Morgunblaðið - 03.02.1971, Page 16

Morgunblaðið - 03.02.1971, Page 16
16 MOGRUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1971 Jónas Guðmundsson: Velf erðarr í ki og barnalíf eyrir í>að tekur barnsföður frá þremur stundarf jórðungum niður í tíu mínútur á dag að vinna fyrir lágmarkslífeyri með einu barni L 1 dagblaðinu Vísi birtist grein, hinn 20. júlí s.l., sem nefnist: „Illa gengur að inin- heimta bamsmeðlög." Birtist grein þessi af þvi tilefni að vitað var að fyrir næsta Alþingi mundi verða lagt frumvarp, sem Samband ísl. sveitarfélaga hafði átt frumkvæðið að, um sérstaka innheimtustofnun, sem hefði það hlutverk að innheimta bamsmeð lög og fleiri kröfur, sem sveit- arfélögin eiga á einstaklinga, fyrirtæki og önnur sveitarfélög. Er þetta gamalt áhugamál sveit- arstjóma en hefur nú fyrst feng ið áheym stjómvalda. 1 áðumefndri Vísis-grein er ástandið í þessum málum rakið i stórum dráttum og réttilega kom izt að þeirri niðurstöðu að það sé sl æmt. Tryggingastofniuiniin, sem greiðir bamsmeðlögin til mæðramna, geti svo til ekkert innheimt frá bamsfeðrum, enda telur hún sig eiga endurgreiðslu visa þar sem sveitarfélögin eru og því þurfi hún ekki að leggja svo mjög að sér við innheimt- una. Orðrétt segir svo í greininmi: „Það liggur í augum uppi að bamsmeðlag, sem nemur 1900 krónum á mánuði er fljótt að dragast samam í háar upphæðir ef trassað er, af einhverjum ástæðum, að borga einhvem tíma. Og skiljamlegt er, að tekju lágur maður, sem þarf kannski að greiða með 5—6 bömum, á í miklum erfiðleikum með að greiða sitt meðlag, gott ef hon- um er það yfirleitt mögulegt." Þannig heldur svo áfram. Með- lögin verða í ár (1970) a.m.k. 110 milljónir og af þeim inn- heimtir Trygginigastofnt'.n ríkis- ins beint frá bamsfeðrum 5—10% eða um 10 milljómir, hitt verða sveitarfélögin að greiða til Tryggingastofniuiniairiimniair. Sveitarfélögunum tekst svo að innheimta u.þ.b. 50—60% af þess um 100 miUjónum eða 50—60 millj. króna. Afgangurinn greið- ist aldrei þ.e. 40—50 mUlj. kr. Þessar upplýsingar koma frá fyrstu hendi og eru vafalaust al veg réttar. n. Það eru ekki upplýsingarnar í þessari Vísis-grein, sem eru mér tilefni eftirfarandi hugleið- inga, heldur hitt, sem þar er hvergi miinnzt á, og „andinn" í greininni. Hér er greiðandanum, barnsföðumum, vorkennt að þurfa að inna þessar feikna greiðslur af hendi. Það er sagt að það liggi í „augum uppi“ að bamsmeðlag, sem nemur 1900 krónum á mánuði, dragist fljótt saman „í háar upphæðir" og við kom-anda er vorkennt og sagt, að „eflaust hafi margir meðlags- skyldir fremur þörf fyrir að fá sjálfir meðlag, en þeir standi í skilum með greiðsluna". Hvergi er í þessar grein minnzt einu orði á þann aðila, sem taka á við þessari gifurlegu greiðslu, bamsmæðumar. Þær hljóta að geta lifað í „vellyst- ingum pragtuglega" á þessum 110 milljónum, sem barnsfeðum ir eiga að greiða, en greiða að- eins helminginn af, og láta aðra, sem hafa heimili og bömum fyr- ir að sjá, greiða fyrir sig. Sá þáttur þessara mála sem að bamsmæðrunum snýr er sjald- an eða aldrei ræddur, en hér er ætlunin að drepa á hann lítil- lega, einmitt af þessu tilefni. III. í ísienzkum lögum um afstöðu foreldra til óskilgetinna bama (87/1947) segir svo: „Nú hefur karlmaður gengizt við fað- emi óskilgetins barns — og er honum þá, jafnt móður þess, skylt að kosta framfærslu bamsins og uppeldi." Hið sama gildir að sjálfsögðu einnig um börn skilinna foreldra. Lítum nú snöggvast á hvemig þessu sjálfsagða lagaboði er framfylgt hér á landi: Yfirvald á að