Morgunblaðið - 05.02.1971, Page 7
7
.■—................... .....u'.—.......
MORGUNBLABI®, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1971
Þann 26.9. voru geíin saman í
hjónaband í Neskirkju af séra
Frank M. Halldórssyni ungfrú
Guðmunda Kristinsdóttir og
Börkur Karisson. Heimiii þeirra
er að Lynghaga 28, Rvik.
Studio Guðmundar,
Garðastræti 2.
Þann 16. janúar voru gefin
saman í hjónaband i Akureyr-
arkirkju brúðhjónin ungfrú
Halldóra Geirþrúður Eiríksdótt-
ir, Glerárgötu 4 og Haraldur
Júlíusson húsasmíðanemi,
Fjólugötu 14. — Heimili þeirra
verður að Hafnarstræti 45, Akur
eyri.
Ljósmyndastofa Páls.
Nýlega voru gefin saman i
hjónaband imgfrú Guðlaug Sig-
urðardóttir og Friðrik Bjama-
son málari. Heimili þeirra verð-
ur að Ráðhústorgi 1, Akureyri.
Ljósmyndastoía Páls Akureyri.
Járnvinnsla er eizta iðn
sem um getur hér á landi. 1
Landnámu er þess getið um
Bjöm landnámsmann I Dals-
mynni í Norðurárdal, að
hann hafi fyrstur manna blás
ið rauða á Islandi, og þess
vegna hafi hann verið kallað-
ur Rauða-Björn.
Jám var þá unnið úr mýra-
rauða og var það kallað
rauðablástur. Enginn vafi er
talinn á því, að allir hinir
norrænu landnámsmenn hafi
kunnað rauðablástur, þvi að
hann var stundaður á öllum
Norðurlöndum. Þykir þvi lík
legt, að rauðablástur hafi
þegar í öndverðu yerið tek-
inn upp um tand allt, og mjög
óvist að Rauða-Björn hafi
orðið fyrstur til þess, því að
sagt er að hann hafi komið út
seint á landwámsöld. En í
Egils sögu er þess getið um
Skaiiagrím, að hann hafi ver-
ið jámsmiður mikill, haft
rauðablástur og sjálfur fram-
í leitt járn til smáðanna.
Rauðablástursofnar hafa
fundizt mjög viða um land og
heimildir eru um, að rauða-
i blástur hafi verið stundaður
á fleiri bæjum en þar, sem
ofnar hafa fundizt.
Sam'hliða þessari iðju varð
einnig að stunda aðra, en
það var viðarkolagerð, vegna
þess að járnið varð að bræða
úr rauðanum við viðarkola-
eld. Og kolagerð kunnu land
námsmenn líka. En vegna
þess, að þetta hvort tveggja
fór saman, hefir verið seilzt
til þess að hafa rauðablást-
ursofnana, þar sem nægur
skógur var, þvá að mikil kol
þurft til rauðablástursins.
Segir um Skailagrím, að hon
um hafi þótt of langt í skóga
á Borg, og þess vegna hafi
hann látið gera smiðju sina
langt út með firði, þar sem
heitir Raufarnes. Þar hefir
hvort tveggja verið nærtækt,
rauðinn og skógurinn.
Það er álit fróðra manna,
að fombændur hafi framleitt
mikið járn, jafnvel eins mik-
ið og þeir þurftu árlega til
smíða. Járnið mun þó aldrei
hafa verið gott, því að fram-
leiðsiuaðferðin var einföld og
tæki ti;l hennar mjög fábrot-
in. Rauði finnst mjög víða í
byggðum, en varla á hálend-
inu. Hann er í kögglum eða
i heilum, en er mjög blandað-
ur leir, jurtaefnum, söltum o.
fl. og er mikil vinna að ná
hreinu járni úr honum. Menn
vita nú ekki glögglega
hvernig rauðablæstrinum hef
ir verið hagað vegna þess
hve langt er siðan hann lagð-
ist niður, en þetta þykjast
menn vita:
Hlaðinn var á bersvæði all
stór ofn úr grjóti, ýmist
hringlaga eða ferhliða. Síðan
var grjóthleðslan þéttuð
vandlega innan með leiri eða
Hinn 16. janúar voru gefin
saman í hjónaband á Akureyri
ungfrú Geirdís Geirsdóttir,
Borgarbraut 41, Borgarnesi og
Ágúst Karl Gunnarsson raf-
suðunemi, Brekkugötu 1, Akur-
eyri, — Heimili þeirra verður að
Brekkugötu 1, Akureyri.
