Morgunblaðið - 17.10.1970, Blaðsíða 4
4
MORGUNBL.AÐIÐ, L.AUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1970
>
-
22*0*22*
RAUOARÁRSTÍG 31
■ '1.4444
WflWOII?
BILALEIGÁ
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW ðmanna-Landrover 7manna
Mlaleigan
AKBKAVT
^jczrcsk.
car rental scrvice
8-23-47
h sendum
Bílaleigan
UMFERÐ
Sími 42104
SENDUM
LOFTUR HF.
UÓSMYNDASTOFA
Ingólfsstrætl 6.
Pantið tíma < síma 14772.
FÆST UM
LAND ALLT
7VVORNY
er eins
og þúsund
dásamlegir
draumar
Sex ferskar, aðlaðandi
ilmtegundir og mildir litir
fagurra blóma láta
drauma yðar verða að
veruleika.
Hve dásamlegt er að svífa
á vængjum draumana yfir
burkna lundum
blómskrýddra dala, þar
sem léttur andvari
skógarilms lætur drauma
yðar blandast
veruleikanum. Morny . . .
og draumar yðar rætast.
ÓL JOHNSON
& KAABER |f
Q Blaðburður í
Hveragerði
„Kæri Velvakandi!
Vegna bréfs þess, er húsmóð
ir skrifar í dálka þina hinn
11.10 s.l. um blaðburð í Hvera
gerði vill umboðsmaður Morg-
unblaðsins segja eftirfarandi:
Verzlunin, sem um getur, tel
ur það skyldu sína að veita
alla þá þjónustu á verzlunar
svæðinu, sem frekast er kost-
ur, og þar með létta störf hús
mæðra.
£ Marg-auglýst án
árangurs
Margoft hefur verið auglýst
í gluggum verzlunarinnar eft
ir fólki, til þess að annast þá
sjálfsögðu þjónustu að bera
dagblöðin til kaupenda. Einnig
hefur verið reynt að fá full-
orðið fólk til þessa starfs. Síð
ast en ekki sízt var á s.l.
sumri dag eftir dag auglýst í
Morgunblaðinu eftir blaðburð-
arfólki, og varð það án telj-
andi árangurs.
Verði nú þessi tilskrif okkar
sem jafnframt geta verið aug-
lýsing til þess að einhverfeng
ist til starfsins, yrði enginn
ánægðari en undirritaður.
f.h. verzlunarinnar Reykja-
foss h.f., Hveragerði,
Kristján H. Jónsson."
0 Raunir drykkju-
mannsmóður
„Kæri Velvakandi!
Ég skrifa þér af hjartans
einlægni. Ég er brotin á sál og
líkama. Ég er með drykkju-
mann á heimilinu og er búin
að hafa hann mörg ár. Aldur
minn er 77 ár, og ég er ekkja.
Sonur minn, sem er drykkju-
maður, er 50 ára. Maður skyldi
ætla, að hann hefði aldur til
að sjá sér farborða. En Guð
minn góður. Ég er orðin of
gömul til að geta sinnt þessu
öllu. Vakað eftir honum, pass-
að sígarettur, svo að kvikni
ekki í húsinu, borgað bílana,
sem keyra hann heim. En hvert
á ég að snúa mér? Sjálf erég
mjög heilsulítil. Læknarnir
geta ekkert gert fyrir hann,
lögreglan getur haft hann eina
nótt. Hvergi er pláss fyrir
þennan ólánssama mann. 1 ör
væntingu skrifa ég þér og
spyr þig, eins og ég væri að
spyrja Guðsmanninn: Velvak-
andi góður, hvað á ég að gera?
Þó svo að fjölskyldan sé
stór, þá er hver sér næstur.
Allir vilja ala börn sín í friði
og ró, alls ekki með hang-
andi drykkj umanni. Enginn
vill hitta þennan ólánssama
mann. En nú er ég þreytt og
veik. Allan mánuðinn er
drukkið, ekkert er unnið. Ég
vaki og bið eftir honum. Eng
in móðir rekur vesaling sinn
út á hjarnið.
