Morgunblaðið - 11.03.1971, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR II. MARZ 1971
>
>
RAUDARÁRSTÍG 31,
V______________>
BILALEIGA
UVERFlSGÖrU 103
VW Sendiferðafaifrdð-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW 3manna-Landíover 7manna
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14870.
Bílaleigan
ÞVERHOLTI 15 SÍMI15808 (10937)
LOFTUR HF.
UÓSMYNDASTOFA
■--------• *
vngoirsstræti o«
Pantið tíma f sím* 74772.
0 „Fáiim hundinn heim!“
Frú Guiírún Á. Símonar,
óperusöngkO'na, skrifar:
„Kæri Velvakandi!
„Fáum geirfuglinn heím,
tryggið okkur geirfuglinn
heim“.
Þannig hlidmaði auglýsing í
útvarpinu 28. febrúar síðaat-
liðinn. Stdr grein kom um
geirfuglinn í einu dagblaði
Reykjavíkurborgar.
Við stöndum í mikilli þakk-
lætisskuld við Englendinga.
Þeir hafa varðveitt geirfugl-
inn, sko ekki Iifandi, nei, við
útrýmdum honum sjálf. Nú
viljum víð fá hann heim,
akkúrat eins og flestir fslend-
ingar vflja hafa öll sín dýr
„uppstoppuð“.
Heilbrigðiseftirlitið er svo
nákvæmt hérna, hvergi má
vera skítur, þótt erlendis sé
kvartað yfir kæruleysi og
sóðaskap íslendinga. Við hlust-
um ekki á svona þvætting, —
það er svo óþægilegt — og
ekkert gaman.
Eftir 100 ár mun þessi aug-
lýsing heyrast í útvarpi, jafn-
vel sjónvarpi líka: „Fáum
hundinn heim, tryggið okkur
hundinn heim. Ennþá erum við
í þakkarskuld við Englend-
ínga; þeir ræktuðu upp hið
íslenzka hundakyn, og nú hafa
Engiendingar varðveitt hann
uppstoppaðan í 100 ár!“
Því miður verður núverandi
borgarráð komið hinum meg-
in, eins og hundurinn, og get-
ur ekki orðið þess aðnjótandi
að vera viðstatt þá miklu ham-
ingjustund, þegar „hundur-
inn“ kemur heim!
Gaðrnn Á. Símonar,
Mávahiíð 37.“
0 Tvser lífsreynslusögur
Helga Ólafsdóttir, Ásvalla-
götu 8, skrifar eftirfarandi
vegna tveggja „lífsreynslu-
bréfa“ kvenna, sem birzt hafa
í þessum dálkum:
„12. febrúar 1971.
Gæðum lífsm3 er misjafn-
lega skipt á milli okkar mamn-
anna. í bréfi til Velvakanda
9. febrúar, þar sem S.B. lýsir
því, hve „dásamlega hamingju-
söm“ hún sé, færír eiginmað-
urinn, sem hún neitar að kaila
fyrirvinnu, henni ýsu í pottinn
(á kaupi?), á meðan hún sef-
ur eins og „drottning" í „höll-
inni“ sinni. Mein Guðrúnar
Jakobsen, sem ritar Velvak-
anda daginn eftir, er aftur á
móti það, að hún skyldi hafa
beinbrotið sig eftir að hún
kom með ýsuna heim, en ekki
á Ieiðimni eftir herxni,. því að
hefði hún dottíð á „hálku
ríkisins“, hefði hún sloppið
við að borga sjúkrabíl og
myndatöku.
Laun S.B., sem m.a. eru
fólgin £ boílaleggin gum 7 ára
drengs um líf og dauða,
hrykkju víst skammt hjá G.J.,
sem fær Iaun greidd í pening-
um f yrir hver j a vinnustund
utan heimilisins.
G.J. bauðst reyndar ókeypis
sjúkrahúsvist, eins og öðrum
þegnum þjóðfélagsins, sem
hún gat þó ekki þegið, m.a.
vegna barnanna heima.
Nokkru öðru máli gegnir um
sjúkrapeninga. Þeim er ekki
jafnt skipt á milli þjóðfélags-
þegnanna, heldur fara þeir eft
ir tekjum hvers og eins, þeg-
ar þerr loks fást frá ellefta
degi eftir slys eða veikindi,
svo að hlutur G.J. varð býsna
smár, og nú voru góð ráð dýr.
Eftir árangurslausa umleitan
hjá Sparisjóði alþýðu, krækir
hún sér í víxillán í Lands-
bankanum. G.J., „sem er kom-
in af því alþýðubroti, sem
alltaf hefur gengið upprétt“,
fer ekki fram á meiri „vork-
unnsemi yfirvaldanna“, enda
hafa Sjálfstæðismenn löngum
reynzt snauðum konum vel,
að hennar dómi, og því ekki
um neitt að sakast. En sumum
þætti kannski nærtækara að
tryggj a af komu einstæðra
foreldra með fullkomnari
tryggingalöggjöf en með víxl-
um.
Jafnvel þótt heilsa bili ekki,
eru „lífshamingjukauphækk-
anir“ S.B. varla einhlítar, ef
fyrir heimli þarf að sjá, en
sumum giftum konum virðist
gleymast, að þær geta hvenær
sem er komizt í þá aðstöðu.
