Morgunblaðið - 27.02.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.02.1971, Blaðsíða 28
28 MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1971 mm BLÓÐ- TURNINN . . 24 . . það ómak, hr. Woodspring, svar aði Appleyard vingjarnlega. — Við ætlum ekkert að standa við. Það var eins og bóksalanum létti. — Þá ætla ég ekki að neyða ykkur. En kökubita kannski. . . Hann benti á heldur óaðgengi lega köku, sem stóð hjá tekönn unni. — Þið viljið það ekki? Og reykið þið bara. Þvi miður get ég ekki boðið ykkur sígarettu, en sjálfsagt hefur hann Horace þær. Ég ætla að fara fram og spyrja hann. Appleyard hélt aftur af Wood spring, sem varð sýnilega feg- inn og hné aftur niður í stól- inn sinn. — Gerið yður ekkert ómak okkar vegna, sagði Apple yard. — Við erum hér komnir til að tala um Caleb Clapthome. — Við mig? sagði bóksalinn. — En ég þekkti Caleb ekki nema sáralitið og ég býst ekki við, að ég hafi talað orð við hann, vikum saman. Appleyard brosti. — En þér þekkið jiú samt fjölskylduna vel, sagði hann. — Er það til dæmis ekki rétt, að Homing bryti hafi komið til yðar síðdeg is á laugardaginn var, í trúnað- arerindi? Woodspring tók upp gleraug- un, sem lágu hjá bollanum hans og kom þeim fyrir á nefinu. Síðan leit hann á Appleyard, rétt eins og til þess að komast að því, hve mikið hann vissi. — Og hvað um það? sagði hann loksins. Brosið á Appleyard breikikaði. — Þama komst upp um yður, hr. Woodspring, sagði hann. — Við höfum komizt að þvi, að þér hafið öðru hverju látið þá Glapthornefeðga fá peninga, án þess að hafa mikla von um að fá þá endurgreidda. Og þér viður- kennið sjálfsagt, að það er vin- áttumerki i þeirra garð. Bóksalinn hleypti brúnum. — Það var óþarfa lausmælgi af Horning að fara að segja yður þetta, svaraði hann. — Og ég vona að þér hafið ekki hátt um það, fulltrúi. Ef það berst út verð ég fyrir ásókn af öllum blönkum borgurum bæjarins. Og ef ég játa, að mér sé held- ur meinlaust til þeirra Glapth- ornefeðga, þá hvað um það? — Þá sýnir það, að þér eruð rétti maðurinn til að segja okk ur það sem við þurfum að vita. Það er til einskis að láta sem l Þvottaefnið sem allar húsmæður þekkja og meta. C11 Lagfreyóandi fyrir 11 allar þvottavélar. Efnagerðin MJÖLL H.F Reykjavík J) Ilrúturinn, 21. marz — 19. apríl. ÆSUjunugangurinn er lullmikill í dag. Flýttu Þér hægt. Nautið, 20. apríl — 20. mai. Nú fer ögn að birta til og sjálfur ættirðu að líta tilveruna bjart- ari augum. • Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní. Haltu þínu striki eins og ekkert sé, en gættu þó að ofreyna þig ekki. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Ef þú notar tímann vel til að vinna að hugðarefnum þínum geturðu vænzt góðs árangurs. Ljónið, 23. júli — 22. ágúst. Vertu viss um hvað það er sem þú vilt, áður en þú biður um það. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Reyndu ekki alltaf að forðast alla erfiðleika, heldur horfast í augu við þá. Vogin, 23. september — 22. oktooer. Þú verður að líkindum að taka smááhættu í fjármálum í dag. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvembev. Þú verður beðinn að taka að þér verk, scm þér er ekki sérlega ljúft, en ekki skaltu þó færast undan því. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Þú virðist ætla að græða á öllu mögulegf og ómögulegu. Of- metnastu ekki. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Farðu gætilega í þvi að tala trúnaðarmál við ýmsa, sem þú álítur vini þína. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Þér verður launað vel fyrir unnin störf. Metnaður þinn má ekki keyra úr hófi. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Þér hættir til að vera uppnæmur fyrir smámunum. Reyndu að hafa taumhald á skapsmunum. þeir feðgar séu vinsælir þar eð allir vita hið gagnstæða. En þér sem vinur þeirra getið talað án allra fordóma. —Það er nú heldur ómerki- leg vinátta, svaraði Woodspring hógværlega. Ég tel mig alls ekki jafningja eigenda Farning- coteklaustursins. Fyrstu kynni mín af Símoni hófust fyrir ein- um fimm sex árum, en þá var það, fyrir milligöngu ungfrú Blackbrook að ég var beðinn að skrásetja bækurnar í bóka- safninu hans, í þeirri veru að kaupa þær. — Þér hafið auðvitað hitt synina, Caleb og Benjamin, öðru hverju? Getið þér gefið mér nokkra hugmynd um sam- komulagið hjá þeim? Woodspring neri á sér nefið, hugsi. — Þetta er nú erfið spurning að svara, sagði hann. — Þeir voru eins ólíkir og hugs azt gat í öllu tilliti. Kannski hefðu þeir orðið likari, ef Benja mín hefði verið alinn upp heima. En eins og þér sjálfsagt vitið, þá tók John Blackbrook harrn að sér og sama sem ætt- leiddi hann. Og það voru mikil mistök, hef ég alltaf sagt. — Það gaf honum að minnsta kosti möguleika á þvi að vinna fyrir sér sjálfur, en það hefði aldrei orðið, hefði hann alizt upp i Klaustrinu, sagði Apple yard. —Við tveir getum tæpast lit ið þetta sömu augum og land- eigendur, sagði Woodspring alvarlegur. — Það má vel satt vera, að Benjamín vinni fyrir sér. En þér verðið líka að taka tillit til tilfinninga Simonar, nú þegar honum verður hugsað til þess, að erfinginn að Klaustr- inu vinnur fyrir sér sem annar vélstjóri á skipi. — Ég veit nú ekkert um það, sagði Appleyard hvasst. — Ef Benjamin er sama sinnis og fað ir hans, getur hann hætt við sjóinn og komið heim, býst ég við. En það er ekki það, sem við höfum áhuga á, rétt í bili. Hvernig kom honum saman við Caleb bróður sinn? — Ég ætlaði nú að fara að segja ykkur það eftir beztu getu, þegar þér gripuð fram í fyrir mér. Hr. Caleb hefur allt- af átt mína samúð. Hann skoð- aði sjálfan sig og það réttiiega, tiginborinn mann, hátt settan og honum gramdist það alltaf, að þurfa að búa við svona rýrn andi kjör, án eigin tilverknað- ar. Þetta gerði hann þrætugjarn an og erfiðan í umgengni. Ég hef oft verið að hugsa að Sím- on gamli hafi ekki tekið nægi- legt tillit til höfðingjainnrætis hans, og það hafi átt sök á því, að hann þaut stundum upp. Caieb virðist nú hafa tekizt furðanlega að fara vel með þetta höfðingjainnræti sitt, sagði Appleyard. — Ég geri mér alveg ljósa galla Caiebs. Ég veit, að hann var slæmur með að ráðast á fólk, af litlu eða engú tilefni, og ég veit, að hann var vanur að drekka með gömlu barnfóstr unni sinni. En ég tel þetta vera Útstillingamaður Stór vefnaðarvöruverzlun í Reykjavík vill ráða mann eða konu til að annast útstillingar og skreytingar. Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir n.k. þriðjudagskvöld merktar: ..Útstillingar — 6754".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.