Ljósmyndastofa Páis.
Mynd úr smiðjunni á Stöng í Þjórsárdal, þar sem merkár
fornminjar hafa verið grafnar upp. Þar hefur vafalaust
verið smíðað úr járni, sem unnið var með rauðablæstri.
deigulmó. Þegar ofninn var
fullger varð að kynda hann
rækilega til þess að
hita hann og varð að vera
mikil glóð í honum þegar
bræðslan hófst. Þá var viðar-
kolum og muldum rauða mok
að í ofninn sitt á hvað og til
þess að örva eldinn og hit-
ann, var blásið í ofninn með
físibelgjum. Bráðnaði þá járn
ið úr, en sorinn og gjall-
ið varð eftir. Þegar járnið
kólnaði var það tekið úr ofn
inum með töngum og síðan
var gjallið hreinsað úr hon-
um og fleygt í hrúgu. Þessar
gjallhrúgur vísa mönnum
venjulega á þá staði, þ£ir
sem rauðablástur hefir farið
fram. Og fundarstaðir eru
orðnir margir, eins og áður
er sagt og nólgast nú líklega
hundraðið.
Rauðablástur var stundað-
ur allt fram á 16. öld, eða þar
til Þjóðverjar fóru að flytja
erlent járn hingað. Þetta jám
var miklu betra en hið ís-
lenzka og tók því brátt að
dofna yfir rauðablæstri hér.
Jámvinnslan lagðist niður og
aðferðin gleymdist. Þó getur
Eggert Ólafsson þess, að Jón
Halldórsson prófastur í Hítar
dal hafi látið vinna járn úr
rauðum hra.unsteini, og hefir
það líklega verið laust eft-
ir 1700. Seincisti maðurinn,
sem talið er að hafi stundað
rauðablástur, var Einar
bóndi í Kollsvik í Rauða-
sandshreppi, en Einar var
uppi á fyrri hluta 19. aldar.
nesi hjá föður sínum. Honum
þótti leitt tii þess að vita, að
HallgerðEirleiði hyrfi alveg
án þess að rannsakað væri
hvort sögnin um það hefði við
nokkuð að styðjast. Þess
vegna réðst hann í að grafa
upp ,,leiðið“. Kom hann þá
brátt niður á steinahleðslu,
sem sýndi, að þarna var eitt-
hvert mannvirki. Vildi hann
þá ekki grafa þar meira að
sinni. Og nú var Matthías
Þórðarson þjóðminjavörður
kvaddur á vettvang til þess
að skera úr um hvers konar
mannvirki þetta væri. Hann
þurfti ekki nema að Mta á
þetta til þess að sjá, að hér
var um gamlan rauðablásturs
ofn að ræða.
Þetta var merkilegur forn-
leifafundur, því að hann
sýndi það ótvírætt, að í forn
öld hefir allt Laugamesið
verið þakið skógi, þvi að
rauðablástursofnar voru
ekki settir annars staðar en
þar, sem nægur kolskógur
var fyrir. Og þetta gefur
bendingu um, að öll holtin,
sem Reykjavik stendur nú á,
hafi verið skógi klædd í fom-
öld.
Þessi rauðablástursofn er
nú horfinn, en hann mun vera
undir malbikinu sem næst
því, er nú mætast Laugarnes
vegur og Kleppsvegur.
Frá
horfnum tíma
GÆFA
Ef á reynslubraut mig ber,
beztur er það gróði,
að lífið hefur lánað mér
lögg af skáldablóði.
Lilja Björnsdóttir.
Það er kólga í lofti, og kuldi
á jörðu,
hvítflekkótt strætin borginni í.
Spakvitrir mennirnir spá nú svo
hörðu,
spornað víst getur enginn við
þvi.
Gnnnlaugiir Gunnlaugsson.
Rauða-
blástur
Hér í Reykjavík hefir
einnig verið rauðablástur í
íomöld. Var þáð svo að segja
segja af tilviljun, að bræðslu
ofninn fannst.
