Morgunblaðið - 11.03.1971, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.03.1971, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1971 Ræktum hér meiri lax en nokkur önnur þ j óð Viljum algert bann við úthafsveiðum Viðtal við í»ór Guðjónsson, veiðimálastjóra Mikiö hefur verið skrifað um laxveiði Dana við Vestur-Græn- land að undanförnu og hávær mótmæli ýmissa hópa í Banda- ríkjunum og Kanada, svo.og við brögð Dana við þeim. 1 þessum umræðum um að Danir séu að ausa þarna upp úr sjó laxi, sem ekki muni því skila sér heim í sínar ár og á krók réttra lax- veiðimarma, hefur íslenzki lax- inn litt komið við sögu. Af skilj- anlegum ástæðum kannski, þvi lítið er vitað um ferðir hans í sjónum. Til að sleppa heimalax- inum ekki alveg úr þessum um- ræðum, leituðum við til Þórs Guðjónssonar, veiðimálastjóra og spurðum hann m.a. hvort ís- lenzkur lax væri við Vestur- Grænland, þar sem Danir veiða mest. >ór sagði, að lítið væri um það vitað. Aðeins 3 merktir lax ar hefðu skilað sér annars stað- ar en hér heima. En búið er að merkja um 45 þúsund göngu- seiði. Væri reynt að merkja um 10 þúsund á ári. Þessir þrír lax- ar fundust sinn i hverri áttinni. Einn veiddist í september við Vestur-Grænland, nánar til tek- ið út af Sukkertoppen, á svip- aðri breiddargráðu og Vestfirð- ir. Annar merktur íslenzkur lax fannst 1. júlí 1968 við Fær- eyjar. Sá hafði verið merkt- ur 1967 og sleppt í Tungulæk. Og sá þriðji veiddist við Noreg, inni í Norðfirði, á 62 breiddar- gráðu eða beint hér austur af Islandi. Þessir þrir laxar, sem fundust á fjarlægum slóðum, eru úr hópi 15.646 laxa, sem merktir voru í Kollafirði á ár- unum 1966- -69, en af þeim skil- aði sér alls 361, flestir heim til Islands. Þessir þrír gefa því ekki miklar upplýsingar og við spurðum Þór hvort menn hefðu þá ekki hugmynd um á hvaða slóðum íslenzki laxinn héldi sig eftir að hann gengur í sjó. — Nei, maður veit ekki hvert hann fer í sjónum, svaraði veiði málastjóri, ekki öðru vísi en að maður fær vissar bendingar um það af þessum fáu merkingum. Laxinn fer út úr ánum og er gert ráð fyrir að laxaseiðin fylgi helztu straumum, fyrst eftir að þau koma i sjó, en þá eru þau 10—15 sm á stærð. Líklegt er þó að seiðin frá Suðvesturlandi lendi i Irmingerstraumnum, sem er hringstraumur er myndast milli kalda Grænlandsstraums ins og hlýja Golfstraumsins. Sá straumur er mjög áturíkur. Seið in a’ast þá upp á þessu svæði og skila sér svo í árnar. Én um 60% af okkar laxi hefur reynzt vera eins árs lax. Þetta gildir þá, ef seiðin eru eitt ár í sjón- um. Séu þau lengur, er hætt við að þau lendi suður fyrir odda Grænlands og á öðru aldursári i Grænlandsveiðunum, sem fara fram seint á sumrin. Þann- ig gæti þessi merkti lax, sem fannst þar, verið kominn þang- að, og ólíklegt að hann sé einn á ferð. — En hvað þá um laxaseiðin, sem koma í sjó annars staðar? r— Líklegt er að eitthvað af okkar laxi fari með Golf- straumnum norður og austur um land og að sá, sem fannst við Færeyjar, hafi verið þannig til kominn. Fyrir austan og norð- austan land eru ýmsir straumar. Til dæmis var síldin okkar á hringsóli með straumum þar, meðan hún var hér. Eins gæti einn og einn lax flækzt austur um með slíkum straumum og þannig hefði merkti laxinn við Noreg verið þangað kominn. — Það eru þá engar sérstak- ar líkur á að mikið sé af laxi héðan í afianum við Vestur- Grænland? Hér voru í fyrra sérfræð- ingar frá Sameinuðu þjóðunum, sem ekki töldu líklegt að okk- ar lax væri