden McWiIIiams Kl. 1,30 e.h. V.D. og Y.D. við Amtmannsstíg og drengjadeildin við Holta- HAVtNð yDU HEARD ?... DAH'S gonha be MISS JACKSON*S NEW SPEECH- WRITER/ V DON’T LET THOSE REP0RTER3 FLUSTER you, RAVEN / JUST AS SOON AS WE REACH MYAPART- MENT, AND I FIND MY EXTRA GLASSES...yOU CAN HAVE yOUR . . ARM BACK/ ,/ V Hey, Danni, ertu hættur hjá Global News og kominn út í ferðafélagaþjónustu? Hafið bið ckki heyrt það, Ilanni er nýj- asti ræðuskrifari unigfrú Jackson. (Danny bít.ur á jaxlinn og lætur sem hanu heyri ekki háðsglósur starfsbræðra sinna, e*i bað er erfitt). (2. mynd). Láttu ekki þ_ssa fréttamenn stríða þér, Raven, um leið og við kotnum í íbúðina mína, og ég finn auka gleraugun min, skal ég a,fh“ftda þér handlegg þinn aftur. (3. mynd). Ég hevri MEANWHILE.ON A COLLESE CAMPUS A FEW MILES AWAV.~ orðroiu iiin að skolast oii. n se iioppandi út af leiðaranum þínum, Robin, hann bannar kannski blaðið. Ég hugsa um það á morgun. Nú er ég að verða of sein á stefnumót, ég á að borða með Ödu frænku. veg. Kl. 8,30 e.h. Almenn sam- koma í húsi félagsins við Amtmannsstíg. Ebenezer Ebenezersson, vélstjóri og Halla Bachmann, kristni- boði, tala. — Tvísöngur. Allir velkomnir. Á mánudag: KI. 8 e.h. Unglingadeildar fundur fyrir Árbæjardeild í Félagsheimilinu við Hlað- bæ (14—17 ára piltar). Heimatrúboðið Almenn samkoma á morg- un að Óðinsgötu 6A, kl. 20.30. Sunnudagaskóli kl. 14.00. Verið velkomin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.