Morgunblaðið - 04.12.1970, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.12.1970, Blaðsíða 4
4 MOIÍGUNB LA.ÐFÐ, -pöSTUDAGUR 4. DBSETMBER 1970 > > > Fa _ 3 BtlALEIGAX lÆTtM *g* 22-0*22- RAUDARÁRSTÍG 31 ■=-25555 (^14444 \fflum BILALEIGA IIVERFISGÖTU 103 VW SendifcrÖabffreið-VW 5 manna-VW svefwagn VW 9 maona - Landrover 7 manna UTin BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13 Sím/14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. bilaleigan AKBEATJT j/tíygl car rcntal service r 8-23-47 sendum ■\ALLi m Uasbeis \ Vélapakkningar Dodge '46—'58, 6 cyl. Dodge Dart '60—'68 Fiat, flestar gerðtr Bedford 4-6 cyl., dísil, '57,'64 Buick V 6 cyl. Chevrolet 6—8 cyl., '64—'68 Ford Cortina '63—'68 Ford D-800 '65—'67. Ford 6—8 cyl. '52—'68 G.M.C Gaz '69 Hiknan Imp. '64—408 Opel '55—'66 Rambter '56—'68 Renauft, flestar gerðir Rover, benstn, dísH Skoda 1000MB og 1200 Simca '57—'64 Singer Commer '64—'68 Taunus 12 M, 17 M, '63—'68 Trader 4—6 cyl, '57—'65 Volga Vauxhatl 4—6 cyl., '63—'65 Wtttys '46—'68. Þ. Jónsson & Co. Skeifan 17. Símar 84515 og 84516. 0 Mötuncyti ríkisins „1 fjárlagaræðu á Alþingi 20. okt. skýrði Magnús Jónsson, fjármálaráðherra, frá þvi, að ríkið greiddi rúmlega 20 millj ónir með mötuneytum, sem rek in eru að nokkru leyti á veg- um þess opinbera, — voru þá skólamötuneyti ekki talin með. Fyrir utan ofangreinda með- gjöf sér ríkið viðkomandi mötu neytum fyrir húsnæði, rafmagni og hita, og undanþiggur þau öllum opinberum gjöldum nema söluskatti, sem þau greiða að- eins að miðað við sambæri- leg fyrirtæki, sem selja þjón- ustu sína almenningi. Veitingamenn hafa farið þess á leit við fjármálaráðherra, að mötuneytin verði rekin á sama grundvelli og almenn veitinga hús, þ.e.a.s., að mötuneytin verði boðin út og gert að greiða kostnað, skatta og skyldur éins og önnur , fyrir-’ tæki. Þessar málaumléitámr við fjármálaráðhefra hafa fengið fremur daufar undir- tektir. Q Skattskyld hlunnindi? Öllu veitingafólki, sem fær mat á vinnustað, er reiknað það skattalega til tekna og greiðir gjöld sín samkvæmt því. Nú vaknar sú spurning, af gefnu tilefni, hvort opinber ir starfsmenn, sem fá fæði sitt greitt niður um 60% eða meira, hafi greitt skatt af þessum hlunnindum sínum, og hvað fæðisdagur karls eða konu hef ur þá verið reiknaður á; einn- ig, hvaða skattsektum yrði beitt við þá sem ekki hafa tai- ið þetta til tekna? Gaman væri að fá svör við þessum spurning um frá réttum aðilum. Nýjasta mötuneyti þess opin bera verður væntanlega opnað innan tíðar í nýju Tollstöðinni, og er þar um að ræða tug- milljóna króna fjárfestingu í tækjum og húsnæði, sem al- menningur hefur greitt með sér stöku tollstöðvargjaldi. — Svo halda niðurgreiðslurnar og skattfríðindin auðvitáð áfram á kostnað þeirra, sem ekki njóta þessara forréttinda. Hver í embættismannastéttinni tek- ur ákvörðun um svona fjár- festingu? Er ekki kominn tími tö, að ríkið dragi úr þessum rekstri og athugi, hvernig t.d. Norð- menn eða Bandaríkjamenn haga sér í þessum efnum? f»að væri kannski rétt að spyrja að lokum. . . hvar endar þetta? Veitingamaður." • „Krakkar í klípu“ „Kæri Velvakandi! I byrjun þessa mánaðar frum sýndi Leikfélag Reykjavíkur nýtt leikrit eftir Ármann Kr. Einarsson, rithöfund, er nefnd ist „Krakkar í klípu.