Morgunblaðið - 11.03.1971, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 11.03.1971, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÖ, FIMMTUOAGUR 11. MARZ 197]L 11 Helga Tryggvadóttir, Akureyri; Réttur bama fótum troðinn Níutíu prósent úrskurða dóms málaráðuneytisins um barnsmeð- lög eru miðuð við lægstu hugs- anlegu mánaðargreiðslur, eða kr. 1968, það gera 66.20 á dag miðað við 30 daga í mánuði. Hér á eftir skulu rakin ákvæði þeirra laga, sem dómsyf- irvöldum ber að fara eftir, ef óskað er úrskurðar um barns- meðlög. Úr lögum um afstuðu foreldra til óskilgetins l>arns nr. 87/1947, 6. gr. „Nú hefur karlmaður geng izt við faðemi óskilgetins barns, verið dæmdur faðir þess, honum orðið eiðfall eða eiður fallið á hann, og er honum þá, jafnt móður þess (leturbr. Grein- arhöf), skylt að kosta fram- færslu bamsins og uppeldi." Þarna stendur skýrum stöfum að framfærsla eigi að vera jöfn hjá föður og móður, og til þess að reikna út meðlagið verður að miða við þörf barnsins og reikna út framfærsúukostnað þess, miðað við verðlag á hverj- um tíma og eru reknar hér á landi uppeldisstofnanir fyrir böm, vöggustofur, upptökuheim ili, fósturheimili og sumardval- arheimili í sveit. Það ætti að vera unnt að reikna út fram- færslukostnað bams. Náms- menn fá námslán og styrki mið- að við framfærsiukostnað í þvi landi, er þeir stunda nám í. Það tekur verkamanninn u.þ.b. % úr klst. að vinna fyrir lág- marksmeðlagi á dag, en ráðu- neytisstjóra sennilega innan við tíu mínútur. En móðirin? Það er stóra spurningin. Fjögurra barna einstæð móð- ir hefur 149.00 kr. á dag í mæðralaun, sú upphæð nemur rúmlega tveim meðlagsgreiðslum, en þá hefur hún ekkert afgangs til að lifa af sjálf. Fjölskyldu- bætur voru s.l. ár rúmlega 5 þús. kr. á barn, nægjanlegt til að kosta sveitadvöl bams í 3—4 vikur. Ef móðirin vinnur utan heimilis, er þá til stofnun, sem getur séð fyrir öllum þörfum barns fyrir 2X66.20 kr. á sólar- hring? Eða kr. 3.972.00 á mán- uði. Fyrir þremur árum kostaði dvöl eins barns á vöggustofu eða up^tökuheimili í Reykjavík 15 þús. krónur á mánuði (sbr. við- tal við Svein Ragnarsson, félags málastjóra í Mbl. í nóvember 1969). Vinnulaun reiknuðust 75% af heildarkostnaði. Sé miðað við að vinna móður- innar sé 50% af framfærslu- kostnaði bams á að vera hægt að veita barninu húsnæði, fæði, klæði, ljós og hita, sjúkrakostn- að o.stfrv. fyrir 66.20 á dag. Ein venjuleg tékknesk gúmmí stígvél á 9 ára dreng kosta 5 daga meðlagsgreiðslu, svo ekki sé talað um gæmskinnsfóðruð kuldastígvél, slíkur lúxus myndi algerlega kollvarpa hugmjmd um dómsmálaráðuneytisins um framfærslukostnað. Venjulegur svefnbekkur handa stíilpuðu barni kostar 90—100 daga með- lagsgreiðslu. Svona mætti lengi telja. 8. grein uppeldisákvæði: „Valdsmanni í heimilissveit barnsföður, eða þess sem dæmd- ur er meðlagsskyldur, er heim- iit að úrskurða hann til meðlags greiðslu. Við ákvörðun meðlags- upphæðar skal hafa hliðsjón af högum beggja foreldra og miða nieðlagsgreiðsluna vlð hag þess foreldris, sem betur er stætt (ieturbr. greinarhöf)." Urskurðir virðast miðaðir við að einstæðar mæður séu betur stæðar en feður barna þeirra. 