Morgunblaðið - 27.02.1971, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.02.1971, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1971 Jlfo^0Wlt(IftfrU)r Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavlk. Framkvæmdastjóri Haraidur Sveinsson. Rilstjórar Matthías Johannessen. Hyjólfur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfuiltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsia Aðalstræti 6, sími 10-100 Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjaid 196,00 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 12,00 kr. eintakið. YFIRLÝSING BANDARÍKJAFORSETA Tslendingar hljóta að harma -*■ þá yfirlýsingu Nixons Bandaríkjaforseta, sem fram kemur í greinargerð hans til þjóðþingsins um utanríkis- mál, að Bandaríkin voni, að allar þjóðir fallist á 12 mílna landhelgi og að Bandaríkin muni styðja slíka tilhögun. I greinargerð þessari telur Bandaríkjaforseti, að á hinni fyrirhuguðu ráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna á árinu 1973 verði eitt helzta málið að gera alþjóðasamþykkt um 12 mílna landhelgi. Þessi stefna Bandaríkja- stjórnar gengur beint gegn hagsmunum íslands í þessu máli og hlýtur því að valda verulegum áhyggjum hér á landi. í fregnum, sem borizt hafa af greinargerð forset- ans kemur ekki fram, að fyr- irvari hafi verið gerður varð- andi þessa yfirlýsingu, annar en sá, að forsetinn telji að gera beri alþjóðasáttmála, sem tryggi vanþróuðum ríkj- um hagsmuni þeirra í sam- bandi við nýtingu auðlinda þess. Væntanlega nær þessi fyrirvari ekki til íslands enda ísland ekki vanþróað land. í málflutningi sínum á al- þjóðavettvangi hafa íslend- ingar lagt áherzlu á sérstöðu þjóða, sem eiga alveg sér- stakra hagsmuna að gæta í sambandi við auðlindir hafs- ins. Þannig er um okkur ís- lendinga. Afkoma okkar byggist á fiskveiðunum og verndun fiskistofnanna í haf- inu kringum ísland. Takist ekki að vernda þá er grund- völlurinn horfinn fyrir því þjóðfélagi, sem hér hefur verið byggt upp. Þetta er staðreynd, sem stórveld á borð við Bandaríkin verður að gera sér grein fyrir og skilja. Þess vegna vænta ís- lendingar þess, að stórveldin bæði, Bandaríkin og Sovét- ríkin, muni skilja sérstöðu ís- lands og styðja rétt þjóða, sem þannig er ástatt um. Al- þjóðasamþykkt um 12 mílna fiskveiðilögsögu er andvíg hagsmunum íslands, og ís- lendingar munu berjast gegn henni af öllum rnsetti og leggja áherzlu á, að sérstaða þeirra verði viðurkennd. Kvikasilfur í fiski orsteinn Gíslason, forstjóri Coldwater Seafood, dótt- urfyrirtækis SH í Bandaríkj- unum, hefur vakið athygli á nýju vandamáli á íiskmark- aðnum í Bandaríkjunum í grein í Morgunblaðinu, en það er ótti neytenda við kvikasilfursmagn í fiski. í grein þassari rifjar Þorsteinn Gíslason upp rannsókn, sem fram fór á kvikasilfursmagni í túnfiski og segir, að umræð- ur um það mál á opinberum vettvangi í Bandaríkjunum hafi að sumra áliti minnkað fiskneyzlu Bandaríkjamanna um 30%. Þetta er auðvitað stóralvarlegt mál. Þorsteinn Gíslason leggur áherzlu á það í grein sinni, að mælingar á íslenzkum fiski sýni, að kvikasilfurs- magn í honum sé langt undir lágmarki. Um þetta segir hann: „Mælingar á fiski frá íslandi sýndu að hann inni- heldur misjafnlega mikið kvikasilfur, en ekki er ljóst, að það fari eftir tegundum eða veiðistöðum. Það er talið, að stærri fiskar hafi meira innihald en litlir, vegna þess, að þeir hafa verið útsettir fyrir mengun lengur. Einnig telja surnir, að ýsa hafi meira kvikasilfursinnihald en þorsk ur, sem kann að stafa af mis- munandi ætisvenjum, ef það er rétt yfirleitt. Mælingar okkar taka ekki af vafa um þetta enn, því að þær sýna bæði há og lág gildi fyrir ýsu, þó að allar niðurstöður séu undir lágmarkinu.