En engin yfirvöld virðast
vera til, sem hjálpað geta, að
koma honum undir læknis-
hendur. Sama svarið: ekkert
pláss. Háttvirta yfirvald, hvað
á ég að gera?
Uppgefin, gönml móðir.“
— Velvakandi getur því mið
ur ekki ráðlagt konunni neitt
sérstakt, sem hún hefur ekki
reynt áður. Einhver sam-
tök hljóta þó að geta hjálpað.
Geti einhver lagt konunni gott
ráð, fengi hann rúm í þessum
dálkum.
£ Ai hverju verður vísa
vinsæl?
Sumar vísur verða öðrum
frægari og alþekktar án þess
að alltaf sé hægt að greina
ástæðuna. Svo er um vísuna:
Þessi penni þókhast mér,
því hann er úr hrafni.
Hann hefur skorið geiragrér,
Gunnlaugur að nafni.
— Hún er að vísu leikandi
létt og lipur, einföld í sniðum
og auðlærð, en það eru líka
margar aðrar vísur, sem ekki
njóta frægðar á við hana. E.t.v.
hefur hún birzt í mörgum for
skriftarbókum og stafrófskver
um (og Almanaki Þjóðvinafé-
lagsins), svo að margir hafa
numið hana í æsku og ekki
gleymt síðan.
0 Hver er svo höfund-
urinn?
S.J.G. skrifar:
„Velvakandi sæll!
Mér datt í hug að leggja
orð í belg varðandi það, hver
muni höfundur stökunnar
„Þessi penni þóknast mér“ . . .
Gunnlaugur á Skuggabjörgum
(f. 1786 d. 1866) hefur að vísu
stökuna í vísnasafni sínu, en
getur ekki um höfund hennar
— hefur sennilega ekki vitað,
hver hann var. Er sama að
segja um tvær aðrar vísur, sem
byrja á orðunum „Þessi
penni“ . . . Eru þessar vísur
7., 54. og 55. vísa af þeim, er
byrja á Þ-i i safninu.
1 almanaki þjóðv.fél. 1914 er
vísan og er, að sögn Hannes-
ar Þorsteinssonar, átt við séra
Gunnlaug Sigurðsson áBrjáns
læk, d. 1767. Ýmsum hefur vís
an verið eignuð. T.d. er hún
skrifuð á almanak 1803 með
hendi séra Jóns Jónssonar
prests á Barði (f. 1760 d. 1838)
og því eignuð honum. Þá kvað
hún og hafa verið eignuð séra
Hallgrími Péturssyni. Hver er
svo höfundurinn?
Með þökk fyrir birtinguna.
S.J.G."
3ja-4ro herb. íbnð óskost
Ung hjón qska eftir að taka íbúð á leigu
í Hafnarfirði eða Garðahreppi.
Upplýsingar í síma 42730.
Iðnaðarhúsnœði
100—200 ferm. óskast til kaups eða leigu.
Upplýsingar í símum 16683 og 37392
á kvöldin.
PINGOUIN-GARN
Nýkomið: CLASSlQUE CRYLOR
SPORT CRYLOR, nýir litir
MULTI PINGOUIN.
Þessar tegundir þola þvottavélaþvott.
Verzlunin HOF.
Þingholtsstræti 1.
Frískir ungir menn
með aðlaðandi framkomu og viðkunnanlegf útlit
geta fengið starf í herrafataverzlun
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf
og menntun leggist inn á atgr. Morgun-
blaðsins merkt „Framtíð 47 7 7"
ALIZE-GARN
Nýkomið mikið litaúrval.
Kostar aðeins kr. 40/— pr. 50 gr.
Þolir bvottavélaþvott
Verzlunin HOF,
Þingholtsstræti 1.
Arinn
Ef ég hleð arininn, reykir ekki inn. Það eru nokkur brögð
af því að eldstæði reyki sökum vansmíðar. Oftast er hægt
að laga það með lítilli fyrirhöfn.
Legg flísar og grjót. Fagvinna.
M. NORDDAHL. sími 37707.