“ Fjallar það um mál, sem ættu að snerta hvern einstakan borg- ara meira eða minna, umferð- arreglur og rétta hegðun í um ferðinni, sett fram við barna hæfi. Umferðarnefnd Reykjavíkur og lögreglan kostuðu þessar sýningar, sem haldnar voru í Austurbæjarbíói og eingöngu ætlaðar 6 og 7 ára börnum í skólum Reykjavíkur. Leikrit þetta var sýnt í fjóra daga, en sýningum þess þá hætt, eða ekki veit ég annað. Ég tel það illa farið, þvi að ég álít, að efni þess og boðskapur eigi ekki síð ur erindi til annarra barna, sem ekki var boðið á þessar umræddu sýningar. % Umferðarfræðsluleikrit handa börnum og fullorðnum Ég skora á Leikfélag Reykjavíkur, Umferðarnefnd og lögregluna að halda þessum sýningum áfram. Ég trúi ekki öðru en unnt sé, að fá heppi- legt húsnæði til þeirra hluta, ef vilji er fyrir hendi og eftir leitað. Hentugast yrði að sýna leik- ritið síðdegis á laugardögum og sunnudögum, þegar foreldr ar eiga frí og geta farið þang að með börnum sínum. Fjöl- rita þyrfti söngtextana og af- henda börnunum, svo þau gætu sungið með leikurunum á sviðinu. Eftir sýningu er efni leikritsins tilvalið umræðuefni fyrir fjölskylduna og upprifj- un á umferðarreglum á heim- leiðinni. Umferðarfræðsla og leiðbein ingar um rétta hegðun i um- ferðinni á götum borgarinnar er langt um þýðingarmeira mál að mínu áliti en öll kynfræðsla samanlögð. En því miður virð- ist þessi þáttur oft á tíðum gerður hornreka í fjölmiðlum og umræðum almennings, en ýmis hégómamál blásin út í stað inn. Það sem af er þessu ári hafa of margir blóðdropar fall ið á malbik borgarinnar vegna umferðarslysa. Gerum okkar hlut betur, svo þeim fækki. Áhorfandi". 0 Lifandi sálir Níu ára drengur, Ludvig Kári Forberg skrifar: „Kæri Velvakandi! Þegar ég var lítill, fékk ég að umgangast dýr. Mörg böm hér á landi eru hrædd við dýr. Mér finnst, að foreldrar ættu að láta börnin sín umgangast dýr'. Dýrin eru ekkert annað en lifandi verur. Kettir, hund- ar, mýs og kanínur eru ekkert annað en lifandi sálir. Mörg- um íslendingum finnst voða mikill mannasiður að skjóta rjúpur. Þeir halda, að þeir séu voða miklir menn. Eftir að þeir eru búnir að skjóta eina rjúpu eða gæs, þá halda þeir rig- montnir heim til sín. Ludvig Kári Forberg 9 ára.“. Lítið iðniyrirlæki til sölu Upplýsingar í dag og á morgun í vinnutíma í síma 52648. PINCOUIN-CARN Nýkomið mikið úrval af: CLASSIQUE CRYLOR SPORT CRYLOR MULTI PINGOUIN Málmgarn í samkvæmisklaeðnað. Verzlunin HOF, Þingholtsstraeti 1. BÓKAÚTGÁFAN ÖRN OG ÖRLYGUR HF., REYNIMEL 60, SÍMI 18660. Andrés Kristjánsson, ritstjórí: Ágúst á Hofi leysir frá skjóðunni og segir frá fó!ki og fénaði í öllum landsfjórðungum. Ágúst á Hofi ferðaðist um landið þvert og endilangt í þrjá áratugi. Ágúst er skemmtinn maður og kíminn og kann óteljandi sögur af atvikum og orðaskiptum. I bók sinni rifjar hann upp gömul kynni, segir smákímnar sögur, en allt í mesta bróðerni. OKKAR BÆKUR ERU YKKAR BÆKUR. MYNDAMÓT HF. AÐALSTRÆTI 6 — REYKJAVlK PRENTMYNOAGERÐ SlMI 17152 OFFSET-FltMUR OG PLÖTUR AUGLÝSINGATEIKNISTOFA SIMI 25810 >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.