Morgunblaðið - 27.02.1971, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.02.1971, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐQÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1971 23 Stefán Þorsteinsson meS ýmis- legt léttblandað í pakka — Bóka- markaður Framhald af bls. 5 ætla að gera meiri bókakaup að sinni, þar sem tími til bóka lesturs væri naumur með skólanáminu. — Okkur finnst nefnilega heldur niðurlægjandi að verða að segja þeim sem kynni að spyrja okkur hvernig ákveðin bók væri, sem stæði í bóka- hillunni okkar, að við hefðum því miður ekki lesið hana og gætum því ekki um gæði henn ar dæmt. Þá er nú betra að eiga bókina alls ekki og bíða með bókakaupin þar til tím- inn til lestrar verður orðinn meiri og þá um leið peninga- ráðin. Og það kemur bóka- markaður eftir þennan bóka- markað. „ÝMISLEGT LÉTT- BLANDAГ Næst hittum við að máli Stefán Þorsteinsson, lögreglu- þjón, þar sem hann var að láta pakka inn stórum stafla af bókum, sem hann var bú- inn að velja sér. Sagði Stefán að hann hefði valið sér ýmislegtt léttblandað í þetta skiptið, og kostaði bókastaflinn sem hann var með aðeins rúmar 1000 krón ur, sem kalla má vel sloppið. Meðal bókanna sem Stefán keypti sér var lagasafn frá ár inu 1945 og sagði hann að hann væri nýlega byrjaður á því að lesa lög og hefði hann gaman af. „VORU MEÐ 700 KRÓNUR UPP Á VASANN TIL BÓKA- KAUPA" Helga Björg Björnsdóttir og Hallfríður Karlsdóttir, báðar 12 ára gamlar höfðu þegar val ið sér nokkrar bækur þegar við tókum þær tali. Sögðust þær eiga heima skammt frá bókamarkaðnum og því væri auðvelt fyrir þær að skreppa og skoða bækurnar. Annars höfðu þær samtals 700 krón- ur upp á vasann, sem þær máttu kaupa fyrir og ættu þær að geta fengið þó nokkr ar barnaskáldsögur fyrir þá upphæð, en það voru bók- menntirnar sem þær sögðust mest sækjast eftir. — Fjárskortur Framh. af bls. 22 andstæðum upplýsingum til blaðanna.“ ÓNÆMI GAGNVART AUG- LÝSINGUM OG HEILA- ÞVOTTI Alls óskylt efni undir fyrir sögninni „Magn eða gæði“ er rætt í sama hefti af Martin Esslin, sem er forstöðumaður leiklistardeildar BBC (brezka' riíkisútvarpsins). Hann segir að sjálft magn sjónvarpsdag- skráráinnar hafi tilhneigingu til að slæva hæfni áhorfenda til að greina á milli raun- verulegra og upploginna við- burða. Þar sem sjónvarpið er fyrst og fremst og nálega eingöngu afþreyingar- og af- slöppuinartæki, gætiir mjög tilhneigingar til að dæma öll dagskráratriði eftir skemmti gildi þeirra. Afleiðingin verður sú, að raunverulegur dauði her- manna í Víetnam verður ým- ist meira eða minna hríf- andi en leikinn dauði her- manna í stríðsmynd, og stjórnmálamennirnir eru dæmdir eftir því hvort þeir voru skemmtilegri eða leið inlegri en leikarinn í grín myndinni. Esslin er mjög gagnrýniinn á sjónvarpið fyrir „gervidag skrá“ þess og uppfyllingar- efni, en þrátt fyrir gagnrýni sína elur hann í brjósti mikl- ar vonir um þennan fjöl- miðil, sem hann telur vera — eða réttara sagt geta oorð ið miðil fyriir alþýðulist sam tímans. Esslin er alls ekki kvíðinn fyrir því, að sjónvarpið fjöldasefji áhorfendur. Magn sjónvarpsefnisins hindrar það, segir hann. Sjónvarps- auglýsingar gera áhorfendur ónæma þegar til lengdar læt ur, og sama mun eiga sér stað í sambandi við pólitísk an áróður í sjónvarpi, segir Esslin. (Frá S.