þar í stórum stil. í þeirri veiði kemur fram mest af merktum laxi frá Kanada og Skotlandi. Kanadamenn fengu t.d. árið 1965 72 merkta laxa af 16500, sem þeir höfðu merkt heima. írar, sem merkja minna en við, hafa fengið þaðan fleiri merkta laxa. En því hefur verið haldið fram, að merkin komi ekki til skila. Það fer auðvitað mikið eftir viðhorfi fiskimann- anna. Og við vitum í rauninni ekki hve mikið við leggjum til af laxinum, sem veiðist við Grænland. — Þá vaknar sú spurning hvort laxastofnarnir frá hinum ýmsu löndum haidi sig sér i sjónum eða hvort þeir blandist saman? — Maður veit ekki hvernig laxinn hegðar sér í sjónum. Mest af þeim laxi, sem veiddur er út af Noregi, er úr norsku ánum. Þar hefur úthafsveiði far- ið vaxandi siðan 1965 á svæð- inu frá 30—150 sjómílur vestur af Noregi. Það er eins og lax- l*ór Guðjónsson. inn aðgreini sig, þegar hann kemur af hafinu. Og svo virðist sem laxinn, sem er í ætisleit við Grænland, komi mest frá lönd- unum þar fyrir sunnan. Ekki virðist því um að ræða alltof mikla blöndun á laxastofnum. — En eru laxamið hér við ís- land? — Lax er sjaldgæfur í hafi úti við ísland. Hér veiðist einn og einn lax, sjaldan margir í einu. Ég veit til að bátur hafi fengið 7 laxa við Koibeins- ey. En ég hef aldrei getað rak- ið þessar sögusagnir, sem alltaf skjóta upp kollinum öðru hverju, að brezkur togari hafi fengið fullfermi af laxi hér við land. Þær hafa alltaf runnið út í sandinn, ef átti að rekja heim- ildir. íslendingar hafa tekið af- stöðu með veiðibanni á úthaf- inu, hélt Þór áfram. Enda höf- um við óttazt að okkar lax yrði veiddur í sjó. Því hefur málið verið tekið upp á alþjóðavett- vangi, bæði í Fiskveiðinefnd Norðaustur Atlantshafsins NEAFC og Fiskveiðinefnd Norð vestur Atlantshafsins ICNAF. í mai 1969 hélt Norðausturnefnd- in fund í London, þar sem sam- þykkt var bann við laxveiðum í úthafinu með 10 atkvæðum gegn þremur og ein þjóð, Portúgalar, sat hjá. Á fundi Norðvestur- nefndarinnar var samþykkt til- laga sama efnis með atkvæðum 11 þjóða, en á móti voru Danir og Vestur-Þjóðverjar, en Portú- galir sátu hjá. Þannig hafa 14 lönd af 18, sem aðild eiga að hinum tveimur alþjóðlegu fisk- veiðinefndum við Norður- Atlantshaf greitt atkvæði með banni við laxveiði í úthafinu og þrjú lönd hafa verið andvíg og eitt land setið hjá. í starfsregl- um beggja nefndanna er svo ákveðið, að ef þjóðir hafa tjáð sig fylgjandi takmörkunum á veiði fisktegundar, hafa þær siðferðilegar skuldbindingar til að fylgja slíkum takmörkunum eftir, hver í sinu landi. Ef á hinn bóginn, að þjóð lýsir sig andvíga samþykkt nefndra al- þjóðastofnana og sendir and mæli innan þriggja mánaða frá samþykkt veiðitakmarkana þá er hún ekki skuldbundin tii þess að fara eftir samþykktinni, en tillagan þarf tvo þriðju at- kvæða til að hljóta samþykki. Nú hafa Danir, Svíar og Vest- ur-Þjóðverjar andmælt sam- þykkt Norðvesturnefndarinnar og telja sig ekki viija hlíta henni. 1970 var því samþykkt að takmarka heildartonnafjölda laxveiðiskipa á starfssvæði nefndarinnar við Vestur Græn- land við það sem hann var 1969, að Dinda laxveiðitímann á úthaf inu við tímabilið frá 1. ágúst til 30. nóvember, að nota ekki botn vörpu, eingirnisnet eða færa- drátt, þó má nota þau eingirn- isnet, sem keypt höfðu verið fyr ir 1. júlí 1970. Þessar veiðitak- markanir gildi árið 1971. Með til lögunni greiddu tíu þjóðir at- kvæði, en fjórar þjóðir voru á móti, þ.e. Kanadamenn, Islend- ingar, Pólverjar og Rússar. í