Morgunblaðið - 03.02.1971, Blaðsíða 13
MOGRUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1971
13
við hefðum kannski lent hér! Og
hvað myndu hinar sjálfstæðu þjóð-
ir Afríku aðhafast í því máli nú.
Harris: Reyndi Morris að telja yður
hughvarf varðandi zíonisma?
G.M.: Vissulega reyndi hann það.
„Þú færð nýja Gyðingaríkið þitt.
Svo að eitt land bætist þá við. Og
hvað ertu svo að kvarta?" En ég
iét ekki segjast. Ég gekk í
Zionistaflokkinn, mjög lítinn
flokk, sem var ekki aðeins að und-
irbúa heimferðina, heldur stefndi
að því að fá bólfestu i Palestinu.
í bæklingi þeirra var þessi tilvitn-
un: „Ef ég berst ekki fyrir sjálf-
an mig, hver gerir það? Og ef ég
berst aðeins fyrir sjálfan mig,
hvað er ég? Og ef ekki núna,
hvenær.“ Og ég gerði upp minn
hug að fara til Palestinu og dvelja
á kibbutz eða samyrkjubúi. Þetta
var árið 1915, þegar ég var 17
ára og var þá farin að halda ræð-
ur opinberlega um verkalýðsmál og
Zionisma. Auðvitað gat ég ekki
farið vegna þess að Fyrri heims-
styrjöldin var þá í algleymi. Og
við áttum ekkert heimaland
að hverfa til. — Balfour yfirlýs-
ingin kom ekki fyrr en tveimur
árum síðar. Og við vissum mjög
lítið um Palestínu. En meðan á
stríðinu stóð rak tyrkneska stjórn
in tvo unga zíonista úr landi, fyr-
ir samsæri, þeir voru Ben Gurion
og Itzhak Ben-Zvi. „Þið megið
aidrei koma aftur,“ sögðu Tyrkir
við þá. En þeir gerðu það. Ben
Gurion varð fyrsti forsætisráð-
herra ísrael og Itzhak annar
forseti þess. Þeir lögðu land und-
ir fót og komu til Bandaríkjanna
til að hvetja unga bandaríska Gyð-
inga til að fara til Palestínu og
vinna á samyrkjubúum og byggja
upp Gyðingaríki í landinu grund-
vallað á jafnaðarstefnu. Við heyrð
um kall þeirra: „Hverfum aftur til
fyrirheitna landsins." Ég ákvað að
fara jafnskjótt og ég gæti útveg-
að mér fjármuni. Morris var mjög
andvigur því, en hann vildi gift-
ast mér. Ég sagði honum að vildi
hann mig yrði hann að koma til
Palestínu. Hann hefði vissulega
kosið að fá mig eina og vera ekki
tiineyddur að taka Palestínu líka.
En hann gat það ekki, svo að
hann kom.
Harris: En ef hann hefði ekki far-
ið með yður til Palestínu ?
G.M.: Þá hefði ég farið þangað ein
— en mjög óhamingjusöm.
Harris: Hvernig var yður innan-
brjósts að fara frá Bandaríkjun-
um?
G.M.: Ég átti Bandaríkjunum mikið
að þakka. Þangað kom ég óttasleg
inn telpuangi. Ég fór þaðan 23 ára,
full sjálfstrausts. Ég var ekki að
flýja kúgun, ég var að fara sjálfr-
ar min vegna. Ég fæddist við ein-
ræði og ólst upp við lýðræði. Það
var land, sem hafði barizt fyrir
sjálfstæði og hafði sett sér sina
eigin stjórnarskrá. Það var land-
nemaríki. Þetta land átti sér
draum: bandaríska drauminn. Og
trúði á morgundaginn. Ég tók það
með mér, sem gildi hafði fyrir mig.
Svo að ég harmaði ekkert. Ég var
að fara til að taka þátt í að byggja
upp sjálfstæði og öryggi fyrir
mina eigin þjóð.
Harris: Munið þér vel eftir ferðinnj
sjálfri?
G.M.: Hvort ég man! Við fórum með
skipi sem hét POCOHONTAS.
Brottförinni seinkaði vegna verk-
falls. Þegar út á sjó var komið
varð uppreisn um borð og hvers
konar ólæti og gauragangur ann-
ar. Fáeinum dögum eftir að við
fórum frá New York, sló í bar-
daga milli áhafnarinnar og einn
öskraði af þilfarinu niður til okk-
ar, íarþeganna: „Þessi koppur
sekkur úti á reginhafi." Ferðin
tók 44 daga. Allt varð okkur til
tafar og trafala.
