Morgunblaðið - 12.01.1971, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.01.1971, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1971 — er FH sigraði Val 16-14 1 skemmtilegum leik Rétt einn sinni enn sannaði Geir Hailsteinsson hversu siór- kostlegur handknattleiksniaður hann er, í leik FH og Vals á siinnudagskvölðið. Á mikilvæg- um augnabiikum í siðari háif- leik var það hann sem tók af skarið og gerði hvert markið af öðru, öll á sinn sérstæða og glæsilega hátt. Þarf engan að furða þótt heimsfrægt lið, eins og Danmerkurmeistararnir HG, sækist eftir þvi að fá slíkan leikmann í lið með sér. Geir hef- ur aldrei verið betri en núna og er það vissulega stolts vert fyr- ir okkur íslendinga að eiga ör- ugglega einn af fremstu hand- knattleiksmönnum í heimi. Leikur FH og Vals á siinnu- dagskvöldið var skemmtilegasti og bezti leikurinn sem fram hef- ur farið í íslandsmótinu að þessu sinni. Sérstaklega eru varnir beggja liðanna umtals- verðar, en þær léku frábærlega vel, einkum í fyrri háifleik, en þá fékkst aldrei skotfæri fyrr en eftir vel útfærðar leikfléttur, og aðeins einu sinni urðu iiðun- um á mistök sem kostuðu mark, en það var undir lok hálfleiks- ins að Örn Hallsteinsson skor- aði úr hraðaupphlaiipi. 1 fyrri hálfleik skildi aldrei nema eitt mark að, en Valsmenn voru yfirleitt fyrri til þess að skora, og manni fannst þeir vera ívið sterkari. Á fyrstu 7 mínút- um síðari hálfleiks náðu þeir svo tveggja marka forskoti 9-7, en þá sýndi Geir sína miklu hæfiieika, og stjórnaði spili og vöm FH-inga, þannig að FH fékk ekki mark á sig í 6 mínút- ur, en skoraði 2 og aftur varð jafntefli. Um miðjan siðari hálf- leik náðu svo FH-ingar sérstak- lega vel útfærðum leikkafla og skoruðu fjögur mörk i röð og var staðan þá orðin 13-10, og að margra áliti gert út um leikinn. En Valsmenn gáfu sig hvergi og þegar 12 mínútur voru til leiks- loka skildi aftur aðeins eitt mark að 13-12. Var þá komin mikil spenna í leikinn, en bæði liðin léku samt sem áður mjög yfirvegað og hvergi var smugu að finna á FH vörninni, sem lék ýmist sex-núll, _ eða fimm-einn, með Birgi fyrir ’framan. Sóknar- leikur FH var einnig „taktisk- ur“ og virtist spilað upp á það að losa um Auðun á línunni. Við þessu sáu Valsmenn, en gættu hins vegar ekki að hinum örvhenta Þorvaldi Karlssyni, sem tókst að kasta sér inn úr hægra horninu og skora 14 mark FH og skapa liðinu aftur 2 marka forskot. Á næstu mín- útu slapp svo Geir andartak úr vörzlu, tókst að ná þremur skrefum og nýta stökkkraft sinn. Var þá ekki að sökum að spyrja — þrumuskot hans hafn- aði í netinu, án þess að Ólafur Benediktsson, hinn ágæti mark- vörður Vals fengi rönd við reist, þar með var staðan orðin 15-12, og aðeins 6 mín. til leiksloka, þannig að FH sigur var kominn í höfn. Bergur gerði siðan 13 mark Vals, en Jónas svaraði fyrir FH, með faiiegu marki. Féll Jónas illa í gólfið, eftir að hann skoraði og var settur út af með blóðugt andlit. Síðasta markið í þessum skemmtilega leik gerði svo Bergur Guðnason, þegar 1 minúta var til leiks- loka. Sem