“ Þá ræðir Þorsteinn Gísla- son í grein sinni um það hvernig bregðast skuli við þessari nýju hættu og segir m.a.: „í rökræðum um kvika- silfurshættuna og gildi þess að takmarka hámarksinni- hald í neyzlufiski, þá er ef til vill engin staðreynd eins slá- andi og sú, að íslendingar hafa um áraraðir neytt 17 sinnum meiri fisks en Banda- ríkjamenn og þrátt fyrir það hefur ekki borið á skaðlegum áhrifum,' sem vitað er um. Slíkar niðurstöður eru ávallt markverðari en útreiknaðar niðurstöður og duga til þess að ógilda fræðilegar ágizkan- ir. Við sem fiskseljendur gætum ekki haft betri vörn gegn ómaklegum árásum um óhollustu, en góður málstað- ur er ekki ævinlega nægileg- ur til þess að hefja sterka vöm, eins og drepið var á hér að framan.“ Rétt er að taka fram, að til þessa hefur óttinn við kvikasilfursinnihald í fiski fyrst og frernst komið niður á sverðfiski og túnfiski. Hins vegar er beinlínis skortur á íslenzkum fiski á markaðn- um vestan hafs. En nauðsyn- legt er fyrir okkur að vera vel á verðd og verjast meng- unarhættu á fiski með öllum ráðum. ERLEND TÍÐINDll Olíudeila Alsírs og Frakklands Olíudeiilan, sem hefur leitt til þeirrar ákvörðunar Alsírsstjómar að þjóðnýta frönsk olíufélög, sem starfrækt eru í landinu, oliuleiðslur og jarðgassvæði í Sahara, hefur ekki aðeins valdið alvar- iegustu misklíð í sambúð landanna síð- an Alsír hlaut sjálfstæði 1962. Deilan hefur stefnt í hættu tilraunum Pompi- dous forseta til þess að efla itök Frakka við Miðjarðarhaf og í Arabalöndum. Á þetta hefur Pompidou lagt jafnvel meiri áherzlu en de Gauile gerði á sínum tíma eins og salan á Mirage-þotunum til Llbýu sýndi, og áhrif Frakka i Alsír hafa verið hornsteinn þessarar við- leitni. En allar tilraunir til þess að komast að samkomulagi hafa verið unn- ar fyrir gíg; tilslakanir hafa orðið til þess eins að vekja reiði heima fyrir í Frakklandi þar sem kröfur Alsirstjórn- ar hafa verið táldar óaðgengilegar; Pompidou hefur oftar en einu sinni sagt að lengra verði ekki gengið í samkomu- lagsátt, og hann hefur varað við því, að afstaða Alsirstjórnar geti leitt til þess að stjórnmálasambandi landanna verði slitið. Ákvörðun alsírsku stjórnarinnar kem ur ekki á óvart eftir að hún stöðvaði olíu fiutninga til Frakklands. „Við viljum ekki, að erlendir hagsmunir verði fram- ar allsráðandi í landinu. Við viljum ekki, að áfram sé litið á Alsír sem efna- hagslegt leppríki Frakklands," hefur a.sírski iðnaðarmálaráðherrann, Belaid Abdessalam, sagt i blaðaviðtali. Sam- kvæmt samningi, sem var gerður fyrir fimm árum, skyldu Frakkar fá olíu frá Sahara á verði, sem var talsvert undir heimsmarkaðsverði. Viðræður hófust á árinu 1969 um endurskoðun á gjöldium frönsku olíufélaganna, sem stunda oliu- vinnslu í Sahara, Compagnie Francaise de Petrole, CFP, og Erap. Franska rík- ið á 30% hlutabréfa i CFP, en Erap er ríkisfyrirtæki, og þau framleiddu í sam- einingu allt að 70% þeirrar olíu, sem framleidd var í Alsír árið 1969, en þá nam olíuframleiðslan 44 milljónum lesta. Frakkar neituðu að fallast á meira en 15% hækkun, viðræðurnar fóru út um þúfur, og í júlí í fyrra hækk aði alsirska stjórnin gjöldin einhliða um 80%, enda hafði markaðsverðið hækkað næstum því um helming á ár- inu. Pompidou tók málið i sinar hend- ur, varaði alsírska sendiherrann við því að samvinnu Frakklands og Alsírs hefði verið stofnað i hættu með broti á samningum, en kom til móts við alsirsku stjórnina með þvl að fallast á að greiða hærra verð en markaðsverð og þar að auki 52 milljónir dollara í aukagreiðsl- ur sem skatta frá liðnum árum. Alsir- stjórn hélt þvi fram, að hagnaður CFP og Erap af olíunni í Sahara á undan- förnum fimm árum næmi 530 milljónum punda (félögin segjast aðeins hafa hagn azt um 100 milljónir punda auk þess sem franska stjórnin hafi lagt fram 30 milljónir punda árlega til iðnvæðingar ■ Alsír), hafnaði tilboði Pompidous og krafðist þess, að franska stjórnin af- henti henni þegar í stað yfirráð yfir öllum olíumannvirkjum í Alsír. Houari Boumedienne Alsírforseti hef ur á undanf. árum beitt sér fyrir því að koma til leiðar innanlandsumbótum og hugsað minna um að gegna forystu- hlutverki í Arabaheiminum. Hann hef- ur af ýmsum verið sakaður um að fylgja harðsvíraðri kaupsýslustefnu og segja skilið við byltingarhugsjónir. Efnahags leg fremur en pólitísk sjónarmið hafa láðið í samningum við erlend fyrirtæki. Tækniaðstoð Rússa hefur valdið von- brigðum, en þeir sjá hemum