Þ.) - Hornafjarðar- reisa Framh. af bls. 14 allt gengur samkvæmt áætl- un, vonumst við til að hægt verði að taka nýju frysti geymslurnar í notkun 1972 og siðán allt húsið 1973—’74, en þá verður gamla húsinu breytt fyrir landbúnaðarvörur og annað slikt. Það hús var býggt í áföngum á árunum 1946—’'58. — Hver eru afköst nýja hússins áætluð ? — Við gerum ráð fyrir að afköstin muni tvöfaldast frá því sem nú er og að frysti- geymslur taki um 1500 lest- ir. Á sl. ári framleiddi frysti- húsið um 65 þúsund kassa að verðmæti um 120 milljónir. Auk þess voru framleidd um 1100 lestir af fullstöðnum salt fiski, 5000 tunnur af saltsíld og bræðslan vann úr 10500 lestum af loðnu, þannig að heildarútflutningsverðmæti sjávarafurða frá Höfn nam um 240 milljónum króna, sem hlýtur að teljast gott í 900 manna þorpi. SAMSTAÐA OG DUGNAÐUR — Hverju þakkarðu þenn an mikla uppgang í þorpinu? — Það er auðvitað fyrst og fremst góðum afla að þakka og miklum dugnaði íbúanna hér. Sjómenn vilja eiga sin eigin skip hér og útgerðin er vel rekin. Hér er einnig mik- il samstaða meðal íbúanna og t.d. má nefna að allt sparl- fé er geymt heima fyrir í inn- lánsdeild Kaupfélagsins. 1 sumar opnar svo Landsbanki íslands útibú hér og yfirtek- ur þá innlánsdeildina og bind um við miklar vonir við það að fá hingað bankaútibú, sem veitir alla þjónustu. Það sem auðvitað er mikilvægast, er að atvinna er stöðug allt ár- ið og yfirleitt skortur á fólki hluta úr árinu og þvi verða hinir að leggja meira á sig, sem er erfitt. — Hvað er annað á döf- inni hjá Kaupfélaginu? — Við höfum nú nóg með frystihúsið næstu árin, en þess má geta, að við erum að ljúka við smíði 1500 fer- metra veiðarfærageymslu, þar sem bátarnir fá aðstöðu. Einn ig er í undirbúningi bygging nýs mjólkursaimlags, þvi að hið gamla var byggt árið 1902 og er orðið alltof lítið. Verið er að teikna nýja húsið og athuga með útvegun fjár- magns. — Er ekki starf kaupfélags stjóra erfitt? — Það er mikið starf, en ég hef gott starfsfólk, sem léttir mikið á. — Hver var heildarvelta Kaupfélagsins á sl. ári? — Hún var um 400 milljón- ir. Við greiðum nú vinnulaun til 200—300 manns á viku og á sl. ári námu launagreiðslur um 48 milljónum og auk þess greiddi verksmiðjan rúmar 9 milljónir í laun. — ihj. — Listin Framhald af bls. 13 tvítugur að aldri hefur líf mitt algerlega byggzt á þeim pening- um, sem ég hef getað skrapað saman með því að raða orðum saman; það hefur oltið á ýmsu, en ég vona samt að þvý verði aldrei á annan veg farið. Ég kýs því að líta á verðlaunin sem traustsyfirlýsingu — ekki aðeins á þær bækur sem ég hef skrif- að, heldur ef til vill einnig á þær sem ég á eftir að skrifa. Ef svo er, held ég að ég geti lofað yður að þér verðið ekki fyrir vonbrigðum, og með þessu heiti þakka ég fyrir mig.“ — Vegagerð Framh. af bls. 10 haflega var gert samkomulag milli Kópavogsbæjar og rikis- stjómarinnar árið 1965, um að tekjur Kópavogs af þéttbýlis- fé rynnu óskertar til framkvæmdanna til ársloka 1973, en síðan yrði kostnaður við verkið greiddur af svo- kölluðum 10% sjóði. Nú hefur vérkið aldrei farið fram úr áætl un á hverjum tima, en vegna gjörbreytts verðlags, þá hafa all ar áætlanir hrunið og verður Kópavogsb. að verja öllum tekj um sínum af þéttbýlisfé næstu 15-20 árin til þess að endar nái saman. Hér er um mikið sann- girnismál af hálfu Kópavogs að ræða og skora verður á Alþingi að taka málið upp að nýju og