Morgunblaðið - 04.12.1970, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.12.1970, Blaðsíða 6
6 MORGÚNBIjAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DBSBlVrBER 1970 LAMBAKJÖT heilir laimbasikrokkaT, kótelett- ur, læri, hryggir, súpukjöt. Stórlækkað verð. Kjötb. Laugav. 32, s. 12222, Kjötm.st. Laugalæk, s. 35020. ÓDÝRT HANGIKJÖT Stórlækkað verð á hamgi- kjötslærum o-g frampörtum, útbeinað, stórlækkað verð. Kjötb. Laugav. 32, s. 12222, Kjötm.st. Laugalæk, s. 35020. UNGHÆNUR — KJÚKLINGAR U n-ghænur og unghanar 125 kr. kg. Úrvals kjúklingar, kjúklingaiæri, kjúklingabr. Kjötm.st. Laugalæk, s. 35020. Kjötb. Laugav. 32, s. 12222, SVlNAKJÖT (ALIGRlSIR) Hryggir, bógsteik, læristeik, kótelettur, hamborgara'hrygg- ir, kambar, bacon Kjötm.st. Laugalæk, s. 35020. Kjötb. Laugav. 32, s. 1222.?, ÚRVALS NAUTAKJÖT Nýtt nautakjöt, snitchel, buff, gúlias, hakk, bógstesk, grillsteik. Kjötb. Laugav. 32, s. 12222, Kjötm.st. Laugalæk, s. 35020. TIMBUR TIL SÖLU 4000—5000 fet af móta- timibri til sölti. Mjög gott. — Uppl. í síma 35502 kl. 7—8. FORD PICK-UP til söl'U, þarfnast viðgerðar. Uppl. í símia 50271 eftir kl. 8. FORSTOFUHERBERGI ÓSKAST til leigu í 1 mámuð eða teng- ur. Uppi. í síma 12024. HAFNAREJÖRÐUR Óska eftir að taika á teigu 4ra herb. ibúð, þarf að vera laus í febrúar. Uppl. í síma 51843. KEFLAVlK — SUÐURNES Góifteppa- og húsgagna- hrein'sun. Hreinsum í heima- húsum og hjá fyrirtæiktum. Sími 30697. ÓSKUM EFTIR 3ja—4ra herb. íbúð, heizt í Kópavogi. Tiiib. merkt: „íbúð 6153" sendiist fyrir ménu- dagskvöld á afgr. Mbl. PlANÓ ÓSKAST notað eða nýtt fyrir Kvenifé- tag Laugarnessóknar. Uppi. í síma 32948. TVEIR SKIPASMIÐIR óska eftir vinnu. AHt kemur til greina. Til'b. sendist Mbl. fyrir 12. þ. m. merkt „Starf 6158". MAÐUR MEÐ GOTT PRÓF í söliutaeknii óskair eftir at- vinniu. Lysthafendur sendi ti'lb. til M'b'l. merkt: „Sölu- tækni 6156". KEFLAVlK — NJARÐVlK Óska eftir 3ja'—4ra herb. íbúð I^Keflavík eða Njarðvík um, sem fyrst. Algjörri reglu semi heitið. Vinsaml. hringiið í síma 10592. Basar K.F.U.K. á morgun Konur í KFUK í Reykjavík hafa um langt árabil haldið bas- ar 1. laugardaginn í desember, þar sem selt er mikið af hent- ugum og fallegum munum til jólagjafa. Ágóðanum er varið til styrktar fjölþættu barna- og æskulýðsstarfi félagsins, sem rekið er á sex stöðum í Reykja- vík og Kópavogi. Basarinn hefst á morgun, laugardag kl. 4 s.d. í húsi félagsins, Amtmannsstig 2, Reykjavík. Auk þess verður samkoma um kvöldið, þar sem tekið verður á móti gjöfum til starfsins. DAGBOK Ég vil hefna inín og hlífl engum, segir lausnari vor, — Drottinn hersveitanna er nafn hans, hinn Heilagi í Israel. (Jesaja. 47.4). f dag er föstudagur 4. desember og er það 338. dagur ársins 1970. Eftir Iifa 27 dagar. Barbárumessa. Árdegisháfiæði kl. 10.07. (Úr íslands almanakinu). Ráðgjafaþjónusta Geðvemdarf élagsins þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að Veltusundi 3, simi 12139. Þjón- ustan er ókeypis og öllum heim- U. Næturlæknir í Keflavík 1.12 oð 2.12. Kjartan Ólafsson. 3.12. Arnbjöm Ólafsson. 4., 5. og 6.12. Guðjón Klemenzs. 7.12. Kjartan Ólafsson. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. Hundahald Ýmsir stunda ofurvald og á því horskir smjatta, — en lögin banna hundahald, — hesta, — f jár — og katta. Þó er undir okkar sól ýmsum sleginn harmur, og víða heyrist hundagól, högnavæl — og jarmur! En — að lítið lóðarí — lífsins fletti blaði, — f jöldinn allur fram hjá þvi fer á hundavaði!! Guömiindur Vahir Sigurðsson. FRETTIR Blindravinafélag fslands Vinningsnúmer í merkjasölu- happdrætti félagsins er 14435, sjónvarpstæki. Vinningsins má vitja á skrifstofu félagsins Ing- ólfsstræti 16. Kvenfélag Laugarnessóknar Heldur jólafund mánudaginn 7. desember kl. 8.30 í fundarsal kirkjunnar. Mætið vel. Stjórnin. SINAWIK Basar klúbbsins verður sunnu- daginn 6. desember kl. 2 í Átt- hagasal Hótel Sögu. Tekið á móti kökum sama dag klukkan 10 fyrir hádegi á staðnum. Kvenfélagskonur Keflavík Munið sýnikennsluna í snittum og fl. í kvöld kl. 8 í Tjarnar- lundi. Kvenfélag Hallgrímskirkju Jólafundur miðvikudaginn 9. desember kl. 8.30 e.h. Erindi: Rannveig Tómasdóttir. Jólahug- leiðing, söngur, kaffiveitingar. Félagskonur, takið með ykkur gesti. Kvenfélag Kópavogs heldur basar i félagsheimilinu, efri sal, sunnudaginn 6. desem- ber klukkan 3. VÍSUKORN Váleg reynast villu stig, valda ýmsu i lífi manns. Hiklaust margur hengir sig um háls á konu náungans. Markús Bogason. SÁ NÆST BEZTI Yfirsetukonan: Ég nýt þess sóma, að iáta yður vita að það er kominn litill sonur. Prófessorinn (önnum kafinn við að skrifa): Jæja, það er svo, — biðjið þér hann að fá sér sæti og bíða. Ég kem undir eins. Pizzan er borin fram heit Spjallað við Eggert í Smára- kaffi um ítalskan þjóðar- rétt á íslandi „Okkur fslendinga vantar enn margt til að geta teldð á móti erlendum ferðamönnum, sérstaklega í matargerð, einn vill þetta, annar hitt, sumir vilja ítaiska rétti, aðrir kín- verska, eins og í Hábæ,“ sagði Eggert Eggertsson, mat reiðsliimaðurinn í Smárakaffi, þegar við hittum hann á föm um vegi þarna nppi á Lauga- vegi, og spurðum, hvernig gengi að kynna fslendingum ítalska réttinn Pizza. „Jú, takk, bærilega, þetta er að koma, ég held flestum þyki þessi réttur góður, en sjálfsagt verða menn að venj- ast honum." „Segðu okkur, Eggert, hvað er Pizza?“ „Pizza er heimskunnur italskur þjóðarréttur, sem samanstendur af brauðbotni, ansjósum eða sardínum, tóm- ötum og osti, eiginlega miklu af osti, þvi að hann er bæði undir og ofan á. En réttur þessi má ekki harðna, hann verður alltaf að vera ferskur og nýr. Hans verður að^ neyta strax. Sú raunverulega Pizza hefur skinku og aspar- gus að uppistöðu og rikulegt af kryddi, rosemary og timi- an og alls konar kryddi til viðbótar." „Segðu mén, Eggert, held- urðu að Pizza falli Islending- um í geð?“ „Ég er ekki í nokkrum vafa um það. 1 flestum lönd- um, bæði austan hafs og vest an er að finna matsölustaði, þar sem aðalrétturinn er ítölsk Pizza. Ferðamenn og heimafólk nýtur þess í ríkum mæli að heimsækja þessa staði og gæða sjálfum sér og gestum sínum á þessu lost- æti. Þá er Pizzan borin fram heit, nýbökuð, og glas af góðu öli eða víni þá jafnframt borið með.“ „Hvernig er það, Eggert, eigum við til öll hráefni í þessa Pizzu?“ „Já, og miklu meira en það. Við framleiðum sjálfir heimsins beztu sardínur, tónj- ata og osta, og þessi fram- leiðsla er í sérflokki að gæð- um. Svo ég minnist aftur á ostana, hefur Osta- og smjör- salan tekið þessu uppátæki minu með Pizzuna mjög vel, og gefið út leiðbeiningar- bækling um, hvernig á að matbúa hana. Pizzan er mjög auðveld í matseld, fljótleg og líklega frekar ódýr. Líklega framleiðum við Islendingar einhver skemmtilegustu hrá- efni í þennan ítalska rétt, en ég veit ekki til, að hann sé daglega á matseðli nokkurs veitingahúss annars en Smára kaffis, enda hljóta allir að rata hingað inn á Laugaveg, þama rétt hjá Sjónvarpinu, og svo er þá Pizzan heit, nýlöguð, þegar gest og gangandi ber að dyrum, og enginn verður Eggert Eggertsson lagar Pizzu. (Ljósm.: Sv. Þorm.) svangur, sem hennar nýtur,“ sagði Eggert, þegar við kvöddum hann yfir úrvals Pizzu þarna um daginn, og þessi ítalski réttur var svo sannarlega góður. — Fr.S. A förnum vegi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.