kveða upp úrskurð um meðlag með óskilgetnu bamd og skal það mið ast við getu foreldranna til að sjá fyrir barni sínu. í lögum þar um segir orðrétt: „1 meðlagsúr- skurði má aldrei ákveða lægri meðlagsgreiðslu en bamalífeyri samkvæmt lögum um almanna- tryggingar, eins og hann er ákveðinn á hverjum tíma." Al- þingi ákveður upphæð bamalíf eyris með lögum. Hann var fyrst ákveðinn 1946, en í núverandi formi í lögum 1963 og var þá 8400 kr. á ári eða 700 kr. á mán uði og 1968 var hann ákveðinn 16.134 krónur á ári eða kr. 1.344,50 á mánuði. Á barnalíf- eyri greiðast uppbætur eins og á laun, samkv. vísitölu. I árs- lokin 1970 nam barnalífeyrir með uppbótum kr. 1986,00 á mán uði. Ef nú er athugað hversu stór hluti þetta er af tekjum manna, sem sæmilega atvinnu hafa, kemur í ljós, að þessi greiðsla er svo smávægileg, að furðulegt má telja að við skuli vera unað. Sé greiðslunni deilt niður á 30 daga mánaðarims verður dag greiðsla bamsföður með einu bami 65 krónur á dag. Sam- kvæmt landslögum, sem áður er tilvitnað á móðirin að framfæra barnið jafnt við föðurinn eða ætti að borga með þvi 65 krónur á dag. Verður þá framfærslan alls 130 krónur á dag, eða kr. 3.900,00 á mánuði. Fyrir þetta á að veita baminu alla umömnun og þjónustu, húsnæði, fatnað og allt annað, sem það þarfnast. öll um hlýtur að vera ljóst hversu fráleitt það er, og þarf ekki á annað að benda, en greiðslur með börnum á sumardvalarheim ilum, sem voru s.l. ár um og yf- ir 6000 krónur á mánuði yfir sumartimann, án þess baminu væri lagt þar til annað en fæði, húsnæði og eftirlit. Tímakaup flestra, sem vinna fyrir kaupi, er nú frá tæpum 100 kr. til 250 kr. á tímann, og hið sama er, ef föstu kaupd er breytt í tímakaup og miðað við vinnu- tíma hjá ríki og sveitarfélögum. Þá kemur í ljós að lægst laun- uðu bamsfeður þurfa að vinna riima hálfa kliikkustund á dag fyrir einu óskilgetnu barni sínu, en liinir hæst launuðii komast af með stundarf jórðung, — 15 mín- útur — eða minna á dag, eða Jónas Guðmundsson. geta unnið fyrir meðgjöf með 4 börnum á einum klukkutíma. Það er þvd svo augljóst sem verða má, að ekki nær nokkurri átt að hafa bamalífeyri svo lág an sem hann nú er. Þó hann væri hækkaður um helming, og bamsfeður þyrftu að vinna sem svarar hálftima eða einn klukkutima á dag fyrir barni sínu, væri það samt of lágt, þó nokkur bót væri það frá þvi, sem nú er. Með þvi væri ofur- lítið komið til móts við þann að- ilann, sem raunverulega framfær ir bamið, og nú er níðzt á, móð- urina. Hér breytir engu um þó hið opinbera hafi neyðzt til að koma á einhverju sviði lítillega til móts við barnsmæðumar á kostnað almennings. Bam þarf að eiga heimili og móður á því heimili, sem hugs- ar þar um barn sitt og velferð þess. IV. Af því, sem nú hefur sagt ver- ið, má öllum vera ljóst, að með núgildandi lagaákvæðum, en þó sérstaklega með framkvæmd þeirra, er stefnt að hreinni upp- lausn þjóðfélagsins á því sviði sem slíkt má sízt verða, þ.e. í framfærslu og uppeldi bama og hjúskaparmálum yfirleitt. Karlmönnum er beinlínis boðið upp á stórfríðindi, ef þeir vilja heldur eignast böm utan hjóna- bands en í hjónabandi eða þeir hlaupast á brott frá eiginkonu og heimili sinu. Þessi upplausn er þegar far- in að segja óþyrmilega til sín í íslenzku þjóðfélagi. ísdand á al- heims met hvað snertir óskilget in böm og er einma hæst eða hæst allra þjóðlanda í hjóna- skilnuðum. Það sjá allir, sem vilja sjá, að aðstaða karlmanns- ins til hjúskaparmála og skyldu framfærslu er hérlendis orðin svo ábyrgðarlaus, að engu tali tekur. Það segist ekkert á þvi, að hlaupast frá konu og böm- um og skilja þau bjargarlaus eftir. Málsókn út af brotthlaupi eiginmanns úr hjónabandi er svo dýr, að fæstar konur geta lagt í þann kostnað, og mála- rekstur allur í sambandi við þau mál svo úreltur og seinvirk ur að einhverrar úrlausnar má fyrst vænta að mörgum mánuð- um eða jafnvel árum liðnum. Slík mál eru venjulega látin liggja og önnur „þarfari og þýð ingarmeiri" látin ganga fyrir. 