Morgunblaðið - 30.10.1970, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÍJIf), PÖSTUDAGUK 30. OKTÖBtÉR 1970
15
Efld leit
að bræðslu-
fiski
- þingsályktunar-
tillaga fram-
sóknarmanna
EYSTEINN Jónsson og sex aðr-
tr þingmenn Framsóknarflokks-
ins hafa lagt fram á Alþing-i til-
lögu til þingsályktunar um leit
að bræðsiufiski, þar sem lagt er
tU, að Alþingi álykti að fela
ríkisstjórninni að láta efla skipu
lega leit og rannsóknir ásamt
veiðarfæra- og veiðitilraunum í
því skyni að auka veiðar á
bræðshtfiski og gera þær veiðar
fjölþættari. Athugunum þessum
verði einkunt beint að loðnu, kol
mvuuia, spærlingi og sandsili.
1 greinargerð tillögunnar er
fyrst rakið hversu síklarafli hafi
reynzt Islendingum svikull, og
hvað mörg mannvirki, sem ætl-
uð voru til bræðslu síldar standi
nú viða ónotuð. Síðan er rakin
grein er Jakob Jakobsson fiski-
fræðingur ritaði í tímariitið
Ægi, þar sem hann m.a. fjallar
um möguleika á aukinni hráefn
isöflun.
Síðan segir m.a. í greinar-
gerðinni: „Flutningsmenn leggja
áherzlu á, að vart er hugsan-
legt, að einstakir útgerðarmenn
eða félög ráðist í áður óþekktar
veiðar, þar sem allar líkur eru
á að veiðarnar yrðu ekki arð-
vænlegar fyrr en að fenginni
talsverðri reynslu og eftir að
lagt hefði verið í verulegan kostn
að. Að svo miklu leyti sem að-
staða er ekki fyrir hendi á skip-
um Hafrannsöknastofnunarinn-
ar, þyrfti af þessum ástæðum
að gera út fiskiskip með stuðn-
ingi hins opinbera til þess að
kanna, hvaða veiðiaðferðir hent
uðu bezt og hver grundvöllur
væri fyrir veiðum á þeim fisk-
tegundum, sem tillagan fjallar
um, öðrum en loðnunni. Að
fengnum jákvæðum niðurstöð-
um væri svo unnt að hefja al-
mennar veiðar og fyrr ekki.“
Nýju Wilton gólfteppin frá Alafossi eru fallegri og sterkari en nokkru sinni fyrr.
Skoðið teppin hjá okkur í heilum rúllum á stórum fleti.
Notum undir teppi þétt fjaðrandi svampgúmmí, sem aðeins fæst hjá okkur.
Grensásvegi 3, sími 83430.
Síðostliðinn íöstudng
tapaðist í Reykjavík brúnt peningaveski með tæpum 30.000 kr.
1 veskinu er ökuskírteini ásamt skilríkjum merktum Guð-
mundi Einarssyni, Egilsstöðum.
Finnandi vinsamlegast láti rannsóknarlögregluna vita.
Fundarlaun.
B LAÐ B líR Ð A RF oVk
OSKAST í eftirtolin hverfi
Njálsgata — Sóleyjargata
Hverfisgötu 63-125 — Laugaveg 114-171
Úthlíð — Meðalholt
Seltjn - Skólabraut
Stórholf — Höfðahverfi — Hraunbœ frá 102
i'ALIÐ VIÐ AFGREIÐSLUNA í SÍMA 1010G
OOOOOOOOOOOOOOOOO0O®