Morgunblaðið - 12.01.1971, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.01.1971, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1971 Færeyski frystitogarinn SteRa Karina kom til Reykja- vlkur á laugardaginn var til að taka olíu. Við Sverrir Þórðar- son fórum um borð að spyrja Færeyingana frétta af útgerð þessa nýtizkulega veiðiskips, sem okkur Islendingum leik- ur að sjálfsögðu forvitni á að kynna okkur, þar sem við höf- um nú tekið þá trú að ekki þurfi annað til að græða á togaraút- gerð en taka trollið inn yfir skutinn i stað þess að taka það inn á síðuna svo sem venja hef- ur verið. Stella Karina er geysilega vel útbúið veiðiskip. Hún er systur- skip Stellu Kristinu, en þó ívið stærri og kraftmeiri. Eftir þvi sem þeir sögðu okkur um borð, er skipið 66 metrar á lengd með 2700 hestafia vél. Það lá vel á Færeyingunum, þeir voru að spila sumir, en sum ir að drekka og sumir lágu í Jiojuuni og hugsuðu syndsamlega heim. Örfáir voru í landi, þar á meðal skipstjórinn. Reykjavík er frámunalega leiðinieg höfn að leita í fyrir erlenda sjómenn. Færeyski togarinn Stella Karina. Sunnudagsganga um borð í Stellu Karinu Þar er ekkert að gera nema hir- ast um borð i skipunum, eða íara i rándýr veitingahús og borga þjónum stórfé fyrir að færa sér vatnsgutl. Við hittum fyrst stýrimanninn að máli, þar sem hann sat í klefa sínum og spilaði bridge við fé- laga sina. Engir peningar voru i borði. Þeir sögðust aldrei spila upp á peninga, Færeyingarnir. Það hefði nú þótt saga á Vest- fjörðum fyrir eina tíð, að spila um borð og ekkert í pottinum. Ekki vildi stýrimaður tala við blaðamenn, en Sverrir Þórðar- son er hertur í margri raun og löngu skotheldur fyrir svoleiðis röfli og byrjaði bara að spyrja mannínn og fékk vitanlega greinargóð svör, því að fyrsti stýrimaður á svona nýju og mildu skipi, er auðvitað enginn blábjáni. Skipið fór í túrinn 1. desem- ber og er (9. jan.) komið með u. þ.b. 140 tonn af flökum, sem svar ar til 350 tonna af slægðum fiski með haus, eins og við mið- um venjulega við afla okkar tog ara. Stella Karina hafði farið strax á Halamiðin en þar hefur verið stanriaus ótíð undanfarið og tæpast hægt að vera við nema vikuna milli jóla og nýárs en þá var lika ágætur afli, enda fullt af togurum á Halamiðum. Stella Karina hraktist loks und an ís og veðri af Halanum, leit- aði þá fyrir sér austur með öllu Norðuriandi, suður með Aust- fjörðunum, vestur með suður- ströndinni og fór loks inn til Reykjavikur að taka olíu. Það var 51 manns áhöfn á skip inu, allt Færeyingar. Þeir litu glottandi á okkur, þegar við spurðum, hvort þeir væru með útlendinga um borð. Þeir þykj- ast ekki enn, Færeyingarnir, vera orðnir þær karakerlingar að geta ekki mannað aðalfram- leiðslutæki þjóðarinnar, þó að þau séu á sjó. Okkur Sverri var boðið að rölta um skipið eins og okkur sýndist og fórum við fyrst upp í brú, og hittum þar gamlan tog- arajaxl, sem tók okkur að sér og fylgdi okkur um skipið. 1 brúnni er aragrúi nýjustu Simrad, Elac og Dekkatækja. öll um tækjunum, fiskileitatækjun- um, miðunartækjunum og stjórn- tækjunum er komið fyrir í mik- illi tækjasamstæðu, sem myndar ferning í miðri brúnni, nema vörpuaugað (netzondetækið) á brúarþilinu að framan. Innan í Iniðjum þessum tækja hyrningi er stóll skipstjórans. Hann getur rétt smeygt sér á flotvörpunni enda er hún 80 faðma löng. Flotvörpunni hafa þeir aldrei kastað hér við Is- land. Sögðust ekki hafa fundð þorsklóðningar upp i sjó, en hins vegar talsvert af annars konar lóðningum. Aftur á móti notuðu þeir flotvörpuna mikið við Noreg í fyrra og hitteðfyrra en nú væri þvi lokið með út- færsflu Norðmanna á fiskveiði- lögsögunni. Þeir sögðust vera um tuttugu mínútur að taka trollið með 300 faðma eða vel það af vír úti, frá þvi þeir byrj uðu að hífa og þar til byrjað væri að kasta aftur og skiptir þá ekki neinu máli, hvort aflinn er mikill eða litiil, ef hann fer ekki yfir 10 tonn, en þá skild- ist mér þeir þyrftu að skipta. Mjög sjaldan sögðu þeir að hleramennimir þyrftu að galla sig við að taka trollið, en spila- maðurinn er lokaður inni í ramm gerðu húsi aftan við bátadekk- ið. Og eins sögðu þeir það ekki vera nema í aftökum að skipið tæki sjó upp rennuna við að taka trollið. Yfirleitt sögðust þeir ekki vita af veðri á skip- inu, það væri sjóborg mikil nema það væri þungt á móti, ekki sízt h'laðið, því að Stella Karina lestast mjög fram. Hún lá eiginlega á nösunum með þessi 