íyrr segir bauð leikur upp á flest það sem áhorfend- ur sækjast eftir I handknattleik — hraða, spennu, góða vörn og ágæta markvörzlu. Þarna léku saman tvö mjög jafnsterk lið og úrslitin gátu raun- verulega orðið á hvorn veginn sem var. Það var fyrst og fremst geta Geirs Hallsteinssonar, sem einstaklings sem réð úrslitum, en ailt um það, er FH-liðið nú jafnbetra en um langan tíma, og flestir leikmannanna greini- lega í góðri æfingu. Vöm liðs- ins stóð sig sérstaklega vel, og er afturkoma Auðuns Óskars- sonar henni ómetanlegur styrk- ur, Auðunn er frábær vamar- leikmaður, og ekki má heldur gleyma Birgi Björnssyni. Hann gefur iitið eftir þótt áranum fjölgi. Ungu mennimir í FH-lið- inu eru einnig sérstaiklega efni- legir. Jónas Magnússon er létt- ur og lipur leikmaður, sem hef- ur stökkkraft og skothörku, en er enn nokkuð óagaður. Þrátt fyrir tapið sýndu Vals- menn góðan leik. Eins og hjá FH var vörnin betri hluti liðsins. Hún ieikur nokkuð fast, en þó ekki ólögiega. Sennilega hefur það verið feill Valsmanna í þess um leik að taka Geir ekki fyrr úr umferð, þar sem allt spil FH byggist svo mikið á honum. Erfitt er að nefna einn öðrum betri í Valsiiðinu. Það er skipað mjög jöfnum leikmönnum, sem vinna vel saman. Hjá Val vant- aði Hermann Gunnarsson að þessu sinni, en hann mun hafa verið settur út úr iiðinnu að sinni. 1 stuttu máli: Úrslit PTl — Valur 16-14 (6-6). Mörkin: FH: Geir 7, Jónas 3, örn 2, Ólafur 1, Birgir 1, Auðunn 1, Þorvaldur 1. Valur: Bergur 5, Gunnsteinn 3, Ólafur Heldur fátíð sjón úr leik Fram og ÍR, Sigurður Einarsson hefur sloppið inn fyrir vöm ÍR-inga, en mistókst að skora. Pálmi Júlíus, Björgvin, Brynjólfur og Ásgeir fylgjast spenntir með. — 3, Jón Karlsson 2, Bjami 1. Vikið af velli í 2 mín.: FH: Kristján Stefánsson, Birgir Björnsson. Valur: Gunnsteinn Skúlason og Jón Karlsson. Dómarar: Karl Jóhannsson og Óli Olsen og dæmdu þeir sér- staklega vel, einkum þó Karl, sem er sennilega okkar bezti handknattleiksdómari. Beztu leikmennirnir: FH: 1. Geir Hallsteinsson, 2. Auðunn Óskarsson, 3. Jónas Magnússon. Vaiur: 1. Gunnsteinn Skúiason, 2. Bergur Guðnason, 3. Ólafur Benediktsson. Leikurinn: Jafn og skemmti- iegur frá upphafi til enda. Bæði liðin léku vel, sérstaklega varn arleikinn. stjl. Úr leik FH og Vals. Jón Karlsson stökk upp, þóttist ætla að skjóta, en sendi út aftur. Geir er við öllu búinn, en Jónas (nr. 6) hefur áttað sig á brellu Jóns. (Ljósm. Sveinn. Þorm.) Framarar vissu ekki sitt rjúkandi ráð og lR-ingar unnu stórt 23-14 Þeir fjölmörgu áhorfendur er iögðu leið sína i LaugardalshöII ina á sunnudaginn urðu vitni að sjaldgæfri „sensjasjón" í ís- lenzkum handknattleik er ÍR- ingar lireinlega burstuðu fslands meistarana Fram — sigruðu með níu marka mun, 23 mörkum gegn 14, eftir að hafa haft ör- ugga forystu í hálfleik 12—8. Var alveg furðulegt hvernig Framvörnin stóð sig, en hún hef ur samt yfir að ráða ekki lak- ari varnarleikmönnum en Sig- urði Einarssyni, Sigurbergi Sig steinssyni, Björgvin Björgvins- syni og Þorsteini Björnssyni. En ÍR-ingar, sem sýndu