Morgunblaðið - 27.02.1971, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1971
5
Aldrei meira af bókum
Hér gefum við almenningi kost
á að sjá þær bækur, sem ekki
sjást á öðrum tima, sagði Jónas
Eggertsson, bóksali.
að líta á það sem á boðstói-
um er. Er þetta 11. bókamark
aðurinn sem Bóksalafélagið
gengst fyrir og sá langstærsti,
sem haldinn hefur verið fram
til þessa. Alls er þarna að
finna yfir 3000 bókatitla og
hefur bókunum verið komið
fyrir á borðum, sem eru yfir
140 metrar að lengd samtals.
Forstöðumenn markaðsins
eru eins og áður Jónas Egg-
ertsson og Lárus Blöndal bók-
salar. Aðspurður sagði Jónas
að strax og markaðurinn var
opnaður á fimmtudagsmorgun
inn hefði fóik komið til þess
að verzla og síðan hefði að-
sókn stöðugt farið vaxandi og
virtist, sem fólk hefði ekki lát
ið ausandi rigninguna fyrsta
daginn, né vegalengdina hafa
áhiif á sig.
— Við vorum örlítið hraedd
ir við að setja markaðinn upp
í þessu húsnæði þar sem þetta
er nokkuð útúr, en svo virð
ist sem fjarlægðin skipti engu
máli ef áhugi fyrir bókum er
fyrir hendi á annað borð. Sal
urinn í Silla & Valda-húsinu
er mjög hentugur fyrir okkur
og hér er um 30—40% stærra
borðpláss heldur en við höfð
um í Iðnskólanum og veitir
ekki af, því okkur hefur aldrei
borizt jafn mikið af bókum
frá hinum ýmsu útgefendum
eins og i ár. Síðan sagði Jón
as að höfuðtilgangurinn með
markaðinum væri sá að gefa
almenningi tækifæri til þess
Rætt við fólk á stærsta bókamarkaðnum sem
haldinn hefur verið hér
ÞAÐ var margt um manninn
á bókamarkaðnum í Silla &
Valda-húsinu í Álfheimum,
þegar blaðamenn Morgunblaðs
ins litu þar inn og virtust
menn ekki láta það aftra sér,
þótt langt væri að fara, til þess
að sjá á einum stað þær bæk
ur, sem ekki sjást á öðrum
tíma, þ.e.as. bækur sem orðið
hafa að víkja úr hillum bóka
búðanna fyrir þeim bókum,
sem síðast hafa verið gefnar
út. Sagði Jónas að elztu bæk-
urnar á markaðinum væru frá
árinu 1869, en þær yngstu
væru yfirleitt 3 ára gamlar,
nema nokkrar yngri bækur,
sem væru í bókaflokkum, sem
seldir eru i heild með afborg
unum.
Að lokum sagði Jónas Egg
ertsson að mjög mikið væri
hringt til þeirra og spurt um
einstakar bækur og bókalista,
sem þvi miður væru ekki til
þar sem bækurnar væru að
berast til þeirra alveg fram á
síðustu stundu og því enginn
tími til þess að gera bókalista
yfir þær bækur sem eru á
boðstólum á markaðnum.
skóla Garðahrepps, þar sem
hann var að skoða barnabæk-
ur. Sagðist Vilbergur vera að
velja bækur fyrir lesstofu
skólans.
— Það þarf að endurnýja
bókakost lesstofunnar á hverju
ári og það geri ég oft hér ef
ég kemst í eitthvað feitt, sagði
Vilbergur. — Börnin lesa
geysilega mikið og t.d. voru
lánuð út 13000 bindi á sl. ári.
Að lokum sagði Vilbergur
að sér virtist vera- mjög mikið
það sama á þessum bókamark
aði og verið hefur undanfar-
in ár, en þó mætti alltaf finna
einstaka bækur, sem ekki
hefðu sézt þar áður.
„LEITUM AÐ BÖKUM
UM TÓNHST“
Tvær 15 ára blómarósir úr
Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
þær Elísabet Zimsen og Guð-
rún Einarsdóttir, höfðu aðal-
lega komið á bókamarkaðinn
Þeir keyptu sér „Kverið“ á 11 krónur
■■
Frá bókamarkaðnum í Álfheimum
til þess að kaupa sér bækur
um tónlist og nótnabækur, en
þær eru báðar í tónlistarskóla
í vetur.
—Við höfum lítið fundið af
þess háttar bókum, en þó hef
ég fundið Ævisögu Beethov-
ens, sagði Guðrún, og hana
ætla ég að kaupa.
Þegar við töluðum við þær
Elísabetu og Guðrúnu voru
þær að skoða barnabækur,
sem þær sögðust ætla að gefa
yngi'i systkynum sínum.
,,„KVERIГ Á 11 KRÓNUR“
Við enda eins borðsins voru
ungir menn að grúska í ljóða
bókum. Voru það þeir Árni
Hjartarson og Þórólfur Haf-
stað, báðir háskólastúdentar.
Var Árni búinn að ákveða að
kaupa „Svartar fjaðrir“ eftir
Davíð Stefánsson, og þar að
auki Smásögur eftir Halldór
Laxness, en Þórólfur hafði
hins vegar ákveðið að kaupa
bókina Síðasta blómið og Kver
til fermingarundirbúnings ung
menna, útgefið árið 1936, en
Kverið kostar aðeins 11 krón-
ur á bókamarkaðnum. Sagði
Þórólfur að fljótt á litið virt
ist sér innihald Kversins hafa
Vilbergur Júlíusson,
skólastjóri
„ENDURNÝJA BÓKAKOST
LESSTOFU SKÓLANS HÉR“
Við hittum að máli Vilberg
Júlíusson skólastjóra Barna-
breytzt lítið frá 1936 og þar
til hann las það fyrir fáum
árum.
Þeir félagarnir sögðust ekki
Framh. á bls. 23
SÍLD @ FISKUR
Það er yðar hagur
Biðjið því kaupmann yðar
aðeins um ALI BACON.
Dagskráin fkvöld
15.30 En francais
16.00 Endurtekið efni
15.50 Sigurður Björnsson
17.30 Enska knattspyrnan
18,20 íþróttaþáttur
19.40 Hlé
20,00 Fréttir
20,25 Veður og auglýsingar
20,30 Smart spæjari
20.55 Skautahátíð í Inzell
22,00 Hold og blóð
23,35 Dagskrárlok.
KÁPAN
er flutt að Laugavegi 66-68
Urval af enskum og hollenzkum kápum
tekið upp á morgun
KAPAN
Laugavegi 66-68
Sími 14278.
PHIUPS
Skýrari mynd — stærri mynd—
flötur — aðeins 5000 kr. útborgun
M unið að þegar þér ætiið að kaupa
fyrsta sjónvarpstækið, eða það
næsta, að „PHILIPS KANNTÖKIN
Á TÆKNINNI“
L
HEIMILISTÆKI
HAFNARSTRÆTI 3. SIMI 20455
SÆTÚN 8. SÍMI 24000.
v