gera á bót. Umferð um Hafnar fjarðarveginn i framtiðinni er ekki sérmál okkar Kópavogs- búa og telja verður að rikis- valdið hafi með samningum um Elliðaárbrúna og greiðslu kostn aðar hennar markað stefnuna í þessum efnum. Telja verður eðll legt miðað við aðstæður, að þétt býlisfé Kópavogs verði laust ár- ið 1973. Að mörgu leyti fannst mér ekki ósvipuð aðstaða með Keflavíkurveginn og hafa við- horfin þar einnig mjög breytzt. Það má lengi deila um vega- tollinn og vil ég leiða þær um- ræður fram hjá mér, þar sem mér finnast þær ekki lengur skipta máli, en aftur á móti er það fullljóst, að vegatollur þessi hefur staðið nú um 8 ára skeið, án þess annars staðar hafi kom- ið til slíkrar skattlagningar. Vegamálastjóri hefur látið í ljós að það muni vera fyrirhugað að afnema tollinn þegar varan- leg vegagerð verði komin á við Selfoss. Hér finnst mér vera um mjög vafasama ráðstöfun að ræða og aðeins ibúar eins landshluta greiða þvi fyrrnefndan toll. Það er eðlilegast að frá og með síð- ustu áramótum renni þessi tollur óskertur til vegafram- kvæmda á Reykjanesi, án þess að skerða á nokkurn hátt fjár- veitingar á vegalögum. Öll get- um við verið sammála um það að varanleg vegagerð til sjávar- plássanna á Reykjanesi er mikið nauðsynjamál, hvort sem hafður er í huga gjaldeyrir eða hrein- lætisástseður, og snertir málið I alla landsmenn. Þakka innilega sýnda vináittu á 80 ára afmæli miínu, 13. febrúar sl. Guðriín Steingrímsdóttir, Nýlendu. Innilegustu kveðjur og þakk- ir til allra, sem minntust mín og glöddu mig með góðum gjöfurn, blómurn, sikeytum og ljóðurn á 60 ára afmæli mínu, 17. febrúar sl. Lifið heil. Karl Elíasson, Hafnarfirði. Hjartanlegar þakkir færi ég börnum minum, tengdabörn- um og vinum fyrir góðar gjafir, heimsöknir, blóm og hlýjar kveðjur á 80 ára af- mælisdegi minum þann 20. febrúar. Guð blessi ykfcur öl!l. Giiðinundur Markússon. — Bókmenntir Framh. af bls. 13 yrkir þannig ljóð, „gangi aldrei í björg svartálfa tilverunnar,“ og þó að brotlöm sé allvíða sjáanleg á ljóðunum og sumt ekki sagt af þeirri hnitmiðun í orðalagi og líkingum, sem svari til auðsærrar einlægni höfund- ar i tjáningu hugsana og til- finninga, þykir mér ekki ólík- legt að þarna fari skáld, sem eigi eftir að láta sitthvað það frá sér fara sem jafnvaranlegt megi verða í íslenzkri ljóðlist og sætleiki sársaukans í mannlegu lífi allt frá vöggu til grafar. Guðm. Gíslason Hagalín. Hjartans þakkir til barna okkar, tengdabarn og barnabarna, ættingja og vina sem glöddu okkur með heimsóknum, heilla- skeytum og góðum gjöfum á 70 ára afmælisdegi okkar 12/2 og 21/2. — Guð blessi ykkur öll. Sesselja Smonardóttir og Sigurður Grímsson, Selfossi. Raðhús til sölu Til sölu er raðhús við Sólheima. í húsinu eru. m. a. fjögur svefnherbergi, stofa, borðstofa, húsbóndaherbergi og bílskúr. THEODÓR S. GEORGSSON HDL., Sólheimum 43 — Sími 38841. Góð 3ja herbergja íbúð til sölu í Árbæjarhverfi. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. KAUPENDAÞJÓISIUSTAN — FASTEIGNAKAUP Þingholtsstræti 15, sími 10220. Siglingaklúbburinn Siglunes Reykjavíkurdeildir Fundur verður í Tónabæ í dag laugardaginn 27. febrúar kl. 2 e.h. Æskulýðsráð Reykjavíkur. Verzlunarskólanemar 1969 Verzlunarskólanemar útskrifaðir 1969 mætið öll í Leifsbúð, Hótel Loftleiðum í kvöld kl. 7. NEFNDIN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.