2. mgr. 8. gr. „í meðlagsúr- skurði má aldrei ákveða lægri meðlagsgreiðslur en barnalíf- eyri, skv. lögum um almanna- try-ggingar, eins og hann er ákveðinn á hverjum tíma." Þama segir að meðlags- greiðsla megi ekki vera lægri en bamalífeyrir, en ekki að vhún megi ekki vera hærri. Dómsmála ráðuneytið virðist einblína á lægstu mögulega upphæð til handa skjólstæðingum sinum, börnunum, en virða að vettugi möguleikana, sem era margir, augljósir og skyldir, til hærri greiðslu og það miklu hærri. 11. gr. „Tryggingastofnun rik- isins er skylt að greiða móður óskilgetins barns, sem á fram- færslurétt hér á landi meðlag með bami hennar og annan kostnað vegna barnsins, skv. yf- irvaldsúrskurði eða staðfestum samningi, þó ekki meira en bamalífeyri, skv. lögum um al- mannatryggingar og ekki lægri upphæð, þótt úrskurður eða samningur ákveði annað." Þama er sá hængur á að Tryggingastofnunin, sem greið- ir langflestum barnsmæðrum er beinlinis bannað að greiða meira en sem svarar barnalífeyri, jafnvel þótt úrskurður kynni að hljóða upp á annað, sem þó sjaldan er. Þetta þýðir, að ef úr- skurður hljóðar upp á hærri upphæð, yrði bamsmóðir bein- linis að innheimta sjálf hjá bamsföður, það sem umfram væri barnalifeyrisupphæðina. Hætt er við, að það yrði dýr og erfið leið. Úr lögum um afstöðu foreldra til skilgetinna bama nr. 57/1921 10. gr. „Skylt er for- eldrum, báðum saman og hvora um sig að framfæra börn sín þangað til þau era 16 ára gömul." 14. gr. 3. málsgr. „Með- lagsupphæðin fari eftir högum beggja foreldra" og í 4. m.gr. sömu gr.: „Meðlagsúrskurði má breyta, ef hagur foreldris eða barns breytist að mun.“ Rétt er að benda á eftirfarandi í sam- bandi við þessi lög. Ef faðir greiðir ekki tilskilin meðlög verður framfærslusveit hans að greiða þau og þá segir í lögtrn- um. „Greiði framfærsluskyidur eigi meðlagið, telst það fátækra- styrkur honum til handa." Þessi tilvitnuðu orð eru úr niðurlagi 2. málsgr. 16. gr. nr. 57/ 1921. Hversu margir skyldu gera sér grein fyrir þessu. Allmargir þeirra b'amsfeðra, sem um er að ræða og ekki greiða með barni sínu eru hátekjumenn. Það hefði einhvern tima þótt saga til næsta bæjar á Islandi, að slíkir menn væru á sveitinni. 19. gr.: „Foreldrar skulu, svo sem þeir eru færir um, ala önn fyirir bömum sínum 16 ára og eldri, og mega börnin ekki verða sveitarþurfar, meðan þau eiga foreldra á lífi, sem er þess um- komið að annast þau. Söm er skylda barns gagnvart foreldri." Hváð skyldu margir gera sér þetta ljóst? Dæmi era um, að gamalt fólk, sem e.t.v. á mörg börn, vel stæð, hafi orðið að leita til sveitarfélags til að geta fatað sig eða keypt persónuleg- ar nauðsynjar, af þvl að bömin hafa hreinlega gleymt þörfum þess!! Þetta gerist á Islandi í dag. Núverandi dómsmálaráðherra er kona og hlýtur hún að gera sér fyllilega ljósa grein fyrir óviðunandi ástandi i