Norðaustur-nefndinni var einn- ig samþykkt málamiðlunartil- laga, sem gekk í gildi um ára- mót, en Island greiddi atkvæði á móti. ísland hefur sem sagt fyllt þann flokkinn, sem vill algjört bann við laxveiðum á úthafinu. En þar sem einstakar þjóðir i alþjóðlegu fiskveiðinefndun- um, hafa neitunarvald um sam- þykktir, verður að fara sam- komulagsleiðir til þess að ná fram veiðitakmörkunum eins og þeim, sem nú hafa verið ákveðn- ar. Þessar takmarkanir koma til framkvæmda á þessu ári og verð ur fróðlegt að sjá hver verður útkoman. -— Já, við veiðum ekki sjálf neinn lax i sjó? — Nei, við ræktum hér meiri lax en nokkur önnur þjóð. Norð menn veiða 10 sinnum meiri lax en við, en við höfum farið fram úr þeim í framieiðslu á göngu seiðum. Og við höfum það fram yfir þá, að ekki má veiða hér lax í sjó. Hann kemur því í árn- ar og hægt að veiða hann þar á stöng og selja dýru verði. Við seljum yfir helminginn af öllum laxi meðan hann er enn i ánum, þ.e. að við seljum vonina í lax- inn. í fyrra veiddum við 56 þús- und laxa, sem er algjört met. Þar af veiddust 4187 í Kolla- fjarðarstöðinni og munar auðvit að um það. Samt er þetta mikil aukning annars staðar, því mesta veiði áður var 41 þúsund laxar á árunum 1967 og 1968. Veiðisvæðin eru alltaf að stækka, búið að lengja laxveiði- árnar um 300 km með fiskiveg- um og við höldum því áfram. Nú er búið að ljúka laxastigan um í Kattarfossi í Hitará, sem lengir laxveiðiána um 30 km. Og verið er að byggja stiga í Svartá í Skagafirði, sem lengja ána um 20—30 km. — Nú hafa heyrzt raddir um að ekki megi láta laxinn útrýma si-lungi ? — Já, það hefur heyrzt að sil ungur væri verðmætari en lax, en staðreyndin er nú samt sú að laxinn er miklu verðmætari. Og alls staðar i heiminum, þar sem lax er, hefur verið tekin sú stefna að gera stiga og hleypa laxinum upp árnar. Norðmenn telja sig hafa byggt hátt á ann- að hundrað laxastiga í Norður- Noregi síðasta aldarfjórðung- inn, til að gera það landsvæði byggilegra. Við höfum lagt mikið fé í rækt un, hélt Þór áfram. Ríkið hef- ur komið upp tilraunastöð í Kollafirði og einstaklingar hafa byggt 10- 11 fiskeldistöðvar. Víða er lika geysimikið gert til að auka veiðina með því að sleppa seiðum og rækta upp nýj ar laxveiðiár. Einnig hefur ver- ið mikið unnið að því að rækta upp vötn, eins og Kleifarvatn og fleiri, sem voru fisklaus áður. Við vonumst til að koma veiði- vötnunum í nýtt kerfi, þannig að stofnuð verði veiðifélög um vötnin, sem taki upp ræktun, eft irlit óg bæti aðbúð veiði- manna. í því skyni erum við með ýmsar tilraunir í Kollafirð- inum, sem við ætlumst ekki til að séu teknar upp fyrr en við erum komnir lengra með þær. Allt kostar þetta mikia vinnu og mikla peninga. Og markmið- ið er að auka ræktunina veru- lega á næstu árum. Um klámgróða Mikið hefur verið skrifað og skrafað um klám undanfarið, og sitt sýnist hverjum. Eðlilega eru um þessi mál mjög skiptar skoð anir, enda gætu þær eðli máls- ins vegna aldrei orðið annað en mjög andstæðar, og kemur þar bæði til mismunandi viðhorf kynslóða og starfsstétta. Til sveita er eðlilegt málfar að tala um yxna kú og að sækja naut, um blæsma ær, sem hlaupa, að fara út með hrút og ekki fá- ist ungar úr eggjum nema hani sé í hópnum. Um þetta er talað án tepruskapar, vegna þess að þetta er nauðsynlegur þáttur í lífinu, og enginn telur þann mann klæminn, sem talar um þetta af nauðsyn, en þetta verð ur klám, þegar það er notað þar sem það á ekki við. 1 augum feðra okkar og