fyrir mest öllum þungavopnum sínum, rússneskir ráðunautar starfa í hernum og þeir rijóta vissra forréttinda við leit að málm um í jörðu. Sifellt fleiri bandarískir sérfræðingar starfa í alsirskum olíuiðn aði, og í Algeirsborg úir og grúir af bandarískum kaupsýslumönnum. Yfir standa viðræður við bandariskt fyrir- tæki um sölu á fljótandi jarðgasi fyrir 19 milljarða dollara, og ýmislegt þykir benda til þess að Bandarikin muni áður en langt um líði fá mest allar jarðgas- birgðir sinar frá Alsír. Stefna Boumediennes er einnkenni- legt sambland af kreddum og hagsýni. Hann leggur áherzlu á að „alsírskur sósíalismi" verði að grundvallast í mú- hameðstrú og hefur með lagasetningum stuðlað að varðveizlu múhameðskra siða, en leyfir áfengisframleiðslu vegna offramleiðslu á víni. Hann hefur verið einn heiiftræknasti andstæðingur ísra- elsmanna og traustasti stuðningsmaður Palestínu-skæruliða (sem hann telur eiga eins mikla sigurvon og alsírskir skæruliðar á sínum tíma), en hefur kallað heim alsírskar hersveitir frá Súez-skurði af sparnaðarástæðum. Hann hefur ákveðið að hætta öllum kostnað- arsömum erlendum skuldbindingum og verja öllu fáanlegu fé til efnahagsþró- unar; dregið hefur verið úr framlögum til hersins í þessu skyni og reynt að koma því til leiðar, að hann verði ekki eins háður Rússum og hann hefur ver- ið til þessa. Lausn á landamæraþrætu hefur leitt til þess, að endir hefur ver- ið bundinn á hugsjónaágreining við Túnisstjórn. Fyrirætlunum um þátttöku í efnahagsbandalagi með Túnis og Mar- okkó (Maghreb) hefur verið frestað, þar sem hún er ekki talin borga sig af því Alsír stendur hinum löndunum að baki í iðnvæðingu. Boumedienne hefur að mestu tekið stjórn uitatnríkisimálanwa í 'Siíinar hend’ur; stefna alsírsku stjórnarinnar hefur mót azt sífellt meir af persónulegum viðhorf- um hans síðan byltingartilraun fyrr- verandi samherja Ben Bella var brotin á bak aftur 1967, og dregið hefur úr áhrifum Bouteflika utanríkisráðh., sem beitti sér fyrir eindreginni vinstriistefmu í utanrikismálum. Valdastaða hans virðist trygg: stjórnmálastarfsemi er lömuð, jafnvel innan stjórnarflokksins FLN; helzti andstæðingur stjórnarinnar, Bel- kacem Krim, hefur nýlega verið myrtur og hvergi hefur borið á andstöðu gegn stjórninni, jafnvel ekki í Kabýlahéruð- unum, þar sem Krim stjórnaði barátt- unni gegn Frökkum á sínum tíma. Olíudeilan hefur stefnt í hættu mikils verðri aðstoð Frakka við framkvæmd fjögurra ára áætlunar, sem gerir ráð fyrir 9% hagvexti á ári (en fólksfjölg- un er áætluð 3,2% á ári), aukningu tekna á mann úr 220 í 282 dollara á ári (það er sömu tekjur og áður en land ið hlaut sjálfstæði) og aukningu á olíu- framleiðslu úr 46 milljónum í 60 milljón ir lesta. Samkvæmt áætluninni er 45% fjármagnsins varið til iðnaðar en aðeins 15% til landbúnaðar. Framfara er ekki vænzt í landbúnaði; þar er skortur á sérmenntuðum mönnum og vegna skorts á atvinnu hefur ekki verið lögð áherzla á vélvæðingu, Alvar- legum erfiðleikum veldur að fæða og klæða fimm milljón smábændur, sem hafa stopula atvinnu meðan að því er stefnt að koma til leiðar iðnvæðingu, og ástandið getur orðið slæmt ef fjár- veitingar til iðnaðarmála leiða til þess að ekki verði kleift að flytja inn næg matvæli. Bann við miklum fjár- magnsflutningum, sem Frakkar geta hugsanlega gripið til, mundi svipta Bo- umedienne mikilsverðum gjaldeyristekj um, þar sem í Frakklandi starfa 680.000 alsírskir verkamenn, sem senda heim fé að upphæð 75 milljónir punda á ári (og sjá þannig farborða fjórðungi þeirra rúmlega 12 milljóna Alsírsbúa sem kyrr ir eru heima). En olíudeilan hefur ekki hindrað, að Alsirstjórn hefur gert samn inga við fyrirtækin Renault og Perliers er hljóða upp á 100 milliljótnir punda um smíði á nýjum bifreiðaverk- smiðjum, og þörf á frönskum kennurum og tækniráðunautum er knýjandi. Þótt olíiuviðræðurnar hafi farið út urn þúfur, vilja Frákkar ekki hætta hlutverki, sem þeir hafa hingað til gegnt í Alsír, og óvíst er að Alsírbúar geti komizt af án aðstoðar þeirra. G.H.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.