Morgunblaðið - 05.02.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.02.1971, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1971 . . 5 . . eftir, blátt af myglu. Og þegar Appleyard hóf máls, bergmálaði röddin í þessu tómi, líkast þrum- um í f jarska. — Við þurfum að tala við þig, Horning, sagði hann. — Hefur herra Simoni verið sagt af slysinu, sem sonur hans varð fyrir? Horning svelgdist á hvað eft- ir annað, áður en hann gæti kom ið upp nokkru svari. — Já, herra. Ég sagði honum tiðindin undir eins og ég kom aftur frá bænum. Appleyard gaut augunum til Jimmy. — Hvemig brást hann við fréttinni? spurði hann. — Ja, . . . ég veit varla. Hann sagði ekkert í langa stund en svo sagði hann mér að aka stóln um sínum út að glugganum og láta sig svo einan. En ungfrú Joyce er núna hjá honum. — Ungfrú Joyce sagði Appleyard. — Hver er það? — Ungfrú Joyce Blackbrook, systurdóttir hr. Glapthome. Hr. Woodspring ók henni hingað undir eins og hann heyrði af slysinu. — Já, já, vitanlega. Ég var al- veg búinn að gleyma henni. Hvernig frétti hún af slysinu? — Frú Chudley hringdi til hennar frá bænum, eftir minni beiðni. Mér fannst hr. Glapt- horne þyrfti einhvern nákom- inn hjá sér, þegar svona stóð á. — Það var hugsunarsemi af þér, Horning, sagði Appleyard vingjarnlega. —En nú vil ég að þú segir okkur allt, sem þú veizt um þennan atburð. 1 fyrsta lagi: hvenær fór hr. Caleb út á veiðar? — Strax eftir hádegisverð. Konan mín minnti hann á það í gærkvöld, að í dag væri fyrsti september. Hún sagði, að tvær akurhænur gætu verið tilbreyt- ing frá kanínuketinu, sem hann var vanur að koma með heim. Og hann lofaði að fara og gá að hóp, sem hann hafði séð á bæn- um. — Sástu hann fara að heiman? -— Já, ég sá hann fara með byssuna og töskurnar rétt um klukkan tvö. — Og hann f ór einn ? — Já, auðvitað. Þér skiljið, að það var enginn til að fara með honum, þar sem hr. Benjamín er ekki heima. — Og hvað gerðist svo næst ? — Það veit ég ekkert um. Ég fór ekkert út fyrr en rétt um hálffjögur, en þá fór ég á bæ- inn til að sækja mjólkina. — Ferðu þangað á hverjuro degi eftir mjólk? — Já, ég hef gert það siðan . . . Horning þagnaði snögglega og honum svelgdist á, hvað eft- ir annað. — Ég hef farið þangað á hverjum degi þessa viku, leið- rétti hann sig, hálf klaufalega. En þessi vandræði hans höfðu ekki farið fram hjá Appleyard. — Þessa viku? sagði hann. — En hvemig fenguð þið mjólkina áður? Það komu kippir í andlitið á Horning. — Það hljóp venjulega einhver frá bænum með hana hingað, sagði hann, svo að varla heyrðist. Það var sýnilegt, að hann var í einhverjum vandræðum, en ekki gat Appleyard fundið ástæð una til þess. — Hver var þessi sendill og hvers vegna hafði hann ekki komið með mjólkina eins og áður? spurði hann. Þessi beina spuming virtist gera Horning alveg lafhrædd- an. Hann leit með örvæntingar- svip kring um sig í tómum for- salnum, rétt eins og hann væri að svipast um eftir einhverjum felustað, sem enginn var til. Og hann svaraði og röddin var lík- ust glæpamanns, sem er að játa á sig sökina: — Það var Vera, dóttir hr. Chudleys, en nú skilst mér, að hún hafi farið til borgarinnar til þess að vera þar eitthvað hjá frænku sinni. —Já, ég skil, sagði Appleyard rólega. — Og þegar hún gat ekki komið með mjólkina, urð- Eirvu sinni AKRA og svo aftur og aftur AKRA smjörlíki er ódýrt; harðnar ekki! í ísskáp, bráðnar ekki við stofuhita. Ekkert er betra á pönnuna, það sprautast ekki. Úrvals smjörlíki í allan bakstur. SMJÖRLÍKISGERÐ AKUREYRAR HF. uð þið að sækja hana. Og í dag lagðir þú af stað til bæjarins um klukkan hálf fimm? Hvað varstu lengi á leiðinni þangað? — Ég fór beint yfir akrfma og líklega hefur það tekið mig svo sem tíu mínútur, eða kannski stundarfjórðung. — Sástu nokkuð til hr. Calebs eða heyrðir nokkur skot á leið- inni? — Nei. Og þegar ég kom á bæ inn, sagði frú Chudley mér, að Walter, sonur hennar hefði fundið hr. Caleb liggjandi á jörðinni í blóðpolii, þeg- Hrúturinn, 21. niarz — 19. apríl. Ef einlivcr þarf á hughreystingu að halda, skaltu endilega láta hana í té. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Hikaðu ekki við að svara neitandi, ef nauðsyn krefur. Tvíburarnir, 21. ntai — 20. júní. I»ví einfaldari, sem þú getur haft mál þín, þeím mun betra fyrir þig sjálfan. Þig sáriangar að festa kaup á einhverju. Það liggur ekkert á. Krabbiiui, 21. júní — 22. júlí. Þolinmæði þín með fólki er vel þegin. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Fólk sóar tíma þínum með því að heimta ráðleggingar, sem það ætiar ekki að hagnýta sér. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Þú getur þurft að hafa talsvert fyrir því að vinna verkin á hefðbundinn hátt. Fjárfrek fyrirtæki eru á hverju strái. Vogfin, 23. septcmiber — 22. oktúber. Athugaðu samböndin vel, eða illa getur farið. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvembev. Treystu varlega upplýsingum, sem þú færð frá fyrstu hendi. Bogfmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Nákvæmar áætlanir á félagslífinu kunna að leiða þig út á ýmsar brautir. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Þú ert svo viðkvæmur fyrir gerðum annarra. Reyndu að sýna sainstarfsmönnum þínum skilning. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Frestaðu opinberum gerðum um sinn. Hugarflug þitt kcmur þér á athyglisverðar brautir. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Reyndu að axla byrðar þær, sem biða þín núna, áður en þú færist meira í fang. NÝ TEGUND AF BOTNUM haffi LAUGAVEG 178

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.