sinn þunnskipaðir að sumir leik- mannanna urðu að vera inn á aiian leikinn. Virðast ÍR-ing- ar vera í nokkurri nianneklu, þar sem hið sama var gild- andi í hraðkeppnimóti H.K.R.R. á dögunum. Gangur leiksins var i stuttu máli sá, að Ágúst skoraði fyrsta mark leiksins fyrir fR; en Sig- urbergur jafnaði og Pálmi færði Fram forystuna með vítakasti. Eftir 13 múnútna leik var enn jafnt 3—3, en þá skoruðu Fram- arar þrjú mörk í röð, þar af tvö úr vítaköstum, en að baki þeirra voru nokkuð strangir, en þó réttlætanlegir dómar. Þegar svo var komið, 6—3 fyrir Fram, bjuggust flestir við að munur- inn héldi áfram að aukast. En svo varð alls ekki. fR-ingar börðust mjög vel, hvöttu hver annan og spiluðu vel, og þegar 8 mínútur voru til loka háifleiks voru þeir komnir með eitt mark yfir 8—7, eftir að hafa skorað 4 mörk i röð. Þegar svo var komið reyndu Framarar að setja hraðann upp, en höfðu ekkert vald yfir honum. Skot þeirra voru mjög misheppnuð, og vörnin tók nú að gliðna með þeim afleiðingum að ÍR-ingar skoruðu í fjórum af sex upp- hlaupum sínum, það sem eftir var hálfleiksins og breyttu stöð unni í 12:8 fyrir leikhlé. GLUNDROÐI 1 FRAMLIÐINU Þegar 10 minútur voru iiðn- ar af síðari hálfleik var stað- an orðin 16—9 fyrir fR, og mátti þá segja að auðséð væri hvern ig leiknum myndi lykta. ÍR-ing ar fóru að fara sér mjög hægt að teygja timann, og voru dóm ararnir helzt til seinir á sér að dæma á þá leiktöf, þótt ekki væri gott til gerðar, þar sem Framarar brutu oft á ÍR- ingum. Síðustu tíu mínúturn- ar voru hámark glundroðans hjá Fram. Þeir skutu og skutu í ótíma, og ÍR-ingarnir gátu síð an gengið í rólegheitum gegn- um vörn þeirra og skorað. Seg ir það sina sögu að á síðustu 4 mínútunum voru skoruð ekki færri en 6 mörk, þar af gerðu ÍR-ingar 5 og voru óheppnir að skora ekki það 6. á síðustu sek úndunum. IR—INGAR FRÍSKIR ÍR-ingar léku þennan leik ágætlega, enda heppnaðist flest sem þeir reyndu. í þessu iiði býr mjög mikið, en einhvern veginn hefur maður það á til- Franiliald á bls. 23 Þama var Ingólfur kominn í skotfæri, en Þórarinn Tyrfingsson brá við og gat hindrað áður en skotið reið af — og dæmt var aukakast. bezta leik í vetur, áttu næsta auðvelt með að snúa á þessa vörn, og undir lok leiksins var spil Fram komið út í örvænting arfulla leikleysu, og í stað þess að þeim tækist að minnka bilið jók iR stöðugt forskot sitt. Við sögðum í sunnudagsblað- inu, að ef allt gengi eðlilega fyrir sig ætti að vera óhætt að bóka Framsigur í þessum leik. En Framliðið virðist alls ekki vera eðlilegt um þessar mundir: Það er eitthvað stórkostlegt að i þeim herbúðum, og ef Fram- arar taka sig ekki verulega á nú alveg á næstunni, verður lið ið örugglega fyrir neðan miðju i íslandsmótinu og jafnvel í fall hættu. Þetta eru snögg umskipti á einu ári. Við ráðleysi Framaranna bættist svo að heppnin var drjúgur liðsmaður ÍR í þessum leik, enda veitti ÍR- ingum ekki af henni sem liðs manni þar sem skiptimanna- bekkurinn hjá þeim var svo Leikur góðra varna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.