Þegar við komum út á rúmsjó
fór vélin í skrall og annaðhvort
framdi fyrsti vélstjóri sjálfsmorð
eða honum var hent útbyrðis, ég •
veit ekki hvort var. Ég hafði hugs
að mér að nota tímann á leiðinni
til að kynna mér hebresku. Að
visu hafði ég nú sjö vikur til
stefnu í stað tveggja sem ferðin
átti upphaflega að taka, en það
varð lítið úr lærdómi. Og 52 dög-
um eftir að við lögðum upp frá
New York, komumst við loks til
Tel Aviv.
Harris: Hvert hélduð þér fyrst?
G.M.: 'Á kibbutz sem hét Merhavia
í grennd við Taborfjall í Galileu.
Malaria var landlæg í héraðinu,
kínin var borið fram með máltíð-
um. Við vorum aðvöruð að vera
ekki Ijósklædd á ferli úti vegna
arabisism leymisikyttna. Fyrsta
starf mitt var í því fólgið að tína
möndlur. Maður var eiginlega til
reynslu fyrstu mánuðina og það
var ekki laust við að maður væri
litinn hornauga og talinn af-
sprengi bandarísks borgaraþjóðfé-
lags. Ég vann mikið, en að lok-
inni vinnu fór ég í silkisokka og
átiti nokkra ódýra baiðmuiMarkjóla
sem ég straujaði. Þetta fannst
þeim mjög grunsamlegt, allt að því
sviksamlegt. En ég sýndi þeim
fram á að ég gat unnið. Svo að
þegar reynslutíminn var á enda
leyfðu þeir mér að vera. Ég var
þama í tvö ár. Það var dýrlegur
tími. Við vorum að byggja upp,
byggja og byggja. Og á föstudags-
kvöldum dansaði ég fram eftir
nóttu. Mér var mjög á móti skapi
að fara þaðan.
Harris: Hvers vegna fóruð þér þá?
G.M.: Morris var mjög vansæll
þama. Hann var hógvær, yfirlæt-
islaus og afar innhverfur maður
og slíkt líf átti alls ekki við hann,
og heilsa hans þoldi ekki slíka
vinnu. Mig langaði að eiga börn
og hann gat ekki til þess
hugsað meðan við værum þarna.
Svo að rétt eins og hann hafði
fylgt mér til Palestínu fylgdi ég
honum til Tel Aviv til að eiga
bam. Þetta er dálitið furðulegt
allt saman; mér var mjög á móti
skapi að fara og mér fannst ég
vera að hverfa á vit algers einka-
lifs — þótt í smækkaðri mynd
væri. En reyndin varð sú að með
því að fara þaðan, leiddist ég síS-
ar inn á þá braut, sem varð til
þess að ég sit hér i forsætisráð-
herraskrifstofunni og tala við yð-
ur.
1 siðari hluta viðtalsins talar frú
Meir um næstu árin i Palestínu, upp-
haf hennar að þátttöku i opinberu
lífi, stofnun Israelsríkis og vaxandi
áhrif hennar i stjórnmálum.
Skrifstofur okkar
verða lokaðar miðvikudaginn þann 3/2 frá kl. 1 til 4
vegna jarðarfarar.
H.F. HAMAR.
Vegna jarðarfarar
frú Ásu Þorsteinsdóttur verður verzlunin lokuð frá
kl. 1—5 e.h. í dag.
HAMARSBÚÐ HF.
Lokað frá hádegi
fimmtudaginn 4. febrúar vegna jarðarfarar.
Kassagerð Reykjavíkur.
Vegna jarðarfarar
frú Asu Þorsteinsdóttur verður skrifstofa okkar lokuð
kl. 1—4 í dag.
EDDA H.F.
Skotíélagor - grímudonsleikur
Grímutlansleikur félagsins verður haldinn
í Silfurtunglinu föstudaginn 12. febr. kl. 21.
Tryggið ykkur miða hjá Hilmari Ölafssyni c/o Borgarkjör
eða Magnúsi Hallssyni. — Mætum öll.
SKOTFÉLAG REYKJAViÍKUR.
Höfum kaupanda
að 2ja herb. íbúð í fjölbýlishúsi. Góð útborgun.
Höfum kaupendur að 3ja—5 herb. íbúðum og sérhæðum.
Góðar útborganir.
FASTEIGNASALAN
Skólavörðustíg 30,
simi 20625, kvöldsími 32842.
ATVINNA
Öskum að ráða mann í sambandi við bifreiðaverzlun vora.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu i meðferð bifreiða
og áhuga á sölu varahluta.
GARÐAR GlSLASON H.F.,
Hverfisgötu 4—6.
Már Elisson,
fiskimálastjóri.
LANDSMÁLAFÉLAGiÐ VÖRÐUR
heldur almennan félagsfund að HÓTEL SÖGU, súlnasal, miðvikud.
3. febrúar nsestkomandi klukkan 20.30.
Fundarefni:
Fiskveiði- og landhelgismál
Frummælendur:
Már Elísson, fiskin,á!astjóri og Cunnar C. Schram, lektor
STJÓRNIN.
Gunnar G. Schram,
lektor.