1 okkar „velferðar og réttarríki" hafa ógiftar bamsmæður og frá skildar konur sáralítil réttindi og þau litlu réttindi, sem þær eiga á pappímum, eru að mestu eyðilögð í framkvæmdinni. Hins vegar segist ekkert á þvi þó karlmaður með 20 tid 30 þús. króna tekjur á mánuði eða meira hlaupi burt af heimili sínu og skilji það eftir bjargarlaust. Af mánaðarkaupinu hefur hann eft ir 18 þús. krónur, ef tekjurnar eru 20 þúsund, en 28 þúsund, ef þær eru 30 þúsundir, til að lifa fyrir sjálfur en konan og bamið hans hafa aðeins 2000 krónur eða tæplega það. Hann veit líka, að þessar 2000 krónur þarf hann ekki að inna af hendi fyrr en einhvern tima síðar og kannski aldrei. Sveitarfélagið borgar fyrir hann og upphæðin verður orðin alltof há til þess hann geti greitt hana, þegar sveitarstjóminni dettur í hug að rukka hann. Hið versta, sem fyrir getur komið er, að hann, ef hann á framfærslurétt í Reykjavík, getur fengið fria hótelvist á borgarinnar kostnað á Kvíabryggju í nokkra mán- uði sem eins konar uppbót á þau fríðindi sem annars fylgja þvl, að svíkjast undan smánar- legri greiðslu á framfærslueyri barns síns. Þessi maður mundi hugsa sig um tvisvar, áður en hann hlyp- ist á brott frá skyldum sinum í þjóðfélaginu, ef í lögum væri, að halda skyldi skilyrðislaust eftir helmingi allra tekna hans handa konu og barni eða bömum, þar til skilnaður væri að fullu feng- inn eða meðlagsúrskurður væri genginn, og það væri tugthús- sök að gera slíkt, eins og það er í nágrannalöndum vorum. V. Ég vil taka það skýrt fram, að ég tala ekki um þessi mál- efni af ókunnugleika, því ég hefi um þau fjallað sem sveitar- stjómarmaður I nærfellt hálfa öld. Ég veit þvi vel, að þeim sem greiða eiga bamsmeðlög má, og verður, að skipta í fleiri hópa, sem mismunandi erfitt er að ná til um innheimtu skulda þeirra. Hér á ekki við að rekja þá hlið málsins, og auðvitað verða það ávallt einhverjir, sem þjóðfélag- ið verður að greiða fyrir, s.s. sjúklingar, andlegir og líkamleg ir. En sá hluti verður mjög smár og ekki tilfinnanlegur þegar öll sveitarfélög bera hann sameig- inlega eins og lika er réttlátt. Hins vegar á ekki að nota nein vettlingatök í þessari innheimtu. Alls konar lýður, sem telur sér heimilt að lifa ábyrgðariausu lífi á kostnað annarra í þjóðfé- laginu, á ekki að sleppa við að bera fulla ábyrgð gerða sinna. Að einum þessara flokka vil ég þó víkja fáum orðum. Það eru drykkjumennirnir. Drykkju- skapur er orsök flestra óskilget- inna bama og sundraöra heim- ila. Allt sem gert er til lækn- ingar og hjálpar þessu fólki, körlum jafnt sem konum, er eitt skipulagslaust fálm, sem að litl- um notum kemur. Hvorki Al- þingi né rikisstjóm hafa tíma til að sinna þessu mesta vandamáli þjóðarinnar, drykkjuskapnum, og því fer sem fer á þvi sviði. Æskulýður þjóðarinnar dmkkn ar að lokum í áfengisflóð- inu, sem ríkið magnar stöðugt. En þrátt fyrir þetta er ég þess fullviss, að innheimta má frá drykkjumönnum miklu meira en nú er gert, ef Innheimtustofnun inni verður fengin sæmileg að- staða til starfs síns. Til þess að fyrirbyggja mis- Skilning