þessum mál um og er ekki öfundsverð af því að brjóta fasta hefð i ráðuneyti og hefur etv. ekki óbundnar hendur að gera það. Allt framanritað tel ég ein- göngu varða rétt barna, og era þau mörg, er fylla þann hóp er hér um getur eða % af þeim böm um, sem eru að alast upp í dag. Börn einstæðra feðra eiga að hafa sama rétt til meðlags frá móður eða lífeyrisgreiðslna úr Tryggingastofnuninni. Nú virðist augljóst, að ein- hver verður að ganga fram fyr- ir skjöldu fyrir þessi börn, fyrst dómsmálaráðuneytið er þess ekki umkomið og skora ég þvi á nefnd þá, sem hefur með hönd- um endurskoðun á löggjöf trygg ingamálanna að tryggja þessum bömum viðunandi meðiags- greiðslur og herða á innheimt- um, svo það komi ekki í hlut hins almenna skattgreiðanda að borga fyrir þá, sem skyldumar eiga að bera. Þjóðleikhúsið vantar hreingerningamann frá naestu mánaðamótum. Fullt starf. Upplýsingar hjá húsverði. Sími 11899 og 11204. Höfum til sölu skólaborð með stólum af 3 stærðum fyrir barnaskóla, einnig hentug fyrir börn í heimahúsum. Sölunefnd varnarliðseigna. Staðgreiðsla RAÐHÚS í HAALEITISHVERFI eða EINBÝLISHÚS í smáíbúða- hverfi óskast til kaups. Eignin þyrfti ekki að losna fyrr en í sumar, en gæti greiðst upp að fullu, (sérhæð kæmi vel til greina einnig). Allar nánari upplýsingar veitir: EIGNAMIÐLUIMIIM Vonarstræti 12, símar 11928 og 24534. Atvinna Heildsölufyrirtæki óskar að ráða mann til lagerstarfa. Þarf að hafa bílpróf. Umsóknir sendist afgr. blaðsins fyrir n.k. mánudag merkt: „Stundvísi — 7063". Ö.B.I. Ö.B.I. ÚTBOÐ Tilboð óskast í Miðstöðvarofna í hús öryrkjabandalags Islands Hátúni 10 A. Útboðsgagna má vitja á teiknistofuna Óðinstorgi, Óðins- götu 7, 3. hæð. Þrastalundur Veitingaskáli UMFl í Þrastaskógi er til leigu næsta sumar. Tilboð óskast send í skrifstofu Ungmennafélags íslands, Klapparstíg 16, eða í pósthólf 406, fyrir 20. þessa mánaðar. Ungmennafélag Islands. Verzlunin GLITBRÁ Nýkomið KJÓLAR og KÁPUR á telpur. FRAKKAR á drengi 2ja—5 ára. TERYLENEBUXUR, hvítar og rauðar. Sími 10660. H júkrunarkonur Hjúkrunarkonur óskast á lyflækningadeildir Borgarspítalans. Upplýsingar gefur forstöðukona spítalans í síma 81200. Reykjavík, 8. 3. 1971. Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar. H júkrunarkonur Staða deildarhjúkrunarkonu við hjúkrunar- og endurhæfinga- deild Borgarspítalans er laus til umsóknar. Upplýsingar gefur forstöðukona Borgarspítalans, í síma 81200. Reykjavík, 8. 3. 1971. Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar. Sjómenn 4 vana háseta vantar á 100 tonna netabát sem raer frá Sandgerði. Upplýsingar í síma 50993 og eftir kl. 7 á kvöldin í síma 52798. Háseti óskast á m/b Andvara Re 101 sem rær með net frá Þorlákshöfn. Upplýsingar í síma 25428. Ungan mann vantar til útkeyrslu eftir hádegi nú þegar. Upplýsingar DENTALÍA H.F., Laugavegi 178. ooooooooooooooooooooooooooo KA UPUM HREINAR, STÓRAR OG GÓÐAR LÉREFTSTUSKUR PRENTSMIÐJAN OOOOOOOOÓOOOOOOOOÓOOOOOOOOO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.