Helga Ólafsdóttir."
0 Pakkafrúmas og
stuöaðar kardemommur
Kona, sem skrifar undir
upphafsstöfum sínum, A. G. J.,
skrifar:
„26. febr. 1971.
Kæri velvakandi!
Nú rembist hver sem betur
getur að finna hæft orð ís-
Ienzkt yfir hið margumtalaða
trimm. Úr nógu er að velja, og
sumar tillögurnar alveg gasa-
lega smart. Auðvitað viljum
við öll tala ómengaða íslenzku,
jessör. Lengi lifi Ástkæra Yl-
hýra Málið — sem blessuð
börnin læra við móðurkné.
Já, vel á minnzt, móður-
kné. íslenzkar mæður — að
minnsta kosti á hinu marg-
rómaða „höfuðborgarsvæði“
— senda blessuð bömin út f
Bakarf að kaupa franzbrauð,
kruður, rúnnstykki, tartalett-
ur og vínibrauð með glassúr.
Þær eru auðvitað agalega
nervusar útaf þeim í allri
traffíkinni, en taugamar róast,
ef þær fá sér smók. Á heim-
leiðinni koma krakkamir við
í kjörbúðinni og kaupa spæi-
pulsu, malakoff, sallat, beikon,
remúlaði og pakkafrúmas, svo
að eitthvað sé nefrrt, að
ógleymdu fasi og pulsum, sem
svo eru bornar fram með kart-
öflumús. (Það er eina músin,
sem konur hræðast ekki).
Músina mætti krydda með
„stuðuðum kardemommum“,
en það málblóm er að finana
í einní ágætri kökuuppskrift,
sem ég á, meira að segja á
prenti. Þar er líka uppskrift
af ijúffengum „deser, sem þeg-
ar hann er kaldur, er hvolt
upp í glös á fæti“. Þetta
„hvolt“ er ekki prentvilla,
kökunum er líka „hvolt“ á
fat.
Nú, svo er auðvitað til fínn
matur fýrir fínt fólk, eins og
t.d. mörbrað, fillé, snitsel,
kótilettur og hamborgarhrygg-
ur, (maður hefur heyrt talað
um Atlantshafshrygginn, en
hann er víst ekki ætur), og
ekki má gleyma hinu góm-
sæta Londonlamb. Maturinn er
síðan sprekkaður, grillaður,
ristaður og gratíneraður, nema
blessuð síldin, hún er marín-
eruð. Ekki má gleyma smá-
dóti, eins og pikkles, túmat og
marmilaði. Með þessu er svo
drukkið kók, djús eða gos.
Furðulegt, að engin röpvatns-
verksmiðja skuli heita Hékla,
sú gæti grætt á að auglýsa
Heklu-gos.
Fleira mætti tína til úr okk-
ar fagra móðurmáli, en hér
skal staðar numið að sinini.
Ég ætla bara að bæta því við,
að í dag sá ég auglýst nám-
skeið í kúnstbróterí og rýja.
Það gæti orðið spennandi að
prufa það. Svo ætla ég að fá
mér f helgarmatinn róstbíf
eða tíbónsteik. En fyrst ætla
ég í búðina, sem auglýsir mik-
ið úrval af pósterum. Ég
mundi segja, að það væri hið
eina, sem mig vantar í augna-
blikinu. A. G. J.“.
Langtum minni rafmagns-
eyðsla og betri upphitun
meS
Rnnx
RAFMAGNSÞILOFNUM
Hinir nýju ADAX rafmagns-
þtlofnar gera yður mögulegt
a3 hita hús yðar upp með
rafmagni á ódýran og þaegi-
legan hátt.
t
Jafnari upphitun fáið þér
vegná þess að ADAX ofnamtr
eru með tvöföldum hitastilli
(termostat) er vtrkar á ÖU
stíflingarþrepin. Auk þessa
eru ADAX ofnarnir með sér-
stökum hitastilli er lætur ofn-
inn ganga á lágurrr, jöfnum
hita, sem fyrirbyggir trekk frá
giuggum.
Leitið nánari uppfýsinga um
þessa úrvals norsku ofna.
3 ÁRA ÁBYRGÐ
EINAR FARESTVEIT & CO HF
Bergstaðastræti 10
Símar: 16995 — 21565
VINNA 0G NÁM ERLENDIS?
Ferð/r unga fólksins
Kyrtning á ferðum unga fólksins 1971 og fjölbreyttum sumar-
störfum og tungumálanámi ertendis í Sigtúni í kvöld kl. 21.00
stundvíslega.
Á Mrs. Leena Davíes. framkvæmdastjóri Intemational
Studertt Servtces, ávarpar gesti og svarar fyrirspurnum.
Á Sýnd ferðakvikmyrtd: Ferðir unga fólksins — Útsýnar-
ferðir með sérstökum kjörum.
Á Hljómsveitin ÖRLÖG og HELGA leika fyrir dansí
til klukkan 01.00.
ATH. Ungt fólk og aðstandendur velkomið.
Ókeypis aðgangur (aðeirts rúllugjald).
FERÐASKRIFSTOFAN
ÚTSÝN