vil ég taka það fram, að ég állt að sömu reglur eigi að gilda að öllu leyti um konur sem karla, ef þær bregðast skyldu sinni um framfærslu barns síns, eða barna, ef fleiri em, t.d. hlaupast brott úr hjónabandi, og að nýr eiginmaður eða sam- býlismaður konu, sem yfirgefur mann sinn og heimili, eigi að greiða að öllu leyti tilskilin með lög þegar svo stendur á, eða ef faðir framfærir óskilgetið barn sitt eigi móðirin að greiða með- lag til hans. Hér á landi er stefnt að jafnrétti kynjanna og það á að vera viðurkennt í framkvæmd sem víðast, — helzt alls staðar. VI. Mikið er talað um „velferðar- ríki" nú á dögum og ýmsir halda að t.d. á Norðurlöndum og jafn- vel hér á íslandi séu komin á fót einhvers konar velferðarríki. Forseti Islands vék með hógvær um orðum að því í nýársboð- skap sínum til þjóðarinnar, að nokkurs yfirlætis gætti í slíku tali og betur færi á að tala um hagsældarriki eða farsældarríki og er það vitaskuld skárra. En hafa menn gert sér grein fvrir því hvíliíkt öfugmæli það er að tala um velferðarriki og reynd- ar líka hagsældar- eða farsæld- arríki, þegar þeir t.d. hugleiða þann þátt „velferðarríkisins" sem hér er að vikið. Hér á sér stað hvert lögbrotið öðru verra og hver forsmánin annarri meiri framin og látin viðgangast gagn vart þeim þjóðfélagsþegnum sem minnstir eru og umkomulaus astir -—- smáböraunum — sem örðugast eiga með að sækja sinn litla rétt á hendur þjóðfélaginu og öflugum einstaklingum, bæði vegna gamalla og nýrra fordóma í þessum málum og þess stjóra- leysis á öllum sviðum, sem svo mjög hefir einkennt síðustu ára tugina. Það liggur við, að á okkar þjóðfélagi rætist bókstaflega í þessum efnum hin torskildu orð Heilagrar ritningar, að „frá þeim, sem ekki hefir mun jafn- vel tekið það sem hann hefir". Hið sama er hægt að segja um marga aðra þætti í félags- og framfærslumálum þjóðarinnar, að þeir hafa verið stórlega van- ræktir og fálm og stefnuleysi einkennt alla framkvæmd. Hvergi er litið við skynsamleg- um tillögum um breytingar og nýskipan, heldur bætt nýrri nót ofán á þá gömta þegar hún var að verða gatslitin. Á þetta við t.d. á flestum sviðum almanna- trygginganna, svo og í áfengis- varnamáium, forsjá gamal- menna, unglingaforsjá og æsku lýðsmálefnum og á fjölmörgum öðrum sviðum. Hvorki forráða- menn þjóðarinnar né almenning ur hafa skilið þróunina, sem orðið hefur hér á landi. Island er ekki lengur land smábænda og smáútvegsmanna, handverks- manna og smákaupmanna eins og áður var. Það er nú þegar orðið land stóriðju og stórfyrir tækja. Iðnþróunin, sem með hverju ár inu færist i aukana og krefst alls vinnuafls þjóðarinnar, eyðileggur jafnframt undir- stöðu þjóðfélagsins — heimilið, og sviptir einstaklingana þeirri ábyrgðartilfinningu, sem hverju þjóðfélagi er nauðsynleg til þess það fái staðizt. Það er þess vegna svo fjarri því, að hér á landi sé velferð- arríki, hagsældarríki eða far- sældarríki, að hér er ekki einu sinni framfærsluríld, sem er þó fyrsta sporið í áttina til hag- sældarríkisins, svo það orð sé notað, frekar en velferðarriki, sem er öfugmæli. Ég fullyrði, að Island er nú minna „farsældarfrón" en það var fyrir 1940. Þá var að þvi stefnt, að heimilisfaðir með hæfi lega fjölskyldu (5 manna) gætl lifað mannsæmandi lífi af laun- um sínum, eftir þeim kröfum sem þá voru gerðar, 8 stunda vinnudegi, og það var hægt, ef atvinna var stöðug allt árið eða afli sæmilegur. Konan gat þá gætt heimilisins og séð um dag- legt uppeldi bamanna. Nú er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.