mæðra og auðvitað á það sama við um afa og ömmur þeirra, sem yngri eru, er sumt af því, sem viðgengst nú, argasta sið- leysi. Það þótti ekki gott að vera stuttklæddur, hvað þá þeg ar pilsið nær aðeins niður fyr ir skiptingu, eða tæplega það. Hins vegar var rætt um það áð ur fyrr, að visu vel fyrir þeirra daga, hvort gesturinn, sem kom á bæinn, væri vel kýldur, i aug- um nútíma manna væri þetta versta klám. Þess vegna getum við aðeins orðið sammála um eitt, þegar rætt er um klám, og það er að skoðinir verða alltaf skiptar og ekki verður hægt að skilgreina klám, svo tæmandi sé. Hins veg ar tel ég, að vel flestir og allir utan sárafárra, sem hagsmuni hafa, séu sammála um, að ekki eigi að hafa klám að féþúfu eða löngun fólks til þess að lesa um eða skoða kynferðislifið, eðlilegt og afbrigðilegt, frá ýmsum hlið- um, enda hefir það verið hulið leyndarhjúpi um aldaskeið. Ég ætla þvi að setja hér fram mjög raunhæfa tillögu til úrbóta, sem vafalítið losaði þá, sem hafa gam an af að horfa á ósiðlegar myndir eða lesa of djarfar sög- ur, við áhyggjur af sálarheill og siðferðisþreki náungans, sem kynni líka að hafa gaman af þessu. Öli dómsmálastjórn í þróuðum ríkjum, er svifasein en vinnur hægt og örugglega. Málarekst- ur um hvort viðkomandi mynd eða blað sé ósiðlegt tekur lang- an tíma og þegar loksins dómur kemur, hafa flestir gleymt sök- inni og hafa samúð með hinum seka. Enda gera bönn á þessu sviði ekki gagn vegna þess, að finni almenningur ekki beina gagnsemi í banninu snýst hann gegn því. Og svo má hefta eða takmarka prentfrelsið af ósvifn um stjórnmálamönnum og vitna til ákvæða sem þyrftu að vera, ef hægt væri, að gagni að tak- marka lesefnið á markaðnum, sem að sumra dómi flokkast undir klám. En við höfum verðlagseftirlit, sem er raunhæft, og við skulum nota það til að koma í veg fyrir að gróðafikn ráði lesefni okkar á komandi árum um samlíf kynj- anna, og myndum, sem við skoð- um eða sjáum í kvikmyndahús- um eða i sjónvarpi. Mín tillaga er þessi: Allt les- efni, sem flokkast undir það að vera á mörkum hins ósiðlega, verði sett undir verðlagseftirlit og megi selja það aðeins fyr- ir föstum kostnaði, þ.e. prentun og pappir, en ekkert hugsað fyrir höfundalaunum, þýðing- arlaunum eða dreifingarkostn- aði. M.ö.o. hver sem er, getur fengið það prentað, sem hann vill, og fær að selja fyrir föst- um kostnaði, en verður að dreifa vörunni á sinn kostnað, og fær engin höfundar- eða þýðingar- laun. Það sama gildir einnig um kvikmyndir. Þeir, sem taka slík ar myndir, ljósmyndir eða kvik- myndir, sem eru á mörkum þess að vera ósiðlegar, að ekki sé minnzt á þær, sem eru þaðan af verri, verða að sýna þær að- eins fyrir föstum reksturskostn aði, ljósi og hita og kaupi starfs fólks. Ekkert verði reiknað með fjármagnskostnaði né mynda- leigu. Og ég skal segja ykkur að þeim fækkaði, tímaritunum með berorðum, ruddalegum sög- um um kynlífið, eðlilegt og óeðli legt, og kvikmyndum, sem aug- lýstar eru sem fræðslumyndir eða eru óvenju djarfar. Þegar gróðasjónarmið hyrfi, yrðu það ekki margir, sem vildu fórna sér til þess að koma þess háttar kyn fræðslu út á meðal almennings. Hins vegar geta þeir, sem teldu sig hafa einhvern boðskap að flytja, komið honum út á prent, ef þeir vildu eitthvað á sig leggja. Og hverjir eiga svo að kveða upp úrskurð um siðferðisgildi mynda og blaða? Aliar nefndir staðna og reynsl an sýnir okkur, að stjórnvöld Framli. á bls. 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.