140 tonn og var þó ekkert farið að láta, skyldist mér, í framlest- ina. Þeir sögðust geta togað á 400 faðma dýpi og hafa 1200 faðma af vírum á trommunum. Þeir tóku í hitteðfyrra mikinn fisk við Svalbarða á mjög miklu dýpi, og þetta var boltaþorskur. Þama var svo kominn allmikill floti Norðmanna og öfluðu allir vel, en svo tók fiskurinn sig að færa suður á bóginn í átt til Bjamar- eyja og hvarf þar flotanvm og hefur ekki síöan sézt á þessum Slóðum — og enginn vissi hvað af honum varð. Færeyingamir sögðust nú ekki kippa sér upp við það, þó að fiskur hyrfi um árabil af einhverjum miðum. I FLÖKUNARSAL Þeir sögðust geta flakað og fryst um 60 tonn af fiski upp úr sjó, en það eru um 20 tonn af flökum. Um borð eru tvær Baed erflökunarsamstæður. Allur fiskur er unninn i blokkir. Eng- in mjölvinnsla né lýsisvinnsia er um borð. Rúm er fyrir rúm 600 tonn af blokkum í lestum skips ins en rúm 100 tonn á milli- dekki. Stórar fiskstiur eru fyrir aftan vélarnar á millidekkinu og er hægt að taka við miklu magni í þær, ef svo mikið aflast að ekki hefst undan að flaka og frysta. 2 menn gæta vélanna á vakt en 5 menn eru við að skera til flö'k. Alls eru 10 menn á vakt í flökunarsal. Vélgæzlumenn eru fjórir og auk þess einn sérfróð- ur í Baederfiskvinnsluvélum. HÁSETAHLUTUR OG AFLI Stella Karina hóf veiðar í ágúst 1969 og fór tvo túna það ár, ag veiddi um 700 torni af flökum eða 1700 tonn af slægðum fiski með haus. Skipið fór út í fyrsta túrinn á árinu 1970 i byrjun febrúar, og frá þeim tima fram að síðustu ára- mótum var ársaflinn um 1700 tonn af flökum eða u.þ.b. 4.300 tonn af slægðum fiski með haus. Það var dál-ítið óljóst eða lá ekki enn fyrir, hver, hásetahlut- urinn hefði orðið eftir árið, en þeir töldu hann myndi vera um 50 þúsund færeyskar krónur (600 þús. isl.) og sögðu þeir það langhæstu hásetatekjurnar á færeyska togaraflotanum. Al- gengar hásetatekjur væru 25— 30 þúsund krónur. Taka verður tillit til að hér er um að ræða brúttótekjur og gefa tölurnar að eins óglögga mynd, meðan ekki er vitað um fríðindi né fram- færslukostnað í hlutaðeigandi landi. Vistarverur skipshafnarinnar, eru yfirieitt 4 manna klef- ar. Þær og messinn og eldhús- ið var allt mjög vistlegt. Þeir bjuggust við, karlamir að farið y-rði aftur á Halaonið, en i sjónvarpinu var skipstjór- inn eitthvað að tala um Græn- landsmið sem hugsanlegan áfangastað og sagði þar verá einhverja aflavon. Sjómannasíðan í umsjá Ásgeirs Jakobssonar Sjómenn Beitningarmenn vantar á góðan útilegubát frá Beykjavík. Upplýsingar hjá skipstjóranum, Finnboga Magnússyni í síma 11440. Atvinna — Hoinnrfjörður Karlmaður eða stúlka óskast til kjötafgreiðslustarfa. Aðeins fóik með góða starfsreynslu koma til greina. HRAUNVER HF„ Alfaskeið 115 — Sími 52790. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 60., 62. og 63. tbl. Lögbirtingablaðsins 1970 ó fasteigninni Búðareitur á Siglufirði (Tjarnargata 9 og 12), Síldarsöltunarstöð Sigfúsar Baldvinssonar, þinglesin eign Sig- fúsar Baldvinssonar hf., fer fram eftir kröfu Brunabótafélags Islands o. fl. föstudaginn 15. janúar 1971 og hefst í dómsainum Gránugötu 18, kl. 15.30 og verður síðan fram haldið á eign- inni sjálfri. Bæjarfógetinn á Siglufirði. framúr ferhyrningnum, ef hann þarf að líta fram fy-rir út um glugga, en aftur úr ferhymingn- um er hins vegar greiður gang- ur aftur að glugga á aftara brú- arþili. Þaðan sést yfir dekkið og afturskipið allt. Vinstra megin við skipstjór- ann, þegar hann situr í stðl sín- um og horfir fram, sem hann ger ir nú sennilega sjaldan, bæði af þvi hann sér illa fram úr stólnum og eins af þvi að vinnan við veiðarfærið fer fram aftur á skipinu — eru tvö sim- radekkólóð og tvær fisksjár. Vél síminn og skrúfustillingin eru í ferhyrningnum að framan en dekka „plotter" eða navigator til hægri (það er varla hægt að tala um bakborðs eða stjórnborðs- megin, þar sem tækjasamstæðan er alveg í miðri brúnni). Hægra megin minnir mig, við stólinn eru einnig ljósataflan og miðun- arstöð. Vörpuaugað er svo á brúarþilinu að framan, eins og áður segir og blasir vel við skip stjóranum úr stóli hans. Á DEKKINU Það þarf fimm menn til að taka trollið. Tvo sinm hvoruan megin við hlerama og ekm á spiilið og hífir hann eiinmig á gi'isinium. Boitn vörpuna geta þeir híft inn í ein um áfanga en verða að færa tii Færeyski fáninn blakti við hún á þessu glæsiiega fiskiskipi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.