í sunnanverðu Laugarnes-
túni var stór þúfa eða lítill
hóll og bar nafnið Hallgerð-
arleiði. Fylgdi sú sögn, að
þetta væri legstaður Hallgerð
ar langbrókar, sem eitt sinn
átti Laugarnes og sagt var
að hefði dáið þar. Nú var það
um 1920 að slétta átti túnið.
Þá átti Ólafur Þorgrímsson
Þann 31.12. voru gefin saman
í ujónaband ungfrú Ema Óla-
dóttir og Kári Garðarsson.
Heimili þeirra er að Hlíðarvegi
41, Kópavogi.
Ljósmyndastofa Páls Skipag.2.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Guðrún Jóns-
dóttir Rafstöð v. Elliðaár og
Guðmundur M. Guðmundsson
Otrateig 3, Rvík.
ALLT MEÐ
m JZMMM
A næstunni ferma skip vor
til Islands, sem hér segir:
ANTWERPEN:
Fjallfoss 10. feibrúar *
Skógafoss 19. febrúar
Fjallfoss 2. marz *
ROTTERDAM:
Fjalifoss 8. febrúar *
Reykjafoss 11. febrúar
Skógafoss 18, febrúar
D ettifos's 25. febrúar
Fjallfoss 27. fe'birúar *
Reykijafoss 4. marz
Skógafoss 11. marz
FELIXSTOWE
Dettifoss 5. febrúar
Reykjafoss 12. febrúar
Skógafoss 20. febrúar
Dettifoss 26. febrúar
Reykjafoss 5. marz
Skógafoss 12. marz
HAMBORG:
Dettifoss 9. febrúar
Reykjafoss 16. febrúar
Skógafoss 23. febrúar
Fja'ilfoss 24. febrúar *
Dettifoss 2. marz
Reykjafoss 9. marz
Skógafoss 12. marz
WESTON POINT:
Askja 16. febrúar
Askja 2. marz
Askja 16. marz
NORFOLK:
Selfoss 15. febrúar
Goðafoss 2. marz
Brúarfoss 16. marz
KAUPMANNAHÖFN:
Tungufoss 12. febrúar
Hofsjökuil 17. febrúar
Ba'kkafoss 22. febrúar
Gullfoss 27. febrúar
Lagarfoss 1. marz
Tunigufoss 5. marz *
Gullfoss 13. marz
HELSINGBORG:
Tungufoss 13. febrúar
Baikikafoss 23. febrúar
Tunguifoss 6. marz *
GAUTABORG:
Tungufoss 15. febrúar*
Baikkafoss 24. febrúar
Tungufoss 8. marz *
KRISTIANSAND:
Tungufoss 16. febrúar
Baikkafoss 25. febrúar
Tun'giufoss 9. márz *
GDYNIA:
Hofsjökull 14. febrúar
Ljósafoss 16. febrúar
KOTKA:
HofsjökulH 12. febrúár
Lagarfoss 24. febrúar
VENTSPILS:
Lagarfoss 19. febrúar.
Skip, sem ekki eru merkt
með stjömu, losa aðeins í
Rvík.
* Skipið losar í Rvík, Vest-
mannaeyjum, Isafirði, Ak-
ureyri og Húsavík.
STÚLKA EÐA KONA
óskast hálfan eða allan dag-
inn við afgreiðslu og kjól'a-
saum. Upplýsingar aðeins
veittar í verz'luninni Kirkju-
munir Kirkjustræti 10.
HAFNARFJÖRÐUR — nágrenni
Nýtt hrossakjöt, hakkað á
129 kr. kg, buff 149 kr. kg.
saltað 75 kr. kg. Ódýrari i
stærri kaupum. Svið 10 haus
ar 475 kr., rúliupyl'sur 125
kr. stk.
Kjötkjallarinn Vesturbraut 12.
HAFNARFJÖRÐUR — nágrenni
Dilkakjöt 1. og 2. verðfl.,
súpukjöt, læni, hryggir, salt-
kjöt í handhægum 5 kg íl'át-
um, kindahakk 149 kr. kg.
Daglega nýsoðið slátur.
Kjötkjallarinn Vesturbraut 12.
NÝTT SÍMANÚMBR
12170
Snyrtistofan ÍRIS
Hverfisgötu 42. Guðrún Þorvaldsdóttir.
BROTAMALMUR
Kaupi aílan brotamálm lang-
hæsta verði, staðgreiðsla.
Nóatún 27, sími 2-58-91,